Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skipti líklega ein í Slóveníu „Við höldum okkar viðræðum við slóvensku einkavæðingarnefndina áfram,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta. Slóvenskir fjölmiðlar fullyrða að keppinautur Skipta hafi tekið aftur tilboð sitt í slóvenska landsímann. 27.2.2008 06:00
Niðursveiflan að nálgast netbóluna Þegar netbólan sprakk árið 2000 fór Úrvalsvísitalan hér niður um 48 prósent. Í yfirstandandi þrengingum fjármálafyrirtækja nemur lækkunin frá hæsta gildi síðasta árs nú um 44 prósentum. Óli Kristján Ármannsson rifjar upp markaðsþrengingar sí 27.2.2008 06:00
Danske bank á ekki bréfin „Við eigum ekki þessi bréf og við viljum ekki eiga í keppinautum,“ segir Jonas Torp, talsmaður Danske bank. Fram kom í Fréttablaðinu fyrir helgi að nafn bankans kæmi fyrir meðal stærstu hluthafa margra íslenskra félaga, eins og FL Group, Exista og SPRON. Glitnir og Bakkavör munu einnig vera í þessum hópi. 27.2.2008 06:00
Evrunefnd skilar sínu Nefnd sem viðskiptaráðherra skipaði til að fara yfir lagaumhverfi hér vegna væntanlegrar evruskráningar hlutabréfa skilar niðurstöðum sínum á morgun, fimmtudag. 27.2.2008 06:00
Northern Rock skrúfar fyrir ofurlánin Breski bankinn Northern Rock hætti í síðustu viku að veita viðskiptavinum sínum sérstök vildarkjör sem veittu þeim kost á allt að 125 prósenta láni gegn veði í fasteign. Þetta voru einhver vinsælustu lán bankans á síðasta ári, sem gáfu viðskiptavinum kost á að veðsetja sig í topp og vel það enda fengu þeir lán sem var 125 prósentum hærra en sem nam verði fasteignar þeirra. 27.2.2008 06:00
Skuggahliðin á skattkerfinu útskýrð Tekjuskattar draga úr vinnuframlagi einstaklinga og um leið þjóðarframleiðslu. Hagfræðiprófessor segir að fyrir vikið sé minna til skiptanna og það hafi áhrif á lífskjör allra. 27.2.2008 06:00
Stórkaupmenn kjósa um framtíðina Kosið verður um aflagningu Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) á aðalfundi félagsins 7. mars og um samninga við Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) um stofnun nýrra heildarsamtaka. 27.2.2008 06:00
Félag um norska fósturvísa „Við stefnum að því að stofna hlutafélag um innflutning á norskum fósturvísum og sæði,“ segir Jón Gíslason, formaður Nautgriparæktarfélags Íslands. 27.2.2008 06:00
Hættir að selja Lólítu-rúmin Breska verslanakeðjan Woolworths hætti fyrr í þessum mánuði að selja svokölluð Lólítu-rúm eftir kvartanir frá samtökum foreldra þar í landi. Dagblaðið Edmonton Sun segir starfsfólk verslunarinnar ekki hafa tengt rúmin, sem heita fullu nafni Lolita Midsleeper Combi og ætluð eru stúlkum frá sex ára aldri, við samnefnda bók rithöfundarins Vladimirs Nabokov frá árinu 1955. 27.2.2008 06:00
SA vill konur í stjórnir Samtök atvinnulífsins telja að fjölga þurfi konum í stjórnunarstöðum í atvinnulífinu. Samtökin benda á að aðalfundir og stjórnarkjör séu fram undan í mörgum fyrirtækjum. Hlutfall kvenna í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins sé innan við tíu prósent. Ljóst sé að þar halli verulega á konur. 27.2.2008 06:00
Magnús farinn úr Gnúpi „Ég keypti úr Gnúpi áður en við seldum félagið,“ segir athafna- og útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson í Vestmannaeyjum. Gnúpur, sem Magnús átti með Kristni Björnssyni og Þórði Má Jóhannessyni, forstjóra félagsins, var um tíma einn af stærstu hluthöfum í FL Group og Kaupþingi. 27.2.2008 06:00
Kaupþing græðir á breytingum í Bretlandi Ávinningur af því að leggja niður hluta starfsemi bankans er metinn á 98 milljarða króna. 27.2.2008 06:00
Seðlabankinn neitar greiningardeildum Greiningardeildir bankanna fengu afsvar frá Seðlabankanum þegar þær fóru þess á leit að sitja fundi með bankastjórn og fjölmiðlum. Fordæmin vantar segir Seðlabankinn. 27.2.2008 06:00
Bankahólfið: Á skíðum Stjórnendur bankanna keppast nú við að gefa út yfirlýsingar um niðurskurð útgjalda. Búið er að taka fyrir að starfsmenn Kaupþings og Glitnis, þessir lægra settu, ferðist um á Saga Class sé þess kostur. Nú verða starfsmenn bankanna sem sagt að fljúgja með almúganum. Einnig hefur verið hætt við áður skipulagðar ferðir hjá Glitni, til dæmis til Cannes. 27.2.2008 03:00
