Fleiri fréttir

Cadillac-gjörningur bannaður

„Þetta er alveg glatað því þetta hefði verið flott,“ segir Halldór Bragason, skipuleggjandi Blúshátíðar í Reykjavík.

Gunnar í Krossinum og Jónína Ben giftu sig í gær

Athafnakonan Jónína Benediktsdóttir og Gunnar Þorsteinsson, ofast kenndur við Krossinn, giftu sig í gær í viðurvist barnanna sinna en fjallað verður um giftinguna í Íslandi í dag í kvöld. Meðal annars verður rætt við þau. Sjálf tilkynnti Jónína stórtíðindin á Facebook síðu sinni en þar segir hún orðrétt:

Keanu Reeves aðstoðar Söndru Bullock

Óskarverðlaunaleikkonan Sandra Bullock sem flutti út af heimili sínu fyrr í vikunni eftir að upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar hefur leitað aðstoðar og ráðlegginga hjá Keanu Reeves. Fyrir 16 árum léku saman í kvikmyndinni Speed og síðan þá hafa þau verið nánir vinir.

Kudrow vill eignast einkaþotu

Lisa Kudrow elskar að ferðast heimshornanna á milli. Hún segir reyndar líka að strangar öryggiskröfur á flugvöllum skyggi svolítið á gleðina. Hún trúir því að lífið myndi batna töluvert ef hún ætti sína eigin flugvél. Hún gerir sér hins vegar grein fyrir því að slíkt eru bara draumórar.

Hart barist í brennibolta - myndir

Vormót í Brennóbolta var haldið í Sporthúsinu í dag. Það voru níu lið sem tóku þátt og myndaðist mikil stemning. Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari hjá 365 miðlum, var að sjálfsögðu á staðnum til þess að fanga stemninguna.

Næsta Bondstúlka fundin

Búið er að finna aðalleikkonu næstu myndar um breska leyniþjónustumanninn James Bond. Það var Freida Pinto sem varð fyrir valinu. Hún er best þekkt fyrir leik sinn í myndinni Slumdog Millionaire.

Erfingjar Önnu fá ekki einasta dal

Áfrýjunardómstóll í Los Angeles úrskurðaði í gærkvöldi að erfingjar fyrirsætunnar Önnu Nicole Smith fái ekki einn dollara af þeim auðæfum, sem Smith taldi sig hafa erft eftir eiginmann sinn, Howard Marshall.

Winnipeg Falcons á hvíta tjaldið

„Ég keypti réttinn að bók um þá í fyrra eftir David Square sem heitir When Falcons Fly og nú er Marteinn Þórsson að ganga frá frumdrögum að handriti. Við erum síðan að loka samningum við meðhöfund að handritinu," segir Snorri Þóris­son, kvikmyndaframleiðandi hjá Pegasus. Hann hyggst gera kvikmynd um íshokkíliðið Winnipeg Falcons sem vann til fyrstu gullverðlaunanna í íshokkí á Vetrar­ólympíuleikunum í Belgíu 1920.

Hundur með skrítin hljóðfæri

„Þetta er alveg frábærlega skemmtileg vinna. Með þeim skemmtilegri sem við höfum komist í,“ segir Hjörleifur Hjartarson úr hljómsveitinni Hundur í óskilum

Nýtt lag úr Kóngavegi

Lagið Bye Bye Troubles eftir Lay Low, sem er lokalag kvikmyndar­innar Kóngavegur í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur, er komið í spilun á útvarpsstöðvum.

Velur aðeins góð hlutverk

Leikarinn Forest Whitaker passar upp á að velja aðeins bestu hlutverkin sem í boði eru. Það sé lykillinn að velgengni hans. „Í byrjun ferilsins skipti mig engu máli ef ég fékk hlutverk. Ég vildi bæta sjálfan mig og sagði umsvifalaust nei ef hlutverkin vöktu ekki hjá mér áhuga," sagði Whitaker, sem fékk Óskarinn fyrir hlutverk sitt í Last King of Scotland.

Alþjóðleg hjólabrettakeppni í Reykjavík

„Þetta hefur aldrei verið haldið áður,“ segir Reynar Davíð Ottósson hjá Brim. Verslunin heldur í dag, í samstarfi við Element sem er eitt stærsta hjólabrettamerki í heimi, hjólabrettakeppnina Make It Count, eða Láttu það skipta máli. Þessi alþjóðlega keppni verður haldin úti um allan heim á þessu ári og er Ísland engin undantekning.

