Viðskipti innlent

MP Banki fær áframhaldandi viðskiptabankaleyfi

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að samþykkja áframhaldandi starfsleyfi MP Banka hf. sem viðskiptabanki og þar með til móttöku innlána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í dag. Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október síðastliðinn og var það í fyrstu veitt til 31. desember 2008.

Í tilkynningu frá MP Banka segir að Fjármálaeftirlitið hafi átt í frekari samskiptum við bankann eftir veitingu starfsleyfisins og meðal annars kallað eftir nýjum fjárhagsupplýsingum og upplýsingum tengdri þeirri viðbótarstarfsemi sem felst í móttöku innlána. Á grundvelli þessa nýju upplýsinga er framhald á viðskiptabankaleyfinu samþykkt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×