Fleiri fréttir Arftaki Grace Kelly Augu heimsbyggðarinnar eru á Ólympíusundstjörnunni Charlene Wittstock eftir að hún og Albert fursti af Mónakó opinberuðu trúlofun sína síðasta sumar. 27.1.2011 15:27 Írskur boxari og stamandi konungur í kvikmyndahús Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar hérlendis á morgun. Tvær þeirra voru á þriðjudag tilnefndar til nítján Óskarsverðlauna samanlagt. Kvikmyndaunnendur hafa úr fjórum nýjum kvikmyndum að velja þessa helgina. Þær eru The Fighter, The King"s Speech, The Dilemma og From Prada to Nada. 27.1.2011 20:00 Hittust á netinu og mæltu sér mót á Íslandi Klassískt menntaði píanóleikarinn Vika Yermoleva og trommarinn Brian Viglione úr hljómsveitinni The Dresden Dolls leiða saman hesta sína á Sódómu á laugardagskvöld. 27.1.2011 14:15 Sigraði í prjónaðri brók frá mömmu „Ég held að það verði erfitt að toppa þetta,“ segir Guðni Þorri Egilsson, nýkrýndur „Þorri landsmanna“ 2011. Ölgerðin efndi til keppni um nafnbótina í tilefni bóndadagsins en þann dag kom Egils Þorrabjór í áfengisverslanir. 27.1.2011 12:00 Höddi Magg fékk sjokk í Svíþjóð „Þetta er nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég hef hvorki farið sem fréttamaður né áhorfandi á stórmót þannig að þetta hefur verið mikið ævintýri. En um leið höfum við, ég og Björn Sigurðsson aðstoðarmaður minn, líka verið á þönum allan tímann þannig að þetta hefur verið ákaflega lýjandi um leið,“ segir Hörður Magnússon íþróttafréttamaður. 27.1.2011 13:30 Prikið undirbýr drykkjuspil í tilefni afmælis Veitinga- og skemmtistaðurinn Prikið er með nýtt borðspil í undirbúningi í tilefni af sextugsafmæli sínu í ár. „Við ætlum að búa til fyllerísspil í anda Trivial [Pursuit]. Þarna verður fullt af hlutum sem tengjast Prikinu og vitleysunni sem er í gangi þar,“ segir Finni hjá Prikinu. „Þetta verður fjör, númer eitt, tvö og þrjú. Það verður mikið drukkið í því, býst ég við.“ 27.1.2011 13:00 Hlakka til að hitta nemendurna Förðunarskólinn Beautyworld hefur verið settur á laggirnar og mun kenna á snyrtivörurnar frá Bobbi Brown. Hugmyndafræðin á bak við vörurnar er sú að hver kona geti litið út eins og hún sé með lýtalausa húð, noti hún réttan farða. 27.1.2011 08:00 Fjaðrir og tjull Tískuvikunni í París lýkur í dag en þar hafa tískuhúsin sýnt Haute Couture línur sínar fyrir vor 2011. Línurnar voru stórkostlegar og flíkurnar ýktar og mikilfenglegar að venju. 27.1.2011 04:00 Ungmenni á plötu Sönglistar Ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára koma við sögu á plötunni Sönglistin 2010 sem er nýkomin út. Á henni eru þrettán innlend og erlend lög. Flytjendur eru eða hafa verið nemendur í söng- og leiklistarskólanum Sönglist. 27.1.2011 00:00 Hártískan í handboltanum Hártíska íþróttaheimsins er jafn skrautleg og annars staðar. Fréttablaðið tíndi til nokkra valinkunna handboltakappa sem hafa skartað hárgreiðslu sem tekið er eftir. 26.1.2011 20:00 Já en kærastan er miklu stærrri en þú Logi Brynjarsson matreiðslumaður á matsölustaðnum Höfnin sem staðsettur er við bátahöfnina í Reykjavík veit hvernig best er að elda lax á einfaldan og fljótlegan máta. Fyrir tilviljun var unnusta Loga, Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottnign með meiru, stödd að snæðingi á Höfninni en Logi rekur staðinn ásamt foreldrum sínum. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði er töluverður stærðarmunur á Loga og Ragnheiði. 26.1.2011 15:38 Loksins eitthvað spennandi fyrir börnin Barnaleikritið Fjársjóðsleit með Ísgerði verður frumsýnt laugardaginn 29. janúar næstkomandi í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi. Fjársjóðsleitin er gagnvirkt leikrit þar sem krakkarnir fá að taka virkan þátt í spennandi ævintýri þar sem ýmsar skrautlegar persónur verða á vegi þeirra með Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnúsi Guðmundssyni í aðalhlutverkum. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Norðurpólnum í vikunni þar sem undirbúningurinn stendur sem hæst. Sjá nánar á midi.is. 26.1.2011 11:30 Penélope og Javier eignast sitt fyrsta barn Spænsku leikarahjónin Penélope Cruz og Javier Bardem eignuðust sitt fyrsta barn nú í vikunni. Samkvæmt spænska blaðinu El País fæddist barnið á Cedars-Sinai spítalanum í Los Angeles. Blaðið hefur það eftir heimildarmönnum að þetta sé sveingbarn. 26.1.2011 10:30 Sex vinir Sjonna syngja Eurovision-lagið „Þessi nöfn eru staðfest og munu syngja lagið hans Sjonna," segir Jóhanna Jóhannsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Sex vinir Sjonna Brink munu flytja lagið hans Aftur heim sem lagasmiðurinn og söngvarinn samdi fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Þetta eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson. 26.1.2011 00:01 Golden Globe: Fölir litir og einföld snið Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles á dögunum og að venju hefur mikið verið pælt í klæðnaði leikkvennanna. Pastellitir og fölir litatónar voru ríkjandi á rauða dreglinum í ár en inni á milli mátti sjá sterkari liti líkt og rauða kjóla January Jones og Christinu Hendricks. 26.1.2011 16:47 Fjórir Íslendingar í vinnu á tökustað Karlar sem hata konur „Ég skrifaði undir trúnaðarsamkomulag um að gefa ekkert upp um efni myndarinnar en ég get alveg viðurkennt að ég hafi verið að vinna í henni,“ segir Finnur Þór Guðjónsson. 26.1.2011 00:01 Oprah Winfrey á hálfsystur Spjallþáttakonan Oprah Winfrey hefur uppgötvað að hún á hálfsystur. Sú er frá Milwaukee og var ættleidd fyrir tæpum fimmtíu árum, þegar Oprah var átta ára. 26.1.2011 00:01 Himnesk frammistaða Tónlistarkonan Ólöf Arnalds hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónleika sína á menningarhátíðinni Sydney Festival sem haldin er í Ástralíu um þessar mundir. 26.1.2011 00:01 Retro Stefson að semja við útgáfurisann Universal Hljómsveitin Retro Stefson er í þann mund að skrifa undir samning við stórfyrirtækið Universal. Viðræður fóru af stað eftir að útsendari fyrirtækisins í Þýskalandi fór á tónleika með hljómsveitinni á Iceland Airwaves-hátíðinni síðasta haust og heillaðist upp úr skónum. 26.1.2011 00:00 Ekkert óvænt á Óskarnum Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru kunngjörðar í gær. Fátt kom á óvart í vali bandarísku akademíunnar og raunar var allt eftir bókinni. The King‘s Speech leiðir kapphlaupið með tólf tilnefningar en True Grit fylgir fast á eftir með tíu. The Social Network er tilnefnd til átta. 26.1.2011 00:00 Lay Low gerir plötu við ljóð íslenskra kvenskálda „Ég er mjög spennt því mig hefur lengi langað til að gera íslenska plötu, en ég er ekki nógu góð í að semja íslenska texta," segir tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, best þekkt sem Lay Low. 25.1.2011 21:00 Leggur stuðsamning fyrir bæjarstjórn „Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast kallaður Mugison. 25.1.2011 20:00 Enskur umbi með erindi 25.1.2011 11:00 Tvær plötur frá Kanye Rapparinn Kanye West ætlar að gefa út tvær plötur áður en sumarið er á enda. Fyrst kemur Watch the Throne út í mars sem hann gerir með rapparanum Jay-Z og í lok sumars er svo væntanleg ný sólóplata frá Kanye. 25.1.2011 10:00 Rifjum aðeins upp hvernig þú varst fyrir nýju varirnar Eins og heimurinn veit er leikkonan Lindsay Lohan nýskriðin úr meðferð við áfengis- og vímefna misnotkun og líka að hún á það til að láta setja kallogen efni í varirnar á sér. Í meðfylgjandi myndasafni rifjum við upp hvernig Lindsay leit út fyrir nýju varirnar. Þá má einnig sjá myndir af Lindsay við stýrið nýliðna helgi. 