Krefst skaðabóta

Lagahöfundurinn og upptökustjórinn Rob Fusari, hefur höfðað skaðabótamál gegn söngkonunni Lady Gaga. Hann segist hafa samið með henni vinsæl lög og tryggt henni plötusamning, án þess að hafa fengið nokkuð fyrir sinn snúð. Hann krefst 30,5 milljóna dollara í bætur, eða hátt í fjögurra milljarða króna.

Íslenskt í Austurríki

Hópur íslenskra tónlistarmanna og listamanna tekur þátt í Dóná-hátíðinni sem verður haldin í Austurríki dagana 29. apríl til 8. maí. Þar munu plötusnúðar, hljómsveitir, listamenn og ljóðskáld stíga á svið og sýna listir sínar.

Frönsk menning hyllt

Í mars ár hvert er þess minnst víða um heim hversu vítt franska málsvæðið er í raun og hvaða gildi standa undir franskættaðri menningu um heim allan. Hér á landi hafa franska sendiráðið og Alliance Francaise um nokkurra ára skeið staðið fyrir margs konar samkomuhaldi í tengslum við frönsku vikuna, rétt eins og tíðkast í sjötíu löndum, en 200 milljónir manna eiga frönsku að móðurmáli og 870 milljónir eru sameinaðar í samtökum frönskumælandi landa.

Ný mynd um Jacko

Ný heimildarmynd um popparann Michael Jackson verður frumsýnd í næsta mánuði. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Ian Halperin ákvað að breyta bók sinni, Unmasked: The Final Years of Michael Jackson, í 88 mínútna heimildarmynd og nefnist hún Gone Too Soon.

Andspyrna á Laugardalsvelli

„Við fengum ósk um vináttulandsleik frá Hollendingum og viljum gjarnan að hann fari fram á Laugardalsvellinum. Enda kominn tími til að karlalandslið fari nú að vinna eitthvað á þessum velli," segir Friðgeir Torfi Ásgeirsson, forseti Andspyrnusambands Íslands.

Suðrænn blær í mýrinni

Hamskipti Norræna hússins verða 25. mars, á fimmtudaginn í næstu viku. Þann dag verður það kallað Suðræna húsið, enda er húsið allt lagt undir dagskrá sem tengd er Hátíð franskrar tungu. Um morguninn er boðið upp á sögustund frá Senegal fyrir 6 til 8 ára krakka milli 9 og 10. Hin kunna kvikmynd Rauða blaðran frá 1956, sem mörgum er kunn frá útgáfu samnefndrar bókar sem hér kom út 1964, verður sýnd kl. 10.30 og er hún einkum ætluð 8-11 ára börnum.

Sanitas er Icesave-platan í ár

Ólafur Josephsson tónlistar­maður hefur sent frá sér sjöttu breiðskífuna undir nafninu Stafrænn Hákon. Fyrstu plöturnar voru einfalt ósungið heimabrugg en síðustu ár hefur Stafrænn Hákon fært sig upp á skaftið og breyst í hljómsveit með þungan og poppaðan hljóðheim.

Undirbúa nýja plötu

Hljómsveitin Green Day er þegar byrjuð að vinna í næstu plötu þrátt fyrir að innan við ár sé liðið síðan sú síðasta kom út. Nýju lögin hafa orðið til á tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu og vill forsprakkinn, Billie-Joe Armstrong, að platan verði tilbúin á skemmri tíma en sú síðasta. Sú plata, 21st Century Breakdown, kom út í fyrra, fimm árum eftir að American Idiot leit dagsins ljós.

Krafðist of hárra launa

Paula Abdul, fyrrverandi dómari í American Idol, verður ekki dómari í hæfileikaþættinum Star Search eins og hún hafði vonast eftir. Abdul og framleiðandinn ABC komust ekki að samkomulagi um laun og því fór sem fór.

Hæverskt nýbylgjurokk

Hljómsveitin The Wintergreens spilar í Batteríinu í kvöld. Þetta er kvartett frá Leith í Skotlandi og í bandinu er Íslendingur búsettur þar, Gunnar Thor Ófeigsson.

Hönnunarmars í Hafnarhúsinu

Opnunarhátíð Hönnunarmars 2010 var haldin í Hafnarhúsinu á fimmtudag og var fjöldi góðra gesta viðstaddur. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Fjöldi áhugaverðra viðburða er í boði á hátíðinni og ættu allir þeir sem hafa áhuga á hönnun og arkitektúr að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Hátíðinni lýkur á morgun.

Egill með Caput í Gerðubergi

Á morgun kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi. Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt Caput-hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Guðni Franzson tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast þessari fallegu sögu. Aðgangur á tónleikana er ókeypis.

