Fleiri fréttir Vikið tímabundið úr starfi fyrir að leka upplýsingum um Clooney Allt að 40 heilbrigðisstarfasmönnum á Palisades spítalanum í New Jersey hefur verið vikið tímabundið úr starfi eftir að upplýsingum úr sjúkraskrám leikarans George Clooney var lekið í fjölmiðla. 10.10.2007 10:19 Sutherland í fangelsi Leikarinn Kiefer Sutherland, sem fer með hlutverk Jack Bauer í sjónvarpsþáttaröðinni 24, hefur verið dæmdur í 48 daga fangelsi fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. 10.10.2007 09:23 Randver í sjónvarpið á ný Randver er heiti á þætti, í umsjá Randvers Þorlákssonar, sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN í næstu viku. 9.10.2007 16:27 Kryddin gera góðverk Kryddpíurnar hafa tekið ákvörðun um að allur ágóði af nýju smáskífu þeirra Headlines renni til góðgerðarmála. Lagið er annað af tveimur sem píurnar hafa tekið upp í tengslum við væntanlega tónleikaferð sína og kemur út þann 19. nóvember næskomandi. 9.10.2007 16:27 Spearssystur í rifrildi úti á götu Birtney Spears og litla systir hennar Jamie Lynn lentu í heldur óskemmtilegu atviki um helgina þegar æst kona réðst að þeim og hellti sér yfir Spears. Systurnar sem höfðu verið að kaupa sér kaffi gengu um götur Malibu umkringdar ljósmyndurum þegar konan birtist. 9.10.2007 15:31 Mills og McCartney ræða milljarða skilnaðarsáttmála Bítillinn Paul McCartney og fyrrverandi eiginkona hans Heather Mills eru sögð ætla á fund hæstaréttardómara á fimmtudaginn næstkomandi til að ganga endanlega frá skilnaði sínum. 9.10.2007 14:18 Wahlberg æfir stíft fyrir boxmynd Leikarinn Mark Wahlberg tekur væntanlegt hlutverk sitt í myndinni The Fighter það alvarlega að hann vaknar klukkan fjögur á morgnanna til að vera mættur í ræktina þegar hún opnar klukkan fimm. 9.10.2007 13:35 Hugh Grant kemur sér í klandur Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik. 9.10.2007 12:07 P. Diddy gengst við 15 mánaða gamalli stúlku Rapparinn Sean P. Diddy hefur viðurkennt að vera faðir hinnar 15 mánaða gömlu Chance. Stúlkan fæddist þegar Diddy var enn í sambúð með Kim Porter. Móðir stúlkunnar heitir hins vegar Sarah Chapman. Því hefur lengi verið haldið fram að Diddy sé faðirinn en hann viðurkenndi það ekki fyrr en niðurstöður DNA-rannsóknar leiddu sannleikann í ljós. 9.10.2007 11:21 Allt á afturfótunum hjá Cruise Mikið af því efni sem búið var að taka upp í tengslum við gerð myndarinnar Valkyrie með, Tom Cruise, er ónothæft og þarf að taka fjölda atriða upp aftur. „Þegar upptökurnar bárust í kvikmyndaver kom í ljós að megnið af efninu var ónýtt eða horfið,“ segir talsmaður framleiðenda í samtali við þýska dagblaðið Bild. 9.10.2007 09:58 Bilet.ro hlýtur verðlaun í Rúmeníu Bilet.ro, dótturfélag Miða.is, sigraði í flokki afþreyingarvefja við afhendingu rúmensku vefviðskiptaverðlaunanna í síðustu viku. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent og hlaut Bilet.ro verðlaun í flokknum „Besti afþreyingar og frístundavefurinn.“ Alls voru 24 vefir í úrslitum í þeim flokki. 9.10.2007 08:59 Mary grét af afbrýðissemi Danski blaðamaðurinn Trine Willeman hefur skrifað bókina 1015 Köbenhavn K þar sem hún segir af mikilli hreinskilni frá því sem gerist bakvið tjöldin hjá dönsku konungsfjölskyldunni. 9.10.2007 08:12 Allt í háaloft hjá Spice Girls 9.10.2007 07:20
Sjá næstu 50 fréttir
