Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lindsay Lohan og Steve Jobs í Playboy Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan verður á forsíðu tímaritsins Playboy í næsta mánuði. Á morgun verður Lohan gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres þar sem hún mun kynna myndaröðina. 7.12.2011 22:55
Miller er Tippi Hedren Sienna Miller fer með hlutverk Tippi Hedren í nýrri sjónvarpsmynd, The Girl, sem verður sýnd á BBC á næsta ári. Myndin fjallar um kynferðislega þráhyggju leikstjórans Alfreds Hitchcock gagnvart Hedren, sem lék í tveimur myndum hans, The Birds og Marnie. Hedren var 31 árs en Hitchcock 62 ára þegar hann áreitti hana kynferðislega og gerði hvað hann gat til að vinna ástir hennar. Slík áreitni var ekki talin refsiverð í þá daga. 7.12.2011 17:15
Tvöfaldir tónleikar á föstudag Tvöfaldir útgáfutónleikar hljómsveitanna Reptilicus og Stereo Hypnosis verða haldnir á Gauki á Stöng á föstudagskvöld. Ný sjö tommu vínilplata Reptilicus, Initial Conditions, er samstarfsverkefni með Praveer Baijal frá Kanada og þýska raftónlistarmannsins Senking. Stereo Hypnosis, sem er skipuð feðgunum Óskari og Pan Thorarensen, er að gefa út sína þriðju plötu sem heitir Synopsis. Á henni starfar sveitin með ítalska raftónlistarmanninum Marco Galardi. Hún var tekin upp í Toscana á Ítalíu. 7.12.2011 22:00
Skytturnar að norðan snúa aftur eftir sjö ára hlé Rapphljómsveitin Skytturnar snýr aftur á föstudag eftir að hafa legið sjö ár í hýði. Nýtt efni verður á dagskrá sem varð til í vikulangri sumarbústaðaferð. 7.12.2011 16:00
Listfræðinemar stofna gallerí "Okkur hefur verið tekið opnum örmum,“ segir Viktoría Jóhannsdóttir Hjördísardóttir, listfræðinemi og einn stofnenda hins glænýja Artíma gallerís. 7.12.2011 16:00
Logi og Brynhildur krýnd flippkindur íslenskrar fréttamennsku Tobba Marinósdóttir fer með síðasta þáttinn sinn í loftið í kvöld, á afmælisdeginum sínum. Í þættinum verða tekin fyrir 10 bestu mistökin í íslensku sjónvarpi en þar mun Pétur Blöndal meðal annars tjá sig í fyrsta skipti um hláturskast á Alþingi. Svo fer Adolf Ingi Erlingsson á kostum. 7.12.2011 15:22
George og nýja gellan Leikarinn George Clooney, 50 ára, leiddi unnustu sína, Stacy Keibler, 32 ára, þegar þau yfirgáfu veitingahús í Hollywood í gærkvöldi... 7.12.2011 15:00
Jólunum bjargað Þegar jólamynd tekst að græta tvo fullorðna einstaklinga og yngsti meðlimurinn fer fyrr að sofa til að reyna að heilla jólasveininn upp úr svörtu stígvélunum hefur hún augljóslega náð markmiði sínu. Arthúr bjargar jólunum er hugljúf teiknimynd með sönnum anda jólanna. 7.12.2011 15:00
Hart barist í geðveikri jólalagasamkeppni Starfsmenn 15 „geðveikra“ fyrirtækja, hafa tekið áskorun um að velja eða semja jólalag og framleiða myndband því til stuðnings. Jólalögin verða þeirra framlag inn í jólalagakeppnina Geðveik Jól 2011 sem hefst í kvöld, 7. Desember, með frumsýningu á lögunum í opinni dagskrá Skjás Eins kl. 19:30 7.12.2011 14:24
Jól hjá Kronkron Verslunin Kronkron bauð viðskiptavinum sínum í jólagleði á föstudagskvöldið þar sem jólaútstilling listakonunnar Hildar Yeoman var afhjúpuð. Það voru margir sem nýttu tækifærið og yljuðu sér á heitri jólaglögg og skoðuðu jólafatnað. 7.12.2011 14:00
Fransmenn sjúkir í Feigð „Þetta hefur ekkert með mig persónulega að gera heldur virðast þeir bara vera að fatta mig og það sem ég er að gera. Sem er ekkert skrýtið. Ég er sjálfur undir áhrifum frá frönskum höfundum og franskri heimspeki,“ segir Stefán Máni, rithöfundur. Franska forlagið Gallimard hefur gert tilboð í nýjustu bók Stefáns, Feigð, eftir að hafa fengið þrjár framúrskarandi umsagnir um bókina hjá sínu fólki. Stefán segist samt sem áður ekki vera búinn að skrifa undir neitt en er þó bjartsýnn á framhaldið. „Eftir að þeir fengu þessar umsagnir fóru hjólin að snúast fyrir alvöru,“ segir Stefán. 7.12.2011 14:00
