Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrsta stytta No Country for Old Men Leikarinn Javier Bardem fékk Óskarinn fyrir bestan leik í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í mynd Coen bræðranna, No Country for Old Men. Myndin er tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, og þykir einna líklegust til að vera kjörin besta myndin þetta árið. 25.2.2008 02:24
Ratatouille besta teiknimyndin Teiknimyndin Ratatouille var rétt í þessu valin besta teiknimyndin. Leikstjóri myndarinnar, Brad Bird vann óskarsverðlaun árið 2004 fyrir teiknimynd sína The Incredibles. Hún, líkt og Ratatouille var einnig tilnefnd fyrir besta handritið, sem er afar sjaldgæft fyrir teiknimyndir. 25.2.2008 02:02
Angelina kasólétt í þröngum kjól Angelina Jolie tók af allan vafa um það að hún væri með barni á laugardaginn þegar hún mætti á Independent Spirit kvikmyndaverðlaunin í þröngum svörtum kjól. 25.2.2008 00:18
Stjörnurnar mættar á rauða dregilinn Stjörnurnar streyma nú inn á rauða dregilinn við Kodak-höllina í Hollywood. Þrátt fyrir vonskuveður á mælikvarða Kaliforníubúa - rigningu - skarta þær flestar sínu fegursta. 25.2.2008 00:01
Britney hitti börnin í gær Söngkonan Britney Spears fékk loksins að eyða tíma með börnum sínum í gær. Börnin tvö sem hún á með Kevin Federline komu í heimsókn til hennar og voru hjá móður sinni í þrjá tíma. Federline fer með forræðið yfir börnunum en það hefur hann gert að fullu síðan í síðasta mánuði þegar Britney virtist missa öll tök sínu lífi. 24.2.2008 13:59
Friðrik Ómar og Regína til Serbíu Friðrik Ómar og Regína Ósk verða fulltrúar Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Serbíu í maí. Euro-bandið með þau tvö innanborðs bar sigur úr býtum í úrslitum íslensku undankeppninnar í Smáralind í kvöld með laginu This is My Life eftir Örlyg Smára. 23.2.2008 22:12
12 sóttu um leikhússtjórastöðu á Akureyri Staða leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar var auglýst til umsóknar þann 3. febrúar síðastliðinn Alls sóttu 12 manns um stöðuna og óskuðu tveir þeirra nafnleyndar. 23.2.2008 18:00
Barði ætlar til Serbíu Barði Jóhannsson, höfundur lagsins Ho Ho Ho We Say Hey Hey Hey, blæs á raddir þess efnis að hann ætli ekki til Serbíu með Merzedes Club flokknum, verði lagið útnefnd framlag Íslands í Eurovision. Illar tungur hafa undanfarna daga gefið það í skyn að Barða sé ekki alvara með laginu og muni ekki vinna að framgöngu þess í Serbíu. 23.2.2008 12:35
Gæti orðið lokaballið á Nasa Páll Óskar Hjálmtýsson óttast að hið árlega Eurovision-ball hans á Nasa í kvöld verði það síðasta sem hann haldi þar. Ástæðan er hugsanlegt niðurrif skemmtistaðarins í ágúst. 23.2.2008 04:00
Finnur féll fyrstur úr Bandinu hans Bubba Bubbi Morthens sendi Finn Bessa fyrstan allra keppenda heim í þættinum sínum Bandið hans Bubba. Fyrsti úrslitaþátturinn var sýndur í beinni á Stöð 2 í kvöld. 22.2.2008 22:35
Borgarholtsskóli vann frækinn sigur í Gettu betur Það var Borgarholtsskóli í Grafarvogi sem hafði betur gegn Menntaskólanum í Kópavogi í spurningarkeppni framhaldsskólanna Gettur betur í kvöld. 22.2.2008 21:07
