Fleiri fréttir

Burt úr borginni

Á mánudaginn síðasta var greint frá því í Fréttablaðinu að fólk af Reykjavíkursvæðinu festi sér húsnæði í auknum mæli á Reykjanesinu. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar. Meðal annars uppbygging í Reykjanesbæ sem gerir svæðið að góðum valkosti og tvöföldun Reykjanesbrautarinnar sem auðveldar allar samgöngur.

Ekki má rýra traust sem byggt hefur verið upp

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Nokkur tímamót urðu hjá Glitni banka í byrjun vikunnar. Breytingarnar koma í kjölfar breytinga á eignarhaldi bankans í byrjun apríl þegar Karl Wernersson og Einar Sveinsson seldu í bankanum hlutabréf fyrir rúma 70 milljarða til Baugs og viðskiptafélaga.

Hrópandinn í reiðimörkinni

Á laugardaginn stóð í Fréttablaðinu að kominn væri út bókaflokkur undir dulnefni. Sagt var að um „hálfgerðar sjoppubókmenntir" væri að ræða og nokkrir hugsanlegir höfundar nefndir. Þó var talið líklegast að ég væri sá rétti „í ljósi þess að svipaða sýn á fjölmiðla má finna í síðustu skáldsögu hennar".

Illugi í glerhúsinu

Árni Páll Árnason skrifar

Flest bendir til að Sjálfstæðisflokkurinn ætli áfram að vega að grunni velferðarkerfisins með innistæðulausum skattalækkunum og lengja biðlista í hinu sovéska velferðarskömmtunarkerfi, sem flokknum virðist svo kært.

Í rjómatertukjól undir pálmatré

Fáar ef nokkrar afhafnir ástfanginna para eru jafn hallærislegar og giftingar. Það var ekki hægt að sannfærast um annað en sannindi þessarar fullyrðingar hér um árið, þegar brúðkaups-tryllingur skók landann og enginn gat gengið í hjónaband með sæmd nema því væri sjónvarpað á frístöð.

Það er hægt að gera betur

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar

Í dag 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar, færi ég öllu launafólki baráttukveðjur okkar í Samfylkingunni og heiti sem fyrr fullum stuðningi í mikilvægu starfi að hagsmunum íslensks launafólks.

Spilling áfram – ekkert stopp

Landsvirkjun er frá því um áramót að öllu leyti í eigu ríkisins og fer fjármálaráðherra nú með eignarhlutinn en ekki iðnaðarráðherra eins og áður var. Engu að síður er í gildi samkomulag milli ríkisstjórnarflokkanna um að Framsóknarflokkurinn ráðstafi stjórnarformannssætinu í Landsvirkjun.“

Vondir en óhjákvæmilegir kostir

Eitt stærsta viðfangsefni stjórnmálanna nú og næstu ár er að finna lausn á fyrirséðum fjárhagsvanda heilbrigðisþjónustunnar. Þó er undarlega hljótt um þennan málaflokk í aðdraganda kosninganna. Kannski er ástæðan sú að verkefnið vex öllum stjórnmálaflokkum í augum?

Hvernig á að hleypa lífi í þetta?

Menn eru að velta fyrir sér hvers vegna kosningabaráttan sé jafn dauf og raun ber vitni. Við vorum að búast við mest spennandi kosningum í mörg ár. Nú er eins og þetta sé allt að koðna niður. Aðalástæðan er líklega sú að það er ekki verið að takast á um nein málefni sem fólki finnst skipta verulegu máli...

Sjálfstæð utanríkisstefna

Fullt tilefni er til að ræða stefnumál stjórnmálaflokkanna í utanríkis- og alþjóðamálum nú þegar fáeinar vikur eru til kosninga. Tvennt stendur vissulega upp úr í því efni undanfarin ár. Þátttaka Íslands í ólöglegu árásarstríði í Írak og brottför Bandaríkjahers frá Íslandi.

