Fleiri fréttir

Tilboð Greens stendur enn

Tilboð breska auðmannsins Philip Green um að kaupa skuldir Baugs í íslensku bönkunum stendur enn. Þá hefur hann óskað eftir stuðningi frá Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, við viðskiptin að því er fram kemur í The Times í dag.

Seðlabankinn tekur upp hjáleið - Kallar eftir niðurstöðu um Kaupþing

Í ljósi erfiðleika sem glímt hefur verið við í greiðslumiðlun á milli Íslands og annara landa hefur Seðlabankinn tekið upp „tímabundna hjáleið“ með því að beina greiðslum um eigin reikninga og um reikninga erlendra samstarfsaðila Seðlabankans. Þetta fyrirkomulag hefur tekist vel í Danmörku og bindur bankinn vonir um að það eigi einnig við um önnur lönd innan tíðar. Seðlabankinn segir einnig brýnt að sem fyrst verði ljóst hvernig starfsemi Kaupþings verði háttað því gangsetning nýrra banka flýtir fyrir því að leysa þennan vanda.

FME segir engin hlutabréf í peningamarkaðssjóðum

Af gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið (FME) koma því á framfæri að peningamarkaðssjóðir rekstrarfélaga verðbréfasjóða hafa ekki heimild til að fjárfesta í hlutabréfum, hvorki innlendra né erlendra.

Um 75% af umsvifum Iceland Express er nú erlendis

Fjármálaörðugleikarnir á Íslandi hafa gert það að verkum að um 75% af umsvifum Iceland Express kemur nú erlendis frá. Fyrir ekki svo ýkja löngu voru umsvifin í öfugu hlutfalli, það er 75% voru hér innanlands.

SPRON lækkar vexti um 3,5%

SPRON hefur ákveðið að lækka vexti um allt að 3,5%. Óverðtryggðir útlánsvextir munu lækka um 3,5% og óverðtryggðir innlánsvextir um 2,5-3,5%.

Skuldatryggingarálagið á ríkissjóð komið í tæpa 1.000 punkta

Skuldatryggingarálagið á lán til íslenska ríkisins er komið í 948 punkta samkvæmt CMA Datavision. Þetta þýðir t.d. að ef Rússar ætla að tryggja sitt lán til íslenska ríkisins mun það kosta þá 948.000 evrur á ári fyrir hverjar 10 milljónir evra sem tryggðar eru.

Áréttar að að Fons eigi enn 29% í Ticket

Ticket Travel Group áréttar að engar breytingar hafi orðið á eignarhaldi Fons í Ticket og að Fons eigi en rúmlega 29% hlut í félaginu sem keyptur var af Northern Travel Holding í ágúst s.l.

Enn fellur Bakkavör

Gengi hlutabréfa í Bakkavör féll um 10.9 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Ein viðskipti upp á 2.338 krónur skýra fallið. Viðskipti eru afar fá í Kauphöllinni nú í morgunsárið, eða upp á rúmar 1,2 milljónir króna.

Oxford háskóli tapar 6 miljörðum á íslensku bönkunum

Oxford háskólinn horfir fram á allt að 6 milljarða kr. tap á íslensku bönkunum. Alls áttu 11 háskólar í Bretlandi fé inn á reikningum íslensku bankana í landinu en Oxford horfir fram á mesta tapið af þeim öllum.

Stærstu bönkum Sviss komið til bjargar

Svissneska ríkisstjórnin og fjárfestar munu leggja milljarða franka inn í tvo stærstu banka landsins til þess að bjarga þeim frá hruni. Um er að ræða bankana UBS og Credit Suisse.

Rannsaka gjaldþrot WaMU

Opinberri rannsókn hefur verið hleypt af stokkunum til að grafast fyrir um orsakir þess að Washinghton Mutual-bankinn varð gjaldþrota.

Blóðbað á mörkuðum í Asíu

Markaðir í Asíu hafa opnað með blóðrauðum tölum í morgun og kemur það í kjölfar lækkunar í Bandaríkjunum og Evrópu í gær.

Skammgóður vermir á bandarískum mörkuðum

Hún var ekki langvinn gleðin á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í kjölfar aðgerða Bandaríkjastjórnar til bjargar þarlendum bönkum. Mikið verðfall varð á hlutabréfum í dag og lækkaði Dow Jones vísitalan um 7,87 prósent og er nú 8.577stig.

