Fleiri fréttir

Spánverjar elska Íslendingahótel

Íslendingahótelið Hotel D´Angleterre í Danmörku hefur fengið enn ein verðlaunin og nú frá Spánverjum. Það er ferðamálaritið Diavaram, sem er eitt virtasta ritað í þessum geira þar í landi, sem nefnir hótelið það besta í Danmörku.

Gagnrýnendur eru hrifnir af nýjustu plötu Britney

Það er sennilega margt sem betur mætti fara í lífi Britney Spears, en gagnrýnendur fara aldrei þessu vant alveg afburða vel með nýjustu afurð stúlkunnar. Fjöldi fjölmiðla hafa kallað nýjustu plötu Spears, Blackout, þá bestu sem hún hefur gert.

Systur selja dýrustu nærbuxur Íslands

"Við ætlum að vera með nærföt í hæsta gæðaflokki," segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir sem á föstudag opnar nýja nærfataverslun á Laugarvegi. Verslunin hefur hlotið nafnið Systur en það skýrist af því að Sigrún á og rekur verslunina í félagskap við systur sína, Ragnheiði Eðvarðsdóttur.

Heather Mills segist fá verri meðferð en barnaníðingur

Bítlaeiginkonan fyrrverandi, Heather Mills, brotnaði niður í viðtali í morgunsjónvarpi GMTV sjónvarpsstöðvarinnar og sakaði fjölmiðla um að ýta sér út á brún. Mills sat með fulla möppu af blaðaúrklippum og táraðist þegar hún lýsti því hvernig hún hefði fengið líflátshótanir og hugleitt sjálfsmorð á því eina og hálfa ári sem liðið er frá því hún skildi við Paul McCartney.

Djúpavogsbúar háma í sig svið

Árleg sviðamessa verður haldin á Hótel Framtíð á Djúpavogi laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. Þetta er í ellefta sinn sem bæjarbúar halda sviðamessuna, en með henni hefur verið endurvakinn sá gamli íslenski siður að fagna vetrarkomu skömmu eftir sláturtíð og gæða sér á sviðum og löppum með rófustöppu og kartöflum.

Bjartur leitar að sex ára vinningshafa

Bókaforlagið Bjartur leitar nú að sex ára dreng frá Akureyri sem það vill bjóða til Evrópu. Þetta kann að hljóma undarlega fyrir mörgum en fyrir þessu er allsérstök ástæða.

Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys á NASA

Þrjár af vinsælustu hljómsveitum landsins blása til stórtónleika á NASA þann 16 nóvember næstkomandi. Í tilkynningu frá sveitunum segir að það séu breyttir tímar í íslenskri popptónlist. ,,Svo virðist sem lítt burðugt sveitaballapopp sé á undanhaldi og ferskari kynslóð sé tekin að úða olíu á nær útbrunninn kyndil íslenskrar popptónlistar."

Síðasta vígið fallið?

Íslendingar hafa undanfarin ár verið duglegir að fjárfesta í þjóðarperlum dana á borð við Illum og Magasin de Nord, við mismikla hrifningu innfæddra. Nú hlýtur þó síðasta vígið að vera fallið, en íslenskt fyrirtæki mun fyrir jól selja jólaskraut á jólamarkaði Tívolís.

Nigella er óánægð með vöxtinn

Nigella Lawson er víst óörugg með kroppinn öðru hvoru. Sjónvarpskokkurinn með bombuvöxtinn viðurkenndi í viðtali við Red tímaritið að henni finndist hún stundum líta út eins og fíll.

Britney fær ekki forræði yfir börnunum

Britney Spears fær ekki forræði yfir börnunum sínum aftur. Þetta úrskurðaði dómari í Kaliforníu um í gær. Britney fær að heimsækja syni sína tvo þrisvar í viku, tvisvar frá hádegi til kvöldmatarleitis, og einu sinni yfir nótt. Heimsóknirnar fara fram undir eftirliti.

Íslenskir milljarðamæringar í New York maraþoninu

Á sunnudaginn fer hið víðfræga New York maraþon fram en þá verða hlaupnir 42 kílómetrar um öll fimm hverfi borgarinnar. Alls eru 55 íslendingar skráðir til leiks en athygli vekur að þar á meðal eru nokkrir af atkvæðamestu kaupsýslumönnum landsins.

Britney endurheimtir umgengnisrétt við börnin

Britney Spears fær að hitta börnin sín þrisvar sinnum í viku undir eftirliti samkvæmt úrskurði dómara. Söngstjarnan þarf hins vegar að mæta vikulega í áfengis- og lyfjapróf og sækja reglulega námskeið í foreldrafærni. Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Spears fékk fullt forræði yfir börnunum í byrjun október. Dómarinn, Scott Gordon, hefur áður veitt Britney umgengnisrétt við börnun en svipt hana réttinum aftur, aðallega vegna áfengis- og fíkniefnavanda hennar.

Sesar A á 10 tungumálum

Afi íslenska rappsins Sesar A er risinn upp frá dauðum og gefur nú út sína þriðju sólóplötu. Sesar A sem heitir réttu nafni Eyjólfur B Eyvindarson er bróðir Erps Eyvindarsonar eins umtalaðasta rappara landsins.

Með hesthús og heitan pott í stofunni

Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum.

Íslenskur pókerkóngur reynir við 50 milljónir

Íslendingurinn Rúnar Rúnarsson hóf í dag þátttöku í Evrópumótaröðinni í Póker. Mótið fer fram í Merrion Casino Club í Dublin og eru tæpar 50 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.

Jackson gæti misst Neverland

Michael Jackson gæti misst Neverland, þar sem hann hefur ekki staðið við greiðslur af eins og hálfs milljarðs króna láni sem hvílir á búgarðinum.

Hélt að Justin Timberlake væri hommi

Lance Bass, einn meðlima NSYNC, segir í viðtali í nóvembertölublaði GQ að hann hafi alltaf haldið að meirihluti hljómsveitarmeðlima væri samkynhneigður.

Oprah biðst afsökunar á misnotkun

Oprah Winfrey grátbað í fyrradag foreldra nemenda í stúlknaskóla hennar í Suður-Afríku að fyrirgefa sér meinta misnotkun starfsmanna skólans á nemendum.

Plötufyrirtækið að gefast upp á Jennifer Lopez

Það gæti verið að styttast í annan endann á tónlistarferli Jennifer Lopez. Epic Records, plötufyrirtæki Lopez, er víst alveg að fá nóg af lélegri sölu á tónlist stúlkunnar, og yfirgengilegum kostnaði við markaðssetningu hennar.

Brangelina fjölgar sér enn

Angelina Jolie er ólétt af öðru barni sínu. Þessu héldu ítalskir fjölmiðlar fram í gær eftir að leikkonan þurfti að aflýsa fyrirlestri vegna ,,persónulegra ástæðna"

Denzel Washington og Russel Crowe leika saman

Óskarsverðlaunahafarnir Denzel Washington og Russel Crowe hafa nýlokið við tökur á myndinni “American Gangster”. Í myndinni leikur Washington eiturlyfjabaróninn Frank Lucas, sem auðgaðist mjög á sjöunda áratug síðustu aldar á því að flytja heroín til New York.

Safnplatan Bestaf/Nylon væntanleg

Safnplata með bestu lögum Nylonlflokksins er væntanleg í verslanir í lok nóvember. Síðustu vikur hafa stelpurnar verið að taka upp tvo lög sem verða einu tvo nýju lögin á plötunni, en hún inniheldur 17 lög sem öll eiga það sameiginlegt að hafa náð miklum vinsældum og mikilli spilun í útvarpi á Íslandi og þó víðar væri leitað. Meðal laga á plötunni eru meðal annars: Lög unga fólsins, Einhverstaðar, einhvertíma aftur, Síðasta Sumar, Losing a friend og Sweet Dreams sem fór í efsta sæti breska dans listans á sama tíma í fyrra.

Maríjúana er ekki eiturlyf - það er lauf

Tortímandinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger viðurkenndi í viðtali í síðasta tölublaði tímaritsins GQ að hafa reykt maríjúana. Ólíkt Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta gekkst hann meira að segja við því að hafa dregið reykinn ofan í lungu.

Geðveikir bolir á tónleikum Rúna Júl

„Þetta fór bara langt fram úr okkar björtustu vonum og ætli við höfum ekki selt hátt í 200 boli,“ segir Sigrún Ásgeirsdóttir félagi í Björginni í Reykjanesbæ.

Sarkozy sýnir skapið í 60 Minutes

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sýndi ekki sínar bestu hliðar í viðtali við Lesley Stahl í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes sem sýndur var vestanhafs í gær.

Flestir vilja vera Brangelina

Og hverjir skyldu Bandaríkjamenn helst vilja vera þetta árið? Brad Pitt og Angelina Jolie greinilega. Samkvæmt könnun Captain Morgan/Kelton, eru ,,Brangelina" þær stjörnur sem menn vilja helst vera á hrekkjavökunni í ár.

Audiæði hjá yfirstjórn RÚV

Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins fjárfesti í lok ágúst í spánnýjum dökkgráum Audi A6 bíl. Bíllinn er með tveggja lítra vél sem skilar 170 hestöflum og sjö gíra sjálfskiptingu og kostar rúmar 4,3 milljónir. Þetta er því hógvær útgáfa af A6, því þeir geta kostað allt að 7,9 milljónir króna.

Eddu stuttmyndir sýndar í Regnboganum

Þrjár stuttmyndir eru tilnefndar til Edduverðlauna í ár. Myndirnar verða allar sýndar í Regnboganum á þriðjudag og fimmtudag klukkan 18 og er aðgangur ókeypis.

