Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spáir helmingslækkun á raunverði íbúða til ársins 2011 Greining Glitnis reiknar með að á þremur árum muni raunverð íbúða lækka um helming á landinu. Er þetta afleiðing fjármálakreppunnar. Þetta kemur fram í nýrri spá greiningarinnar um þróun íbúðaverðs. 29.12.2008 10:34
Einu viðskiptin með Straum í kauphöllinni Aðeins var verslað með hluti í Straumi við opnun kauphallarinnar í morgun. Um tvö viðskipti var að ræða fyrir tæpar 4 milljónir kr. 29.12.2008 10:22
Framkvæmdastjóri ráðinn til Sense Erling Ásgeirsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Sense ehf., sem er eitt dótturfélaga Nýherja. 29.12.2008 10:17
Átökin á Gaza valda hækkunum á olíu og gulli Átökin á Gaza hafa valdið því að heimsmarkaðsverð á olíu og guli hefur farið hækkandi í morgun. Fjárfestar flýja nú í örugg skjól með fé sitt því þeir óttast að allt fari í bál og brand á Gazasvæðinu og að slíkt muni smita út frá sér um allan heim. 29.12.2008 10:11
MP Banki fær áframhaldandi viðskiptabankaleyfi Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að samþykkja áframhaldandi starfsleyfi MP Banka hf. sem viðskiptabanki og þar með til móttöku innlána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í dag. Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október síðastliðinn og var það í fyrstu veitt til 31. desember 2008. 29.12.2008 10:04
Jón Ásgeir: Fjárfesting í Stoðum var mistök „Þegar ég horfi á stöðu Stoða í dag er auðvelt að dæma þá fjárfestingu sem mistök,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, í opnugrein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag. 29.12.2008 09:49
Darling óttast ekki málsókn Íslendinga Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, hefur engar áhyggjur af fyrirhugaðri málsókn íslenskra stjórnvalda gegn breskum. Þetta kemur fram í Financial Times í dag þar sem m.a. er greint frá löggjöf þeirri sem samþykkt var á Alþingi rétt fyrir jólin sem gefur heimild til málsóknarinnar. 29.12.2008 08:10
Tæplega 14.000 uppsagnir í danska byggingargeiranum Þeir eru 13.600, starfsmenn danskra byggingarverktaka sem fengið hafa í hendur uppsagnarbréf síðastliðna sex mánuði. Ef miðað er við hefðbundinn þriggja mánaða uppsagnarfrest er ljóst að stór hópur er þegar orðinn atvinnulaus en margir vinna enn uppsagnarfresti sína. 29.12.2008 07:57
Skuldum Baugs við bankana hugsanlega breytt í hlutafé Financial Times greinir frá því á vefsíðu sinni að íslenska ríkið íhugi nú að leysa til sín eignarhluti Baugs í nokkrum af þekktustu verslanakeðjum Bretlands, eins og House of Fraser og Hamleys. Samkvæmt fréttinni yrði skuldum Baugs við gömlu bankana þrjá breytt í hlutafé í eigu íslenska ríkisins. 29.12.2008 07:49
Bréf hækka á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun, meðal annars í kjölfar frétta af sameiningu ýmissa fyrirtækja. 29.12.2008 07:11
Mánuðir síðan FME fékk ábendingu um grunsamlegar millifærslur Skömmu eftir fall Kaupþings fékk Fjármálaeftirlitið sömu ábendingu og Efnahagsbrotadeild fékk fyrir hálfum mánuði um milljarða millifærslur frá bankanum inn á erlenda bankareikninga. 28.12.2008 18:30
Þriggja prósenta samdráttur á milli ára hjá Baugi í Bretlandi Forsvarsmenn Baugs reikna með því að fyrirtæki þeirra í Bretlandi muni skila þriggja prósenta minni hagnaði fyrir afskriftir og skatta en í fyrra. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs í samtali við Vísi. 28.12.2008 17:04
Kauphöll Íslands féll mest á árinu Kauphöll Íslands er í efsta sæti lista viðskiptatímaritsins The Economist yfir þær kauphallir heims þar sem hlutabréfaverð hefur fallið mest á árinu. Samkvæmt listanum hefur verðmæti fyrirtækja á lista kauphallar Íslands minnkað um 72%. 28.12.2008 09:59
Grunsamlegar millifærslur Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skoðar nú millifærslur upp á samtals hundrað milljarða króna frá Kaupþingi á Íslandi inn á erlenda bankareikninga. Grunur leikur á að stjórnendur bankans hafi fært vildarviðskiptavinum stórar fjárhæðir á silfurfati. 27.12.2008 18:30
200 verslunum Woolworths lokað 200 af rúmlega 600 verslunum bresku verslanakeðjunnar Woolworths verður lokað í dag. Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir greiðslustöðvun í nóvember en keðjan skuldar hátt í 385 milljónir punda. 27.12.2008 17:11
