Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrívíddarmyndir í Kringlubíói Frá og með 30.mars verður hægt að sjá myndir í þrívídd í Kringlubíó. Um miðjan næsta mánuð er ráðgert að fara í umbætur í aðalsal bíósins og í frammhaldi af því verður reglulega boðið upp á myndir í þessum gæðum. 24.2.2007 17:28
Drew Barrymore fagnar 32 ára afmæli sínu Leikkonan góðkunna, Drew Barrymore, er stödd á Kauai eyjum til að fagna 32 ára afmæli sínu. Eyddi hún afmælisdeginum á ströndinni, íklædd svörtu bikiníi og tók sig vel út að sögn sjónarvotta. Enda stúlkan á besta aldri. 24.2.2007 16:39
Jarðsett hjá Daniel Fjölmiðlafárið í kringum andlát Önnu Nicole Smith virðist seint ætla að fjara út. Miklar deilur standa yfir um hvar eigi að grafa fyrirsætuna og hver eigi að hafa forræðið yfir stúlkubarninu Dannielynn. 24.2.2007 14:00
Túlípanar, ljóð og rauðvín á Alþingi Leynivinavika hefur staðið yfir á Alþingi undanfarna viku og hafa hinir ýmsu alþingismenn tekið þátt í henni. „Ég fór að fá sendingar frá ágætum leynivini. 24.2.2007 13:30
Michael hugsanlega í Idol Hugsanlega mun Michael Jackson koma fram í American Idol. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að hann myndi ekki koma fram en kynnir þáttarins, Ryan Seacrest, segir það möguleika að poppgoðið muni láta sjá sig. 24.2.2007 13:13
Flís og Steintryggur í Kartöflugeymslunni Á meðal þess sem í boði er á Vetrarhátíð í Reykjavík í dag eru tónleikar í gömlu kartöflugeymslunni í Ártúnsbrekku. 24.2.2007 12:21
Pitt og Jolie ættleiða meira Brad Pitt og Angelina Jolie hafa í hyggju að ættleiða strák af Vietnömskum uppruna. Parið á þegar 3 börn, hinn fimm ára Maddox, Zahara sem er tveggja ára og hina níu mánaða gömlu Shiloh. 24.2.2007 12:11
Carmen Electra skilin Skilnaður kynbombunnar og leikkonunnar Carmen Electra og rokkarans Daves Navarro er genginn í gegn. Sjö mánuðir eru síðan þau hættu saman vegna óásættanlegs ágreinings. 24.2.2007 12:00
Kvikmyndaklúbburinn Fjalarkötturinn verður endurvakinn á morgun. Sýningar hefjast á morgun í Tjárnabíói og er ráðgert að sýna tvo daga vikunnar, sunnudaga og mánudaga. Sýningar standa fram á vor og á þeim tíma er áætlað að sýna alls 25 myndir. Byrjað verður á þremur myndum sem gerðu James Dean að stórstjörnu en þær eru; East of Eden, Rebel Without a Cause og Giant ásamt því að sýnd verður ný heimildarmynd um leikarann. 24.2.2007 11:33
Jennifer Lopez í Idol Söng- og leikkonan Jennifer Lopez kemur fram í sjónvarpsþættinum American Idol hinn 11. apríl. Fetar hún þar með í fótspor þekktra tónlistarmanna á borð við Prince, Mary J. Blige, Diana Ross, Tony Bennett og Gwen Stefani. 24.2.2007 11:00
Allt er þá þrennt er Britney Spears er komin í meðferð aftur. Söngkonan innritaði sig að þessu sinni á meðferðarheimili í Malibu eftir að fyrrverandi eigin-maður hennar, Kevin Federline, hótaði að svipta hana forræðinu yfir strákunum þeirra tveim, þeim Jayden James og Sean Preston. 24.2.2007 09:00
Unnur andlit íslenska hestsins Einhver frægasta sýning Bandaríkjanna á ís, Ice Capades, hefur gert samstarfssamning við Icelandics on Ice um sýningar í öllum stærstu borgum Bandaríkjanna. Um er að ræða gríðarlega landkynningu fyrir Ísland og ekki síður íslenska hestinn en reiknað er með að rúmlega 800 þúsund komi til með að skoða sýninguna augum. 24.2.2007 08:30
Forstjóri Össurar á veiðislóðum í Suður-Afríku „Þegar menn segjast vera miklir veiðimenn er það svona svipað eins og þegar kylfingar telja sjálfa sig vera góða í golfi. Þá liggur oft ekki mikið að baki slíkum orðum," segir Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Jón var staddur í hlýjunni í Kaliforníu þegar Fréttablaðið náði tali af honum en þar verður hann næstu misserin. Jón var reyndar hugsi yfir því að tjá sig um veiðimennsku sína á villtum dýrum enda væru Bandaríkjamenn ákaflega viðkvæmir fyrir slíku og eru frægir fyrir andstöðu sína gegn hvalveiðum. 24.2.2007 06:00
