Fleiri fréttir

Dóttirin stal senunni

Við frumsýningu myndarinnar Johnny English Reborn biðu flestir ljósmyndarar eftirvæntingarfullir eftir aðalleikara myndarinnar, Rowan Atkinson. Það var hins vegar sextán ára dóttir hans, Lily Atkinson, sem stal senunni frá föður sínum á rauða dreglinum, en hún mætti á frumsýninguna í fylgd foreldra sinna.

MR-ingar, Verzlingar og MS-ingar berjast

Í Týndu kynslóðinni í kvöld mætast lið skipuð MR-ingum, Verslingum og MS-ingum í sérstökum ratleik og þrautaleik sem fram fer í Smáralind. Í hverju liði er einn núverandi nemandi og einn þekktur fyrrverandi nemandi.

"Enskt“ aldrei í efsta sæti

Íslensk lög sungin á ensku á borð við Little Talks njóta oft vinsælda hér á landi. Undanfarin sjö ár hefur ekkert slíkt lag þó orðið vinsælasta lag ársins. Enginn heildstæður listi er til yfir mest spiluðu lög ársins hér á landi. Lagalistinn, sem birtist í Fréttablaðinu á fimmtudögum, sýnir vinsælustu lög hverrar viku í landinu eftir spilun þeirra á Rás 2, Bylgjunni, FM957, X-inu, Kananum og kaupum á Tónlist.is. Hann birtir aftur á móti ekki lista yfir vinsælustu lög hvers árs.

Baðaði sig upp úr laxerolíu

„Já, þetta fór ekki alveg eins og þetta átti að fara,“ segir Sigrún Blomsterberg dansari en hún ætlaði sér stóra hluti í prufunum fyrir dansþáttinn Dans Dans Dans sem fóru fram um helgina.

Ekki hrifin af lýtaaðgerðum

Leikkonan Michelle Pfeiffer er ekki sérlega hrifin af lýtaaðgerðum en segir mikilvægt að fólk sé sátt við útlit sitt.

Hatar óskýr skilaboð frá strákum

Strákar hræða mig. Ég hata óskýru skilaboðin sem þeir senda og ég hata að leika þessa leiki. Ertu hrifinn af mér eða ekki? Segðu mér það bara svo...

Úr sjónvarpi í fatahönnun

Raunveruleikastjarnan Mike Sorrentino, betur þekktur sem The Situation úr raunveruleikaþáttunum Jersey Shore, hefur nú snúið sér að fatahönnun. Sorrentino tók höndum saman við merkið FLOW Formal Wear og hannaði kjólfatalínu sem hlaut auðvitað nafnið The Situation. Línunni hefur ekki verið vel tekið af tískuspekúlöntum og þykir hún vægast sagt hræðileg.

Örkin hans Nóa á hvíta tjaldið

Bandaríski leikstjórinn Darren Aronofsky hefur fengið Paramount-kvikmyndaverið til að fjármagna næstu kvikmynd sína, Noah. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar myndin um Nóa og þær miklu byrðar sem Guð Gamla testamentisins leggur á hann þegar honum er falið að byggja örk og bjarga öllum tegundum jarðar undan syndaflóðinu. Myndin mun að öllum líkindum kosta minnst 130 milljónir dollara í framleiðslu og er gert ráð fyrir að tökur hefjist strax á næsta ári.

Sex tíma langt lag

Bandaríska furðusveitin The Flaming Lips hefur safnað yfir tveimur milljónum króna með því að taka upp sex klukkustunda langt lag með Sean Lennon, syni Bítilsins Johns Lennon. Allur ágóði af laginu rennur til mannúðarsamtaka í heimaborg hljómsveitarinnar, Oklahoma, og til tónlistarháskóla í borginni.

Svona... stattu nú upp frá tölvunni

Maður fyllist af þessari lífsorku og verður endurnærður, segir Ágústa Kolbrún Jónsdóttir kennari í Jógastúdíó sem sýnir í meðfylgjandi myndskeiði einfalda jógaæfingu sem allir sem sitja lengi við tölvu ættu að gefa sér tíma til að gera...

