Fleiri fréttir

Seldu upp fimm Hörputónleika á einum degi

Það er óhætt að segja að miðasalan á Frostrósatónleikana hafi farið af stað með látum í gær. Á aðeins fjórum tímum seldust um 12 þúsund miðar er nú til að mynda uppselt á fimm tónleika í Eldborgarsal Hörpu. Þeirra á meðal eru tónleikar með norsku söngkonunni Sissel Kirkjebo og fleirum en miðarnir á þá kláruðust á aðeins um tíu mínútum.

Kim keyrir um á kagga

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 30 ára, sótti nýja bílinn sinn í gær, hvítan Ferrari 458 Italia. Hún var umkringd upptökuvélum þegar hún brunaði heim...

Eurowoman og Fricke á Airwaves

Blaðamenn frá þekktum erlendum fjölmiðlum verða gestir á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem hefst um miðjan október. David Fricke frá bandaríska tónlistartímaritinu Rolling Stone kemur til landsins, en nokkur ár eru liðin síðan hann mætti síðast á Airwaves. Hann hefur iðulega farið lofsamlegum orðum um íslenska tónlist.

Sumir eru eins og súpermódel

Twilight stjarnan Kristen Stewart, 21 árs, prýðir forsíðu GQ tímaritsins og Glamour eins og sjá má í myndasafni...

Enginn smá munur

Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, var mynduð á flugvelli ein síns liðs á leiðinni í karabíska hafið. Hún gluggaði í bók á flugvellinum og sendi nokkur sms á meðan hún beið eftir útkalli í vél...

Gera fleiri myndir um Þór

Fyrirtækið Caoz vill gera nokkrar teiknaðar framhaldsmyndir um Þór þrumuguð og persónur norrænu goðafræðinnar. Fyrsta myndin verður frumsýnd 14. október.

Leikmenn KR í hlutverki barþjóna á sigurhátíðinni

„Ég hef nú sagt það við menn á förnum vegi að nú hafi ég aðeins opið tvo daga á ári; þegar KR verður bikarmeistari og svo Íslandsmeistari,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu.

Á háum hælum við Kleifarvatn

"Þetta gekk ágætlega, svona miðað við veður,“ segir Sara Nassim, framleiðandi hjá Pegasus. Fyrirtækið var bresku stúlknasveitinni The Saturdays innan handar um helgina þegar þær tóku upp myndband við nýjasta smell sinn, My Heart Takes Over, hér á landi.

Sex hetjur fá bleiku slaufuna

Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hófst á laugardaginn og hefur félagið einsett sér að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október...

Pippa stelur senunni

Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 28 ára, mætti í rauðum síðkjól á galadansleik í London í gær sunnudag...

Fitnessfoli í fantaformi

Jú jú þessu fylgir náttúrulega áreiti, svarar Helgi Bjarnason spurður út í athyglina sem fitness-folar eins og hann verða fyrir þegar við hittum hann á æfingu í Sporthúsinu í morgun til að forvitnast hvernig hann undirbýr sig fyrir Fitness módel keppnina í Evrópumóti WBFF sem fram fer í Laugardalshöll 5. nóvember næstkomandi. Þá má einnig sjá Svavar Jóhannson einn af mótshöldurunum í meðfylgjandi myndskeiði. Heimasíða WBFF.

Sætu stelpurnar létu sjá sig

Meðfylgjandi myndir voru teknar í versluninni Evu þegar Burberry Body ilmurinn var formlega kynntur hér á landi...

Wilco ver pabbarokkstimpilinn

Hljómsveitin Wilco sendi nýverið frá sér níundu plötu sína. Meðlimir hljómsveitarinnar eru allir menn á besta aldri, sem hefur orðið til þess að gagnrýnendur kalla tónlist þeirra pabbarokk. Jeff Tweedy, forsprakki Wilco, sér ekkert athugavert við það. „Þegar fólk segir pabbarokk er það bara að meina rokk,“ segir Tweedy í viðtali við tímaritið Men‘s Journal. „Þegar fólk heyrir eitthvað sem því finnst vera einhvers konar framhald af rokksiðum fortíðarinnar er það kallað pabbarokk. Mér finnst þetta fólk hafa verið afvegaleitt. Mér finnst ekkert slæmt við að vera pabbi eða rokkari.“

Með gítarinn í kjöltunni

Smári Tarfur er að undirbúa plötu þar sem hann spilar á kjöltugítar og syngur með. Hann hitar upp fyrir átrúnaðargoð sitt síðar í mánuðinum.

