Viðskipti erlent

Tíminn að falla hjá Philip Green, þrír sjóðir hafa áhuga á Baugi

Tímatakmörk þau sem auðjöfurinn Philip Green setti sjálfur um kaupin á skuldum Baugs í Bretlandi er að verða liðinn. Samhliða því berast nú fréttir um að þrír sjóðir hafi áhuga á kaupunum.

Samkvæmt frétt í Daily Telegraph eru þetta sjóðirnir Permira, TPG og Alchemy sem rætt hafa við íslensk stjórnvöld um kaupin á fyrrgreindum skuldum.

Ekki er talið líklegt að gengið verði að tilboði Philip Green úr þessu en í upphafi bauð hann að kaupa skuldirnar á 5% af nafnverði. Hann hefur hækkað boðið síðan og í fyrradag gaf hann stjórnvöldum 48 tíma til að svara sér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×