Fleiri fréttir

Vill Mottola í stað Cowell

Idol-dómarinn Kara DioGuardi telur að fáir muni geta fetað í fótspor Simons Cowell í American Idol. Cowell yfirgefur Idol eftir að þessari þáttaröð lýkur og byrjar með bandaríska útgáfu af X-Factor.

Lagerfeld: Sólgleraugun eins og búrka

Eitt helsta einkennismerki þýska fatahönnuðarins Karls Lagerfeld eru svört sólgleraugu. Sjálfur líkir hann þeim við búrku sem er trúarlegur klæðnaður múslímskra kvenna. „Þau eru búrkan mína. Búrka fyrir karlmenn.“

GusGus á Nasa á morgun

GusGus verða með tónleika á Nasa annað kvöld. Tónleikarnir eru liður í tónleikadagskrá Reykjavík Fashion Festival. Ásamt GusGus koma fram Retro Stefson sem hélt eina eftirminnilegustu tónleika síðasta árs ásamt FM

Linday talar við pabba sinn á ný

Leikkonan Lindsay Lohan er farin að tala aftur við pabba sinn, Michael Lohan, eftir að það fréttist að hann hefði fengið hjartaáfall fyrr í þessari viku. „Ég fékk skilaboð frá Lindsay þar sem ún sagði „Guð minn góður, ég vona að þú sért í lagi,“ og hinir krakkarnir hafa líka verið í sambandi,“ sagði Lohan í samtali við RadarOnline. Samskipti þeirra feðginanna hafa verið mjög stirð upp á síðkastið og hafa slúðurblöðin talað um málaferli þeirra í milli.

Sjöunda barn Kevin Costner á leiðinni

Leikarinn Kevin Costner og eiginkona hans Christine Baumgartner eiga von á sínu þriðja barni í júní. Fyrir á Costner, sem er 55 ára, fjögur börn úr fyrri samböndum.

Sandra Bullock flutt út vegna framhjáhalds eiginmannsins

Bandaríska leikkonan Sandra Bullock er sögð flutt út af heimili sínu eftir að hún komst af því að Jesse James, eiginmaður hennar, hélt framhjá henni með húðflúruðu fyrirsætunni Michelle McGee. Framhjáhaldið stóð í 11 mánuði eða á sama tíma og Bullock lék í kvikmyndinni The Blind Side en sem kunnugt er hlaut hún nýverið Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni.

Hollywood horfir til Reykjavíkur

Að minnsta kosti þrjár kvikmyndir eru á teikniborðum virtra Hollywood-leikstjóra sem fjalla um atburði nátengda íslenskri sögu. Tvær kvikmyndir eru sagðar vera í undirbúningi um líf og starf hins íslensk/bandaríska skákundurs Bobby Fischer.

Ítalir hóta tískuvöruverslun á Akureyri

Halldóri Magnússyni, eiganda tískuverslunarinnar Imperial á Akureyri, hefur verið hótað alvarlegum aðgerðum ef hann hættir ekki að nota nafn ítölsku verslanakeðjunnar Imperial innan tveggja daga.

Dorrit hitti Tchenguiz-bróður

„Ég skil það sem svo að hún var ein af þeim fyrstu sem kynntu Tchenguiz-bræðurna fyrir íslenska fjármálakerfinu,“ segir Jonathan Russell, blaðamaður breska dagblaðsins the Daily Telegraph.

Loji með sólóplötu

Jaðarmerkið Brak er komið á fullt á öðru starfsári sínu og hefur þegar gefið út plötu með pönkbandinu Buxnaskjónum frá Akureyri. Önnur útgáfa ársins er sólóplata með Loga Höskuldssyni, eða Loja, eins og hann kallar sig.

