Viðskipti innlent

Tölvuleikurinn EVE Online á leið úr landinu

Hugbúnaðarfyrirtækið CCP, sem framleiðir leikinn EVE Online, íhugar að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi vegna efnahagsástandsins.

Þetta kemur fram á vef breska dagblaðsins The Guardian. Um 300 þúsund manns út um allan heim eru áskrifendur að internet leiknum EVE Online.

Haft er eftir Eyjólfi Guðmundssyni, hjá EVE Online, að gjaldeyrishöft Seðlabankans komi í veg fyrir að fyrirtækið geti fengið erlenda fjárfesta hingað til lands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×