Fleiri fréttir

Góð stemning hjá Kraumi

Tónlistasjóðurinn Kraumur blés til mikillar veislu á gistiheimilinu Kex við Skúlagötu á fimmtudaginn. Kippi Kanínus og Dikta léku fyrir gesti og gangandi. Starfsemi Kraums var nýverið tryggð til ársins 2013 en á þeim þremur árum sem hann hefur verið starfræktur hefur sjóðurinn stutt við 90 verkefni, bæði listamanna og hljómsveita. Nýr framkvæmdarstjóri hefur jafnframt tekið til starfa en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu þá hefur Jóhann Ágúst Jóhannsson verið ráðinn til að gegna því starfi í stað Eldars Ástþórssonar. Eldar mun þó áfram vera viðloðandi sjóðinn því hann hefur tekið sæti í stjórn hans.-fgg

Díva í gær - ósköp venjuleg mamma í dag

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leik- og söngkonuna Jennifer Lopez, 41 árs, með tvíburana sína Max og Emme, 3 ára, síðasta laugardag í Disneylandi í Kaliforníu. Þá má sjá myndir af dívunni þar sem hún er uppstríluð. Takið eftir hvað það fer Jennifer vel að leika mömmuhlutverkið.

Finnst þér rómantískt að selja brúðkaupið?

Meðfylgjandi má sjá myndir af Kim Kardashian sem var gestadómari ásamt Michael Kors og Ninu Garcia í sjónvarpsþætti þýsku fyrirsætunnar Heidi Klum, Project Runway. Kim undirbýr nú stóra daginn þegar hún játast unnusta sínum körfuboltakappanum Kris Humphries í sumar. Nú stendur Kim í stórræðum við framleiðslufyrirtæki Ryan Seacrest um að sjónvarpa brúðkaupi þeirra í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni E! fyrir væna fúlgu fjár - nema hvað!

Framsóknarkonur á iði

"Ég er áhlaupamanneskja og byrja allt af krafti. Ég er búin að ná þriggja mánaða markmiðinu mínu sem var að missa sjö kíló,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins. Þingkonur flokksins, þær Vigdís, Siv Friðleifsdóttir og Eygló Harðardóttir stunda allar líkamsrækt af kappi um þessar mundir.

Elska hvort annað

Fyrrum kærustuparið Cameron Diaz og Justin Timberlake elska ennþá hvort annað ef marka má viðtal við Timberlake í norska blaðinu Verdens Gang. Diaz og Timberlake leika andspænis hvort öðru í myndinni Bad Teacher en þau voru kærustupar á árunum 2003 -2006.

Nýja sjarmatröllið á skjánum

Reynir Örn Þrastarson byrjaði sem Lottó-þulur í janúar á þessu ári og þykir hafa staðið sig vel í því hlutverki. Hann er fyrirsæta, sölumaður og menntaður matreiðslumaður en slíkt þykir nokkuð óvenjulegur bakgrunnur fyrir fyrirsætustarfið.

Íslenskur hlaupastíll vekur athygli í Englandi

Íslenska fyrirtækið Smart Motion Running býður upp á kennslu í íslenskum hlaupastíl á Englandi. Hlaupastíllinn hefur vakið athygli erlendis og breskir hlaupaþjálfarar hafa sótt námskeið.

Bond genginn út

Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig, betur þekktur sem James Bond, og leikkonan Rachel Weisz giftu sig 22. júní síðastliðinn. Athöfnin var persónuleg því einungis voru viðstaddir dóttir Daniels, Ella, 18 ára, sonur Rachel, Henry, 5 ára, og tveir fjölskyldumeðlimir. Í myndasafni má sjá Daniel ásamt fyrrverandi unnustu sinni, Satsuki Mitchell, en þau hættu saman í fyrra eftir 5 ára samband. Þá má einnig sjá Rachel ásamt þáverandi kærasta, Darren Aronofsky, en þau slitu líka 9 ára sambandi í fyrra. Daniel og Rachel leika saman í nýrri kvikmyndinni Dream House sem var mynduð í fyrra. Prinsessuleikur Lífsins. Drögum út fimm heppna á morgun!

Á djamminu eftir sambandsslitin

Elisabetta Canalis, 32 ára, skemmti sér í faðmi vinkvenna sinna í Róm á Ítalíu í gærkvöldi eins og sjá má í myndasafni. Deginum áður var hún mynduð með hundana sína í Mílanó. Fjölmiðlafulltrúi Elísabettu lét hafa eftir sér að sambandsslitin við leikarann George Clooney, 50 ára, væru mjög erfið fyrir Elisabettu og nú ætlar hún að taka sér dágóðan tíma í að jafna sig þar til hún ræðir við fjölmiðla um tilfinningar sínar varðandi þetta mál.

Huga að heildinni

Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona og Silja Úlfarsdóttir einkaþjálfari opna afreksskóla

Frumlegur Grillmarkaður

Veitingastaðurinn Grillmarkaðurinn verður opnaður fyrir matargesti eftir helgi. Matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran á og rekur staðinn og miðað við vinsældir Fiskmarkaðsins má búast við að nýji staðurinn muni einnig slá í gegn.

Fer með aðalhlutverkið í Axlar-Birni hjá Vesturporti

"Þetta verður rosalega skemmtilegt. Ég er búinn að vera að spá í þetta í smá tíma að það væri gaman að fara á leiksvið aftur. Ég hef verið að skoða bisnessplön alltof lengi,“ segir Helgi Björnsson.

Ný sirkussýning leitar til raunveruleikaþáttanna

„Það er svo mikið lýðræði innan hópsins að við eigum öll heiðurinn að hugmyndinni á bak við sýninguna,“ segir Katla Þórarinsdóttir, einn aðstandenda Sirkus Íslands sem frumsýna nýja fjölskyldusýningu í Tjarnarbíói þann 1.júlí.

Brúðkaupi aflýst

Mótorhjólasmiðurinn Jesse James og húðflúrarinn frægi Kat Von D eru hætt saman og þar af leiðandi er brúðkaupi þeirra aflýst.

Á tónlistahátíð með Streets

Íslenska hljómsveitin Retro Stefson kom fram á tónlistarhátíðinni INmusic sem fram fór dagana 21. og 22. júní í Zagreb í Krótaíu. Á hátíðinni spiluðu tæplega 30 hljómsveitir en þar má meðal annars nefna stóru böndin Arcade Fire, Jamiroquai, Cypress Hill, The Streets og Grinderman, hljómsveit Nick Cave.

Vandræðagemsi Lindsay Lohan

Það er skammt stórra högga á milli hjá leikkonunni Lindsay Lohan en aðeins mánuði eftir að hún var dæmd í stofufangelsi fyrir skartgripastuld hefur hún verið kærð á ný.

Tvífari Brad Pitt

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, er um þessar mundir upptekinn á Möltu við tökur á uppvakningar kvikmyndinni World War Z. Meðfylgjandi má sjá manninn sem sér um að leika áhættuatriðin hans Brad í myndinni og ef vel er skoðað er hann ekkert svo ósvipaður Brad. Þá má sjá Brad á rauða dreglinum með Angelinu Jolie og með Pax syni þeirra á tökustað. Burtséð frá því er Brad óheimilt að koma til Kína vegna hlutverks hans í myndinni Seven Years in Tibet.

Með rassinn í röntgen

Kim Kardashian hefur nú farið í röntgenmyndatöku með sinn heimsfræga rass, til þess að sýna heiminum að þar sé engar ígræðslur að finna. Það voru systur hennar, Kourtney og Khloe, sem mönuðu hana í myndatökunua en Kim hefur oft þurft að hlusta á sögur um að rass hennar sé ekki ekta.

Ætlar þú ekki örugglega á Þjóðhátíð í Eyjum?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær á N1 við Hringbraut þegar forsalan á Þjóðhátíð í Eyjum hófst formlega. Þjónustustöðvar N1 um land allt selja miða á þjóðhátíð í ár og af því tilefni var fagnað á N1 þar sem Friðrik Dór og Blaz Roca tóku lagið fyriir nærstadda. Þeir fóru á kostum eins og vanalega.

Helgi Björns er svo með´etta

Stappfullt var í Eldborg í Hörpu á 17. júní á tónleikum Helga Björns og gesta. Uppselt var á tónleikana viku eftir að miðasala hófst enda eftirvæntingin mikil að fá að heyra þessa tónlist þar sem ólíku meistararnir leiddu saman hesta sína. Selja varð í sæti bak við sviðið og hefur sætanýting salarins aldrei verið fullnýtt þar fyrr. Þegar fjölmennast var á sviðinu voru áttatíu manns að flytja tónlist: karlakór, strengjasveit, rokkhljómsveit, og söngstjörnur. Svo rafmögnuð varð stemningin að þegar gestgjafinn Helgi Björns var að fara að syngja lagið Brennið þið vitar, ....varð brunakerfinu nóg boðið og hóf einnig upp raust sína. Stærsti kór landsins söng sig svo inn í bjarta sumarnóttina, þegar samtals 1623 gestir tónleikanna stóðu upp og sungu saman þjóðsönginn. Sjá myndir frá tónleikunum í meðfylgjandi myndasafni.

Finnbogi heillar Þjóðverjana

„Það hafa einhverjar dyr opnast þarna í Þýskalandi,“ segir leikarinn Finnbogi Þorkell Jónsson, en hann fór með hlutverk í þýskri heimildarmynd um vísindamanninn Alfred Wegener. Myndin verður sýnd í þýska ríkissjónvarpinu von bráðar en leikarinn Stefán Hallur Stefánsson fer einnig með hlutverk í myndinni.