25.1.2011 08:00 Rocky Horror endurfundir Hópurinn sem setti upp söngleikinn Rocky Horror í Menntaskólanum við Hamrahlíð hittist í Iðnó á föstudaginn í tilefni þess að tuttugu ár voru liðin frá frumsýningunni. 25.1.2011 09:00 Íslenskri nýklassík hampað Íslenskir flytjendur eru áberandi í heilsíðuumfjöllun á menningarsíðu breska blaðsins Sunday Times um síðustu helgi. Þar er fjallað um nýja tegund lagahöfunda sem notast við sígilda tónlist í sköpun sinni. Einnig er rætt um að lagahöfundar þurfi ekki lengur að vera á sama stað ætli þeir að semja saman lög eða taka þau upp. Þar hafi netið komið inn í staðinn. 25.1.2011 08:00 Það fylgir glamúrnum að vera pínu DJARFUR „Það fylgir glamúrnum að vera pínu djarfur en það er alveg hægt að hafa hlutina djarfa án þess að það sé subbulegt. Mér hefur alltaf fundist gaman að skoða auglýsingabæklinga með fallegum myndum af fallegum líkömum. Mér finnst líka falleg nekt í góðu lagi og fer oftast bara eftir hvort það sé ekki örugglega „fancy not trashy". Mér finnst lítið mál að sitja fyrir sjálf á bikiní því ég er ánægð með líkama minn og geri líka í því að halda honum við. Ef fólk er ekki sátt við það þá þarf það ekkert að glápa. Það skiptir auðvitað bara öllu ef þú sjálf ert sátt við hlutina og hefur gaman af þeim. Ég hef allavega ekki gert neitt ennþá sem ég sé eftir enda hef ég heldur ekki verið að taka öllu sem býðst. Ég er frekar old school og settleg að eðlisfari." 24.1.2011 17:19 Jesse James lofaður tattúkonu Jesse James, fyrrum eiginmaður leikkonunnar Söndru Bullock, hefur trúlofast húðflúrlistakonunni Kat Von D. Parið hóf samband sitt síðasta sumar, skömmu eftir skilnað James við Bullock. Í viðtali við tímaritið People opinberar James ást sína á Von D og segist aldrei hafa kynnst jafn yndislegri manneskju. „Árið 2010 var besta ár lífs mín því ég varð ástfanginn af bestu vinkonu minni. Hún er frábær kona sem stóð með mér á tíma þegar allur heimurinn snéri við mér baki. Ég get ekki sett tilfinningar mínar í orð og ég er himinlifandi að hún hafi sagt „já“. Það á eftir að verða dásamlegt að eldast með henni,“ sagði James. 24.1.2011 16:00 Halle Berry reið barnsföður sínum Leikkonan Halle Berry mun vera afskaplega stjórnsöm ef marka má frétt sem birt var á vefsíðunni Radaronline.com. Berry vill til að mynda ekki að fyrrum sambýlismaður hennar, Gabriel Aubry, fari á stefnumót með frægum konum þrátt fyrir að hún sé sjálf í sambandi með franska leikaranum Oliver Martinez. „Ef Gabriel gerir ekki nákvæmlega það sem Halle segir honum að gera verður hún óð og öskrar á hann. Halle er mjög skapstór og stjórnsöm á bak við tjöldin," var haft eftir heimildarmanni. „Halle vill alls ekki að hann fari á opinber stefnumót og vill helst að hann hitti óþekktar konur, ekki aðrar stjörnur. Hún gaf honum úrslitakost, annað hvort hættir hann að hitta konur sem munu draga athygli að honum eða hann heldur friðinn á milli þeirra tveggja. Gabriel óttast að ef hann heldur Halle ekki góðri að þá fái hann ekki að hitta dóttur sína eins oft og hann langar til," sagði heimildarmaðurinn sem ber Berry ekki góða söguna. 24.1.2011 12:00 Bannaði Jessicu að kaupa sér Fendi-tösku Söngkonan Jessica Simpson skammast sín fyrir hegðun unnusta síns, ruðningskappans fyrrverandi Erics Johnson, ef marka má nýja frétt OK Magazine. 24.1.2011 15:30 Ragga stýrir umræðum í Universal Studios „Ég var búin ad gleyma hvað það er hrikalega gaman ad krukka í áhugaverðu fólki,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi útvarpsmaður á Bylgjunni. 24.1.2011 00:01 Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup Hljómsveitin Bloodgroup spilaði fyrir 2000 tryllta námsmenn í Porto í Portúgal í síðustu viku. „Ég hef aldrei heyrt meiri hávaða,“ segir Ragnar Láki hljómborðsleikari. 