Ósætti með dæturnar Leikarinn Charlie Seen er ekki sá eini sem er brjálaður yfir því að dætur hans og fyrrum eiginkonu hans Denise Richards komi fram í raunveruleikaþætti þeirrar síðarnefndu. 22.2.2008 20:12
Hjaltalín með flestar tilnefningar Hljómsveitin Hjaltalín fær flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunana en tilkynnt var um tilnefningarnar í dag. Hjaltalín fær fimm tilnefningar og Sprengjuhöllin kemur á hæla hennar með fjórar. 22.2.2008 18:30
Kveikt í „Batman“-skikkju Eurobandsins Það verður engin „Batman" skikkja í atriði Eurobandsins í undankeppni Evróvisjón í Smáralind á Laugardag. „Nei, það var kveikt í vængjunum í gær," segir Friðrik Ómar, annar söngvara Eurobandsins. Batman skikkjan var fokdýr, enda gerð úr dýrindis silki sem Friðrik keypti fimmtán metra af í Taílandi í janúar. 22.2.2008 17:36
Heather Mills ein kynþokkafyllsta kona heims Heather Mills rakar inn atkvæðum í kosningu FHM tímaritsins um kynþokkafyllstu konu heims. Síðan að fjölmiðlasirkusinn í kringum skilnað hennar og Pauls McCartneys hófst hefur hún fengið um 1000 atkvæði á dag, á móti um fimmtán áður. 22.2.2008 16:22
„Eurovision 2009 verður haldin í Kórnum" Kosningabaráttan fyrir úrslitakvöld undankeppni Evróvisjón á Laugardag harðnar. Nú hafa þeim Merzedes Club liðum borist liðsinni frá fræga fólkinu. Myndband þar sem Pétur Jóhann, Sveppi, Auddi og knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson lýsa yfir stuðningi við lagið er nú að finna á YouTube. 22.2.2008 14:31
Madonna, Bruce Willis og lifrarbólgan Þær hafa kannski haldið að þær væru lentar í þætti af Punk'd, stjörnurnar sem mættu í þrítugsafmæli Ashtons Kutcher á dögunum. 22.2.2008 11:27
Britney framlengir nálgunarbann á Sam Lutfi Illmennið meinta í harmsögu Britney Spears, Sam Lutfi, fékk reisupassan formlega í gær. Þá náðist loksins að afhenda honum pappíra um framlengingu nálgunarbanns sem meinar honum að koma nær Britney en sem nemur 250 metrum. 22.2.2008 10:49
Jennifer Lopez eignaðist tvíbura í nótt Söng- og kvikmyndaleikkonan Jennifer Lopez eignaðist tvíbura í nótt, dreng og stúlku. 22.2.2008 08:18
Spáir Merzedes Club sigri „Það liggur alveg fyrir að Barði vinnur þetta,“ segir Logi Bergmann Eiðsson einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Eurovisionfræðum. Þar á hann við lag Barða Jóhannssonar sem flutt er af Merzedes Club genginu. 21.2.2008 20:28
Þorfinnur kynnir Óskarinn Það verður nýr maður í brúnni í útsendingu Stöðvar 2 frá Óskarsverðlaunahátíðinni næsta sunnudagskvöld. Ívar Guðmundsson, sem hefur kynnt hátíðina frá því elstu menn muna, lætur af því starfi, en við honum tekur Þorfinnur Ómarsson. 21.2.2008 17:46
RÚV á 17 vinsælustu dagskrárliði síðustu viku RÚV á 17 vinsælustu dagskrárliði síðustu viku samkvæmt könnun Capacent sem birt var rétt áðan. Laugardagslögin eru, líkt og í síðustu viku, vinsælasti dagskrárliðurinn með 57% uppsafnað áhorf. 21.2.2008 16:30
Dr Spock tilbúnir að taka við af vöðvabúntunum Liðsmenn Dr Spock eru sigurvissir fyrir úrslitakvöld forkeppni Eurovision á laugardaginn. „Við erum eiginlega komnir til Serbíu í huganum,“ segir Óttar Proppé, forsprakki sveitarinnar. 21.2.2008 15:52
