Fleiri fréttir

Knattspyrna og kristindómur

Þórir Stephensen skrifar

Sjónvarpsnotendur á Íslandi hafa að undanförnu notið þess að fylgjast með útsendingum frá HM í knattspyrnu, sem fram fer í Brazilíu um þessar mundir. Þetta er okkur flestum mikil skemmtun, en einnig fróðleikur um allt það regluverk, sem umlykur íþróttina.

Akureyri er góður valkostur

Guðmundur Baldvin Guðmundsson skrifar

Ákvörðun stjórnvalda um að staðsetja höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri er fagnaðarefni. Með henni er Akureyri viðurkennd sem mikilvægur valkostur við höfuðborgarsvæðið fyrir staðsetningu á stjórnsýslustarfsemi.

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna – mikilvægur árangur hefur náðst

Bryndís Eiríksdóttir skrifar

Þann 7. júlí síðastliðinn kom út árleg skýrsla Sameinuðu þjóðanna um stöðu Þúsaldarmarkmiðanna, sem samþykkt voru á svokölluðum Þúsaldarfundi árið 2000. Markmiðin eru átta talsins með mælanlegum og tímasettum undirmarkmiðum sem eiga að nást fyrir lok ársins 2015.

Daginn sem Skeifan brann

Sara McMahon skrifar

Á meðan Skeifan stóð í ljósum logum mjakaðist ég ásamt ótal öðrum ferðalöngum eftir Suðurlandsveginum í átt til höfuðborgarinnar. Ég missti því af brunanum en gat lesið mér til um hann á öllum fréttamiðlum í gær.

Fjármagnshöftin – vernd eða vá?

Þorsteinn Víglundsson skrifar

Afnám fjármagnshafta er mikilvægasta verkefnið sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir í dag. Verkefnið er ekki einfalt og afnámi hafta mun óhjákvæmilega fylgja óvissa, sér í lagi hvað varðar þróun gengis og verðlags.

Lúpínan – ýmist elskuð eða hötuð?

Þórunn Pétursdóttir skrifar

Þessa dagana litast hluti Íslands af fallega bláum lit lúpínunnar. Fólk fer mikinn og ýmist lýsir velþóknun eða vanþóknun sinni á þessari öflugu plöntu. Það skiptir sér í hópa eftir því hvort það er „með eða á móti lúpínu“ og skammast yfir öllum þeim sem voga sér að vera á öndverðum meiði,

Mikilvægt er að þakka fyrir vel unnin verk

Ellen Calmon skrifar

Öryrkjabandalag Íslands kom á laggirnar Hvatningarverðlaunum ÖBÍ, árið 2007. Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja hafa skarað fram úr

Matur og mígreni

Teitur Guðmundsson skrifar

Mígreni er sjúkdómur sem leggst með mismunandi þunga á einstaklinga, frekar konur en karla, tíðni kasta er mismunandi sem og tímalengd, sem aftur hefur áhrif á það hversu veikur viðkomandi verður. Kjarnaeinkenni er mikill höfuðverkur sem er oftast á sama stað í höfðinu (verkurinn minn) og honum fylgja mismikil ógleði, uppköst, svimi, ljós og hljóðfælni.

Hraun og hrossaskítur

Friðrika Benónýsdóttir skrifar

Fréttir af meintu gullæði ferðaþjónustuaðila hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið. Nefnd hafa verið dæmi um næturgistingu í eins manns herbergi á gistihúsi fyrir meira en hundrað þúsund krónur, kökusneiðar á fjórtán hundruð krónur

Sumarflensan

Berglind Pétursdóttir skrifar

Ég fékk flensu í lægðinni um daginn og er nýstaðin upp úr nær sjö daga pest. Einum sýklalyfjakúr og um það bil fjórum sjónvarpsþáttaseríum síðar er ég aðeins að hressast. Líkami minn er samt krambúleraður eftir alla þessa hvíld.

Hjálp

Stefán Ingi Stefánsson skrifar

Grafalvarlegt ástand ríkir nú í yngsta ríki heims, Suður-Súdan. Átök hafa hrakið fleiri en 1,5 milljónir manna á flótta þar sem sjúkdómar, hungur, ótti og óvissa verða veruleiki þeirra. Af þessum fjölda fólks er yfir helmingurinn börn.