Skjálfandi Galliano

Réttarhöldin yfir tískuhönnuðinum John Galliano eru hafin í París. Hann var ákærður vegna niðrandi ummæla í garð gyðinga á opinberum vettvangi. Svar hans við ákærunni er einfalt, hann man hreinlega ekkert eftir atvikinu.

Íslenskur tökumaður í grænlenskri hryllingsmynd

"Þetta var þvílíkt ævintýri. Það kom mér á óvart hve margir Grænlendingar eru virkilega hæfileikaríkir án þess að hafa "professional“ reynslu,“ segir Freyr Líndal Sævarsson.

Viltu vinna frítt prinsessu dagkrem?

Kvittaðu á Facebooksíðu Lífsins og deildu síðunni ef þú vilt vinna litað dagkrem frá Bobbi Brown eins og Kate Middleton hertogynjan af Cambridge, sem skoða má í myndasafni, notar. Fimm vinningshafar sem kvitta/deila fá litað dagkrem frá Bobbi Brown sem gefur húðinni létta og fullkomna þekju en leyfa húðinni jafnframt að skína í gegn eins og hjá prinsessunni. Þá verður húðliturinn jafnari. Þetta eru gel-krem sem innihalda öflug andoxunarefni sem verja húðina gegn utanaðkomandi áreiti og við geislum sólar með SPF 15. Kremin koma í 8 litum hvort sem er með eða án olíu. Starfsfólk Bobbi Brown í Hagkaup Smáralind mun aðstoða vinningshafana sem verða dregnir út mánudaginn 27. júní, að velja rétt dagkrem.

Mel Gibson byrjaður með strippara (hvað næst?)

Ástralski vandræðagemsinn, leikarinn Mel Gibson, sem hefur hefur verið stanslaust í fréttum vegna heimilisofbeldis, drykkjuskapar og and-gyðinlegra ummæla svo fátt eitt sé nefnt er byrjaður með 25 ára gömlum grískum strippara, Stellu Mouzi. Sjá má Stellu við störf í myndasafni og sjálfan Mel ásamt vinkonu sinni, leikkonunni Jodie Foster, þar sem þau kynna kvikmyndina The Beaver. Mel fer með aðalhlutverk í myndinni og Jodie bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið.

Draumur rætist með smelli

"Við erum bara ósköp venjulegar stelpur sem höfum brennandi áhuga á tónlist,“ segir Ragnhildur Jónasdóttir, en hún og vinkona hennar, Margrét Rán, gáfu nýverið út sumarsmellinn "Það er komið sumar“.

Taka tvö hjá Caribou

Kanadíska hjómsveitin Caribou ætlar að gera aðra tilraun til að koma hingað til lands í næstu viku. Tónleikar með sveitinni eru fyrirhugaðir á Nasa 28. júní.

Aniston fær stjörnu

Leikkonan Jennifer Aniston fær stjörnu á frægðarstéttina í Hollywood á komandi ári. Aniston, sem hóf ferilinn sem Rachel í Friends, hefur gengið vel að landa hlutverkum í rómantískum gamanmyndum frá því að Friends-ævintýrinu lauk og þykir kominn tími til að gefa henni stjörnu í stéttina frægu.

Aftur í samskiptum

Rihanna og fyrrum kærasti hennar, söngvarinn Chris Brown, endurnýjuðu vinskap sinn á samskiptasíðunni Twitter fyrir stuttu. Nú halda aðdáendur söngkonunnar að þau hafi tekið aftur saman, en Rihanna sleit sambandi þeirra í byrjun árs 2009 eftir að Brown lagði hendur á hana.

Semja handrit að hrollvekju

Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson og rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð eru að semja kvikmyndahandrit að hrollvekju sem Gaukur ætlar að leikstýra.

Rikka gefur út girnilega kökubók

Hugmyndin kom út frá bollakökunámskeiðunum sem ég er búin að vera að halda undanfarið. Bókin er stútfull af girnilegum uppskrifum og hugmyndum af skreytingum fyrir öll tilefni," svarar fjölmiðlakonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir sem gaf út bókina Bollakökubók Rikku í dag. Bókin inniheldur gómsætar uppskriftir og ekki eru myndirnar af bollakökunum síðri. Rikka verður með kynningu á bókinni í Hagkaup, Smáralind næsta laugardaginn milli klukkan 14-16.

Var einhver að tala um útblásnar varir?