24.1.2011 00:01 Atli Rafn talar fyrir Þór og Laddi Mjölni Atli Rafn Sigurðarson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, hafa verið ráðnir í tvö stærstu hlutverkin í teiknimyndinni Þór sem framleiðslufyrirtækið Caoz er að gera. Atli Rafn mun tala fyrir Þór og Þórhallur verður Mjölnir. 24.1.2011 00:01 Geir Ólafs flýgur út í febrúar Söngvarinn Geir Ólafsson hefur verið bókaður á tvenna tónleika í Los Angeles í febrúar og stefnir á að syngja á einum til viðbótar. 24.1.2011 00:01 Þessu liði leiddist greinilega ekki Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari hjá Superman.is um helgina á skemmtistöðunum Risinu, Hressó, Bankanum og Hvítu perlunni. Eins og sjá má í myndasafni leiddist fólkinu ekki á djamminu. 23.1.2011 13:03 Helicopter: Föt með notagildi Hönnuðurinn Helga Lilja Magnúsdóttir hefur hannað undir heitinu Helicopter í nokkur ár en ný fatalína frá henni hefur slegið rækilega í gegn. 23.1.2011 06:00 Sumir höfðu vit á því að vera í LEÐURBUXUM Skemmti- og spurningaþátturinn Ha? hóf göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi. Umsjónarmaður er leikarinn Jóhann G. Jóhannsson og liðsstjórar eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sólmundur Hólm. Leðurbuxur Eddu Bjargar stálu senunni því Jói og Sóli litu út eins og viskustykki, klæddir í skyrtur, á meðan Edda geislaði af kynþokka. Baggalútsmenn mættu til leiks eiturhressir að vanda eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 22.1.2011 15:04 Draumastarfið hjá All Saints Nýtt útlit hljómsveitarinnar The Charlies vakti athygli lesenda Fréttablaðsins fyrir skemmstu. Manneskjan á bak við fötin sem stúlkurnar í The Charlies klæddust er Elísabet Kristófersdóttir. 22.1.2011 18:00 Í hlutverki Saddams Sacha Baron Cohen ætlar að leika Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforeta, í gamanmyndinni The Dictator. Myndin er byggð á bókinni Zabibah and The King sem Hussein skrifaði sjálfur. 22.1.2011 13:00 Jóhanna Guðrún verður í stuttum kjól í kvöld „Það leggst bara mjög vel í mig að keppa aftur. Smá meiri pressa en í seinustu forkeppni en það er bara gott," segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona en hún snýr aftur í Eurovision með því að syngja lag Maríu Bjarkar Sverrisdóttur í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Jóhanna er öllum hnútum kunn í Söngvakeppninni, vann hana 2008 og fór með lagið Is It True? alla leið í annað sætið í Moskvu, sællar minningar. Hvernig hefur undurbúningurinn fyrir keppnina gengið? „Æfingarnar hafa gengið frábærlega vel enda er ég með frábært fòlk með mér," segir hún. „Ég ætla að vera í kjól og í fyrsta skipti í Eurovision er ég ekki í síðum kjól. Kjóllinn var keyptur fyrir mig en ég lét síðan breyta honum aðeins og er rosalega ánægð með útkomuna," segir Jóhanna Guðrún spurð í hverju hún ætlar að vera í kvöld. 22.1.2011 10:15 Danskur stórleikari er höfuðpaur Banditos í Pressu „Hann er pottþéttur og hefur alveg gríðarlega sterka nærveru,“ segir Óskar Jónasson, leikstjóri sjónvarpsþáttaraðarinnar Pressu 2. 22.1.2011 09:00 Arnaldur ánægður með nýja útgáfu „Þetta er náttúrulega frábært að fá þessa bók út á þýsku og það verður gaman að vita hvernig henni vegnar,“ segir metsöluhöfundurinn Arnaldur Indriðason. 22.1.2011 07:30 Nýir tískustraumar í vor Kjólar við síðbuxur verður það heitasta í vor ef marka má tískuskríbenta en mikið hefur verið fjallað um þennan tískustraum á erlendum bloggsíðum. Tískuhús á borð við Dries Van Noten, Givenchy, Cerruti og Whyred sýndu meðal annars slíka samsetningu á tískupöllunum í haust en þó hugmyndin sé sú sama eru útfærslur tískuhúsanna ólíkar. 22.1.2011 00:00 Arnar Ingi er endurfæddur Johnny Cash Arnar Ingi hefur verið aðdáandi Johnny Cash síðan hann var 13 ára. Hann tók lagið Folsom Prison Blues í útvarpsþættinum Harmageddon. 21.1.2011 22:00 Sjá næstu 50 fréttir
