Viðskipti erlent

Rio Tinto frestar eignasölu vegna fjármálakreppunnar

Rio Tinto Group sem á álverið í Straumsvík hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri eignasölu upp á 1.000 milljarða króna vegna fjármálakreppunnar í heiminum.

Eignasalan átti að styrkja félagið í kjölfar kaupa þess á Alcan á síðasta ári. Að sögn Bloomberg-fréttaveitunnar spilar einnig inn í dæmið að Rio Tinto er nú að verjast fjandsamlegri yfirtöku námurisans BHP Billiton sem vill borga 8.600 milljarða króna fyrir félagið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×