Fleiri fréttir

Óþekkjanleg Hollywoodstjarna

Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, hefur oftar en einu sinni verið talin kynþokkafyllsta kona veraldar. Hún var mynduð á götum New York borgar í gærdag klædd í úlpu, með hárið tekið aftur í tagl og sólgleraugu - nánast óþekkjanleg ef myndir af henni á rauða dreglinum eru bornar saman við þessar myndir sem skoða má hér:

Svona kemstu í dúndur form

Erna Guðrún Björnsdóttir fitnesskeppandi segir mestu máli skipta að borða ekki of mikið í hverja máltíð þegar kemur að því að ná líkamlega góðu formi. "Það sem mestu máli skiptir er að passa sig að borða ekki of mikið í hverri máltið, heldur litið í einu og borða oftar yfir daginn," segir Erna og heldur áfram: "Það sem mestu máli skiptir er að reyna forðast brauð, sykur, unnar kjötvörur og mikið magn af mjólkurvörum yfir daginn. Erna leyfir lesendum Lífsins að sjá hvernig góður dagur þegar kemur að mataræði ætti að vera en auðvitað samhliða hreyfingu á hverjum degi: Morgunmatur - Hafragrautur m/kanil og eplum - Weetabix með fjörmjólk - Boozt m/ávöxtum + skyri Millimál - -Skyr.is + ávöxtur - -Flatkaka m/íslensku smjöri eða létt smurosti og kjúklingaáleggi - -Hrökkbrauð m/kotasælu og gúrku - -Hrökkbrauð m/létt smurosti og kjúklingaáleggi - -Hrökkbraut m/létt smurosti og gúrku - -Hámark/Hleðsla + ávöxtur Hádegismatur - Serrano - Heilsuréttir á nings - Kjúklingur, sætar kartöflur/brún hrísgrjón og salat - Salat m/kjúkling eða túnfisk - Núðlur m/kjúkling, túnfiski eða rækjum - Ommiletta með grænmeti - Boozt m/ berjum og /eða skyri Millimál -Skyr.is + ávöxtur -Flatkaka m/íslensku smjöri eða létt smurosti og kjúklingaáleggi -Hrökkbrauð m/kotasælu og gúrku -Hrökkbrauð m/létt smurosti og kjúklingaáleggi -Hrökkbraut m/létt smurosti og gúrku -Hámark/Hleðsla + ávöxtur Kvöldmatur - Kjúklingur m/sætum kartöflum eða brúnum hrísgrjónum + salat - Kjöt /nauta- eða lambakjöt m/sætum kartöflum eða brúnum hrísgrjónum og salat - Fiskur m/kartöflum (helst sætum) + salat - Núðlur m/kjúkling, túnfiski eða rækjum Snarl -Hrískökur -Popp (poppað í potti) -Ávöxtur (EKKI banana) -Hnetur (passa magn, mikil fita í hnetum)

Ljúka reisunni á mölinni

Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson, Stebbi & Eyfi, ljúka reisu sinni um landið með tónleikum í Salnum í Kópavogi föstudagskvöldið næsta, 30. nóvember.

Eyða aðventunni í Þýskalandi og Sviss

Eyða aðventunni í Þýskalandi og Sviss Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason heldur ásamt hljómsveit sinni í tónleikaferðalag um Þýskaland og Sviss í næstu viku.

Í hlutverk stjúpunnar

Cate Blanchett er í viðræðum við Disney. Gæti farið með hlutverk vondu stjúpunnar í Öskubusku.

Erlendur áhuga á Eiríki Erni

Erlendur áhugi á Eiríki Erni Mikill áhugi er bæði í Þýskalandi og öðrum Evrópuríkjum á nýjustu bók Eiríks Arnar Norðdahl, Illsku.

Skrítnar stellingar og framandi tækni

Mér finnst ofsalega margir í kringum mig vera að "reyna“ að eignast börn. Ég er á óléttualdrinum og ef þú ert ekki ólétt, þá eru líkur á að þú sért nýbúin að eignast barn eða ert að "reyna“ að eignast barn. Ég set "reyna“ í gæsalappir því það er enn talað um slíkt í hálfum hljóðum.

Brennandi Alicia Keys

„Það er langt um liðið og ég er ekki sú sem ég var áður," segir í upphafslínum fyrsta lagsins á Girl On Fire, nýútkominni breiðskífu söngkonunnar Aliciu Keys.

Skiptir út glamúr fyrir þægindi

Harry Potter-stjarnan Emma Watson er oftast með her af stílistum í kringum sig að undirbúa sig fyrir stór kvöld á rauða dreglinum.

Bond-stúlka í munúðarfullum stellingum

Það hefur verið nóg að gera hjá Berenice Marlohe að kynna nýjustu Bond-myndina Skyfall. Þessi franska leikkona hatar það ekki að hafa mikið að gera því nú er hún orðin andlit Omega-úranna.

Ný vinkona?