Glitnislán gjaldféll í dag

Lán Glitnis banka að andvirði 83,3 milljarðar íslenskra króna eða 750 milljónir bandaríkjadala gjaldféll í dag. Reuters fréttastofan segir að þetta verði fyrsta lánið sem Glitnir greiðir ekki af frá því að skilanefnd tók rekstur bankans yfir, en Fjármálaeftirlitið neitaði að tjá sig um það við Reuters hvort lánið yrði greitt.

Stundaglasið tæmdist með Glitni

Líkur eru á að önnur afgreiðsla stjórnvalda á máli Glitnis en að leysa til sín 75 prósenta hlut hefðu veitt bönkunum svigrúm til að komast í skjól.

SPRON starfar óbreytt áfram

Starfsemi SPRON verður óbreytt og unnið að endurskipulagningu og eflingu rekstursins með tilliti til langtímahagsmuna félagsins og gjörbreyttu umhverfi fjármálafyrirtækja, að því er fram kemur í tilkynningu SPRON.

JPMorgan skilar hagnaði á þriðja ársfjórðungi

JPMorgan Chase, stærsti bankinn í Bandaríkjunum að markaðsvirði, skilaði um 527 milljónum dollara í hagnað á þriðja ársfjórðungi þessa árs samanborið við 3,4 milljarða dollara hagnað á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum Kaupþings.

Færeyingarnir rjúka upp um fjörutíu prósent

Gengi hlutabréfa í færeysku félögunum Eik banka og olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði mest í Kauphöllinni í dag. Bréf Eik banka hækkaði um 43,12 prósent en olíuleitarfélagsins um 40 prósent.

Fagna stýrivaxtalækkun

Stjórn Neytendasamtakanna fagnar ákvörðun Seðlabankans að lækka stýrivexti úr 15,5% í 12%. Neytendasamtökin hefðu viljað meiri lækkun stýrivaxta, en þetta er engu að síður mikilvægt fyrsta skref í vaxtalækkun sem er nauðsynleg fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Eimskip fellur um 67 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hefur fallið um 66,67 prósent í dag og stendur gengi bréfa í félaginu í hálfri krónu á hlut.

Westminster Bank tekur ekkert mark á Seðlabanka Íslands

Fiskútflutningsfyrirtækið Ögurvík hefur ekki fengið greiðslur fyrir afurðir sínar í Bretlandi þótt Ögurvík sé komið að aðgang að safnreikingi í Seðlabanka Íslands. Westminster Bank í Bretlandi tekur ekki mark á þessum reikningi.

Seðlabankinn grípur til gjaldeyrisuppboðs

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að grípa til daglegs uppboðs sem veita mun vísbendingu um gengi krónunnar gagnvart erlendum myntum. Um er að ræða bráðabirgðafyrirkomulag í gjaldeyrismálum.

Hvað eru stýrivextir?

Líkt og fram hefur komið á Vísi hefur Seðlabanki Íslands ákveðið að lækkka stýrivexti um 3,5% og verða þeir því 12%. Margir hafa talað um nauðsyn þess að lækka stýrivexti upp á síðkastið. En hvað þýðir þetta? Hvað eru stýrivextir og hvaða máli skiptir þessi lækkun?

Bakkavör hækkar í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í Bakkavör sveiflaðist talsvert í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Það hóf daginn á 11,5 prósenta falli en hækkaði skömmu síðar um 0,117 prósent. Gengi bréfa í fyrirtækinu hafði fallið samfellt hvern einasta dag um 75 prósent á síðustu þremur vikum.

Nýsir tapaði 6 milljörðum kr. á fyrri helming ársins

Nýsir tapaði rúmlega 6 milljörðum kr. á fyrri helming ársins. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld var 373 milljónir kr.. Eftir fjármagnsgjöld og reiknaða skatta var tap af starfseminni sem nam samtals 6.137 milljónum kr.

Seðlabankinn lækkar stýrivexti um 3,5 prósent

Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti sína um 3,5 prósent og verða þeir því 12 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir enn fremur að mikill umskipti hafi orðið í íslenskum þjóðarbúskap undanfarnar vikur.

Sjá næstu 50 fréttir