16 ára píanósnillingur búsettur á Íslandi Ég er mjög stolt af því að búa á Íslandi og ef ég fer eitthvað segi ég að ég sé frá Íslandi..., segir sextán ára píanóleikari, Margaryta Popova, sem sigraði keppni á vegum Tónlistarskóla Reykjávikur á dögunum.... 7.12.2011 13:00
Börnin vilja brúðkaup Angelina Jolie segir að þrátt fyrir að brúðkaup milli hennar og leikarans Brad Pitt sé ekki á dagskránni sé það efst á óskalista barna sinna. Jolie og Pitt eiga saman sex börn og telur leikkonan það alveg nógu mikla skuldbindingu í bili. Hún furðar sig því á þessum óskum barna sinna í nýlegu sjónvarpsviðtali. 7.12.2011 13:00
Sálin komin í jólagírinn Sálin hans Jóns míns er komin á stjá og ætlar að spila á fernum tónleikum á næstunni. Hljómsveitin sívinsæla hefur tekið því rólega undanfarið og aðeins komið einu sinni fram á árinu en ætlar að vera í hörkustuði í desember og janúar. Fyrsta ballið verður á heimavelli sveitarinnar, Nasa, næsta laugardagskvöld. Eftir það taka við böll í Stapanum í Njarðvík 17. desember, á Selfossi 26. desember og á nýársdag spilar hljómsveitin á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi. 7.12.2011 12:00
Myndband Duran Duran bannað – aftur Nýjasta myndband "80 hetjanna í Duran Duran hefur verið tekið úr spilun af tónlistarstöðvunum MTV og VH1 þar sem myndbandið þykir of ögrandi og krassandi. Sænski leikstjórinn Jonas Åkerlund stýrði myndbandinu en það skartar mörgum af frægustu ofurfyrirsætum samtímans í aðalhlutverkum. 7.12.2011 12:00
Tökur á 24 hefjast í apríl Tökur á kvikmynd byggðri á sjónvarpsþáttunum vinsælu 24 hefjast í apríl á næsta ári. Kiefer Sutherland verður sem fyrr í hlutverki Jacks Bauer. Í október sagði Sutherland að handritið að myndinni væri nánast tilbúið og núna hafa tökudagar verið ákveðnir. Talið er Mark Bomback, sem skrifaði handritið að Die Hard 4, hafi lokið við handritið fyrir stuttu. Myndin hefur verið í undirbúningi síðan áttunda og síðasta þáttaröðin af 24 lauk göngu sinni í fyrra. 7.12.2011 11:30
Boðið að sýna í New York „Við erum ótrúlega ánægðar með þetta,“ segir Eva Rún Snorradóttir, einn þriggja meðlima Framandverkaflokksins Kviss búmm bang. Evu ásamt Vilborgu Ólafsdóttur og Evu Björk Kaaber hefur verið boðið að sýna verk sitt, Safari, á listakaupstefnunni APAP Global Performing Arts, í New York í janúar. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar. 7.12.2011 11:00
Tuttugu tilnefndar til Kraums Tuttugu plötur hafa verið tilnefndar til Kraumsverðlaunanna 2011. Á meðal þeirra eru nýjar plötur Of Monsters and Men, FM Belfast, Lay Low, Ragnheiðar Gröndal og Snorra Helgasonar. 7.12.2011 11:00
Stærsta tónleikaferðin? Ofurpoppstjarnan Lady Gaga er þessa dagana að leggja lokahönd á skipulagningu næsta tónleikaferðalags síns. Söngkonan er ekki þekkt fyrir að feta áður troðnar slóðir og því kom það ekki á óvart þegar fréttir af umfangi ferðalagsins láku út. 7.12.2011 10:30
Til stuðnings Færeyjum Vinirnir og söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen standa fyrir samstöðutónleikum á sunnudaginn kl. 15 í Norðurljósasal Hörpu. Þeir eru haldnir til stuðnings Björgunarsveita LFB í Færeyjum. 7.12.2011 09:00