Röggi segir fréttir að norðan

Akureyringar á höfuðborgarsvæðinu ætla að hittast og gera sér glaðan dag saman á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi á laugardagskvöldið. Skriðjöklar, Bravó-bítlarnir, Hunang og Dægurlagapönkhljómsveitin Húfa troða upp auk þess sem Rögnvaldur gáfaði og Kalli Örvars ætla að fara með gamanmál. Rögnvaldur gáfaði, sem er jú í Dægurlagapönkhljómsveitinni Húfu man ekki hvenær hljómsveitin spilaði saman síðast.

Þjóðlagahátíð aftur árið 2011

Þjóðlaga- og heimstónlistarhátíðin Reykjavik Folk Festival var haldin í fyrsta sinn um síðustu helgi á Café Rosenberg og gekk hún eins og í sögu. Miklar líkur eru á að hún verði endurtekin að ári.

Bachelorette til Íslands

Einn þáttur úr bandarísku raunveruleikaþáttaseríunni Bachelorette verður tekinn upp hér á landi innan tíðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun framleiðslufyrirtækið Pegasus þjónusta bandaríska tökuliðið meðan á dvöl þess hér á landi stendur, en um er að ræða gríðarlega stórt verkefni sem tugir manna munu koma að.

Á ferð um furðuskógana

Í tengslum við HönnunarMars sem hefst í dag opnaði Katrín Ólína sýningu í gær í Crymogea á Barónsstíg.

Yfir sex þúsund sáu hruns-myndir

Um 6.600 Íslendingar sáu heimildar­myndirnar Guð blessi Ísland eftir Helga Felixson og Maybe I Should Have eftir Gunnar Sigurðsson í kvikmyndahúsum hérlendis. Um þrjú þúsund sáu Maybe I Should Have en aðeins fleiri Guð blessi Ísland.

Frumsýna mynd um Vigga

„Þeir sem hafa séð þessa mynd segja að hún dálítið lík myndinni Varði fer á vertíð. Ég hef nú bara ekki séð þá gloríu," segir Erling Bang, sem leikur og leikstýrir kvikmyndinni Zoom Boom Boom.

Í vinnubúðir til Borgarfjarðar

Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir fer í vinnubúðir til Borgarfjarðar í lok mánaðarins til að semja lög á sína þriðju plötu. Upptökur hefjast svo strax eftir páska og er platan væntanleg í búðir um mánaðamótin maí/júní.

Á sjúkrahús vegna koffíns

Rokkarinn Dave Grohl var nýlega fluttur á sjúkrahús eftir að hafa innbyrt of stóran skammt af koffíni. Þetta gerðist í miðjum upptökum á annarri plötu hljómsveitarinnar Them Crooked Vultures.

Urfaust á Íslandi

Dúettinn Urfaust frá Hollandi leikur á tvennum tónleikum í Reykjavík um helgina. Þetta er noise/ambient/goth/black-metal hljómsveit, sem hefur verið að síðan 1999 og gefið út slatta af efni, meðal annars tvær stórar plötur.

Litla myndin hans Jacksons

Kvikmynd Peter Jacskons, Svo fögur bein, verður frumsýnd í Sambíóunum um helgina. Þótt engar górillur eða orkar séu í þessari mynd er tæpast hægt að kalla hana smámynd. Vera Júlíusdóttir var viðstödd blaðamannafund Jacksons í London.

This Is My Life aftur í Eurovision

Nú detta inn Eurovision-lögin í ár. Anna Bergendahl fer fyrir Svíþjóð með lag sem heitir það sama og lag Eurobandsins 2008, This Is My Life.

Ruxpin á Batteríinu

Útgáfutónleikar Ruxpin fyrir plötuna Where do we float from here? verða í kvöld á Batteríinu.

Elín ber ekki hringinn

Kylfingurinn Tiger Woods vinnur nú að því að púsla saman lífi sínu á ný. Hann tilkynnti í vikunni að hann ætli að snúa aftur á golfvöllinn í apríl, en nú bíður hans erfiðara verkefni; að vinna aftur traust Elínar, eigin­konu sinnar.