Leikarinn Ashton Kutcher, 34 ára, og leikkonan Kaley Cuoco, 26 ára, sátu í fremstu röð á leik Los Angeles Lakers og Indiana Pacers í Los Angeles í gær. Leikurinn fór 79-77. Unnusta Ashton, leikkonan Mila, er stödd á Ítalíu við tökur á kvikmyndinni The Third Person en Ashton heimsótti hana á dögunum til Rómar.

Ólétt aftur

Jessica Simpson, 32 ára, og unnusti hennar, Eric Johnson, 33 ára, eiga von á öðru barni. Aðeins sjö mánuðir eru síðan hún eignaðist frumburðinn þeirra, dótturina Maxwell Drew Johnson. Tímaritið Us Weekly staðfesti fréttirnar á forsíðunni - nema hvað!

Umkringd fáklæddum karlmönnum

Leikkonan Rebel Wilson hefur komið eins og stormsveipur inn í bransann síðustu mánuði. Hún er í viðtali við tímaritið Details og situr fyrir á ansi skemmtilegri mynd þar sem hún er umkringd hálfnöktum karlmönnum.

Brad segir börnin vilja brúðkaup

Í apríl á þessu ári trúlofuðust stjórstjörnurnar Brad Pitt og Angelina Jolie og nú bíður slúðurheimurinn vægast sagt spenntur eftir að þær gifti sig með háværri flugeldasýningu. En viti menn engin dagsetning hefur verið staðfest hvað þá svo mikið sem lítill sætur orðrómur um að brúðkaup sé framundan. Parið hefur gefið út yfirlýsingu um að þegar allir mega gifta sig og þá vísar það sérstaklega til samkynheigðar þá ætlar það að ganga í heilagt hjónaband. Nú hefur Extra tímaritið eftir Brad að börnin þeirra þrýsti stöðugt á þau að giftast - þannig að ekki er öll von úti enn. Maddox, Pax, Sahara, Shiloh, Knox, og Vivienne munu sjá til þess að foreldrar þeirra láti verða að því.

Ólétt eða ekki ólétt?

Ef allar sögusagnirnar af Jennifer Aniston reyndust réttar ætti hún orðið stóran hóp barna, en óléttusögur af leikkonunni birtast reglulegar í slúðurblöðunum vestanhafs.

Borgin stútfull af ungu hæfileikaríku fólki - sjáðu myndirnar!

Úrslitakvöldið fór fram í Borgarleikhúsinu á mánudagskvöldið og var í beinni útsendingu á Vísi og PoppTV. Dómnefndin var á einu máli um að atriðin hefðu hvert verið öðru betra og á því leiki enginn vafi að borgin sé "stútfull af ungu hæfileikaríku fólki". Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru umrætt kvöld.

Kaus tölvuna fram yfir kynlíf

Argentínska karlfyrirsætan Leandro Penna hefur ekkert betra að gera þessa dagana en að tala illa um fyrrverandi unnustu sína, Katie Price, sem oft er þekkt undir nafninu Jordan.

Svona fær hún sixpakk

Fertuga glamúrpían Jenny McCarthy er dugleg við að halda sér í formi. Meðfylgjandi myndir náðust af stúlkunni er hún gerði jógaæfingar heima hjá sér í Chicago.

Nákvæmlega eins og Díana

Hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, mætti á viðburð í Lundúnum í gærkvöldi. Hún var stórglæsileg eins og ávallt en það sem vakti athygli var að hún klæddist nánast alveg eins og Diana prinsessa, móðir Vilhjálms Bretaprins, gerði þegar hún var á lífi. Þá var hárgreiðslan ekki svo ólík þrátt fyrir að Kate se vissulega með síðara hár. Tilviljun?

Björt framtíð í Mjölni

Björt framtíð í Mjölni Forsvarskarlarnir innan stjórnmálaflokksins Bjartrar framtíðar eru byrjaðir að æfa Víkingaþrek í bardagaklúbbnum Mjölni.

Á eigin spýtur

Á eigin spýtur Logi Pedro Stefánsson , bassaleikari stuðsveitarinnar Retro Stefson, gaf í gær út sína fyrstu sóló EP-plötu.

Kryddpía í efnislitlu bikiníi

Kryddpían Mel B er ekki þekkt fyrir að fela líkama sinn og það gerði hún svo sannarlega ekki þegar hún eyddi sunnudeginum við sundlaugina á Park Hyatt-hótelinu í Sydney í Ástralíu.

Nakin fyrir GQ

Poppprinsessan frá Barbados, Rihanna er mikið á milli tannanna á fólki fyrir ýmsar sakir. Fólk annað hvort elskar hana eða hatar en tímaritið GQ elskar hana greinilega.

Það er eitthvað svo rangt við þetta

John og Edward Grimes eru stórstjörnur á Írlandi. Hér ma sjá myndir og myndband af tvíburunum þegar vaxdúkkur af þeim voru afhjúpaðar formlega fyrr í dag, þriðjudag. Sumir myndu segja að þessar vaxdúkkur sem eiga að vera bræðurnir væru gjörsamlega misheppnaðar sökum þess að þær likjast drengjunum alls ekki neitt.

Ljóshærðar, laglegar og litríkar

Fyrirsætan og leikkonan Leslie Bibb og Gossip Girl-skvísan Blake Lively eru ekki bara báðar fallegar og ljóshærðar heldur með gott tískuvit í þokkabót.