Paris gengur berserksgang í beinagrindarbúningi

Starfsmenn hjálpartækjaverslunar í Toronto halda því fram að Paris Hilton hafi gengið berserksgang í búð þeirra í síðustu viku. Á öryggismyndavélum búðarinnar sést kona íklædd hrekkjavökugrímu og beinagrindarbúningi kvarta með látum yfir auglýsingu í glugga verslunarinnar fyrir ,,One Night in Paris", víðfrægt kynlífsmyndband hótelerfingjans.

Catherine Zeta Jones er ekki með anorexíu

Kynbomban Katherine Zeta Jones þvertekur fyrir að nokkuð sé hæft í orðrómi um að hún þjáist af lystarstoli. Leikkonan hefur löngum verið þekkt fyrir afar kvenlegan vöxt og andstöðu við megrunarmaníu ungstyrnanna í Hollywood. Undanfarið hafa hinsvegar heimsfrægar ávalar línur hennar vikið fyrir nýrri og tálgaðri líkamsvexti.

Shatner sár yfir að vera ekki með í Star Trek

Leikarinn William Shatner er sár og móðgaður yfir því að hann fær ekki að vera með í næstu Star Trek mynd sem sýnd verður á næsta ári. Hann fær ekki að fara "óttalaust þangað sem enginn hefur komið áður." Meðleikari hans úr fyrri myndum, Leonard Nimoy verður hinsvegar með í hópnum sem Spock.

Líf Lohan sem raunveruleikaþáttur

Á þriðjudag hefst nýr raunveruleikaþáttur á E! Sjónvarpsstöðinni sem byggir á lífi Lohan-fjölskyldunnar. Aðalpersónurnar verða Dina, móðir Lindsey Lohan, og litla systirin Ali. Sjálf mun Lindsey svo koma fram í þáttunum af og til.

Bók í tilefni 10 ára afmælis Skessuhorns

Í tilefni þess að héraðsfréttablaðið Skessuhorn á Vesturlandi verður brátt 10 ára gamalt var ákveðið að minnast tímamótanna með útgáfu viðtalsbókar. Bókin Fólkið í Skessuhorni kom út um liðna helgi. Hún hefur að geyma 62 viðtöl við áhugaverða Vestlendinga.

Ofurdrykkja Harry prins enn til umfjöllunar

Harry prins er aftur kominn í sviðsljós fjölmiðla í Bretlandi eftir að hann eyddi sem svarar til tæplega 200.000 kr. í villta drykkjunótt með Chelsy Davy kærustu sinni um helgina.

Neverland á nauðungaruppboð

Michael Jackson hefur 90 daga frest til að útvega sér 23 milljónir dollara eða sem svarar nær 1.400 milljónum kr. Annars fer Neverland búgarðurinn hans á nauðungaruppboð.

Tíu litlir kynvillingar, eftir Baggalút

Meðlimir Baggalúts hafa nú blandað sér í helstu umræðumál dagsins í dag með kveðskapnum Tíu litlir kynvillingar. Sjá má nánar um málið á heimasíðu sveitarinnar en textinn fylgir hér með:

Britney vill forræði með Kevin

Bandaríska söngkonan Britney Spears freistaði þess fyrir dómstóli í Kaliforníu í gær að fá aftur forræði yfir börnunum sínum tveimur. Þau nú eru hjá fyrrverandi manni hennar Kevin Federline.

Þríþrautarleikar skáta í Elliðaárdal

Hjálparsveit skáta í Reykjavík efnir til þríþrautarleika í Elliðaárdal í dag og hefst hún klukkan eitt. Miðstöð keppninnar verður við Árbæjarstíflu Árbæjarmegin en hún fer fram bæði ofan og neðan stíflu.

Peta dæmdur í skilorðsbundið fangelsi

Pete Doherty var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Honum var einnig gert að hitta skilorðsfulltrúa næstu átján mánuðina og halda sig frá eiturlyfjum næstu tólf mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða sekt fyrir að keyra án tryggingar.

Enn ein Lost stjarnan handtekin

Lost stjarnan Daniel Dae Kim var handtekinn snemma á þriðjudagsmorgun í grunaður um ölvun við akstur. Lögregla á Hawaii, þar sem þættirnir eru teknir, handtók Kim um þrjúleitið aðfaranótt þriðjudags. Honum var sleppt aftur gegn tryggingu um tveimur tímum síðar.

Dagbækur Britney til sölu

Eins og greyið Britney Spears eigi ekki nógu bágt. Stuttu eftir skelfilega frammistöðu hennar á MTV verðlaunahátíðinni í September, hafði einn af nánustu vinum hennar, Sam Lutfi, samband við breskt dagblað. Þrátt fyrir að Sam neiti því, segist blaðið Life &Style hafa fyrir því heimildir að hann hafi sagst hafa dagbækur Britney undir höndum, og hafi sagt blaðinu að hann hefði þegar fengið tilboð upp á milljón dollara fyrir bækurnar.

Sjá næstu 50 fréttir