Glitnir segir upp starfsfólki Fjórum starfsmönnum af sjö í svokallaðri „atburðadeild“ Glitnis banka hefur verið sagt upp störfum, samkvæmt heimildum Vísis. 26.2.2008 21:21
Frekari bið á vaxtalækkunum geti falið í sér mikinn fórnarkostnað Greiningardeild Kaupþings segir að frekari bið á vaxtalækkunum hjá Seðlabankanum en til 10. apríl geti falið í sér mikinn fórnarkostnað. 26.2.2008 17:22
Heildarskuldir heimila við bankakerfi nærri 900 milljarðar Skuldir heimila jukust um 3,5 prósent í janúar samkvæmt tölum um útlán innlánsstofnana frá Seðlabanka Íslands. 26.2.2008 17:10
Kaupþing hækkaði mest í dag Kaupþing banki hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 0,95% og stendur gengi félagsins nú í 746. 365 hf hækkaði einnig um 0,63% og Atlantic Petroleum um 0,25%. 26.2.2008 17:07
Almar hættir hjá Sterling og Taleghani tekur við Stjórn Sterling Airlines A/S hefur ráðið Reza Taleghani í stöðu forstjóra félagsins en hann tekur við af Almari Erni Hilmarssyni sem stýrt hefur félaginu í tæp þrjú ár. Síðustu 10 ár hefur Reza starfað hjá JPMorgan í New York og London þar sem hann hefur unnið með mörgum helstu flugfélögum og félögum í flugrekstri víða um heim. 26.2.2008 15:20
Glitnir ekki á leið úr Lækjargötu Í viðtali við stjórnarformann Glitnis í Markaðnum í dag mátti skilja sem svo að loka ætti útibúi bankans í Lækjargötu. Hér gætir misskilnings. 26.2.2008 13:55
Stjórn Moss Bros klofin í afstöðunni til Baugs Fram kemur í breskum dagblöðum í Bretlandi í morgun að stjórn herrafatakeðjunnur Moss Bros er klofin í afstöðu sinni til Baugs Group. Tvær fjölskyldur sem teljast til afkomenda stofnenda Moss Bros telja að Baugur sé að reyna að kaupa félagið á alltof ódýru verði. 26.2.2008 12:41
Mikill vandi hjá bönkum ef ekki tekst að afla tiltrúar erlendis Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja að mikill vandi blasi við íslensku bönkunum ef þeim tekst ekki að afla sér tiltrú erlendra markaðsaðila og ef ekkert breytist til hins betra á fjármálamörkuðum heimsins. 26.2.2008 12:22
Visa hyggur á risavaxið frumútboð á hlutabréfum Stærsta greiðslukortafyrirtæki heims, Visa, hyggst fara í frumútboð á hlutabréfum sínum vegna ótta við að lánsfjárkrísan á alþjóðamörkuðum muni draga úr kortaveltu og koma þannig niður á hagnaði fyrirtækisins. 26.2.2008 10:36
Kauphöllin í plús í morgun Úrvalsvísitalan í kauphöllinni hefur hækkað um rúmt prósent í fyrstu viðskiptum dagsins og stendur nú í 5.099 stigum. 26.2.2008 10:26
Verne Holding kynnir netþjónabú hér á landi Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag þar sem undirritaðir verða samningar félagsins Verne Holdings við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar í tengslum við rekstur netþjónabús hér á landi. 26.2.2008 10:11
Google leggur kapal yfir Kyrrahafið Google og fimm önnur stórfyrirtæki ætla í sameiningu að leggja breiðbands-kapal á milli Bandaríkjanna og Japan. 26.2.2008 08:56
Hildur og Gunnar Þór á leið úr stjórn SPRON Hvorki Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, né Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í félaginu, bjóða sig áfram fram til stjórnarsetu í félaginu. Þetta má sjá á heimasíðu félagsins. 25.2.2008 21:44
Forstjóri Glitnis lækkar laun sín um 50% Lárus Welding, forstjóri Glitnis, hefur ákveðið að lækka laun sín um 50%. Laun Lárusar voru 5,5 milljónir á mánuði í fyrra en verða nú tæplega 2,8 milljónir króna. 25.2.2008 18:21
Illum á meðal bestu verslana í heimi Danska húsgagna- og húsbúnaðarverslunin Illum er tilnefnd til verðlauna á „Smásöluverðlaununum" sem er samkoma þar sem smásalar heimsins koma saman og verðlauna þá sem þykja hafa skarað fram úr. Illum, sem er í augu Baugs, er tilnefnd sem „Áfangastaður ársins", en þar er smalað saman þeim verslunum, borgum, eða verslunarmiðstöðvum sem eftirsóknarvert er heim að sækja. 25.2.2008 16:53
Ellefu félög hækkuðu í dag Ellefu félög hækkuðu í Kauphöll Íslands í dag. Century Aluminum Company hækkaði mest eða um 6,62% og er það eina félagið sem hefur hækkað frá áramótum, eða um 34,63%. FL Group hækkaði einnig um 1,21%. 25.2.2008 16:37