Amanda Peet eignast stúlku Leikkonan geðþekka Amanda Peet, hefur fætt stúlkubarn. Fékk hún hríðir á þriðjudag og hefur barnið fengið nafnið Frances Pen, í höfuðið á móður Amöndu, Penny. 23.2.2007 15:44
Britney í meðferð í þriðja sinn í vikunni Skjótt skipast veður í lofti. Britney Spears, sem hefur verið daglegur gestur slúðurpressunnar undanfarna daga, er enn og aftur farin í meðferð. Er þetta í þriðja sinn sem hún skráir sig í meðferð á aðeins einni viku. 23.2.2007 10:00
Anna Nicole grafin á Bahamaeyjum Dómari í Flórída hefur úrskurðað að Anna Nicole Smith verði borin til grafar á Bahamaeyjum. Dómarinn, Larry Seidlin grét þegar hann bar upp úrskurðinn og fól umsjón með jarðneskum leifum Önnu lögmanni hennar Richard Milstein. Anna Nicole verður semsagt grafin á Bahamaeyjum en þar bjó hún síðustu mánuði ævi sinnar. Sonur Önnu sem lést á síðasta ári með grunsamlegum hætti er grafinn á Bahamaeyjum og sagði Milstein við hæfi að þau mæðginin hvíldu saman. 22.2.2007 23:14
Britney aftur úr meðferð, Kevin vill forræði Britney Spears virðist eiga erfitt með að halda á spöðunum þessa dagana. Eftir taumlaust líferni síðustu vikna, sem endaði með því að hún rakaði hárið af höfði sér, skráði Britney sig í meðferð. Nú er hún búin að skrá sig út, eftir aðeins einn sólarhring samkvæmt heimildum Reuters. Er þetta í annað sinn á einni viku sem hún fer á meðferðarstofnun í þetta stuttan tíma. 22.2.2007 17:00
Enn eitt málið gegn Michael Jackson Fjölskylda látinnar konu hefur höfðað mál á hendur Michael Jackson og sjúkrahúsi í Kaliforníu. Í stefnunni er því haldið fram að deyjandi ömmu fjölskyldunnar hafi verið hent út af sjúrastofu til þess að Jakson kæmist þar að. Því er ekki haldið að þetta hafi valdið dauða ömmunar, en hinsvegvar hafi það valdið fjölskyldunni miklu hugarangri. 22.2.2007 16:42
Kramer neitaði að mæta fyrir gervirétti Góðvinur Jerrys Seinfeld, Kosmo Kramer, neitaði að mæta við gerviréttarhöld með fjórum blökkumönnum sem hann móðgaði í uppistandi á skemmtistað í Hollywood. Leikarinn Michael Richards missti stjórn á skapi sínu þegar honum fannst fólkið, þrír karlmenn og ein kona, trufla uppistand sitt. Hann jós úr skálum reiði sinnar yfir það og notaði meðal annars n-orðið illræmda. 22.2.2007 15:57
Ég var edrú Lögfræðingur Nicole Richie sagði fyrir rétti í gær að hún væri saklaus af ákæru um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og lyfja, þegar hún var handtekin í desember síðastliðnum. Nicole er dauðhrædd við að lenda í fangelsi, því hún hefur áður verið handtekin og dæmd fyrir svipaðar sakir. Stúlkan mætti ekki sjálf í réttarhöldin. 22.2.2007 14:32
Kærður fyrir myndbirtingu af Jennifer Aniston Hollywood bloggarinn Mario Lavandeira, sem er betur þekktur sem Perez Hilton, hefur verið kærður fyrir að birta ólöglegar myndir af Jennifer Aniston. Myndirnar eru frá upptökum á kvikmyndinni The Break-Up en á þeim má sjá Jennifer bera að ofan. Var það Universal City Studios Productions, framleiðandi myndarinnar, sem lagði fram kæruna. Segir stúdíóið myndirnar bæði fengnar- og birtar ólöglega. 22.2.2007 14:30
Allt á suðupunkti Fimmta úrslitakvöldið í X-Factor fer fram í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum í Smáralind á morgun föstudag. Átta atriði eru eftir og óhætt er að fullyrða að allt sé á suðupunkti eftir tíðindi síðustu viku. 22.2.2007 12:00