Jessica Alba á von á tvíburum Það virðist ganga tvíburafaraldur í Hollywood þessa dagana. Jennifer Lopez mun væntanlega fjölga mannkyninu um tvo á hverri stundu, og sögusagnir um að Angelina Jolie gangi með tvíbura eru háværar. 21.2.2008 14:19
Kaka ársins er súkkulaðiveisla Kaka ársins 2008 er sannkölluð súkkulaðiveisla, en það var Jón Karl Stefánsson hjá Bæjarbakaríi í Hafnarfirði sem bar sigur úr býtum í árlegri keppni Landssambands bakarameistara um köku ársins. 21.2.2008 12:48
Sálmatónleikum í Hallgrímskirkju frestað Sálmum og tónalljóðum, fyrirhuguðum tónleikum Camerarctica og Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur sóprans, sem halda átti í Hallgrímskirkju á sunnudag hefur verið frestað vegna veikinda. Fram kemur í tilkynningu frá listvinafélagi Hallgrímskirkju að ný dagsetning verði auglýst síðar. 21.2.2008 11:18
Óhefðbundin æska Suri Cruise Suri Cruise er enginn venjulegur tveggja ára grislingur. Fyrir utan það að vera hundelt af ljósmyndurum eins og eldri stjörnur þá hafa hugmyndir Vísindakirkjunnar meira en lítil áhrif á stúlkuna. 21.2.2008 11:10
Take That meðal sigurvegara á Brit-hátíðinni Brit-verðlaunin voru afhent með pompi og prakt í London í gærkvöldi. Það voru hljómsveitirnar Take That, Artic Monkeys og Foo Fighters sem teljast sigurvegarnir að þessu sinni en hver sveitanna hlaut tvenn verðlaun. 21.2.2008 07:19
Öllum er sama um nýfædda soninn Nýjasta tölublað People magazine með Christinu Aguilera og nýfæddum syni hennar, Max, virðist ætla að floppa. Búist er við að einungis 1,3 milljón eintaka verði seld af blaðinu. 20.2.2008 23:16
Sérkjör fyrir íslendinga í verslunarhug Nú á mánudaginn hófst sérstök „Íslensk vika“ á vefsvæðinu AmieStreet.com, en hún er halding í samstarfi við Iceland Music Export. 20.2.2008 21:46
Langar í meðferð „Ég væri til í að vinna með Amy Winehouse vegna þess að hún er mjög vinsæl og heit núna,“ lét söngkonan Sheryl Crow út úr sér á tónleikum nýlega. 20.2.2008 20:45
Ó Ó Ingibjörg Sunnudaginn 24. febrúar næstkomandi býður Tónlistarfélagið upp á frábæra tónleika með landsþekktum systkinum. Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Bíósal listasafns Reykjanesbæjar. 20.2.2008 20:33
Sjónvarp í símann hjá Nova Viðskiptavinir Nova munu innan skamms geta horft á sjónvarp í símanum sínum, en fyrirtækið hefur gert samning við Industria um hugbúnaðarlausn sem tryggir öllum viðskiptavinum Nova sjónvarpsútsendingar og margmiðlunarefni í farsímann með því að ýta á einn takka. 20.2.2008 18:06
Stefnir í stærstu Food og Fun hátíð frá upphafi Stærsta Food and Fun hátíðin frá upphafi fer af stað í kvöld og er þegar orðið margbókað á hvert boð á fjölmörgum þeirra fimmtán staða sem taka þátt í hátíðinni. 20.2.2008 17:49
Grand Rokk gestir kaupa listaverk í bunkum Listamaður Kormákur Bragason hefur mokað út listaverkum á Grand Rokk undanfarið. „Fyrirtækið sem ég vann hjá hætti í janúar og ég hugsaði með mér að ég þyrfti að gera eitthvað. Ég fékk nokkur blöð til að krota á, hamaðist í nokkra daga og valdi svo það besta," segir Kormákur, sem náði að þekja heilan vegg með myndum. 20.2.2008 16:30
