Viðskipti innlent

Moody´s segir framtíð Íslands óljósa

 

Matsfyrirtækið Moody´s heldur áfram einkunn sinni á ríkissjóði í Baa1 með neikvæðum horfum. Segir í mati Moody´s að efnahagsleg framtíð Íslands sé óljós og að lítið megi út af bregða til að allt fari á versta veg.

Moody´s segir að þrátt fyrir gífurlegar skuldir Íslands haldi það enn stöðu sinni sem fjárfestingarkostur þar sem undirstöður hagkerfisins séu í meðallagi sterkar og stofnanir þjóðfélagsins séu mjög sterkar.

Franm kemur í mati Moody´s að menn Þar á bæ hafa töluverðar áhyggjur af þróun gengis krónunnar. Tekist hafi að ná vissum stöðugleika í genginu með miklum gengishöftum og stuðningi frá Seðlabankanum. Þaqð skipti svo miklu hvernig spilað verður úr spilunum þegar höftunum verður aflétt.

Þróunin á alþjóðavísu mun ráða miklu um framtíðina og hve fljótt Ísland nær að vinna sig út úr þeim vandamálum sem við blasa. Viðsnúningur til hins betra muni gera róðurinn léttari fyrir Íslendinga og öfugt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×