Arftaki Grace Kelly Augu heimsbyggðarinnar eru á Ólympíusundstjörnunni Charlene Wittstock eftir að hún og Albert fursti af Mónakó opinberuðu trúlofun sína síðasta sumar. 27.1.2011 15:27
Írskur boxari og stamandi konungur í kvikmyndahús Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar hérlendis á morgun. Tvær þeirra voru á þriðjudag tilnefndar til nítján Óskarsverðlauna samanlagt. Kvikmyndaunnendur hafa úr fjórum nýjum kvikmyndum að velja þessa helgina. Þær eru The Fighter, The King"s Speech, The Dilemma og From Prada to Nada. 27.1.2011 20:00
Hittust á netinu og mæltu sér mót á Íslandi Klassískt menntaði píanóleikarinn Vika Yermoleva og trommarinn Brian Viglione úr hljómsveitinni The Dresden Dolls leiða saman hesta sína á Sódómu á laugardagskvöld. 27.1.2011 14:15
Sigraði í prjónaðri brók frá mömmu „Ég held að það verði erfitt að toppa þetta,“ segir Guðni Þorri Egilsson, nýkrýndur „Þorri landsmanna“ 2011. Ölgerðin efndi til keppni um nafnbótina í tilefni bóndadagsins en þann dag kom Egils Þorrabjór í áfengisverslanir. 27.1.2011 12:00
Höddi Magg fékk sjokk í Svíþjóð „Þetta er nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég hef hvorki farið sem fréttamaður né áhorfandi á stórmót þannig að þetta hefur verið mikið ævintýri. En um leið höfum við, ég og Björn Sigurðsson aðstoðarmaður minn, líka verið á þönum allan tímann þannig að þetta hefur verið ákaflega lýjandi um leið,“ segir Hörður Magnússon íþróttafréttamaður. 27.1.2011 13:30
Prikið undirbýr drykkjuspil í tilefni afmælis Veitinga- og skemmtistaðurinn Prikið er með nýtt borðspil í undirbúningi í tilefni af sextugsafmæli sínu í ár. „Við ætlum að búa til fyllerísspil í anda Trivial [Pursuit]. Þarna verður fullt af hlutum sem tengjast Prikinu og vitleysunni sem er í gangi þar,“ segir Finni hjá Prikinu. „Þetta verður fjör, númer eitt, tvö og þrjú. Það verður mikið drukkið í því, býst ég við.“ 27.1.2011 13:00
Hlakka til að hitta nemendurna Förðunarskólinn Beautyworld hefur verið settur á laggirnar og mun kenna á snyrtivörurnar frá Bobbi Brown. Hugmyndafræðin á bak við vörurnar er sú að hver kona geti litið út eins og hún sé með lýtalausa húð, noti hún réttan farða. 27.1.2011 08:00
Fjaðrir og tjull Tískuvikunni í París lýkur í dag en þar hafa tískuhúsin sýnt Haute Couture línur sínar fyrir vor 2011. Línurnar voru stórkostlegar og flíkurnar ýktar og mikilfenglegar að venju. 27.1.2011 04:00
Ungmenni á plötu Sönglistar Ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára koma við sögu á plötunni Sönglistin 2010 sem er nýkomin út. Á henni eru þrettán innlend og erlend lög. Flytjendur eru eða hafa verið nemendur í söng- og leiklistarskólanum Sönglist. 27.1.2011 00:00
Hártískan í handboltanum Hártíska íþróttaheimsins er jafn skrautleg og annars staðar. Fréttablaðið tíndi til nokkra valinkunna handboltakappa sem hafa skartað hárgreiðslu sem tekið er eftir. 26.1.2011 20:00
Já en kærastan er miklu stærrri en þú Logi Brynjarsson matreiðslumaður á matsölustaðnum Höfnin sem staðsettur er við bátahöfnina í Reykjavík veit hvernig best er að elda lax á einfaldan og fljótlegan máta. Fyrir tilviljun var unnusta Loga, Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottnign með meiru, stödd að snæðingi á Höfninni en Logi rekur staðinn ásamt foreldrum sínum. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði er töluverður stærðarmunur á Loga og Ragnheiði. 26.1.2011 15:38
Loksins eitthvað spennandi fyrir börnin Barnaleikritið Fjársjóðsleit með Ísgerði verður frumsýnt laugardaginn 29. janúar næstkomandi í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi. Fjársjóðsleitin er gagnvirkt leikrit þar sem krakkarnir fá að taka virkan þátt í spennandi ævintýri þar sem ýmsar skrautlegar persónur verða á vegi þeirra með Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnúsi Guðmundssyni í aðalhlutverkum. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Norðurpólnum í vikunni þar sem undirbúningurinn stendur sem hæst. Sjá nánar á midi.is. 26.1.2011 11:30