Nýr seðlabankastjóri?

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Það var misráðið að höfða mál á hendur ríkinu til þess að knýja það til að standa við þau launakjör sem tilgreind voru í ráðningarsamningi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra við ríkið en var svo einhliða breytt eftir á af hálfu ríkisins.

Matur og merkingar

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað um merkingar á matvælum, sem gefa til kynna að þau séu framleidd með vistvænum hætti. Slíkar merkingar eru mikilvæg leiðsögn fyrir neytendur, sem vilja með vali sínu stuðla að vistvænum búskapar- og framleiðsluháttum.

Hégómafulla móðirin

Snærós Sindradóttir skrifar

Móðurhlutverkið þykir óeigingjarnt og vanþakklátt starf. Það er þekkt stærð að mæður fá ekki frið á klósettinu og eftir að hafa alið upp stjúpbörnin tvö í tæplega þrjú ár hef ég fyrirgert rétti mínum til að læsa að mér í sturtu.

Fótskriða á hálu svelli

Þorsteinn Pálsson skrifar

Sjávarútvegsráðherra hefur fundið fyrir því í vikunni að svellið er ekki besti staður til að vera á þegar ákvarðanir eru teknar. Umræðurnar um flutning Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar benda ótvírætt til þess að ráðherranum hafi skrikað fótur þegar sú ákvörðun var tekin.

Þjóðleg Evrópuumræða

Jóna Sólveig Elínardóttir skrifar

Stjórnarskrá Íslands og Evrópumálin eru nátengd umræðuefni. Á þjóðhátíðardaginn kallaði menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, eftir upplýstri samræðu um Evrópumál.

Rétt skal vera rétt

Sighvatur Björgvinsson skrifar

Í grein sem ég fékk birta í Fréttablaðinu fimmtudaginn 3. júlí tók ég þannig til orða, að forsætisráðherra þægi byggðastyrk frá Alþingi fyrir að hafa skráð lögheimili sitt að Hrafnabjörgum III í núverandi kjördæmi sínu.

Leynd hvílir yfir mannúðinni

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Ein af röksemdum andstæðinga hvalveiða er að veiðarnar séu ómannúðlegar; vegna ófullkominna veiðiaðferða sé dauðastríð hvalanna oft langt. Þetta er raunar röksemd sem meira mark er takandi á en ýmsum öðrum, eins og þeirri að hvalategundirnar sem íslenzkir hvalveiðimenn veiða séu í útrýmingarhættu, sem er augljóslega rangt.

Konurnar sem sigruðu heiminn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Eitt kvöld í vikunni var ég staðráðin í því að fara snemma að sofa. Svo gerðist það. Ég fann heimildarmynd sem ég þurfti að horfa á. Helst strax í gær. Heimildarmynd um konur sem mótuðu æsku mína.

Vond vinnubrögð

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Ekki hefur starfsfólk Fiskistofu stokkið hæð sína af fögnuði þegar sjávarútvegsráðherra tilkynnti að störf þess myndu flytjast frá Hafnarfirði til Akureyrar í einu vetfangi, enda bárust fréttir af því að starfsfólki hefði verið boðin áfallahjálp í framhaldinu.

Prófessor í útúrsnúningi

Steinþór Skúlason skrifar

Vegna greinar Ólafs Arnalds, prófessors við Landbúnaðarháskólann, í Fréttablaðinu 3. júlí þar sem hann leggur út frá grein þar sem vitnað var í undirritaðan er rétt að eftirfarandi komi fram.

Dýrari strætó, takk

Pawel Bartoszek skrifar

Það er alltaf eins og köld vatnsgusa framan í andlitið þegar maður gengur út á strætóstoppistöð í upphafi sumars og uppgötvar að ferðatíðnin er orðin eins og næturtíðni í mörgum evrópskum höfuðborgum.

Tilboð um heilbrigða samkeppni

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Bandaríski smásölurisinn Costco hefur áhuga á að opna verzlun hér á landi, eins og fjölmiðlar hafa sagt frá undanfarna daga. Sögunni fylgir að Costco vilji líka fá að byggja fjölorkustöð og biðji um undanþágur frá ýmsum íslenzkum lögum og reglum.