Náttúrulega lúkkið rokkar

Leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Cameron Diaz voru áberandi ferskar í London í gærkvöldi þegar þær mættu í settlegt hóf á vegum Philips, eiginmanns Elizabetu Bretadrottningar, en hann er kunnastur undir titlinum Hertoginn af Edinborg...

Bleikur dagur á morgun

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni eru allir landsmenn hvattir til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 7. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag.

Járnhnefar og ástarleit

Að venju er af nægu að taka í kvikmyndahúsum borgarinnar um helgina. Killer Elite, kvikmynd úr smiðju Sigurjóns Sighvatssonar, verður frumsýnd eins og kemur fram hér annars staðar og svo er vert að minnast á þær þrjár íslensku kvikmyndir sem nú eru sýndar: Sóleyjar, hrafnar og myrra, Eldfjall Rúnars Rúnarssonar og svo þriðja Sveppa-myndin.

Of fullur til að ræna

Vandræðagemlingurinn Pete Doherty verður ekki ákærður fyrir rán sem átti sér stað í Þýskalandi fyrr á þessu ári. Samkvæmt lögreglunni var hann of ölvaður til að geta átt þátt í ráninu.

Tómas býður Yoko

„Yoko verður í bænum. Hún er velkomin ef hún vill koma,“ segir Tómas Tómasson, Stuðmaður og tónlistarstjóri Ob-La-Dí Ob-La-Da. Tónleikar verða haldnir á skemmtistaðnum kl. 22 á laugardaginn í tilefni 71 árs afmælis Bítilsins Johns Lennons. Yoko Ono er einmitt væntanleg til landsins, enda spilar hún í næstu viku á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves með hljómsveitinni The Plastic Ono Band.

Fjör á Októberfest á Kexinu

Þýskur andi sveif yfir Kex Hostel á þriðjudaginn þegar Októberfest hófst þar með pompi og prakt. Bjórinn flæddi í sérstökum Kex-bjórkrúsum sem sumir gestanna áttu erfitt með að lofta enda tóku þær einn lítra af bjór. Klæðnaður barþjónanna á Kex var við hæfi, en strákarnir voru í hnésíðum smekkbuxum og stúlkurnar í sérhönnuðum kjólum.

25 feðgar fá frítt í bíó í kvöld

Lífið á Vísi býður 25 feðgum frítt á forsýningu Real Steal í kvöld þar sem eðaltöffarinn Hugh Jackman, sem skoða má í myndasafni, fer með aðalhlutverkið...

Leitað að Gaga

Sjónvarpsstöðin Lifetime hyggst gera kvikmynd um líf og störf bandarísku söngkonunnar Stefani Germanotta, betur þekktri sem Lady Gaga. Lifetime hefur þegar auglýst eftir leikkonu til að leika söngkonuna en Gaga verður ekkert tengd kvikmyndagerðinni. Myndin verður byggð á bókinni Poker Face: The Rise and Rise of Lady Gaga eftir Maureen Callahan sem kom út fyrir rúmu ári.- fgg

Þokkalega frægar vinkonur

Leikkonan Uma Thurman og unnusti hennar Arpad Busson eru stödd í París á tískuviku í borginni þessa dagana og það sama má segja um fyrirsætuna Naomi Campbell og unnusta hennar, rússneska milljónamæringinn Vladislav Doronin. Vinkonurnar knúsuðu hvor aðra þegar þær hittust fyrir tilviljun á kaffihúsi í gær eins og sjá má í myndasafni.

Kom þægilega á óvart

Sigurjón Sighvatsson frumsýndi á þriðjudagskvöld nýjustu kvikmynd sína, The Killer Elite. Myndin skartar Jason Statham og Clive Owen í aðalhlutverkum auk goðsagnarinnar Roberts De Niro sem Sigurjón segir vera fagmann fram í fingurgóma.

Þrjátíu tíma þrautaganga

„Hér eru allir mjög vinalegir. Ólíkt þeim Rússum sem ég hef hitt,“ segir leikarinn Víkingur Kristjánsson í léttum dúr, en hann var staddur í borginni Norilsk í Síberíu þegar Fréttablaðið náði í hann.