Prúðbúin prinsessa Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge, mættu prúðbúin á góðgerðartónleika prinsanna, Vilhjálms og Harry, sem fram fóru í Royal Albert Hall í London í gær. Eins og sjá má á myndunum var Kate glæsileg klædd í munstraðan kjól með slegið hárið. 7.12.2011 07:44
Rappar um fátækt sína og fangelsisvist á nýrri plötu „Þetta eru mín unglingsár í hnotskurn,“ segir rapparinn Óskar Axel Óskarsson, sem hefur gefið út sína fyrstu plötu. Hún nefnist Maður í mótun og hefur að geyma tíu rapplög undir R&B-áhrifum, sungin á íslensku. Platan var tekin upp fyrir tveimur árum, skömmu eftir bankahrunið, þegar mikil reiði og óvissa var í þjóðfélaginu. „Mig langaði að koma tilfinningum mínum á framfæri.“ 7.12.2011 07:15
Klúðraði risavinningi í beinni útsendingu Félagarnir Steindi og Björn Bragi eru í aðalhlutverki í hljóðbroti úr útvarpsþættinum FM95BLÖ sem nýtur mikilla vinsælda á útvarpsvef Vísis og fer eins og eldur í sinu um netið þessa dagana. 6.12.2011 18:00
Skælbrosandi nýfráskilinn Leikkonan Lea Michele, 25 ára, og leikarinn Ashton Kutcher, 33 ára, voru brosmild á frumsýningu kvikmyndarinnar New Year's Eve í gærkvöldi... 6.12.2011 16:00
Þessi jólakjóll er sko ekkert slor Söngkonan Fergie, 36 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum klædd í Monique Lhuillier kjól og Christian Louboutin skó... 6.12.2011 14:01
Jolie fílar tengdó Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, og unnusti hennar Brad Pitt stilltu sér upp á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar In the Land of Blood & Honey... 6.12.2011 10:49
Græðir á óléttunni Það verður seint sagt að bandaríska söngkonan Jessica Simpson, sem gengur með fyrsta barnið sitt, sé ekki með viðskiptavit... 6.12.2011 09:05
Vor 2012 - Monique Lhuillier Meðfylgjandi má sjá vorlínu hönnuðarins Monique Lhuillier árið 2012.. 6.12.2011 14:30
Mugison græjaði fjögur þúsund eintök í Höllinni Björgvin Halldórsson hertók Laugardalshöllina um helgina með Jólagesti sína. Þegar mest lét voru um 140 manns á sviðinu í einu og því var sægur af fólki baksviðs. Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, Mugison, sá sér þarna leik á borði og fékk tónlistarfólkið til að hjálpa sér að föndra umslög fyrir plötu sína, Haglél. 6.12.2011 14:00
Ný tónlist Jónsa fær glimrandi dóma Jónsi fær góða dóma á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchfork fyrir tónlist sína við kvikmyndina We Bought a Zoo. Platan fær sjö í einkunn af tíu mögulegum. Gagnrýnandinn segir Jónsa vera undir áhrifum frá sólóplötu sinni Go og að strengja- og lúðraútsetningar Nico Muhly séu smekklegar. Einnig segir hann melódíuna í einu laginu líkjast hinu sígilda jólalagi White Christmas. 6.12.2011 12:45
Myndaði BDSM-fólk í Hamraborg „Þetta er svolítið öðruvísi en síðasta bók,“ segir Jónatan Grétarsson um nýja ljósmyndabók sína sem fylgir í kjölfar portrettbókar hans af íslenskum listamönnum sem kom út í fyrra. 6.12.2011 12:00
Les óbirtan kveðskap föður síns, Kristjáns Eldjárns forseta Þórarinn Eldjárn rithöfundur ætlar að flytja óbirtan kveðskap eftir föður sinn, Kristján Eldjárn, forseta Íslands, á vísnakvöldi í Breiðfirðingabúð í kvöld. "Ég var búinn að lofa að mæta á þessa samkomu og fara þar með einhvern kveðskap. Þegar ég áttaði mig á að hana bar upp á afmælisdag föður míns, sem hefði orðið 95 ára í dag, þá fannst mér upplagt að fara með eitthvað eftir hann. Faðir minn orti mikið og þýddi. Minnst af því hefur birst en ég ætla að lesa svolítið úrval af því,“ segir Þórarinn. 6.12.2011 12:00
Hollywoodstjarna með koddann sinn Gossip Girl stjarnan, Blake Lively, 24 ára, yfirgaf íbúð leikarans Ryan Reynolds, 35 ára, í Boston eldsnemma í gærmorgun með kodda í fanginu eins og sjá má á myndunum... 6.12.2011 11:31
