Viðskipti erlent

Lækkanir á evrópskum mörkuðum

MYND/AFP

Lækkun varð á hlutabréfamarkaði í Evrópu þegar opnað var fyrir viðskipti í morgun.

Þannig lækkaði FTSEurofirst 300 vísitalan um 2,8 prósent og þá féllu hlutabréfavísitölur í Bretlandi og Frakklandi um rúmt prósent. Tveggja daga hækkanahrinu er því lokið. Hlutabréf hækkuðu mjög í verði í kjölfar aðgerða stjórnvalda í stærstu Evrópulöndunum til stuðnings bankakerfinu.

Fjármálastofnanir hafa lækkað mest á mörkuðum í mogun, þar á meðal UBS-bankinn um fjögur prósent og Societe General um þrjú prósent. Lækkanir í Evrópu fylgja lækkunum sem urðu á bandarískum og asískum mörkuðum í gær og dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×