Bankastjórar gömlu bankanna taparar ársins? Sneyptir bankastjórar gömlu íslensku bankanna eru í stórum hópi manna sem tilnefndur hefur verið til verðlauna sem taparar ársins, samkvæmt frétt í viðskiptablaðinu Financial Times. 27.12.2008 12:11
Öfgafullt dæmi um tjón sem hlaust vegna greiðs aðgans að lánsfé Ísland er öfgafullt dæmi um tjón sem hlaust að því hve auðvelt það var að fá lánsfé segir í grein um hrun bankakerfisins á Íslandi í Wall Street Journal í dag. Ísland, þessi fámenna þjóð, hafi verið einn af áköfustu leikendum í alþjóðlegu fjármálabólunni. Því hafi hrun bankakerfisins hér á landi haft áhrif um allan heim, allt frá Tókýó til Mið Austurlanda. 27.12.2008 10:07
Bönkum fækkar í kreppunni 13 danskir og 25 bandarískir bankar hafa horfið af sjónarsviðinu á árinu. Óttast er að fleiri séu í hættu á nýju ári. 26.12.2008 18:53
Útsölurnar hafnar í Bretlandi Jólaútsölur hófust í Bretlandi í dag. Biðraðir mynduðustu um miðja síðustu nótt og segist starfsfólk verslunar í Lundúnum aldrei hafa upplifað annað eins. 26.12.2008 18:48
Verðfall á olíu dregur fleiri ríki inn í kreppu Hríðlækkandi olíuverð á heimsmarkaði er líklegt til að draga enn fleiri ríki í hringiðu heimskreppunnar að mati sérfræðinga. Útlit er fyrir halla á fjárlögum í olíuveldinu Sádí Arabíu og niðursveiflu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 26.12.2008 18:30
Útsölurnar hefjast í Bretlandi í dag Jólaútsölur í Bretlandi hefjast í dag. Neytendur tóku þó forskot á sæluna því útsölur hófust á aðfangadagskvöld á netinu. 26.12.2008 10:08
Kakó ekki dýrara í 23 ár Heimsmarkaðsverð á kakóbaunum hefur ekki verið hærra í 23 ár og hefur verðið hækkað um 70% á árinu. Súkkulaðiframleiðendur segja að hækkunin muni velta beint út í verðlagið og því má búast við verð á einni af vinsælustu sælkeravörunni muni hækka á umtalsvert á nýju ári. 25.12.2008 17:00
Heimsmarkaðsverð á olíu aftur á niðurleið Heimsmarkaðsverð á olíu er aftur á niðurleið eftir örskamma hækkun nú yfir jólin. Í gær lækkaði verðið um 10% og fór niður fyrir 35 dollara á tunnuna að nýju. 25.12.2008 14:05
Fjárfestir fyrir aðalinn í Evrópu framdi sjálfsmorð René-Thierry Magon de la Villehuchet, fjárfestir fyrir auðugustu aðals- og konungsfjölskyldur Evrópu framdi sjálfsmorð á skrifstofu sinni á Þorláksmessu. 25.12.2008 11:07
Lítilsháttar hækkun á mörkuðum í Asíu Þó markaðir séu víðast hvar lokaðir meðal annars í Evrópu og Bandaríkjunum vegna jólahátíðarinnar halda viðskipti áfram í Asíu. 25.12.2008 10:55
Tölvuleikurinn EVE Online á leið úr landinu Hugbúnaðarfyrirtækið CCP, sem framleiðir leikinn EVE Online, íhugar að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi vegna efnahagsástandsins. 25.12.2008 09:57
Salan á Kaupþingi í Luxemborg í uppnámi eftir afsögn Leterme Salan á Kaupþingi í Luxemborg er í uppnámi eftir afsögn Leterme forsætisráðherra Belgíu. Í ljós hefur komið að salan var skilyrt því að belgíska ríkisstjórnin veitti lán til kaupanna en það hafði Leterme ekki tekist að tryggja áður en hann neyddist til að segja af sér. 25.12.2008 09:12
Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street Markaðir á Wall Street lækkuðu í dag þótt ekki hefðu verið mikil viðskipti. Ástæðan er helst rakin til enn meiri lækkunar á húsnæðismarkaði. 23.12.2008 21:35
Erlend félög hækka í Kauphöllinni - íslensk lækka Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um 3,37 prósent í Kauphöllinni í dag og Færeyjabanka um 0,41 prósent. Þetta er eina hækkun dagsins. 23.12.2008 16:42
Kópavogsbær og Árborg semja við Saga Capital Kópavogsbær og sveitarfélagið Árborg hafa samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um sölu og umsjón á opnu skuldabréfaútboði á innlendum verðbréfamarkaði. Í tilkynningu frá Saga Capital segir nú þegar sé búið að selja skuldabréf fyrir Kópavogsbæ fyrir alls 2,4 milljarða en bærinn stefnir að því að sækja sér alls 3 milljarða að láni með skuldabréfaútgáfunni. Skuldabréfaútboð Árborgar er upp á einn milljarð króna og af því er búið að selja 860 milljónir. 23.12.2008 16:33
