Málum peningamarkaðssjóðanna hugsanlega vísað til lögreglu 22. desember 2008 17:13
Til greina kemur að Fjármálaeftirlitið vísi rannsókn á peningamarkaðssjóðunum til lögreglu þyki athugun Fjármálaeftirlitsins á starfsemi sjóðanna gefa tilefni til þess. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem viðskiptaráðherra hefur sent fjölmiðlum. Ráðuneytið segir það vera óumdeilt að í ákveðnum tilvikum hafi fjárfestingar í peningamarkaðssjóði Landsbankans verið kynntar sem áhættulausar. NBI hf., sem er nýtt nafn Landsbanka Íslands, og Landsvaki hf., hafi viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða og beðið viðskiptamenn afsökunar á þessu. Gögn í málinu hafi verið send Fjármálaeftirlitinu vegna þessa.Ásakanir um villandi markaðssetninguÍ yfirlýsingu ráðuneytisins segir jafnframt að hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóði Landsbankans hafi gert ráðuneytinu grein fyrir ásökunum fjölmargra einstaklinga um að markaðssetning á peningamarkaðssjóði Landsbankans hafi verið villandi og á köflum beinlínis röng. Í ofanálag séu uppi ásakanir um að óeðlilega stórum hluta fjármuna sjóðsins hafi verið fjárfest í félögum tengdum eigendum Landsbankans. Ennfremur séu uppi ásakanir um að í fyrstu viku októbermánaðar þessa árs, hafi hlutdeildarskírteinishöfum verið ráðið frá því að taka út fé sitt úr peningamarkaðssjóði þó einstökum viðskiptavinum hafi verið ráðlagt að flytja fé sitt í öruggara sparnaðarform. Samkvæmt upplýsingum viðskiptaráðuneytisins er Fjármálaeftirlitið þessa stundina að rannsaka ýmis atriði varðandi peningamarkaðssjóðina allra viðskiptabankanna, þar á meðal fjárfestingar þeirra og markaðssetningu. Ráðuneytið segir að rannsókn sé ekki lokið en reynt verði að ljúka henni sem allra fyrst á nýju ári. Sé ástæða til muni FME vísa málinu til lögreglu, í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki Vegna eðlis og umfangs málsins sé viðbúið að væntanleg rannsóknarnefnd á vegum Alþingis taki málefni peningamarkaðssjóða til sérstakrar skoðunar.Samsetning sjóðanna verði gerð opinber Í yfirlýsingunni segir jafnframt að líklegt sé að einhverjir kjósi að skjóta ágreiningi til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki eða að höfða mál gegn rekstrarfélagi peningamarkaðssjóðsins. Til að tryggja eðlilega málsmeðferð sé afar mikilvægt að engum mikilvægum upplýsingum er varði rekstur sjóðsins og ráðstöfun fjármuna hans sé haldið frá hlutaðeigandi. Viðskiptaráðherra telji mjög brýnt að samsetning peningamarkaðssjóðs Landsbankans verði gerð opinber. Með því verði unnt að draga úr tortryggni milli málsaðila og stuðla að sanngjarnri niðurstöðu málsins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira