Fleiri fréttir

Birta hannar kjól Heru

„Við erum byrjaðar að pæla aðeins og hugsa en það er ekkert niðurneglt. Við erum með ákveðnar hugmyndir í kollinum," segir Hera Björk Þórhallsdóttir en Birta Björnsdóttir hjá Júniform mun hanna kjólinn sem söngkonan klæðist þegar hún syngur framlag Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Ósló.

Fálkar á flugi á Skúlagötu

Alexander Zaklynsky opnar fyrstu einkasýninguna sína í Reykjavík á morgun. Hann sýnir málverk af fálkum á flugi. Það er eins og þeir séu í eltingarleik um veggi gallerísins.

Rúnagaldur ryður brautina

„Það er afskaplega gaman að Þjóðverjar skuli hafa áhuga á þessari bók,“ segir rithöfundurinn Elías Snæland Jónsson.

Bretar standa við bakið á Cheryl

Söngkonan Cheryl Cole flúði Bretland í vikunni eftir að fjölmiðlar greindu frá framhjáhaldi eiginmanns hennar, Ashley Cole. Breska þjóðin stendur þétt við bakið á sinni konu og hvetur hana til að skilja.

Norræni sjóðurinn hafnaði Frímanni

Norræni sjónvarps-og kvikmyndasjóðurinn hafnaði því að styrkja sjónvarpsþáttaröð sem Gunnar Hansson og bróðir hans, Ragnar Hansson, hafa verið að gera með mörgum af fremstu grínistum Norðurlandanna.

Kenna ungu fólki að elda fisk

Sveinn Kjartansson, eigandi Fylgifiska, og Áslaug Snorradóttir ætla að kenna Íslendingum að elda fjölbreytta fiskrétti í nýjum sjónvarpsþáttum sem sýndir verða á RÚV.

Býður Evu Maríu á stefnumót

Ingi Þór Óskarsson úr Gettu betur-liði Menntaskólans við Hamrahlíð hefur ákveðið að standast áskorun og bjóða spyrlinum Evu Maríu Jónsdóttur á stefnumót. Ingi Þór og félagar etja kappi við Verslunarskólann í 8 liða úrslitum Gettu betur á laugardaginn og þar ætlar hann að bera spurninguna fram. „Það fer bráðum að koma að þessu,“ segir Ingi Þór, hvergi banginn.

75 myndir í Grundarfirði

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í þriðja sinn í Grundarfirði helgina 3. til 7. mars. Sýndar verða 75 stuttmyndir og tónlistarmyndbönd frá tuttugu löndum, þar á meðal norska myndin Little Penis. Grundfirðingar munu taka þátt í hátíðinni, meðal annars með því að halda fiskisúpukeppni þar sem sóknarprestur bæjarins, Aðalsteinn Þorvaldsson, verður á meðal keppenda.

Innri sýn Bjargar

Í listasal Garðabæjar á Garðatorgi 7 stendur nú yfir sýning Bjargar Atla, sem hún nefnir Tilbrigði við stef. Listasalur Garðabæjar er lítill sýningarsalur staðsettur á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar og hýsti áður sýningasal Hönnunarsafns Íslands.

Tíu lög á aðeins 18 mínútum

„Við erum aðallega að syngja um lífið og tilveruna. Við erum ekkert rosalega pólitískir og ekkert rosalega harðir neitt," segir Almar Daði Kristjánsson, bassaleikari pönksveitarinnar Buxnaskjónar frá Akureyri.

Waltz leikur geðklofa

Austurríkismaðurinn Christoph Waltz, sem sló í gegn sem nasista­foringi í Inglourious Basterds, fer með stórt hlutverk í kvikmyndinni Water for Elephants. Þar leikur hann geðklofa dýratemjara í fjölleikahúsi, hvorki meira né minna. Með annað aðalhlutverk fer Robert Pattinson úr Twilight-myndunum.

Hengdi sig í fataskáp

Tískuhönnuðurinn Alexander McQueen skrifaði sjálfsmorðsbréf og hengdi sig síðan í fataskáp. Þetta kemur fram í skýrslu sem dánarstjóri í London hefur sent frá sér. McQueen fannst látinn á heimili sínu í London fyrir viku, á sama tíma og undirbúningur var í fullum gangi fyrir vorlínu hans sem átti að kynna í París. Sama dag og hönnuðurinn lést fór jarðarför móður hans fram, sem lést viku áður. McQueen starfaði lengi með Björk Guðmundsdóttur og minnist hún vinar síns á hjartnæman hátt á heimasíðu sinni, Bjork.com.

Þegja yfir hjónabandi

Beyoncé Knowles telur mikilvægt að einkalífi sínu sé haldið fjarri sviðsljósi fjölmiðlanna. Söngkonan giftist rapparanum Jay-Z í leynilegri athöfn árið 2008 og bæði vilja þau sem minnst tjá sig um sambandið.

Rymja aldrei verið eins flott!

Rymja, söngkeppni Kvennaskólans í Reykjavík fór fram á föstudaginn síðasta í Íslensku Óperunni. Frábær skemmtun í alla staði og flottasta Rymja í sögu Kvennaskólans er búin að líta dagsins ljós.

Erfiðleikar og hollusta í Íslandi í dag

Í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, sem hefst strax að loknum fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:55, hittum við Rósalind Óskarsdóttur sem greindist með bráðahvítblæði fyrir um átta mánuðum. F Foreldrar hennar standa í þeirri trú að orsök sjúkdómsins hafi verið að finna í húsinu þeirra en þar var rafsegulsviðið áttfalt meira en eðlileg mörk gera ráð fyrir. Þá fáum við að vita allt um stórbrotna íþróttasýningu, þá fyrstu sinnar tegundar hér á landi og Solla og Vala Matt baka ljúffengt hollustubrauð.

Gerpla: tvær stjörnur

Gott frumkvæði hjá Þjóðleikhúsinu að láta vinna leikverk úr einu af öndvegisritum íslenskra bókmennta.

Bubbi í kvos MA

Einn af ástkærustu tónlistarmönnum Íslands hélt óvænta tónleika í Kvos MA nú í morgun nemendum til mikillar ánægju. Þetta er partur af tónlistarferð hans um landið sem gengur undir nafninu Rætur.

Brjóstastækkun í Íslandi í dag - myndband

Í Íslandi í dag fylgjumst við með brjóstastækkun á tvítugri stúlku úr stærð A í C. Fræðumst um aðgerðina, þróunina í þessum málum sem og hætturnar sem lýtaaðgerðum fylgja. Fylgist með Íslandi í dag klukkan 18:55 í kvöld strax að loknum fréttum Stöðvar 2.

Konudagurinn: Geðveik sveppasósa og rómantísk stemning

„Næsta laugardag?" spyr Jógvan Hansen söngvari þegar Visir spyr hvernig hann ætlar að gleðja kærustuna á konudaginn. „Ég ætlað að gera eitthvað fyrir hana á Sunnudaginn í staðinn. Hún á nefnilega afmæli á sunnudaginn líka. Svo ég ætla að reyna að vera góður við hana," útskýrir hann einlægur. „Ekki það að það er nokkuð erfitt að vera góður við hana. Hún á það skilið." „Ég verð nú að finna handa henni einhverja sæta afmælisgjöf. Ég ætla allavegana að kaupa handa henni blóm og bjóða henni út að borða. Eitthvað gott." „Bæjarins bestu eða kafbát mánaðarins á Subway. Ég er skólanemi veistu!" segir Jogvan hlæjandi og heldur áfram: „Ítalía veitingastaðurinn er svolítið í uppáhaldi hjá okkur. Svo ég held að mig langi að fara þangað með henni. Ég mæli með öllu hjá þeim. Eitt lítið glas púrtvin, ekta ítalska pizzu frá Tíno og svo kjúklingabringurnar með geðveikri sveppasósu og svo bara virkilega rómantisk stemning." „Síðan ætla ég að fara með henni á Hellisbúann. Ég hef heyrt að hann er rosa skemmtilegur," segir Jogvan. -elly@365.is

Gillz lagermaður hjá Ikea - myndband

„Hann var lagermaður í þrjú ár hjá Ikea. Hann kunni bara vel við sig þar," segir Hjörvar æskuvinur Gillz í meðfylgjandi myndskeiði.

Dilana snýr aftur til landsins og syngur í rokkóperu

Söngkonan Dilana Robichaux hefur tekið að sér hlutverk í íslenskri rokkóperu. Þetta staðfestir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, sem kemur meðal annars að útsetningum verksins. Nafnið er enn þá á huldu, sem og stærsti hluti þeirra sem að þessu dularfulla verkefni koma.

Variety dæmir Draumalandið

Heimildarmyndin Draumalandið fær góða dóma hjá bandarísku kvikmyndabiblíunni Variety. Það telst til tíðinda þegar íslenskar kvikmyndir eru gagnrýndar hjá Variety og því eru þetta ánægjuleg tíðindi fyrir framleiðendur myndarinnar.

Kemur sér í gírinn á Cadillac

„Ég er bara að koma mér í gírinn,“ segir söngvarinn Friðrik Ómar sem rúntar um höfuðborgarsvæðið þessa dagana á glæsilegri, hvítri Cadillac-bifreið í tilefni af Elvis-tónleikum sínum í Salnum. „Ég verð á honum fram á miðvikudag, þegar síðustu tónleikarnir eru búnir.“

Jeff Who? auglýsir vodka í Bandaríkjunum

„Við getum alveg verið vodkamenn, ef það hittir þannig á,“ segir Elís Pétursson, yfirleitt þekktur sem Elli, bassaleikari hljómsveitarinnar Jeff Who? Hann er þó fljótur að bæta við skýrum skilaboðum: „En við erum reglumenn, maður þarf að kunna að fara með svona hluti.“

Dauðakippir rappsins?

Vopnaðar erjur Móra (Magnúsar Ómarssonar) og Blaz Roca (Erps Eyvindarsonar) hafa beint sjónum manna að íslenska rappinu. Er yfirleitt einhver íslensk rappsena til? Og hvar er hún þá?

Birna í Norræna

Fyrstu háskólatónleikar ársins fara fram í Norræna húsinu í dag og hefjast kl. 12.30. Þar leikur Birna Hallgrímsdóttir á píanó verk eftir Johann Sebastian Bach, Claude Debussy og Frédéric Chopin.

Aladdín í gamalli verksmiðju

Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir nýjan söngleik byggðan á hinni klassísku sögu um Aladdín í kvöld kl. 20. Leikstjóri verksins og höfundur leikgerðar er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir.

MS kominn i undanúrslit: Hefur ekki gerst siðan 1989

Menntaskólinn við Sund hefur kannski ekki komið séð og sigrað MORFÍS undanfarin ár en það er að breytast þetta árið. Lið Menntaskólans við Sund samanstendur af þeim Lilju Björk Stefánsdóttur frummælanda, Þórdísi Jensdóttur meðmælanda, Atla Hjaltesteð stuðningsmanni og Antoni Birki Sigfússyni liðstjóra.

Konudagurinn: Gera eitthvað fyrir hvort annað

„Við erum alveg glötuð hjónin hvað Valentínusardaginn varðar," svarar Ingibjörg Reynisdóttir leikkona spurð út í ástina og hvort hún og eiginmaður hennar hafi dekrað við hvort annað á Valentínusardaginn. „Við fórum reyndar á Jómfrúnna og fengum okkur þetta fína smörrebrauð á danska vísu eftir góða sundferð en það var samt ekki endilega tengt við Valentínusardaginn sérstaklega. Við eigum þetta nú bara til svona annað veifið," segir Ingibjörg.

Sætu stelpurnar fóru norður - myndir

„En það var alveg stútfullt hús af fallegu fólki á Kaffi Akureyri sem djammaði fram eftir nóttu," segir Karl Lúðvíksson útvarpsmaður á FM 957.

Lögbann á auglýsingar Kredia

„Þeir eru að nota karakter sem þeir hafa ekkert leyfi til að nota,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film, um auglýsingar smálánafyrirtækisins Kredia.

Fagstjóri úthúðar kjólum Evu Maríu og Ragnhildar

„Það skortir einfaldlega fagmennsku í þetta og á það var ég að benda," segir Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands. Hún sendi íslensku sjónvarpskonunni Evu Maríu Jónsdóttur bréf eftir úrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins, laugardaginn 6. febrúar, en í bréfinu fullyrti Linda að kjólar Evu Maríu og Ragnhildar Steinunnar væru þeir ljótustu sem hún hefði séð í sjónvarpinu.

Ljóðaslammi lokið

Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi þriðja árið í röð á Safnanótt á föstudaginn. Þema kvöldsins var væmni. Sautján ungmenni á aldrinum 15 til 22 ára tóku þátt að þessu sinni með átta atriði, sumir stigu einir á stokk en aðrir í hópum.

Umboðsmaður vildi Thin Jim

Hljómsveitin Thin Jim and the Castaways hefur breytt nafninu sínu í Thin Jim. Ástæðan er sú að bandarískur umboðsmaður sveitarinnar taldi styttra nafnið henta útvarpsmönnum betur.

Elís tekur við af Halli í Leaves

„Ég var að eignast mitt annað barn og þetta var komið gott bara,“ segir bassaleikarinn Hallur Hallsson, sem er hættur í hljómsveitinni Leaves.

Jóna í KvikkFix

Síðasta föstudag hófst sýning listakonunnar Jónu Heiðu Sigurlásdóttur, Umbreytingur. Sýningin er í Gallerý KvikkFix, sem er til húsa í betri stofu KvikkFix að Vesturvör 30c í Kópavogi. KvikkFix er alhliða bílaþjónustumiðstöð þar sem mikið er lagt upp úr þægilegu umhverfi fyrir kúnnann að bíða í á meðan bíllinn er tekinn í gegn.

Etja kappi við sveitunga sína

Dálítið sérstök staða er komin upp í spurningaþættinum Útsvari því í undanúrslitum næsta föstudag mætast Dalvíkurbyggð og Reykjavík. Tveir liðsmanna Reykjavíkur, þau Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins, hafa töluverðra hagsmuna að gæta á Dalvík og eru í erfiðri stöðu.

Í baráttuhug

Cheryl Cole, söngkonan úr Girls Aloud og eiginkona knattspyrnumannsins Ashley Cole, segist ætla að berjast fyrir hjónabandi sínu. Breskir fjölmiðlar hafa birt fréttir af því að Ashley hafi sent tveimur stúlkum nektarmyndir af sjálfum sér og textaskilaboð með óskum um nánari kynni.

Mynd um ævi Játvarðs

Söngkonan Madonna ætlar að leikstýra og skrifa handritið að dramatískri mynd sem verður byggð á ævi Játvarðs VIII., konungs yfir Bretlandi. Þetta verður önnur myndin sem Madonna leikstýrir. Fyrir tveimur árum sendi hún frá sér Filth and Wisdom, sem fékk herfilega dóma hjá gagnrýnendum og litla aðsókn. Söguþráðurinn er áhugaverður því söguhetjan Játvarður afsalaði sér krúnunni árið 1936 til að geta kvænst bandarísku konunni Wallis Simpson. Vera Farmiga úr Up in the Air hefur verið orðuð við hlutverk Simpson.

Föstuorgel í Grindavík

Á morgun, öskudag, hefst föstu-tónleikaröðin Leyndardómur trúarinnar í Grindavíkurkirkju. Sex tónleikar fara fram næstu sex miðvikudagskvöld. Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju, ríður á vaðið annað kvöld og leikur verk eftir „Bé-in þrjú“, Buxtehude, Böhm og Bach, ásamt því að spinna á orgelið.

Of feitur fyrir flugvélina

Leikstjóranum Kevin Smith var meinað að fljúga frá Oakland til Burbank í Kaliforínu vegna þess að hann þótti of feitur fyrir flugvélina. Smith brást hinn versti við.

Sjá næstu 50 fréttir