Andrea Gylfadóttir leikstýrir óperu hjá leikfélaginu Peðinu

Andrea Gylfadóttir stígur sín fyrstu skref sem leikstjóri í óperunni Bjarmaland – rísandi land sem leikfélagið Peðið setur upp á Gallery-bar á Hverfisgötu 46. Tilefnið er árleg öl- og menningarhátíð barsins, sem hefst í dag og lýkur á sunnudag.

Afkastamikið ólíkindatól

Þrettánda hljóðversplata Ryan Adams, Ashes & Fire, kemur út í næstu viku. Hann hefur sagt skilið við hljómsveitina The Cardinals og vill einbeita sér að sólóferlinum.

Ef þau væru á lífi í dag

Heimurinn hefur stökkbreyst á þeim árum sem liðin eru frá dauða stjarna á borð við Kurt Cobain, Marilyn Monroe, John Lennon og Janis Joplin. Þau fengu ekki tækifæri til að skrifa inn á Twitter-síðu, berjast gegn ólöglegu niðurhali á tónlist sinni eða fljúga um loftin blá í sérstökum flugbílum. Þetta síðasta hefur reyndar ekki enn orðið að veruleika, en blaðamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og teiknarinn Halldór Baldursson gerðu heiðarlega tilraun til að rýna í líf stjarnanna, væru þær á lífi í dag.

Besta skeitárið á Íslandi

First Try Fail Mondays eru vikulegir hjólabrettaþættir úr smiðju plötusnúðsins Adda Intro. Addi tekur hús á fremstu hjólabrettamönnum landsins og leggur fyrir þá þrautir sem þeir verða að klára. Addi byrjaði á þessu síðasta vetur og hefur sýnt þættina sína hér á Vísi í allt sumar við góðar undirtektir.

Brostu og láttu gott af þér leiða

Föstudaginn 7. október hefst sala á brospinnum eins og Patrekur Jóhannesson, Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi, og Gunnar Þór Andrésson, sýna í meðfylgjandi myndskeiði. Endurhæfing LR, sem er deild innan geðsviðs Landspítalans sem þjónustar ungt fólk með geðrænar raskanir, stendur fyrir sölunni sem gengur út að að skapa aðstæður sem hlúa að reglusömum lífsstíl og heilsu einstaklingsins á meðan á endurhæfingu stendur. Sjá nánar Brospinnar.is.

Þybbinn Axl Rose í Ríó

Rokksveitin Guns N"Roses kom fram á tónlistarhátíðinni Rock In Rio í Brasilíu fyrir skömmu og þótti standa sig ágætlega, þrátt fyrir brösótta byrjun. Sérstaka athygli vakti þó formið á söngvaranum Axl Rose því hann greinilega hefur bætt á sig þó nokkrum aukakílóum að undanförnu. Rose var klæddur í gulan jakka, með hatt og sólgleraugu og þótti nánast óþekkjanlegur á sviðinu. Tónleikunum í Ríó var sjónvarpað beint á netinu. Hljómsveitin hefur verið á tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir plötu sinni Chinese Democracy.

Bjartsýn eftir skilnaðinn

Breska leikkonan Kate Winslet, 35 ára, prýðir forsíðu tímaritsins Harper´s Bazaar. Þar ræðir Kate líf eftir skilnaðinn við leikstjórann Sam Mendes sem hún var gift í sjö ár...

Gylltur toppur á tískuviku

Ég hef eiginlega hitt alla sem ég hef haft áhuga á að kynnast, sagði breska fyrirsætan Kate Moss, 37 ára, sem hefur undanfarin ár verið leiðandi í tískuheiminum.

100 bíómiðar í boði

Kvittaðu á Facebooksíðu lífsins ef þú vilt eiga möguleika á að vinna 2 boðsmiða á sérstaka Einkamal.is forsýningu gamanmyndarinnar What's Your Number? í Smárabíói á morgun, fimmtudag, klukkan 20...