Páll Óskar og Hjaltalín slógu í gegn - myndir

Páll Óskar Hjálmtýsson og Hjaltalín stóðu fyrir mögnuðum tónleikum á Nasa í samstarfi við Bacardi Breezer í gærkvöld. Áhorfendur skemmtu sér konunglega og klöppuðu listamennina þrívegis upp.

Píslaganga Michaels á Hvíta tjaldið

Verið er að vinna að nýrri mynd um síðustu daga af ævi poppgoðsins Michaels Jackson, segir tímaritið Variety. Gert er ráð fyrir að myndin verði heimsfrumsýnd þann 25. júní næstkomandi. Þá verður ár liðið frá því að Jackson lést.

Humarsamloka á 600 vini á Facebook

Facebook samskiptasíðan sem hefur tröllriðið Íslensku netsamfélagi tekur á sig ýmsar myndir. Meðal þeirra sem er með aðdáendasíðu er Humarsamlokan á Pósthúsinu vínbar - bistró og eru yfir 600 aðdáendur af henni á síðunni.

Fyrrum ástmaður vill 3,8 milljarða frá Lady Gaga

Fyrrverandi ástmaður söngkonunnar Lady Gaga hefur stefnt henni og krefst 30 milljóna dollara af henni. Ástæðan er sú að ástmaðurinn, seg heitir Rob Fusari, telur sig hafa verið einn af höfundum að baki karakternum Lady Gaga.

Peter lætur fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi

Peter Andre, sem einusinni var þokkalega frægur söngvari en er nú þekktari sem fyrrverandi eiginmaður brjóstabombunnar Katie Price er farinn í meðferð. Ekki er þó um "hefðbundna" meðferð að ræða heldur gengst hann nú undir leysigeisla-aðgerðir til þess að fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi af fingri sínum.

Jesse James biðst vægðar

Jesse James, hinn ótrúi eiginmaður Söndru Bullock hefur beðið fjölskyldu sína fyrigefningar fyrir framhjáhald sitt. Sandra er flutt út eftir að kom í ljós að James hafi haldið við húðflúraða módelið Michelle "Bombshell" McGee um ellefu mánaða skeið. Framhjáhaldið stóð meðal annars yfir á meðan Sandra var í tökum á myndinni The Blindside sem hún fékk síðan Óskarinn fyrir á dögunum.

Polanski reynir að losna undan nauðgunardómi

Lögfræðingar leikstjórans Romans Polanski reyna enn að losa hann undan dómi sem hann fékk á sig fyrir nauðgun á áttunda áratugnum í Bandaríkjunum en hann hefur verið útlægur þaðan frá þeim tíma.

Mikil læti og gauragangur

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýndur á Stóra sviði Borgar­leikhússins í kvöld.

Spaugstofan er beittari

Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um Spaugstofuna og nálgun hennar á kreppuna. Hún segir þáttinn hafa orðið grófari og fengið meiri brodd eftir að fjármálakerfið fór á hliðina.

Forsetafrúin krefst afsökunarbeiðni frá Telegraph

„Dorrit er mjög sár yfir þessum alranga fréttaflutningi sem birtist í þessu breska blaði og í Fréttablaðinu. Í honum felst aðför að mannorði hennar," segir Örnólfur Thorsson forsetaritari.

Grímur Atlason flytur á mölina

„Mig langar bara að njóta lífsins með mínu fólki," segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð. Hann hefur ákveðið að flytja til Reykjavíkur, þar sem fjölskylda hans býr, þegar ráðningartíma hans lýkur eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. Grímur var ráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík árið 2006 en var sagt upp störfum þegar meirihlutaskipti urðu í bænum. Hann var ráðinn sveitarstjóri Í Dalabyggð um mitt ár 2008.

Tónleikar í minningu Rutar

Í dag kl. 17 munu Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja nokkrar af fegurstu perlum spænskrar ljóðatónlistar á Tíbrártónleikum í Salnum.

Fyrsta plata Ladda í 20 ár

Tónlistarferill Ladda hefur setið á hakanum lengi, en nú verður breyting þar á: Ný plata með honum, sú fyrsta síðan Of feit fyrir mig kom út árið 1990, er væntanleg í júní.

Carrey borðaði ekki neitt

Jim Carrey var úrvinda eftir að hafa þurft að léttast um mörg kíló fyrir leik sinn í myndinni I Love You Phillip Morris. Í einu atriði myndarinnar liggur hann í fangelsisrúmi þar sem greinilega sést í rifbeinin á honum.

Sjá næstu 50 fréttir