HönnunarMars hefst í dag

Í dag hefst hátíð sem varir í fjóra daga sem helguð er framgangi íslenskrar hönnunar. Það er Hönnunarmiðstöð Íslands undir forystu Höllu Helgadóttur sem stendur fyrir hátíðinni sem nú er haldin í annað sinn en að miðstöðinni stendur fjöldi stofnana og félaga sem hafa hönnun að sameiningarkrafti.

Phillippe fer í röð

Bandaríski Íslandsvinurinn Ryan Phillippe er nýjasti leikarinn sem er orðaður við hlutverk Captain America. Marvel-myndasögurisinn hyggst framleiða kvikmynd um þessa miklu hetju sem klæðist yfirleitt spandex-galla í bandarísku þjóðfánalitunum þegar hann berst við óvini ríkisins.

Myndaði sölukonur í Tógó

Ljósmyndasýningin Sölukonurnar í Tógó eftir Öldu Lóu Leifsdóttur verður opnuð í dag í tilefni af Hátíð franskrar tungu. Alda Lóa skráði heim kaupkvennanna í Lomé í Tógó í nokkrum ferðum þangað á árunum 2006 til 2009 og afraksturinn verður nú til sýnis.

Poppskrefið stigið til fulls

Breska dúóið Goldfrapp sendir frá sér sína fimmtu plötu, Head First, eftir helgina. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn og er ekki frá því að hann eigi eftir að koma aðdáendum á óvart.

Jack White og Jay Z

Sérvitri tónlistarmaðurinn Jack White, forsprakki hljómsveita á borð við White Stripes og The Raconteurs, segir í viðtali við breska tímaritið GQ að hann hafi unni að lagi með hiphop-mógúlnum Jay-Z.

Syngja á HM-athöfn

Hljómsveitin Amadou & Mariam frá Malí, sem spilar á opnunartónleikum Listahátíðar Reykjavíkur í Laugardalshöll 12. maí, stígur einnig á svið á opnunarathöfn heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu í Suður-Afríku tæpum mánuði síðar, 10. júní.

Sverðin á loft

Síðasta æðið í Hollywood var stríðið í Írak, olíubransinn og allt sem tengdist Mið-Austurlöndum. Nú virðist nýtt æði vera að renna upp því þrjár kvikmyndir með sverð, boga og spjót í aðalhlutverkum eru ýmist á vinnslustigi eða á leið í kvikmyndahús.

Hughreystir Ashley Cole

Rapparinn 50 Cent ætlar að hitta vin sinn, fótboltakappann Ashley Cole, á næstunni og hughreysta hann vegna skilnaðar hans við eiginkonuna Cheryl. 50 Cent og Cole unnu saman við glæpamyndina Dead Man Running sem kom út á síðasta ári og hafa verið vinir æ síðan. „Hann á í erfiðleikum og vonandi nær hann sér aftur á strik. Ég ætla að athuga hvernig hann hefur það," sagði rapparinn. Ashley og Cheryl skildu eftir að í ljós kom að hann hafði haldið fram hjá henni.

Kvartaði yfir vináttunni

Orðrómur er uppi um að náin vinátta leikstjórans Sams Mendes og leikkonunnar Rebeccu Hall, sem lék í Vicky Cristina Barcelona, hafi valdið því að hjónaband hans og leikkonunnar Kate Winslet gliðnaði í sundur.

Risavaxnir tónleikar

Rokksveitin Metallica ætlar í tónleikaferð um heiminn á næsta ári sem mun jafnast á við risavaxna tónleikaferð Pink Floyd á árunum 1980 til 1981 vegna plötunnar The Wall. Þessu heldur umboðsmaður sveitarinnar, Peter Mensch, fram. Hljómsveitin er núna að sanka að sér hugmyndum vegna ferðarinnar, þar sem spilað verður í tíu borgum víðsvegar um heiminn.