Groundhog day Spears hinnar nærbuxnalausu Í kvikmyndinni Groundhog day vaknaði persóna Bills Murray og lenti í sömu samtölunum og atburðunum dag, eftir dag, eftir dag. Britney Spears sér okkur hinum fyrir sömu upplifun. 20.2.2008 14:11
Verkfall handritshöfunda kostaði á annað hundrað milljarða Hundrað daga verkfall handritshöfunda í Hollywood kostaði efnahag Los Angeles sýslu tvo og hálfan milljarð dollara. Það samsvarar um hundrað og sjötíu milljörðum króna og er minna en áður var talið. 20.2.2008 12:04
Ensk útgáfa Fullkomins lífs vekur hrifningu Búið er að snara fullkomnu lífi þeirra Friðriks Ómars og Regínu Óskar yfir á ensku og verður það flutt þannig í úrslitaþætti Laugardagslagana næsta laugardag. Evróvisionjaxlinn Páll Óskar á heiðurinn að textanum. Lagið, annað þeirra laga sem er talin eru líklegust til að verða fulltrúi Íslands í Serbíu í maí, nefnist This Is My Life í nýju útgáfunni. Hægt er að hlusta á lagið á YouTube svæði Evróvisjónsíðunnar ESCToday, þar sem Eurovisionþyrstir netverjar fara hamförum af hrifningu á ummælakerfinu. 20.2.2008 11:02
Paris má ekki fara á Óskarinn Partýljónið Paris Hilton er með böggum hildar eftir að aðstandendur Óskarsverðlaunahátíðarinnar ákváðu að meina henni aðgang að að hátíðinni. Nýjasta mynd hennar, The Hottie and the Nottie gerði ekkert til að auka orðspor Parisar, en myndin var nýlega kjörin versta mynd allra tíma af notendum IMDB kvikmyndasíðunnar. Paris var annars nýbúin að festa kaup á sérhönnuðum kjól upp á meira en 200 milljónir króna sem hún ætlaði að nota á rauða dreglinum. 20.2.2008 09:44
Fær ekki enn að sjá börnin Lögfræðingar fyrrum skötuhjúanna Britney Spears og Kevin Federline ræddu saman í réttarsal í dag. Umræðuefnið? Jú, börnin. 19.2.2008 21:18
Tónleikar Bubba studdir af nýstofnuðum samtökum Samtökin Ísland Panorama hafa verið stofnuð til þess að vinna gegn kynþáttafordómum. Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir atburði við þá sem við höfum orðið vitni að upp á síðkastið. 19.2.2008 19:34
Britney ekki enn búin að fjárfesta í nærfötum Þó Britney Spears virðist hafa tekið einhverjum framförum eftir nauðungarvistun sína á geðsjúkrahúsi er eitt sem hefur ekki enn sokkið inn. 19.2.2008 16:53
Árni Johnsen er ekki á leið í forsetaframboð „Nei, ég er ekki á leið í forsetann," segir Vestmannaeyingurinn Árni Johnsen inntur eftir því hvort hann væri ekki rakinn kandídat í forsetaembætti lýstu eyjarnar yfir sjálfstæði. 19.2.2008 15:49
Íslenskar flugfreyjur á ljósmyndasýningu í New York Íslenskar flugfreyjur eru áberandi á nýrri ljósmyndasýningu bandaríska ljósmyndarans Brian Finke sem opnuð verður þann 21. febrúar í Clamp Art safninu í New York. 19.2.2008 15:44
Nicole Richie og Joel Madden dugleg á djamminu Barnapía Nicole Richie og Joel Madden rakar þessa dagana inn yfirvinnutímum. Rétt rúmur mánuður er liðinn frá fæðingu dóttur þeirra, Harlow Winter Kate Madden, en þau láta það ekki stöðva sig í því að stunda skemmtanalífið af krafti. 19.2.2008 13:53