Vikið tímabundið úr starfi fyrir að leka upplýsingum um Clooney Allt að 40 heilbrigðisstarfasmönnum á Palisades spítalanum í New Jersey hefur verið vikið tímabundið úr starfi eftir að upplýsingum úr sjúkraskrám leikarans George Clooney var lekið í fjölmiðla. 10.10.2007 10:19
Sutherland í fangelsi Leikarinn Kiefer Sutherland, sem fer með hlutverk Jack Bauer í sjónvarpsþáttaröðinni 24, hefur verið dæmdur í 48 daga fangelsi fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. 10.10.2007 09:23
Randver í sjónvarpið á ný Randver er heiti á þætti, í umsjá Randvers Þorlákssonar, sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN í næstu viku. 9.10.2007 16:27
Kryddin gera góðverk Kryddpíurnar hafa tekið ákvörðun um að allur ágóði af nýju smáskífu þeirra Headlines renni til góðgerðarmála. Lagið er annað af tveimur sem píurnar hafa tekið upp í tengslum við væntanlega tónleikaferð sína og kemur út þann 19. nóvember næskomandi. 9.10.2007 16:27
Spearssystur í rifrildi úti á götu Birtney Spears og litla systir hennar Jamie Lynn lentu í heldur óskemmtilegu atviki um helgina þegar æst kona réðst að þeim og hellti sér yfir Spears. Systurnar sem höfðu verið að kaupa sér kaffi gengu um götur Malibu umkringdar ljósmyndurum þegar konan birtist. 9.10.2007 15:31
Mills og McCartney ræða milljarða skilnaðarsáttmála Bítillinn Paul McCartney og fyrrverandi eiginkona hans Heather Mills eru sögð ætla á fund hæstaréttardómara á fimmtudaginn næstkomandi til að ganga endanlega frá skilnaði sínum. 9.10.2007 14:18
Wahlberg æfir stíft fyrir boxmynd Leikarinn Mark Wahlberg tekur væntanlegt hlutverk sitt í myndinni The Fighter það alvarlega að hann vaknar klukkan fjögur á morgnanna til að vera mættur í ræktina þegar hún opnar klukkan fimm. 9.10.2007 13:35
Hugh Grant kemur sér í klandur Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik. 9.10.2007 12:07
P. Diddy gengst við 15 mánaða gamalli stúlku Rapparinn Sean P. Diddy hefur viðurkennt að vera faðir hinnar 15 mánaða gömlu Chance. Stúlkan fæddist þegar Diddy var enn í sambúð með Kim Porter. Móðir stúlkunnar heitir hins vegar Sarah Chapman. Því hefur lengi verið haldið fram að Diddy sé faðirinn en hann viðurkenndi það ekki fyrr en niðurstöður DNA-rannsóknar leiddu sannleikann í ljós. 9.10.2007 11:21
Allt á afturfótunum hjá Cruise Mikið af því efni sem búið var að taka upp í tengslum við gerð myndarinnar Valkyrie með, Tom Cruise, er ónothæft og þarf að taka fjölda atriða upp aftur. „Þegar upptökurnar bárust í kvikmyndaver kom í ljós að megnið af efninu var ónýtt eða horfið,“ segir talsmaður framleiðenda í samtali við þýska dagblaðið Bild. 9.10.2007 09:58
Bilet.ro hlýtur verðlaun í Rúmeníu Bilet.ro, dótturfélag Miða.is, sigraði í flokki afþreyingarvefja við afhendingu rúmensku vefviðskiptaverðlaunanna í síðustu viku. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent og hlaut Bilet.ro verðlaun í flokknum „Besti afþreyingar og frístundavefurinn.“ Alls voru 24 vefir í úrslitum í þeim flokki. 9.10.2007 08:59
Mary grét af afbrýðissemi Danski blaðamaðurinn Trine Willeman hefur skrifað bókina 1015 Köbenhavn K þar sem hún segir af mikilli hreinskilni frá því sem gerist bakvið tjöldin hjá dönsku konungsfjölskyldunni. 9.10.2007 08:12