Penélope og Javier eignast sitt fyrsta barn Spænsku leikarahjónin Penélope Cruz og Javier Bardem eignuðust sitt fyrsta barn nú í vikunni. Samkvæmt spænska blaðinu El País fæddist barnið á Cedars-Sinai spítalanum í Los Angeles. Blaðið hefur það eftir heimildarmönnum að þetta sé sveingbarn. 26.1.2011 10:30
Sex vinir Sjonna syngja Eurovision-lagið „Þessi nöfn eru staðfest og munu syngja lagið hans Sjonna," segir Jóhanna Jóhannsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Sex vinir Sjonna Brink munu flytja lagið hans Aftur heim sem lagasmiðurinn og söngvarinn samdi fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Þetta eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson. 26.1.2011 00:01
Golden Globe: Fölir litir og einföld snið Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles á dögunum og að venju hefur mikið verið pælt í klæðnaði leikkvennanna. Pastellitir og fölir litatónar voru ríkjandi á rauða dreglinum í ár en inni á milli mátti sjá sterkari liti líkt og rauða kjóla January Jones og Christinu Hendricks. 26.1.2011 16:47
Fjórir Íslendingar í vinnu á tökustað Karlar sem hata konur „Ég skrifaði undir trúnaðarsamkomulag um að gefa ekkert upp um efni myndarinnar en ég get alveg viðurkennt að ég hafi verið að vinna í henni,“ segir Finnur Þór Guðjónsson. 26.1.2011 00:01
Oprah Winfrey á hálfsystur Spjallþáttakonan Oprah Winfrey hefur uppgötvað að hún á hálfsystur. Sú er frá Milwaukee og var ættleidd fyrir tæpum fimmtíu árum, þegar Oprah var átta ára. 26.1.2011 00:01
Himnesk frammistaða Tónlistarkonan Ólöf Arnalds hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónleika sína á menningarhátíðinni Sydney Festival sem haldin er í Ástralíu um þessar mundir. 26.1.2011 00:01
Retro Stefson að semja við útgáfurisann Universal Hljómsveitin Retro Stefson er í þann mund að skrifa undir samning við stórfyrirtækið Universal. Viðræður fóru af stað eftir að útsendari fyrirtækisins í Þýskalandi fór á tónleika með hljómsveitinni á Iceland Airwaves-hátíðinni síðasta haust og heillaðist upp úr skónum. 26.1.2011 00:00
Ekkert óvænt á Óskarnum Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru kunngjörðar í gær. Fátt kom á óvart í vali bandarísku akademíunnar og raunar var allt eftir bókinni. The King‘s Speech leiðir kapphlaupið með tólf tilnefningar en True Grit fylgir fast á eftir með tíu. The Social Network er tilnefnd til átta. 26.1.2011 00:00
Lay Low gerir plötu við ljóð íslenskra kvenskálda „Ég er mjög spennt því mig hefur lengi langað til að gera íslenska plötu, en ég er ekki nógu góð í að semja íslenska texta," segir tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, best þekkt sem Lay Low. 25.1.2011 21:00
Leggur stuðsamning fyrir bæjarstjórn „Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast kallaður Mugison. 25.1.2011 20:00
Tvær plötur frá Kanye Rapparinn Kanye West ætlar að gefa út tvær plötur áður en sumarið er á enda. Fyrst kemur Watch the Throne út í mars sem hann gerir með rapparanum Jay-Z og í lok sumars er svo væntanleg ný sólóplata frá Kanye. 25.1.2011 10:00
Rifjum aðeins upp hvernig þú varst fyrir nýju varirnar Eins og heimurinn veit er leikkonan Lindsay Lohan nýskriðin úr meðferð við áfengis- og vímefna misnotkun og líka að hún á það til að láta setja kallogen efni í varirnar á sér. Í meðfylgjandi myndasafni rifjum við upp hvernig Lindsay leit út fyrir nýju varirnar. Þá má einnig sjá myndir af Lindsay við stýrið nýliðna helgi. 25.1.2011 08:00