Whittard býður mögulegum kaupendum í te Hin virta te- og kaffiverslunarkeðja Whittard of Chelsea, sem er í eigu Baugs, á í viðræðum við breskt fjárfestingafélag um kaup á keðjunni. Frá þessu greinir Forbes tímaritið en ekki er uppgefið hverjir standa á bakvið félagið en leitt er að því líkum að fjárfestingafélagið sé í viðræðunum fyrir hönd einhvers samkeppnisaðila Whittard. Whittard er á leið í þrot og er gert ráð fyrir því að nýju eigendurnir kaupi keðjuna úr þrotabúinu. 23.12.2008 15:52
Carnegie afskráð úr kauphöllinni í Stokkhólmi Carnegie verður afskráð í dag úr kauphöllinni í Stokkhólmi. 23.12.2008 13:38
Um 7.000 farþegar með Flugfélagi Íslands Töluvert fleiri farþegar eiga bókað flug um hátíðirnar en á síðasta ári, fjölgunin nemur 8% og dreifist nokkuð jafnt á áfangastaði Flugfélags Íslands en um 7.000 farþegar munu fljúga með félaginu um jól og nýár. 23.12.2008 13:30
Ekki lengur freyðandi sala á kampavíni Salan á kampavíni er ekki lengur freyðandi. Fjármálakreppan í heiminum kemur við kaunin á kampavínsframleiðendum eins og flestum öðrum. Bara í október var salan 16,7% minni en í sama mánuði í fyrra. 23.12.2008 12:52
Lítið lát á veikingu krónunnar, tvöfaldur markaður í augsýn Lítið lát virðist á veikingu krónunnar og hefur gengi hennar gagnvart evru lækkað um 1,2% það sem af er degi þegar þetta er ritað (kl.10:20). Hefur krónan lækkað um 17% gagnvart evru á hálfum mánuði. 23.12.2008 11:57
LSS opnar fjárfestingarleiðir hjá séreignasjóði sínum Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (LSS) hefur lokið endurmati eigna í séreignarleiðum og því hafa fjárfestingarleiðir sjóðsins verið opnaðar að nýju. 23.12.2008 11:28
Minnsta íbúðasala síðan árið 1985 Í síðustu viku var 27 samningum um kaup á húsnæði þinglýst og nam upphæð samninganna samtals 685 milljónir kr. Þetta er umsvifaminnsta vika ársins og leita þarf aftur til desembermánaðar árið 1985 til að finna færri kaupsamninga á einni viku. 23.12.2008 11:02
Verðbólguvæntingar stjórnenda í hæstu hæðum Verðbólguvæntingar stjórnenda fyrirtækja hafa rokið upp að undanförnu. Samkvæmt könnun sem gerð var í nóvember og desember fyrir Seðlabankann væntu forsvarsmenn fyrirtækja 15% verðbólgu á næstu tólf mánuðum. 23.12.2008 10:59
Úrvalsvísitalan undir 350 stigum Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 0,41 prósent í Kauphöllinni í dag og er það eina hækkun dagsins. Á móti hefur gengi bréfa í Straumi fallið um 2,56 prósent, bréf Bakkavarar lækkað um 0,76 prósent og Össurar um 0,5 prósent. 23.12.2008 10:30
Anno horribiles fyrir Danske Bank Illvígur og þrálátur orðrómur um Danske Bank hefur gert 2008 að anno horribiles fyrir bankann sem hefur misst 75% af markaðsverðmæti sínu frá áramótum. Og þar sem bankinn hefur lengi verið flaggskip danska fjármálaheimsins hefur orðrómurinn smitað út frá sér. 23.12.2008 09:48
Alcoa eignast álver Elkem í skiptasamning við Orkla Alcoa og Orkla hafa gert með sér skiptasamning þannig að Alcoa eignast að fullu álver Elkem en Orkla eignast að fullu Sapa Profiles í Bandaríkjunum. 23.12.2008 09:34
Whittard of Chelsea að komast í þrot Hin virta te- og kaffiverslunarkeðja Whittard of Chelsea, sem er í eigu Baugs, rambar nú á barmi gjaldþrots. Forráðamenn keðjunnar hafa beðið Ernst & Young að vera í viðbragðsstöðu og tilbúna að koma að keðjunni sem skiptastjórar. 23.12.2008 08:49
Property Group kaupir eign af Fiona-bankanum Fasteignafélagið Property Group, sem er í eigu Straums, Guðmundar Þórðarsonar, Birgis Bieltvedt og þriggja Dana hefur fest kaup á eign af Fiona-bankanum en bankinn rambar á barmi gjaldþrots og reynir nú að losa sig við eignir til að ná upp lausafjárstöðu sinni. 23.12.2008 08:36
Málum peningamarkaðssjóðanna hugsanlega vísað til lögreglu Til greina kemur að Fjármálaeftirlitið vísi rannsókn á peningamarkaðssjóðunum til lögreglu þyki athugun Fjármálaeftirlitsins á starfsemi sjóðanna gefa tilefni til þess. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem viðskiptaráðherra hefur sent fjölmiðlum. 22.12.2008 17:13
Exista hrynur á síðasta degi Gengi hlutabréfa í Existu hrundi um 33,33 prósent í Kauphöllinni í dag og endaði í fjörutíu aurum á hlut. Þetta er jafnframt síðasti dagurinn sem félagið er skráð á markað. 22.12.2008 17:10