Glötuð tækifæri

Bjarni Jónsson skrifar: Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið. Ekkert er fjær lagi en að fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stóriðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heiminum í stað þess að bíða.

Aukum lífsgæði um land allt

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Enginn þarf að efast um að menntun er forsenda framfara í nútímanum. Við búum í öflugu samfélagi þar sem allar forsendur eru fyrir fjölbreyttu atvinnulífi. Til þess að við getum hins vegar tryggt gott samfélag um land allt skiptir máli að fólk búi alls staðar við jafngild tækifæri. Staðreyndin er hins vegar sú að svo er ekki.

Stjórnarsamstarf

Utanríkisráðherra hefur í þessari viku með formlegum hætti staðfest pólitískar viljayfirlýsingar með ríkis­stjórnum Noregs og Danmerkur um varnar- og öryggissamstarf á Norður-Atlantshafi á friðartímum. Þessar yfirlýsingar eru í fullu samræmi við þau áform sem ríkisstjórnin kynnti um aukið samstarf við þessar þjóðir og fleiri þegar varnarlið Bandaríkjanna fór.

Jafnir gagnvart Guði?

Meirihluti presta innan þjóðkirkjunnar hefur hafnað því að gefa saman samkynhneigða. Í forundran spyr maður sjálfan sig hvers vegna þetta gerist á tímum frjálslyndis og umburðarlyndis; á tímum upplýsinga og vitneskju um að samkynhneigð hefur ekkert með perraskap eða ónáttúru að gera.

Af hverju hún?

Opið bréf til nefndarmanna í allsherjarnefnd - Þegar ég fluttist til Íslands fyrir 12 árum síðan, þá 16 ára gömul, var ég án vegabréfs og án þess sem flestum þykir sjálfsögð réttindi hvers manns, þ.e. að hafa að minnsta kosti ríkisfang í einhverju landi. Í því landi sem ég fæddist standa slík réttindi ekki til boða, enda landið ekki sjálfstætt ríki í þeim skilningi sem þjóðir heims hafa ákveðið að skuli gilda í þeim efnum.

Dansað við Geir Waage

Á nýafstaðinni prestastefnu var eitt mesta hitamál samtímans, er varðar jöfn mannréttindi öllum þegnum samfélagsins til handa, tekið fyrir. Einn dagur var tekinn undir umræðuna um málefni hjónavígslu/vígslu eða blessunar samkynhneigðra para innan kirkjulegs samfélags.

Segjum nei við Gamla sáttmála

Margir fengu aulahroll hér um árið þegar Valgerður Sverris­dóttir utanríkisráðherra ávarpaði alþjóðafund á engilsaxnesku. Maður hálfvorkenndi henni, hún var eitthvað svo ringluð á svipinn yfir þessu öllu saman, og illskiljanlegt að ekki skuli hafa verið fenginn túlkur í stað þess að láta hana stauta þetta.

Menningar-verðmæti

Það er einfalt að vera vitur eftir á. Látinn vinur eða ættingi kallar á söknuð þótt maður hafi kannski sjaldan nennt að heimsækja hann í lifanda lífi, náttúra verður að ómetanlegri náttúruperlu þegar búið er að byggja stíflu ofan á hana og brunnir kofar sem enginn pældi í eru allt í einu orðnir svakaleg menningarverðmæti sem verður að endurbyggja í upphaflegri mynd vegna sögulegs gildis.

„Ljóskan í menntamálaráðuneytinu“

Sigurður Kári Kristjánsson skrifar

Jón Baldvin Hannibalsson, guðfaðir Samfylkingarinnar og fyrrum formaður Alþýðuflokksins, var gestur í Silfri Egils á sunnudag. Jón Baldvin hefur raunar verið áberandi í fjölmiðlum á síðustu misserum en framganga hans hefur frekar verið til þess fallin að þvælast fyrir Samfylkingunni í aðdraganda kosninga en hitt. Þátturinn á sunnudag var engin undantekning þar á.