Þetta var sko alvöru selebsamkoma

Kvikmyndin Eldfjall í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar var loksins frumsýnd á Íslandi á fimmtudagskvöld með viðhafnarsýningu í Háskólabíói. Myndinni var vel tekið meðdynjandi lófataki og ekki var laust við að gestir felldu þó nokkur tár. Að lokinni sýningu héldu aðstandendur myndarinnar og frumsýningargestir á Kex Hostel við Skúlagötu þar sem var fagnað fram á nótt. Eins og þessar myndir sýna var gleðin við völd. Eldfjall hefur undanfarana mánuði sankað að sér verðlaunum og viðurkenningum á kvikmyndahátíðum út um allan heim. Eldfjall hlaut um helgina tvenn verðlaun á lokahátíð RIFF, kvikmyndaverðlaun kirkjunnar og Fipresci gagnrýnendaverðlaunin. Eldfjall er komin í almennar sýningar í kvikmyndahúsum á Íslandi. Facebook síða myndarinnar.

Hafa þurft að hafna tilboðum

„Vesturport er ekki á neinn vonarvöl, síður en svo. En þetta er allt spurning um á hvaða stað við viljum vera,“ segir Gísli Örn Garðarsson, forsvarsmaður leikhópsins Vesturport.

Fékk steypuklump í afmælisgjöf

"Þetta er búin að vera hefð í mínum vinahópi að gera eitthvað svona. Ég átti von á ýmsu en kannski ekki akkúrat þessu,“ segir Páll Sveinsson, starfsmaður hugbúnaðarfyrirtækisins Hugvits. Hann fékk klifurdót í fimmtugsafmælisgjöf frá vinum sínum, sem er ekki í frásögur færandi nema það að gjöfin var föst innan í risastórum 2,5 tonna steypuklumpi. Vinirnir festu uppátækið á filmu og settu á síðuna Youtube.

Hollywood Leaks talinn hafa stolið handriti frá Tom Cruise

Hópi tölvuhakkara, sem kallast Hollywood Leaks, er kennt um fjölmarga tölvuglæpi sem átt hafa sér stað í þessari helsta hverfi kvikmyndaframleiðslu í öllum heiminum. Hópurinn er meðal annars sakaður um að bera ábyrgð á því að hafa stolið handriti að endurgerð kvikmyndarinnar Footloose og að hafa stolið handriti að kvikmyndinni Rock of Ages, sem Tom Cruise er með í vinnslu.

Hurley fékk bónorð

Elizabeth Hurley, fyrirsæta og leikkona, trúlofaðist nýlega Shane Warne, unnusta sínum og krikketstjörnu. Þau hafa verið að slá sér upp saman síðan í fyrra þegar hún skildi við Arun Nayar, eiginmann sinn. Hurley og Warne munu hafa verið saman í fríi í Skotlandi þegar hann bað hennar. Daily Mail segir að þau hafi verið undir rómantískum kvöldverði sem hann bað hennar.

Sjónarhorn fuglsins

Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari opnaði sýningu í Hafnarborg fyrir helgi í tilefni af útgáfu nýrrar ljósmyndabókar sinnar, Yfirsýn.

Hrífst af Jay-Z og Adele

Chris Martin, söngvari Coldplay, óskar þess að hann hefði samið lögin Empire State of Mind eftir rapparann Jay-Z og Someone Like You eftir söngkonuna Adele. Þegar Jay-Z spilaði lagið fyrir hann fylltist Martin öfund. Þrátt fyrir það segir hann vel samin lög veita sér mikinn innblástur.

Drap móður vegna miða

Brjálaður aðdáandi söngkonunnar Avril Lavigne hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að lemja og stinga móður sína til bana eftir að hún neitaði að aðstoða hann við að kaupa miða á tónleika með Lavigne.

Erfitt að læra nóturnar

Chris Cornell, söngvari rokksveitarinnar Soundgarden, segist hvorki kunna að lesa né skrifa nótur. Hann sér eftir því að hafa ekki haldið áfram með píanónám sitt þegar hann var lítill.