Í kjölfar fréttar um gjörbreyttar varir Jessicu Biel barst Lífinu ábending um vægast sagt útblásnar varir bresku fyrirsætunnar og Transformers 3 leikkonunnar Rosie Huntington-Whiteley, 24 ára. Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá Rosie Huntington-Whiteley og vinkonur hennar, Victoria´s Secret engla, gera grín að útblásnum vörum fyrirsætunnar. Transformers: Dark of the Moon verður frumsýnd á Íslandi 29. júní næstkomandi.

Tekur íslenska þjóðsönginn í gítarsólói

Gítarleikari hljómsveitarinnar The Vintage Caravan, Óskar Logi Ágústsson, hefur þegar komið sem stormsveipur inn í íslenskt tónleikalíf með ærslafullum gítarleik sínum og öryggi. Sannkölluð gítarhetja þrátt fyrir að eiga enn nokkur ár í tvítugt. Piltarnir í sveitinni undirbúa sig nú fyrir stærsta gigg ferils þeirra, er þeir koma fram á Bestu útihátíðinni eftir tvær vikur.

Purity Herbs í Kína

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar framleiðslufyrirtækið Purity Herbs fagnaði í nýju húsnæði við Freyjunes 4 á Akureyri. Eigendur Purity Herbs fögnuðu nýjum áfanga í sögu fyrirtækisins sem er komið með framtíðaraðstöðu þar sem allar aðstæður eru eins og best verður á kosið og mögulegt að taka á móti viðskiptavinum, ekki síst erlendum dreifingaraðilum sem ætla sér stóra hluti með Purity Herbs í sínu heimalandi. Hitt gleðitilefnið var stór samningur um útflutning til Kína þar sem barnalína Purity Herbs er komin á markað þar í landi. Um er að ræða þrjár vörutegundir, barnakrem, barnaolía og barnasápa og allt 100% náttúrulegt. Á annað hundrað manns mættu til að samgleðjast og skoða nýja húsnæð Purity Herbs og allir voru sammála um að vel hafi tekist til með allar framkvæmdir og staðsetningin einstök með fögru útsýni hvert sem litið er. Sleipiefni Purity Herbs eru vinsæl á meðal sjómanna á Íslandi (video). Purity Herbs á Facebook.

Höfnuðu James Bond

Rokkararnir í Kings of Leon höfnuðu boði um að semja aðallag næstu James Bond-myndar.

Þessar endalausu varastækkanir eru pínu þreytandi

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá breytinguna sem hefur orðið á vörum leikkonunnar Jessicu Biel, 29 ára, og nefi hennar og brjóstum í gegnum tíðina. Þá má einnig sjá Jessicu með leikaranum Gerard Butler á mótorhjóli og þegar hún gaf eiginhandaráritanir fyrir utan tökustað kvikmyndarinnar Total Recall síðasta mánudag í Toronto í Kanada.

Hollensk rúgbrauð á Landsmóti

Hollenskur fornbílaklúbbur með Volkswagen-rúgbrauð og -bjöllur fremst í flokki tekur þátt í Landsmóti Fornbílaklúbbs Íslands sem verður haldið á Selfossi í áttunda sinn um næstu helgi.

Fyrirsætan sem sló í gegn

Með hártoppinn beinstífan upp í loftið heillaði hún áhorfendur er hún lék Mary í myndinni There"s Some-thing About Mary. Það er hin leggjalanga og ljóshærða Cameron Diaz sem leikur aðalhlutverkið í gamanmyndinni Bad Teacher en myndin var frumsýnd hér á landi í gær.

Barnvænt hús í Belgíu

DmvA arkítektar hönnuðu húsið sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er í Belgíu, var teiknað fyrir fjölskyldufólk sem lagði ríka áherslu að húsið væri barnvænt og að umferðin fyrir utan húsið hyrfi um leið og stigið væri inn í það. Garðurinn snýr ekki að götunni og það á einnig við um svefnherbergin og stofuna.

Aniston og skeggjaði kærastinn

Leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, og skeggjaði kærastinn hennar Justin Theroux nutu samverunnar í Soho í New York eins og sjá má í myndasafni. Justin og Jennifer sáust fyrst saman í byrjun júní þar sem þau leiddust og létu vel að öðru að röltinu um götur New York borgar. Burtséð frá tilhugalífi leikkonunnar var tilkynnt á dögunum að Jennifer fengi eigin Hollywood Walk of fame stjörnu.

Life of Brian efniviður í nýja mynd

BBC hefur ákveðið að ráðast í gerð kvikmyndar sem fjalla á um fárið í kringum Monty Python-myndina Life of Brian. Handrit eftir Tony Roche er tilbúið og búið er að ráða í helstu hlutverk. Samkvæmt frétt Guardian kemur enginn af meðlimum grínhópsins nálægt myndinni. Þeim hafi þó verið gefið tækifæri til að gera athugasemdir við handrit og koma sínum skoðunum á framfæri.

Sjá næstu 50 fréttir