Viðskipti erlent

Pálmi opinn fyrir sölu á hluta af Sterling

Pálmi Haraldsson er nú opinn fyrir sölu á hluta af Sterling-flugfélaginu. Þetta kemur fram í viðtali Jyllands-Posten við Pálma.

Pálmi hafnar því að Sterling eigi í erfiðleikum en segir að hann vilji gjarnan fá nýja fjárfesta inn í félagið til að styrkja rekstur þess.

Fram kemur í máli Pálma að Sterling sé skuldlaust, það er skuldar engum öðrum en honum, og sé því ekki komið upp á náð og miskunn banka sem eigi í erfiðleikum.

Pálmi sem átt hefur Sterling í ein fjögur ár segir að nú um stundir séu erfiðleikar upp á borðinu í rekstri flestra flugfélaga heimsins. Hann hafi hinsvegar fulla trú á framtíð félagsins.

Hann vill samt ekki útiloka samruna við annað flugfélag eða aðkomu nýrra samstarfsaðila. "Það er þörf fyrir sameiningar í bransanum," segir Pálmi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×