Hamingjusöm tvíburamamma

True Blood-pæjan Anna Paquin fékk sér göngutúr á Venice Beach á sunnudaginn og tók tvíburana sína með sem eru aðeins tveggja mánaða gamlir.

Kim Kardashian öfundar litlu systur

Ofurfyrirsætan og hálfsystir Kardashian systranna, Kendall Jennar landaði sinni fyrstu Vogue forsíðu á dögunum, og það á undan sjálfri Kim, en hún prýðir nú forsíðuna á Miss Vouge Australia

Fékk sér fuglatattú

X Factor-dómarinn og lærimeistarinn Demi Lovato er ansi hreint hress og skemmtileg. Hún ákvað að fá sér nýtt húðflúr og fékk stjörnuhúðflúrmeistarann Kat Von D til að sjá um það.

Fjölmennt eldhúspartí FM957

Magni, Halleluwah, Poetrix og Ármann Yngvi, Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur. skemmtu í Eldhúspartí FM957. Elías Fannar hitaði upp. Um var að ræða þriðja partí útvarpsstöðvarinnar í vetur - þetta var lang fjölmennasta partíið hingað til.

Slagsmál í Hollywood - ekki fyrir viðkvæma!

Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar má sjá illa leikinn barnsföður Halle Berry, Gabriel Aubry, en þau eiga harðri í forræðisdeilu. Franski leikarinn Olivier Martinez er í dag unnusti Halle en hann slóst við Gabriel þegar hann skilaði af sér dóttur hans og Halle, Nöhlu.

Brad Pitt lét sjá sig

Stórstjarnan og leikarinn Brad Pitt mætti til frumsýningar á kvikmyndinn, Killing Them Softly, í New York í gær.

Kynþokkafull sem áður

Leikkonan Sharon Stone sýndi það á tökustað kvikmyndarinnar, Fading Gigolo, í New York í gær að hún hefur engu gleymt. Stone geilsar enn af sínum fræga kynþokka og lítur glæsilega út þrátt fyrir hækkandi aldur. Það lá einstaklega vel á Stone sem brosti til ljósmyndara og virtist hafa gaman að . Svo mikil stjarna eru hún enn að skórnir voru merktir henni með upphafsstöfunum hennar. Geri aðrir betur.

Verður hann látinn fjúka?

Two and a Half Men stjarnan Angus T. Jones gæti þurft að leita sér að öðru starfi eftir að myndband með honum lak á netið þar sem hann hvetur fólk til að hætta að horfa á þættina vinsælu.

Svona fuku kílóin

Við vitum líklega öll að Jessica Simpson er búin að vera í baráttunni við kílóin enda hefur sú barátta farið fram opinberlega.

Jólastjarnan verður kynnt til leiks í kvöld

Úrslitin í leitinni að jólastjörnu Björgvins Halldórssonar 2012 verða kunngjörð Íslandi í dag í kvöld. Þar mun Björgvin Halldórsson koma sigurvegaranum á óvart. Sigurvegarinn er valinn úr hópi 10 krakka sem komust í undanúrslit og hefur dómnefndin komist að niðurstöðu. Tæplega fimm hundruð manns sendu hér inn á Vísi myndskeið en svo var valið úr þeim í undanúrslitin. Þeir tíu sem komust áfram í undanúrslitin verða á sameiginlegri jólaplötu sem kemur út ásamt Aroni Hannesi sigurvegaranum frá því í fyrra.

Útreiðartúr með Dorrit

Útreiðartúr með Dorrit Breski viðskiptablaðamaðurinn Richard Quest, sem er áhorfendum CNN að góðu kunnur, hefur dvalið á Íslandi síðustu daga.

Eivør frestað

Eivør frestað Í Bókatíðindum 2012 sem komu út á dögunum var sagt frá því að bókin Eivør kæmi út nú fyrir jólin.

Góður boðskapur tæklaður

„Þetta er alíslenskt barnaefni þar sem boðskapurinn um að vera góður við aðra er tæklaður á hressilegan og gleðilegan hátt,“ segir Þorleifur Einarsson, leikstjóri barnaefnisins Daginn í dag.

Eyðir Twitter eftir rifrildi

Tónlistarmaðurinn Chris Brown hefur eytt út Twitter-síðunni sinni eftir að honum lenti saman við bandaríska grínistann Jenny Johnson á samskiptasíðunni um helgina. Rifrildið milli þeirra tveggja byrjaði fyrir nokkrum dögum síðan er Johnson sagði á Twitter "Kallið mig gamaldags en mér finnst Chris Brown eiga að vera í fangelsi“ og Brown svaraði fullum hálsi. Það sem á eftir kom er ekki hafandi eftir enda fóru mörg ljót orð þeirra á milli á hápunkti rifrildisins á sunnudaginn.

Í leðri eins og systurnar

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er elsta Kardashian-systirin en er greinilega farin að taka við stílráðum frá litlu systrum sínum, Khloe og Kim.

Sjá næstu 50 fréttir