Það er stórt orð Hákot

í janúar árið 2005 birti Fréttablaðið forsíðufrásögn með þriggja dálka fyrirsögn. Þar var greint frá fréttatilkynningu Baugs um að skattayfirvöld hefðu endurálagt skatta á fyrirtækið. Endurálagningin nam 464 milljónum króna. Jafnframt var greint frá yfirlýsingu stjórnarformanns Baugs um að skjóta ákvörðuninni til yfirskattanefndar.

Jafnrétti heima og heiman

Í júní á síðasta ári varð ég þess heiðurs aðnjótandi að verða fyrsta konan í sögu íslenska lýðveldisins til að gegna embætti utanríkisráðherra. Á þeim tíu mánuðum sem ég hef setið við stjórnvölinn í utanríkisráðuneytinu hef ég lagt sérstaka áherslu á að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi við alla stefnumörkun.

Beðið eftir Botox

Í hinum dæmigerðu vinkonuhópum var eitt sinn mjög vinsælt að halda snyrtivörukvöld. Þá söfnuðust þær saman í heimahúsi og létu selja sér fyrir formúur nauðsynlega andlitskornmaska og naglabandasmyrsl sem ekki voru notuð upp frá því.

Hafið á degi umhverfisins

Dagur umhverfisins er öðru fremur til þess hugsaður að umræða um málefni umhverfisins sé sett í kastljós fjölmiðlanna. Við vinstri græn fögnum deginum og tökum þessari áskorun, þó okkur þyki sjálfsagt að málefni umhverfisins séu á dagskrá alla daga ársins. En flestar gjörðir okkar hafa áhrif á umhverfið á einhvern hátt.

Gleðilegan dag umhverfisins

Dagur umhverfisins er nú haldinn hátíðlegur í níunda sinn á fæðingardegi Sveins Pálssonar, fyrsta náttúrufræðings Íslands.

Vanræksla Samfylkingarinnar

Samfylkingin reynir enn að fría sig ábyrgð á skorti á hjúkrunarrýmum í Reykjavík. Það gerði m.a. Steinunn V. Óskarsdóttir, frambjóðandi flokksins hér í Fréttablaðinu síðasta laugardag, 21. apríl. Staðreyndirnar tala hins vegar sínu máli.

Heilsa á heimsmælikvarða

Frá upphafi hafa RAI-mælitækin verið í sífelldri þróun hjá InterRAI, í samstarfi fagaðila frá tuttugu löndum og tekur Ísland virkan þátt í því samstarfi.

Enn um Biblíuþýðingu

Einar Sigurbjörnsson prófessor í guðfræði snýtir sér á síður Fréttablaðsins vegna gagnrýni minnar á nýja Biblíuþýðingu og augljósar falsanir þýðingarnefndarinnar.

Hvort á þjóð að þjóna flokki eða flokkur þjóð?

Ekki þarf að ganga í grafgötur um að tíðindi 2. júní 2004 verða skráð á spjöld Íslandssögunnar. Þann dag braut forseti lýðveldisins blað með því að beita málskotsrétti sínum og þó fyrr hefði verið. Stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafði þá einu sinni sem oftar kveikt elda misklíðar og sundurlyndis í samfélaginu en sá nú sitt óvænna, skaraði þó að logunum fram í júlí en varð þá frá að hverfa. Enn þann dag í dag paufast þó innsti kjarni annars flokksins við að blása í kulnandi glæður.

Aukin ráðdeild með einkaframkvæmd

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Kreddur eru aldrei til góðs og varhugavert þegar saman er blandað stjórnmálum og trúarbrögðum. Trúin er nefnilega þeim annmörkum háð að vera ósveigjanleg og taka ekki rökum, en slíkt kann varla góðri lukku að stýra í lifandi hagkerfi þar sem bregðast þarf við breytingum

Sego eða Sarko

Með því að kjósendur í Frakklandi völdu hægrimanninn Nicolas Sarkozy og sósíalistann Segolene Royal til að eigast við í úrslitaumferð forsetakosninganna í landinu 6. maí völdu þeir skýrar línur.