Eignaðist tvíbura Aðþrengda eiginkonan Marcia Cross eignaðist tvíburadætur í Los Angeles á þriðjudag. Stúlkurnar eru fyrstu börn leikkonunnar sem er 44 ára og eiginmanns hennar Tom Mahoney verðbréfamiðlara. Fæðingin hafði verið áætluð í apríl, en Marcia hefur verið rúmföst frá síðasta mánuði. 22.2.2007 11:04
Flýta þarf krufningu Önnu Þau eru lífleg réttarhöldin sem nú fara fram Vestanhafs í kjölfar dauða Önnu Nicole Smith í síðustu viku. Dómarinn í málinu fékk símtal í miðjum réttarhöldum á laugardag frá réttarlækninum Joshua Perper. Hringdi hann til að láta dómarann vita að lík Önnu Nicole rotnaði hraðar en eðlilegt væri. Því þyrfti að kryfja líkið í þessari viku í stað næstu viku eins og átælað var. 21.2.2007 17:00
James Brown loksins jarðsettur Guðfaðir soultónlistarinnar, James Brown sem lést á jóladag, fer loksins að fá sína hinstu hvílu. Lík hans hefur verið geymt á leynilegum stað frá andláti hans þar sem kærasta hans, Tomi Rae Hynie og börnin hans sex gátu ekki komið sér saman um hvar ætti að greftra hann. 21.2.2007 16:45
Pabbi Britneyar hvatti hana að sækja sér hjálpar Britney er loksins farin í meðferð en sögur þess efnis hafa verið að ganga undanfarið. Samkvæmt heimildum US Weekly fór Britney sjálfviljug í meðferð á þriðjudag eftir að pabbi hennar taldi hana á að gera það. Þetta staðfestir umboðsmaður söngkonunnar, Larry Rudolph. 21.2.2007 15:00
Jennifer Aniston með fyrrverandi í afmælisveislu Jennifer Aniston fagnaði 38 ára afmæli sínu á dögunum með fyrrverandi kærasta sínum, Vince Vaughn. Voru það ,,vinurinn” Courtney Cox og maður hennar, leikarinn David Arquette, sem héldu afmælisveisluna fyrir Jennifer. 21.2.2007 13:00
Öskudagur í dag Það er ekki laust við að spennings hafi gætt hjá yngstu kynslóðinni í morgun en öskudagur er ávallt mikið tilhlökkunarefni yngstu kynslóðarinnar. Blíðviðri er í Reykjavík og má víða sjá hópa af ungu uppáklæddu fólki sem freistar þess að syngja fyrir búðarstarfsmenn í skipti fyrir sælgæti. 21.2.2007 11:59
Halla í heimspressunni Breska götublaðið The Sun birti í gær frétt um rómantískt stefnumót breska leikarans Jude Law og íslensku leikkonunnar Höllu Vilhjálmsdóttur á föstudagskvöldið síðasta. 21.2.2007 10:15
Justin til bjargar Popparinn Justin Timberlake ók rakleiðis til Hollywood þegar hann frétti af vandræðum Britney Spears til að hugga hana. Justin og Britney voru kær-ustupar á sínum tíma og vildi Justin sýna henni stuðning sinn í verki. 21.2.2007 08:30
Klerkur kannast ekki við klámbræður Þýðandinn Gísli Ásgeirsson og karl faðir hans hafa grafið upp ansi merkileg ættartengsl bræðranna og Vestur-Íslendinganna Scott og Grant Hjorleifson en nafn þeirra hefur borið á góma í tengslum við klámráðstefnuna sem halda á hér um miðjan mars. Bræðurnir eru nefnilega komnir af skáldinu fræga, Bólu-Hjálmari, sem þýðir að sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur er meðal ættmenna þeirra. 21.2.2007 08:00
Myspace til hjálpar Ástralska poppstjarnan Kylie Minogue hefur fengið óvænta aðstoð af netinu fyrir sína næstu plötu. Kylie kynntist skoska lagahöfundinum Calvin Harris í gegnum Myspace-síðuna og fékk hann til að semja lög fyrir væntanlega plötu sína. „Hún hefur unnið nokkur lög með Calvin. Kylie heyrði það sem hann hafði gert og fannst það flott. Samstarf þeirra gengur vel,“ sagði talsmaður Kylie. 21.2.2007 07:45
James Brown loks jarðaður Börn söngvarans James Browns og ekkjan Tomi Rae Hynie, hafa loksins komist að samkomulagi um hvar á að jarðsetja líkama hans. Ósamkomulag og ósætti hefur verið meðal aðilanna um erfðir og skiptingu eigna. James Brown lest á jóladag, 73 ára að aldri. Líkið er geymt í gullkistu á útfararstofu sem mun sjá um jarðaförina. 20.2.2007 22:30