Ég kaupi, þess vegna er ég

Hildur Þórðardóttir skrifar

Fyrir nokkrum öldum skrifaði Descartes: "Ég hugsa, þess vegna er ég“. Viðhorfið var einmitt að það sem aðgreinir manneskjur frá dýrum er að þær fyrrnefndu hugsa.

Blikur á lofti í íslenskri hestamennsku

Hallgerður Hauksdóttir skrifar

Við erum gjarnan hreykin af íslenska hestinum, enda ástæða til. Hesturinn er vinsæll hér heima og einnig víða um heim, þykir fjölhæfur, skemmtilegur og mannelskur.

„Það er svo gott að búa í Kópavogi“

Sighvatur Björgvinsson skrifar

"Það er svo gott að búa í Kópavogi.“ Svo mælti þáverandi æðstráðandi á staðnum, Gunnar Birgisson, þegar hann tjáði sig um búsetuúrræði á suðvesturhorni Íslands. "Það er svo gott að búa á Akureyri,“ sagði forsætisráðherra landsins í ræðu sinni norður þar.

Fjarlægðin gerir fórnarlömb falleg

Benjamín Julian skrifar

Einn er sá draugur sem hvílir yfir lífsglöðu heiðingjunum á Vesturlöndum, og hann er fátæktin þarna hinumegin.

Lífræn, vistvæn eða hefðbundin framleiðsla

Gunnlaugur K. Jónsson skrifar

Alþjóðlegar reglur gilda um "lífræna“ ræktun og sjálfstæðir eftirlitsaðilar votta framleiðendur á því sviði. Hér á landi hafa hagsmunaaðilar lengi brugðið fæti fyrir lífræna ræktun og vottun hér á landi. Í því skyni varð til hugtakið "vistvænt“.

Binni og blái traktorinn

Hans Guttormur Þormar skrifar

Binni er framtakssamur maður sem leitar allra leiða til að skapa störf og auka hagsæld á Íslandi og lætur ekkert stöðva sig í þeim efnum. Binni ákvað að nú væri kominn tími til að búa til alvöru íslenskan traktor, fyrir íslenskar aðstæður (eins og hann orðaði það sjálfur).

Þjóðin gerir tilraun til valdaráns

Guðmundur Gunnarsson skrifar

Enn eina ferðina reynir ritstjóri Fréttablaðsins að kasta rýrð á vinnu Stjórnlagaráðs og kallar niðurstöðu ráðsins misheppnaðan hrærigraut.

„Þetta er andskotans nógu gott ofan í ykkur“

Ólafur Arnalds skrifar

Nokkur umræða hefur að átt sér stað um vottun á landbúnaðarvörum í samræmi við framleiðsluhætti. Stærsti hluti framleiðslu dilkakjöts á sér stað samkvæmt svokallaðri „gæðastýringu“, þar sem meðal annars er litið til umhverfisþátta.

Um flutning Fiskistofu

Árni Páll Árnason skrifar

Fiskistofumálið hefur margar hliðar. Það er gott að styðja við atvinnuuppbyggingu í landsbyggðunum og það er ekkert sjálfgefið að öllum störfum sé markaður staður á höfuðborgarsvæðinu.

Ökumannslausir bílar

Bergur Ebbi Benediktsson skrifar

Það er víst komið að því. Google er að þróa ökumannslausa bíla og fullyrða að þeir muni byrja að renna af færibandinu árið 2018.

Átti ekki að spara?

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Áformaður flutningur Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar er umdeildur. Til þessa hefur athyglin aðallega beinzt að hagsmunum starfsmannanna, sem eru augljóslega ekki ánægðir með áformin. Þeir hafa lýst því yfir að enginn starfsmaður ætli með stofnuninni norður.

Hvers konar ímynd ertu að búa til?

Rúna Magnúsdóttir skrifar

Næst þegar þú ýtir á „SENDA“ hnappinn spurðu sjálfa þig áður: „Hvaða tilfinningu er ég að gefa frá mér núna?“

Höfum öll verk að vinna

Ragnheiður Elín Árnadóttir skrifar

Lykilatriði að byrja fyrr en við gerum núna í skólakerfinu að vekja áhuga nemenda á iðn- og tækninámi.

Sjá næstu 50 greinar