Rocky Horror endurfundir Hópurinn sem setti upp söngleikinn Rocky Horror í Menntaskólanum við Hamrahlíð hittist í Iðnó á föstudaginn í tilefni þess að tuttugu ár voru liðin frá frumsýningunni. 25.1.2011 09:00
Íslenskri nýklassík hampað Íslenskir flytjendur eru áberandi í heilsíðuumfjöllun á menningarsíðu breska blaðsins Sunday Times um síðustu helgi. Þar er fjallað um nýja tegund lagahöfunda sem notast við sígilda tónlist í sköpun sinni. Einnig er rætt um að lagahöfundar þurfi ekki lengur að vera á sama stað ætli þeir að semja saman lög eða taka þau upp. Þar hafi netið komið inn í staðinn. 25.1.2011 08:00
Það fylgir glamúrnum að vera pínu DJARFUR „Það fylgir glamúrnum að vera pínu djarfur en það er alveg hægt að hafa hlutina djarfa án þess að það sé subbulegt. Mér hefur alltaf fundist gaman að skoða auglýsingabæklinga með fallegum myndum af fallegum líkömum. Mér finnst líka falleg nekt í góðu lagi og fer oftast bara eftir hvort það sé ekki örugglega „fancy not trashy". Mér finnst lítið mál að sitja fyrir sjálf á bikiní því ég er ánægð með líkama minn og geri líka í því að halda honum við. Ef fólk er ekki sátt við það þá þarf það ekkert að glápa. Það skiptir auðvitað bara öllu ef þú sjálf ert sátt við hlutina og hefur gaman af þeim. Ég hef allavega ekki gert neitt ennþá sem ég sé eftir enda hef ég heldur ekki verið að taka öllu sem býðst. Ég er frekar old school og settleg að eðlisfari." 24.1.2011 17:19
Jesse James lofaður tattúkonu Jesse James, fyrrum eiginmaður leikkonunnar Söndru Bullock, hefur trúlofast húðflúrlistakonunni Kat Von D. Parið hóf samband sitt síðasta sumar, skömmu eftir skilnað James við Bullock. Í viðtali við tímaritið People opinberar James ást sína á Von D og segist aldrei hafa kynnst jafn yndislegri manneskju. „Árið 2010 var besta ár lífs mín því ég varð ástfanginn af bestu vinkonu minni. Hún er frábær kona sem stóð með mér á tíma þegar allur heimurinn snéri við mér baki. Ég get ekki sett tilfinningar mínar í orð og ég er himinlifandi að hún hafi sagt „já“. Það á eftir að verða dásamlegt að eldast með henni,“ sagði James. 24.1.2011 16:00
Halle Berry reið barnsföður sínum Leikkonan Halle Berry mun vera afskaplega stjórnsöm ef marka má frétt sem birt var á vefsíðunni Radaronline.com. Berry vill til að mynda ekki að fyrrum sambýlismaður hennar, Gabriel Aubry, fari á stefnumót með frægum konum þrátt fyrir að hún sé sjálf í sambandi með franska leikaranum Oliver Martinez. „Ef Gabriel gerir ekki nákvæmlega það sem Halle segir honum að gera verður hún óð og öskrar á hann. Halle er mjög skapstór og stjórnsöm á bak við tjöldin," var haft eftir heimildarmanni. „Halle vill alls ekki að hann fari á opinber stefnumót og vill helst að hann hitti óþekktar konur, ekki aðrar stjörnur. Hún gaf honum úrslitakost, annað hvort hættir hann að hitta konur sem munu draga athygli að honum eða hann heldur friðinn á milli þeirra tveggja. Gabriel óttast að ef hann heldur Halle ekki góðri að þá fái hann ekki að hitta dóttur sína eins oft og hann langar til," sagði heimildarmaðurinn sem ber Berry ekki góða söguna. 24.1.2011 12:00
Bannaði Jessicu að kaupa sér Fendi-tösku Söngkonan Jessica Simpson skammast sín fyrir hegðun unnusta síns, ruðningskappans fyrrverandi Erics Johnson, ef marka má nýja frétt OK Magazine. 24.1.2011 15:30
Ragga stýrir umræðum í Universal Studios „Ég var búin ad gleyma hvað það er hrikalega gaman ad krukka í áhugaverðu fólki,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi útvarpsmaður á Bylgjunni. 24.1.2011 00:01
Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup Hljómsveitin Bloodgroup spilaði fyrir 2000 tryllta námsmenn í Porto í Portúgal í síðustu viku. „Ég hef aldrei heyrt meiri hávaða,“ segir Ragnar Láki hljómborðsleikari. 24.1.2011 00:01
