Lífið

Börnin vilja brúðkaup

Börn Angelinu Jolie og Brads Pitt vilja að foreldrar þeirra giftist eins og Shrek og Fiona gerðu í teiknimyndinni. Nordicphotos/getty
Börn Angelinu Jolie og Brads Pitt vilja að foreldrar þeirra giftist eins og Shrek og Fiona gerðu í teiknimyndinni. Nordicphotos/getty
Angelina Jolie segir að þrátt fyrir að brúðkaup milli hennar og leikarans Brad Pitt sé ekki á dagskránni sé það efst á óskalista barna sinna. Jolie og Pitt eiga saman sex börn og telur leikkonan það alveg nógu mikla skuldbindingu í bili. Hún furðar sig því á þessum óskum barna sinna í nýlegu sjónvarpsviðtali.

„Ég spyr þau hvort það sé vegna þess að þá fái þau stóra köku en þau vilja að við giftum okkur eins og Shrek og Fiona gera í teiknimyndinni. Við höfum hins vegar útskýrt fyrir þeim að þegar við ákváðum að stofna fjölskyldu saman vorum við að skuldbinda okkur að hvort öðru ævilangt,“ segir Jolie en það eru greinilega fleiri en aðdáendur parsins sem bíða spenntir eftir brúðkaupi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×