Osbourne fjölskyldumeðlimur alnæmissmitaður Söng- og leikkonan Kelly Osbourne, sem hvað þekktust er fyrir leik sinn í raunveruleikaþættinum The Osbournes, kom fram á góðgerðarsamkomu til styrktar alnæmis á sunnudagskvöld. Þar sagði hún að einn fjölskyldumeðlimur hennar hefði greinst með alnæmi. 20.2.2007 17:27
Flugfreyja í sjöunda himni Áströlsk flugfreyja hjá Quantas flugfélaginu er farin í felur meðan hún reynir að selja slúðurblöðum söguna af því þegar hún hafði samfarir við breska leikarann Ralph Fiennes á klósetti flugvélar í 35 þúsund feta hæð. Lisa Robertson segir einnig að hún hafi átt eldheita nótt með Fiennes á hótelherbergi hans. Hún hefur nú verið rekin frá Quantas. 20.2.2007 15:58
Halla og Jude í gulu pressunni Stefnumót þeirra Höllu Vilhjálmsdóttur, X-Factors kynnis og leikarans Jude Law hefur ratað í gulu pressuna í Bretlandi. Dagblaðið the Sun segir frá stefnumóti þeirra hér á landi síðastliðið föstudagskvöld en þau fóru út að borða á veitingastaðnum Domo og síðan sást til þeirra á skemmtistaðnum Sirkus eins og áður hefur komið fram. 20.2.2007 15:43
Hugh Grant og Jemima hætt saman Hugh Grant og kærasta hans til þriggja ára, Jemima Kahn, eru hætt að vera saman. Grant er líklega frægastur fyrir mynd sína Fjögur brúðkaup og jarðarför, og svo náttúrlega að leita eftir kynlífi við svarta vændiskonu í Hollywood árið 1995. Það batt enda á samband hans við fyrirsætuna Elizabeth Hurley. 20.2.2007 11:33
Rótsterkur Faxe rýkur út „Já, áhuginn hefur sannarlega aukist," segir Anton Ingimarsson, starfsmaður vínbúðar ÁTVR í Kringlunni, en sala á tíu prósenta Faxe-bjór hefur tekið kipp eftir innslag Kastljóssins fyrir réttri viku. 20.2.2007 10:15
Britney rakaði sjálf af sér hárið Poppprinsessan sköllótta Britney Spears rakaði sjálf af sér hárið á hárgreiðslustofu í Los Angeles eftir að hárgreiðslukonan neitaði að verða að ósk hennar. Er hárið nú til sölu á uppboðssíðunni Ebay fyrir tæpar 72 milljónir króna. 20.2.2007 10:00
Hár Britney Spears falt fyrir eina milljón bandaríkjadala Hár poppprinsessunnar Britney Spears, sem eins og kunnugt er fékk að fjúka á dögunum, virðist nú vera komið í sölu. Kaupverðið er ein milljón bandaríkjadala. 20.2.2007 09:47
Geiri selur gulu glæsibifreiðina „Hún var í hálfan mánuð á sölu, svo kom tilboð upp á tuttugu og fimm milljónir og ég ákvað að selja hana,“ segir Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger. 20.2.2007 09:30
Hittust á hóteli Parið fyrrverandi Justin Timberlake og Cameron Diaz hittust í laumi á hóteli fyrir skömmu, þrátt fyrir að hafa nýverið hætt saman eftir þriggja ára samband. 20.2.2007 09:00
Leitar að ástinni Rokkarinn Bret Michaels úr hljómsveitinni Poison verður í aðalhlutverki í eigin raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni VH1. Í þætti sínum mun Michaels leita að ástinni og mun þessi snilld kallast Rock of Love With Bret Michaels. Rokkarinn mun koma sér fyrir með fjölda fagurra kvenna á heimili sínu í Los Angeles og munu stúlkurnar þurfa að gangast undir ýmsar prófraunir í keppni sinni um hylli hans. 20.2.2007 08:30
Lyfjaleit hjá Stallone Tollverðir í Ástralíu leituðu að ólöglegum lyfjum á hótelherbergi og í einkaþotu leikarans Sylvesters Stallone í gær. Síðastliðinn föstudag fundust ólögleg lyf í fórum fylgdarliðs Stallones er hann mætti til Ástralíu til að kynna nýjustu mynd sína, Rocky Balboa. Yfirvöld eiga enn eftir að ákveða hvort Stallone eða einhver úr fyldgarliði hans verður ákærður. Stallone fékk að yfirgefa Ástralíu eftir að kynningarferðinni lauk. 20.2.2007 08:15
Ray Liotta ákærður Leikarinn Ray Liotta hefur verið ákærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eftir að hann klessti bíl sínum á tvo kyrrstæða bíla í Los Angeles. Liotta, sem er 52 ára, borgaði lausnargjald sitt en þarf að mæta fyrir rétti í næsta mánuði. 20.2.2007 07:45