Hulk Hogan í vandræðum

Bandaríski fjölbragðaglímukappinn Hulk Hogan hefur viðurkennt að hafa sóað hundruðum milljóna króna á ferli sínum. Hogan, sem heitir réttu nafni, Terry Bollea, býr núna í leiguhúsnæði eftir að hafa þurft að lækka verðið á glæsivillunni sem hann átti á Flórída um tæpa tvo milljarða til að geta selt hana.

Lét blása í barminn

Bandaríska slúðurblaðið Us Weekly greinir frá því að hönnuðurinn og raunveruleikaþáttastjarnan Nicole Richie hafi nýlega látið stækka á sér brjóstin.

Nína opnar sýningu í Lúxemborg

„Mig hefur lengi langað til að opna sýningu hér í Lúxemborg og lét loksins verða af því núna,“ segir Nína Björk Gunnarsdóttir, ljósmyndari en hún opnaði ljósmyndasýningu í Lúxemborg í gærkvöldi.

Osbourne trúlofaður

Jack Osbourne, sonur rokkarans Ozzy, hefur trúlofast leikkonunni Lisu Stelly. Í fyrra var orðrómur uppi að hinn 25 ára Osbourne væri að hitta fyrirsætuna Sarash McNeilley og að þau hefðu fagnað afmæli hans í Las Vegas.

Óttast ekki frægðina

Bandaríska leikkonan Emma Stone hefur engar áhyggjur af því að líf sitt eigi eftir að breytast mikið eftir að stórmyndin The Amazing Spider-Man kemur út næsta sumar. Fólk hefur sagt henni í langan tíma að líf hennar ætti eftir að breytast eftir leik sinn í hinum ýmsum kvikmyndum en það hefur ekki gerst hingað til.

Queen trónir á toppnum

Lagið We Are the Champions með bresku hljómsveitinni Queen er mest grípandi lag allra tíma. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var framkvæmd við Goldsmith-háskólann. Þar rannsökuðu vísindamenn hvað það er sem gerir lög grípandi og settu í framhaldinu saman lista yfir tíu mest grípandi lög allra tíma.

Anna og Hulli á ferð og flugi

„Ef fólk er á annað borð búið að borga sig inn til að hlæja, hvar sem er á landinu, þá er það gott,“ segir leikkonan Anna Svava Knútsdóttir.

Tíu klukkutíma með eina plötu

Tónlistarmaðurinn Þórir Georg tók upp sína nýjustu plötu, Afsakið, á aðeins tíu klukkustundum. Þetta er fyrsta sólóplatan hans á íslensku.

Tvöföld plata frá Bítlunum

Tvöföld plata með tónlist Bítlanna og enska söngvarans Tony Sheridan verður gefin út í nóvember. Útgáfan nefnist The Beatles with Tony Sheridan: First Recordings.

Kynntist nýjum Kobba Magg

„Þegar ég fór að lesa þetta þá brá mér eilítið í brún á köflum og mér fannst ég vera að kynnast nýjum Kobba Magg,“ segir Jakob Frímann Magnússon. Samtalsbók Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur við Stuðmanninn Jakob Frímann Magnússon kemur út fyrir þessi jól.

Hamingja á haustfagnaði 365

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hörpunni í gærkvöldi á haustfagnaði 365 sem var glæsilegur í alla staði...

Vel launaðar leikkonur

Leikkonan Eva Longoria deilir fyrsta sæti lista tímaritsins Forbes yfir best launuðu leikkonurnar í sjónvarpi, með gamanleikkonunni Tinu Fey úr 30 Rock þáttunum. Longoria, sem leikur hina fögru Gabrielle í Aðþrengdum eiginkonum, vann sér inn um einn og hálfan milljarð á síðasta ári.

Love með ævisögu

Courtney Love hefur undirritað samning við bókaforlagið William Morrow um útgáfu sjálfsævisögu. Í bókinni fjallar hún um hjónaband sitt við Kurt Cobain, fyrrum söngvara Nirvana, og feril sinn sem rokkstjarna og leikkona.

Viðkvæm á meðgöngunni

Poppdívan Beyoncé Knowles hefur sett eiginmanninum Jay-Z skýrar reglur nú þegar hún gengur með fyrsta barn þeirra. Söngkonan segist vera ótrúlega næm á lykt og það þýðir að bóndinn verður að gæta að hreinlæti sínu.

Sjá næstu 50 fréttir