Viðskipti erlent

Rannsaka gjaldþrot WaMU

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/AFP

Opinberri rannsókn hefur verið hleypt af stokkunum til að grafast fyrir um orsakir þess að Washinghton Mutual-bankinn varð gjaldþrota.

Saksóknarinn í Washington hefur í þessu skyni skipað sveit sérfræðinga frá alríkislögreglunni, fjármálaráðuneytinu, skattstjóra og fleiri stofnunum til að komast að því hvort stjórnendur bankans hafi brotið bandarísk alríkislög í ljósi þess hve margir töpuðu gríðarlegum fjármunum þegar þessi áttundi stærsti banki Bandaríkjanna fór á hliðina 25. september.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×