Í aðdraganda kosninga

Þau sem hafa það að atvinnu eða áhugamáli að spá og spekúlera um þjóðmálin færast nú öll í aukana. Kannski ætti ég frekar að segja þeir, því karlpeningur skipar frekar þennan flokk fólks en konur.

Skandinavíska fyrirmyndin

Jón Sigurðsson skrifar

Stjórnarandstæðingar tala mikið um „skandinavísku fyrirmyndina“. Víst er um það að Íslendingar telja samfélög Norðurlandaþjóðanna að flestu leyti til fyrirmyndar um velmegun, jöfnuð, menningu og almenna hagsæld. Það er aftur á móti ekki þar með sagt að Íslendingar telji skandinavísk samfélög að öllu leyti til eftirbreytni, og má nefna ýmis atriði í því sambandi.

Af skolla, hagvexti og rifum

Íslendingar hafa löngum reynt að komast hjá því að nefna það sem þeim stendur stuggur af réttu nafni. Góð og gömul dæmi er fjöldi þeirra orða í málinu yfir ref eða tófu. Heilladrýgra þótti að nefna dýrbítana sem gátu valdið búsifjum skolla eða lágfótu. Í dag notum við orðið neikvæður hagvöxtur yfir samdrátt sem einmitt getur valdið svipuðu tjóni í nútímasamfélagi og tófan í gamla bændasamfélaginu. Við skiljum ekki óttann við refinn og eins myndu áar okkar eiga erfitt með að skilja hagkerfið nútímans.

Bleikt ský eða bati?

Sagt er að fyrir alkóhólista sem langar að snúa frá villu síns vegar og ná góðum bata sé hollt að fara á 90 AA-fundi á 90 dögum. Í aðdraganda kosninga hegða flestir stjórnmálamenn sér samkvæmt þessari forskrift; þeir duglegustu ná allt upp í 180 fundum á 90 dögum.

Ræður Framsókn úrslitum enn einu sinni?

Helmingaskipti eins og hafa verið tíðkuð í ríkisstjórn síðustu tólf ár virka hjákátleg ef annar flokkurinn er fimm sinnum stærri en hinn. Hugsanlega ættu að vera lög um þetta. Skipti á jöfnu myndu heldur ekki ganga nema Framsókn kalli til fólk sem er utan þings til að manna ráðherrastóla...

Þróun í útrás

Valgerður Sverrisdóttir skrifar

Það er sannfæring mín að öflug alþjóðleg fyrirtæki sem axla samfélagslega ábyrgð sína af heilum hug geti skipt sköpum fyrir efnahagsþróun í fátækari ríkjum heims. Þess vegna tel ég mjög brýnt að auka samstarf hins opinbera og einkageirans enn frekar þegar kemur að þátttöku Íslands í þróunarsamvinnu.

Biljónsdagbók 22.4.

OMXI15 var 7.829,43, þegar ég tók inn tvær parkódín forte í morgun, og Dow Jones stóð í 12.773 þegar skjálftinn hvarf úr höndunum svo að mér tókst að raka mig. Þriggja daga afmælisveislur í Karíbahafi skilja eftir sig ummerki í skrokknum jafnvel þó að sé sálrænt alveg indælt að skemmta sér í skattlausu umhverfi og taka í nösina öðru hverju.

Biðlistapólitík Sjálfstæðisflokksins

Steinunn Valdís Óskarsdóttir skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn er á flótta undan eigin stefnu og aðgerðaleysi í málefnum aldraðra ef marka má grein Ástu Möller hér í blaðinu á sumardaginn fyrsta. Þar beinir hún spjótum sínum að Reykjavíkurborg en þingmanninum til upplýsingar er það þannig að hjúkrunarheimili verða ekki byggð nema með ákvörðun ríkisins.

Sjá næstu 50 greinar