Atli Rafn talar fyrir Þór og Laddi Mjölni Atli Rafn Sigurðarson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, hafa verið ráðnir í tvö stærstu hlutverkin í teiknimyndinni Þór sem framleiðslufyrirtækið Caoz er að gera. Atli Rafn mun tala fyrir Þór og Þórhallur verður Mjölnir. 24.1.2011 00:01
Geir Ólafs flýgur út í febrúar Söngvarinn Geir Ólafsson hefur verið bókaður á tvenna tónleika í Los Angeles í febrúar og stefnir á að syngja á einum til viðbótar. 24.1.2011 00:01
Þessu liði leiddist greinilega ekki Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari hjá Superman.is um helgina á skemmtistöðunum Risinu, Hressó, Bankanum og Hvítu perlunni. Eins og sjá má í myndasafni leiddist fólkinu ekki á djamminu. 23.1.2011 13:03
Helicopter: Föt með notagildi Hönnuðurinn Helga Lilja Magnúsdóttir hefur hannað undir heitinu Helicopter í nokkur ár en ný fatalína frá henni hefur slegið rækilega í gegn. 23.1.2011 06:00
Sumir höfðu vit á því að vera í LEÐURBUXUM Skemmti- og spurningaþátturinn Ha? hóf göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi. Umsjónarmaður er leikarinn Jóhann G. Jóhannsson og liðsstjórar eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sólmundur Hólm. Leðurbuxur Eddu Bjargar stálu senunni því Jói og Sóli litu út eins og viskustykki, klæddir í skyrtur, á meðan Edda geislaði af kynþokka. Baggalútsmenn mættu til leiks eiturhressir að vanda eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 22.1.2011 15:04
Draumastarfið hjá All Saints Nýtt útlit hljómsveitarinnar The Charlies vakti athygli lesenda Fréttablaðsins fyrir skemmstu. Manneskjan á bak við fötin sem stúlkurnar í The Charlies klæddust er Elísabet Kristófersdóttir. 22.1.2011 18:00
Í hlutverki Saddams Sacha Baron Cohen ætlar að leika Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforeta, í gamanmyndinni The Dictator. Myndin er byggð á bókinni Zabibah and The King sem Hussein skrifaði sjálfur. 22.1.2011 13:00
Jóhanna Guðrún verður í stuttum kjól í kvöld „Það leggst bara mjög vel í mig að keppa aftur. Smá meiri pressa en í seinustu forkeppni en það er bara gott," segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona en hún snýr aftur í Eurovision með því að syngja lag Maríu Bjarkar Sverrisdóttur í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Jóhanna er öllum hnútum kunn í Söngvakeppninni, vann hana 2008 og fór með lagið Is It True? alla leið í annað sætið í Moskvu, sællar minningar. Hvernig hefur undurbúningurinn fyrir keppnina gengið? „Æfingarnar hafa gengið frábærlega vel enda er ég með frábært fòlk með mér," segir hún. „Ég ætla að vera í kjól og í fyrsta skipti í Eurovision er ég ekki í síðum kjól. Kjóllinn var keyptur fyrir mig en ég lét síðan breyta honum aðeins og er rosalega ánægð með útkomuna," segir Jóhanna Guðrún spurð í hverju hún ætlar að vera í kvöld. 22.1.2011 10:15
Danskur stórleikari er höfuðpaur Banditos í Pressu „Hann er pottþéttur og hefur alveg gríðarlega sterka nærveru,“ segir Óskar Jónasson, leikstjóri sjónvarpsþáttaraðarinnar Pressu 2. 22.1.2011 09:00
Arnaldur ánægður með nýja útgáfu „Þetta er náttúrulega frábært að fá þessa bók út á þýsku og það verður gaman að vita hvernig henni vegnar,“ segir metsöluhöfundurinn Arnaldur Indriðason. 22.1.2011 07:30
Nýir tískustraumar í vor Kjólar við síðbuxur verður það heitasta í vor ef marka má tískuskríbenta en mikið hefur verið fjallað um þennan tískustraum á erlendum bloggsíðum. Tískuhús á borð við Dries Van Noten, Givenchy, Cerruti og Whyred sýndu meðal annars slíka samsetningu á tískupöllunum í haust en þó hugmyndin sé sú sama eru útfærslur tískuhúsanna ólíkar. 22.1.2011 00:00
Arnar Ingi er endurfæddur Johnny Cash Arnar Ingi hefur verið aðdáandi Johnny Cash síðan hann var 13 ára. Hann tók lagið Folsom Prison Blues í útvarpsþættinum Harmageddon. 21.1.2011 22:00