Þingmenn á stífum dansæfingum „Þetta verður mjög fróðlegt," segir Ólína Þorvarðardóttir þingkona, sem leggur hart að sér þessa vikuna við að undirbúa hátíðahöld á Degi rauða nefsins, sem haldinn verður með mikilli viðhöfn á föstudaginn. 6.12.2011 10:15
Höfundur Gamlingjans hrærður yfir viðtökunum „Ég er undir miklum áhrifum frá Njálu og Gunnlaugs sögu ormstungu. Og er þess vegna mjög hrærður yfir vinsældum hennar á Íslandi, það skiptir mig miklu máli að þjóð sem hefur lesið og skrifað bækur í jafn langan tíma og þið skuli kunna að meta hana,“ segir Jonas Jonasson, höfundurbókarinnar Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf. Jonas er höfundarnafn skáldsins, hann heitir réttu nafni Pär-Ola og varð fimmtugur í júlí, er fæddur í Växjö en hefur hreiðrað um sig á Gotlandi. 6.12.2011 10:00
Dorrit á djammi með Pippu Forsetafrúin Dorrit Moussaieff var smart og elegant þegar skautasvellið í Somerset-menningarmiðstöðinni í London var opnað fyrir skemmstu. Meðal annarra gesta voru Pippa Middleton, systir Kate Middleton, og Judi Dench, sem hefur leikið M í síðustu James Bond-myndum. 6.12.2011 08:00
Ást við fyrstu sýn hjá ritstjóra "Jú, þetta er frábær auglýsing," segir vöruhönnuðurinn Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir. Fyrir helgi birtist umfjöllun um Not Knot-púða Ragnheiðar á einu af vinsælustu hönnunarbloggum Bandaríkjanna, Design Milk, en daglega sjá á bilinu hálf milljón til tveggja milljóna lesenda efnið sem birtist á síðunni. Það var sjálfur ritstjóri síðunnar sem skrifaði um púðana og sagði það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar hún rak aukun í þá. Púðana gerir Ragnheiður úr íslensku einbandi. 5.12.2011 21:00
Þorvaldur Davíð andlit nýs herrailms Þegar við hófum framleiðslu á herrailminum fóru í gang miklar pælingar með hvaða karlmaður yrði andlit ilmsins. Það er enginn annar en sjarmurinn og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem varð fyrir valinu... 5.12.2011 19:10
Hráfæðis-piparmyntusúkkulaði Hér er gómsæt uppskrift Sólveigar Eiríksdóttur á hráfæðis-piparmyntusúkkulaði sem hún eldaði í Íslandi í dag. 5.12.2011 18:53
Svona færðu hvítar tennur Förðunarmeistarinn Rúna Kærnested Óladóttir hjá Tannhvíttun með Laser í Reykjanesbæ sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig tannhvíttun fer fram... 5.12.2011 15:28
Mamma Angelina Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, leiddi dætur sínar, Zahara og Shiloh, á leið þeirra í leikhús í New York á laugardag. Þá var sonur hennar, Pax, einnig með í för... 5.12.2011 13:45
Íslenski fáninn í X factor Einhverjir Íslendingar urðu eflaust ánægðir þegar þeir horfðu á síðasta þátt af bandarísku útgáfunni af X factor því í einu atriðinu kom íslenski fáninn ítrekað fyrir. Það fylgir íslensku hugsuninni að fyllast af stolti þegar Ísland kemur fyrir á erlendum vettvangi. 5.12.2011 11:52
Kalt viðmót Kidman Það fer ekki gott orð af leikkonunni Nicole Kidman á tökustað kvikmyndarinnar Stoker. Viðmót Kidman við samstarfsfólk sitt mun vera svo kaldranalegt að hún er uppnefnd Ísdrottningin. 5.12.2011 11:00
Börn Jackson Systkinin Paris, Prince, og Blanket Jackson stilltu sér upp saman á rauða dreglinum á frumsýningu söngleiksins Michael Jackson: The Immortal World Tour í Las Vegas... 5.12.2011 10:12
Strákar svona sláið þið í gegn Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur veit hvernig karlmenn geta auðveldlega slegið í gegn hjá konum eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði... 5.12.2011 08:18