Baugur gerir óformlegt tilboð í Moss Bros Fataverslanakeðjan Moss Bros tilkynnti í dag að henni hafi boðist tilboð frá Baugi Group um kaup á félaginu. Reuters greinir frá því að tilboðið hljóði upp á 42 pens á hlut. Ekki er víst að af tilboðinu verði en búist er við að næstu skref verði þau að framkvæmd verði áreiðanleika könnun. 25.2.2008 12:30
Pálmi segir kraftaverk að náðst hafi hagnaður hjá Sterling Pálmi Haraldsson, einn af stærstu eigendum Sterling-,flugfélagsins, segir það ganga kraftaverki næsta að tekist hafi að ná hagnaði í rekstri félagsins á síðasta ári. 25.2.2008 10:37
Grænn morgun í kauphöllinni Viðskipti vikunnar fóru vel af stað í morgun og allar tölur í grænu. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,43% og stendur nú í 5.097 stigum. 25.2.2008 10:27
Jón Karl fékk 60 milljónir í starfslokasamning Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, fékk 60 milljónir í starfslokasamning frá félaginu eftir því sem fram kemur í ársskýrslu fyrir árið 2007 sem birt var á fimmtudag. 25.2.2008 09:20
Halldór Kristmannsson ráðinn til Eimskips Halldór Kristmannsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips samstæðunnar. 25.2.2008 07:53
Græn ljós kviknuðu á síðustu metrunum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók kipp upp á við á síðasta hálftímanum sem markaðir voru opnir vestanhafs í dag. Stærstan þátt í viðsnúningnum á á CNBC sjónvarpsfréttastöðin vestra, sem greindi frá því skömmu fyrir lokun markaða að snemma í næstu viku verði greint frá jákvæðum fréttum sem komi skuldatryggingafyrirtækinu Ambac Financial Group til bjargar. 22.2.2008 21:32
VBS fjárfestingarbanki ætlar að sækja um viðskiptabankaleyfi Á aðalfundi VBS fjárfestingarbanka í dag samþykktu hluthafar bankans heimild til að sótt verði um viðskiptabankaleyfi til Fjármálaeftirlits. 22.2.2008 19:28
365 lækkaði mest í Kauphöllinni í dag 365 hf. lækkaði mest í dag af þeim fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands en gengi félagsins lækkaði um 2,47 prósent. 11 önnur félög lækkuðu í dag, Icelandair um 1,94 prósent, Century Aluminum um 1,39 prósent og Straumur-Burðarás fór niður um 1,38 prósent. 22.2.2008 17:05
Gámaþjónustan í útrás í Lettlandi Gámaþjónustan hefur náð töluverðri fótfestu á markaði í Lettlandi. Fyrirtækið hefur nú á einu ári keypt nokkur fyrirtæki á sviði sorphreinsunar og endurvinnslu og um mánaðarmótin síðustu bættist enn eitt í safnið, SIA Eko Kurzeme. Sveinn Hanneson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar, segir í samtali við Vísi að í Lettlandi felist tækifæri þar sem landið þarf að uppfylla harðari kröfur í þessum efnum nú þegar Lettar hafa gengið í Evrópusambandið. 22.2.2008 16:03
Jón Karl verður forstjóri JetX/Primera Air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair, hefur verið ráðinn forstjóri JetX/Primera Air sem ferðaþjónustufyrirtækið Primera Travel Group rekur. 22.2.2008 14:55
Úrvalsvísitalan undir 5.000 stigin Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,90 prósent í Kauphöll Íslands í dag og fór hún undir 5.000 stigin eftir hádegi í dag. Vísitalan stendur nú í 4.990 stigum og hefur fallið um rétt rúmt 21 prósent frá áramótum. 22.2.2008 13:15
Loðnustoppið veikir gengi krónunnar Þau tíðindi að loðnuveiðum hefur verið hætt eru á meðal þeirra áhrifaþátta sem toga krónuna niður nú í vikunni en uppskerubrestur loðnuvertíðarinnar hefur í för með sér minnkandi útflutningstekjur og í kjölfarið versnandi hagvaxtarhorfur. 22.2.2008 11:51
Össur hf. gerir ekki sérstaka starfslokasamninga Á aðalfundi Össur hf. sem haldinn var í dag var m.a. samþykkt að félagið gerir ekki sérstaka starfslokasamninga við stjórnendur eða starfsfólk. 22.2.2008 10:40
Enn ein mínusbyrjun í kauphöllinni Ekkert félag hefur hækkað í fyrstu viðskiptunum í kauphöllinni í morgun. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,45% og stendur nú í 5.011 stigum. 22.2.2008 10:31
Atorkuforstjóri með 117 milljónir í laun og bónusa Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group, fékk rétt rúmar 117 milljónir í laun og bónusa árið 2007 samkvæmt ársskýrslu félagsins sem birt var í morgun. 22.2.2008 10:03