Brynja sest á skólabekk

Sjónvarpskonan Brynja Þorgeirsdóttir hefur ákveðið að söðla um og hætta í Kastljósinu. Hún hyggst setjast á skólabekk og hefur skráð sig í mastersnám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

Bítlarnir á frumsýningu

Eftirlifandi meðlimir Bítlanna voru á meðal gesta á frumsýningu nýrrar heimildarmyndar Martins Scorsese um George Harrison. Gítarleikarinn lést árið 2001 eftir baráttu við lungnakrabbamein. „Hann var frábær maður, virkilega góður náungi,“ sagði Sir Paul McCartney, sem mætti á sýninguna ásamt Ringo Starr. Leikstjórinn Scorsese, sem var í fimm ár að gera myndina, segist lengi hafa heillast af Harrison. „Mér fannst tónlistin hans fjalla um hluti sem ég gat tengt mig við. Ég leitaði huggunar og vonar í þeim og það var sérstök lífsreynsla að hlusta á tónlistina hans.“

Prinspóló fann enga verksmiðju

„Við leituðum að verksmiðjunni en komumst að því að hún er ekki til,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson, forsprakki Prins Póló.

Ham á hátíðarfundi

Fjöldi vinsælla flytjenda á borð við rokksveitina Ham, Mugison, Lay Low, Diddú, Bjartmar Guðlaugsson og Fóstbræður, auk grínistans Ara Eldjárns, kemur fram á hátíðar- og baráttufundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld klukkan 20. Á undan fundinum verður í anddyrinu frá kl. 17.30 kynning á ýmsum 12 spora samtökum og félögum sem vinna með fíknisjúkdóminn.

Opnar nýjan stað á afmælisdaginn

„Þetta verður stærsti staðurinn, í fermetrum talið,“ segir Friðrik Weisshappel, athafnamaður í Kaupmannahöfn. Hann opnar þriðja Laundromat-staðinn sinn í höfuðborg Danmerkur þann 6. desember en þá á hann einmitt afmæli, verður 44 ára.

Talar við sjálfa sig

Ég tala endalaust við sjálfa mig. Bæði ég og barnfóstran mín tölum við okkur sjálfar og við erum stöðugt að afsaka það...

Trommarar hittast í FÍH

Sýningin Trommarinn 2011 verður haldin í þriðja sinn í sal FÍH, Rauðagerði 27, á laugardaginn. Þar verða Tónastöðin og Hljóðfærahúsið/Tónabúðin með allt það nýjasta til sýnis í trommum og slagverki. Íslenskir trommarar sýna handverk sitt og nokkur vel valin trommusett verða til sýnis. Þá verður Guðmundi R. Einarssyni veitt heiðursviðurkenning fyrir ævistarf sitt. Landsþekktir trommarar stíga á svið, eða þeir Kristján B. Heiðarsson, Benedikt Brynleifsson, Kristinn Snær Agnarsson, Magnús Trygvason Elíassen og Ásgeir Óskarsson.

Paul Young hefur engu gleymt

Breska eitísgoðið Paul Young spilaði ásamt hljómsveit í Eldborgarsal Hörpunnar í gærkvöldi...

Með soninn í fanginu

Breski leikstjórinn Guy Ritchie, 43 ára, og unnusta hans, Jacqui Ainsley, sem fæddi son þeirra í september, voru mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles. Eins og sjá má hélt leikstjórinn á syni sínu. Guy hefur verið uptekinn við að klára framhaldið af Sherlock Holmes ævintýrinu með Jude Law og Robert Downey í aðalhlutverkum. Guy var giftur Madonnu í tæp 8 ár.

Baltasar Kormákur vill gera Everest-kvikmynd á Íslandi

Íslenski kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur virðist vera kominn með annan fótinn inn í Hollywood. Honum standa til boða tvö mjög spennandi kvikmyndaverkefni en hann vonast til að geta gert annað þeirra á Íslandi.

Hlátrasköllin ómuðu

Það voru reyndir menn sem stigu á stóra svið Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið og frumsýndu leikritið Listaverkið fyrir fullum sal. Salurinn veltist um af hlátri á meðan Baltasar Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og Ingvar E. Sigurðsson veltum vöngum yfir skjannahvítu listaverki.

Sjá næstu 50 fréttir