Green Zone: þrjár stjörnur

Spennandi, stílfærð og nokkuð raunsæ stríðsmynd með ádeiluívafi. Handbragð Greengrass úr Bourne-myndunum er kunnuglegt.

Kvennó-Edda

Norræn Goðafræði í fullu fjöri

Bækurnar eftir Larsson kvikmyndaðar í Hollywood

Columbia kvikmyndaverið í Hollywood ætlar að gera myndir sem byggja á bókunum þremur eftir sænska rithöfundinn Stieg Larsson. Þetta staðfesti bróðir rithöfundarins við sænska blaðið Norra Västerbotten. Hann sagði að fyrsta myndin ætti að verða reiðubúin til sýninga á næsta ári. Svíar hafa sjálfir gert myndir sem byggja á bókunum og hafa þær notið töluverðra vinsælda, meðal annars á Íslandi.

Mætt til Ástralíu með kókdósir í hárinu

Tískugoðið og poppsöngkonan Lady Gaga tókst að vekja athygli heimspressunnar enn á ný með sérkennilegum fatastíl. Hún lenti í Ástralíu í dag en þar mun hún spila á tónleikum sem eru hluti af tónleikaferðinni hennar sem kallast Monsters Ball.

Jennifer Lowe Hewitt fílar ekki að vera einhleyp

Leikkonan Jennifer Lowe Hewitt þykir leiðinlegt að vera einhleyp á nýjan leik. Mánuður er síðan að hún og gamanleikarinn Jamie Kennedy hættu saman en þau voru trúlofuð. Frægt varð þegar Jamie kraup á kné á sviði í miðju uppistandi síðasta sumar og bað Jennifer um að giftast sér.

Jennifer hlustar á Lady Gaga þegar hún púlar

Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston segir mikilvægt að hún hafi góða tónlist í eyrunum þegar hún skokkar eða tekur á því í ræktinni. Hún segir að þá sé best að hlusta á Lady Gaga, Jay-Z, Foo Fighters eða Radiohead. „Hún er tryllt góð,“ segir Jennifer um söngkonuna Lady Gaga.

Beckhamhjónin vilja annað barn

Nú þegar að ljóst er að knattspyrnukappinn David Beckham verður frá keppni í nokkra mánuði ætla hann og eiginkonan Victoria að gera hvað þau geta til að fjölga mannkyninu. Hjónin hefur nefnilega lengi dreymt um að eignast sitt fjórða barn. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Daily Star.

Corey Haim lagður til hinstu hvílu

Jarðarför leikarans Corey Haim fór fram í heimabæ hans í Toranto í Kanada í gær. Meira en 200 vinir og fjölskyldumeðlimir fylgdu Haim til grafar en fjölmargir aðdáendur hans komu saman fyrir utan.

Tangómaraþon í tilefni af Mottu-mars

Tangófélagið efnir til veglegs tangómaraþons til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands, Karlmenn og krabbamein: Mottu-mars. Þeir sem hafa ekki mikla reynslu af tangódansi, en hafa þeim mun meiri áhuga, geta mætt í kynningartíma í húsi Krabbameinsfélagsins í kvöld

DiCaprio huggar Winslet

Eftir að ljóst var að óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet og eiginmaður hennar, leikstjórinn Sam Mendes, hefðu ákveðið að skilja hefur Leonardo DiCaprio verið í nánu sambandið við leikkonuna. Þau eru sögð afar góðir vinir eftir að þau léku saman í kvikmyndinni Titanic fyrir 13 árum.

Þórhallur snýr aftur í Kastljósið

„Þetta er bara stutt stopp. Sigmar [Guðmundsson, ritstjóri Kastljóssins] bað mig um að taka föstudagskvöldin fram á vor og ég varð við þeirri bón," segir Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi dagskrárstjóri RÚV og ritstjóri Kastljóssins.

Sjá næstu 50 fréttir