Sigur Rós á tjúttinu með McCartney og Minogue Hljómsveitin Sigur Rós var á meðal sigurvegara á hinni mikilsmetnu Q tónlistarverðlaunahátíð sem haldin var í London í dag. Aðrir sigurvegarar á hátíðinni voru til að mynda Kylie Minogue, Amy Winehouse, Arctic Monkeys, Stereophonics, Manic Street Preachers og Paul McCartney. 8.10.2007 16:34
Jón og Eyvi með Cabaret í Kína Þeir Jón Ólafsson og Eyjólfur Kristjánsson fóru um helgina ásamt fríðu föruneyti til Qingdau í Kína þar sem haldið var upp á kaup Eimskipa á 60% hlut í kínverska gámageymslufyrirtækinu Luyi Depot. 8.10.2007 15:33
The Police mögulega með nýja plötu Andy Summers, gítarleikari hljómsveitarinnar The Police, segir ekki útilokað að hann og félagar í hljómsveitinni taki sig til og geri nýja plötu þegar tónleikaferð þeirra lýkur á næsta ári. "Það væri mikil áskorun fyrir okkur að setjast niður og semja eftir öll þessi ár," sagði hinn 64 ára gamli Summers í samtali við blaðamenn í Dublin. 8.10.2007 14:39
Jolie hittir föður sinn á laun Leikarinn Jon Voight sást koma skælbrosandi út af Waldorf Astoria hótelinu í New York á sunnudag en þar dvöldu einnig Angelina Jolie, dóttir hans og sambýlismaður hennar Brad Pitt. Það bendir til þess að þau feðginin hafi náð sáttum en þau hafa ekki talast við síðan Jolie og Billy Bob Thornton skildu árið 2002. 8.10.2007 13:41
Beckham landar milljóna samningi við Cavalli Victoria Beckham hefur landað milljóna samningi við tískukonunginn Roberto Cavalli og mun hann ætla að sjá um að gera klæðaburð kryddpíanna óaðfinnanlegan í væntanlegri endurkomutónleikaferð sem hefst í byrjun desember. 8.10.2007 12:51
Britney sættist við móður sína Í kjölfar þess að Britney Spears missti tímabundið forræði yfir sonum sínum tveimur mun hún hafa leitast eftir sáttum við móður sína. Spears og móðir hennar Lynne voru ávallt nánar en þær hættu að talast við í sumar eftir að Britney afhenti móður sinni bréf með særandi athugasemdum. 8.10.2007 11:17
Myndband við Bohemian Rhapsody talið best Myndband við lagið Bohemian Rhapsody með hljómsveitinni Queen var valið besta tónlistarmyndbandið í nýlegri könnun sem gerð var í Bretlandi. Af þeim rúmlega þúsund sem tóku þátt í könnuninni sögðu 30 % að hið sex mínútna langa myndband með Queen væri best. 8.10.2007 10:56
Moore og Kutcher í uppnámi eftir myndastuld Demi Moore og eiginmaður hennar Ashton Kutcher eru sögð í miklu uppnámi eftir að nektarmyndir úr síma Kutcher komust í umferð. Leikarinn týndi símanum á ferð sinni um Spán í Apríl síðastliðinn og óprúttinn aðili fann hann í aftursæti leigubíls. 8.10.2007 10:28
Lindsay Lohan lýkur meðferð Ungstirnið Lindsay Lohan hefur lokið meðferð á Cirque Lodge meðferðarleimilinu í Utah. Hún var lögð inn í byrjun ágúst eftir að hafa tvívegis verið tekin fyrir ölvunarakstur á skömmum tíma. Þetta mun vera þriðja meðferðin sem hin 21 árs gamla leikkona fer í gegnum. 8.10.2007 09:27
Pamela aftur í hnapphelduna Fregnir berast nú frá Las Vegas um að kynbomban Pamela Anderson hafi gifst Rick Salomon á laugardagkvöld ,á milli sýninga sinna á Las Vegas Strip. Hjúskaparheitin voru gefin á milli sýninganna á Hans Kloks The Beauty of magic þar sem Pamela leikur eitt af aðalhlutverkunum. 8.10.2007 08:16
Hjartaáfall styrkir samband Beckham við föður sinn David Beckham hefur boðist til að kaupa hús í Los Angeles handa pabba sínum sem jafnar sig nú á hjartaáfalli sem hann fékk fyrir rúmri viku. 7.10.2007 14:20
Video: Britney hundelt á rúntinum með litlu systur Þrátt fyrir að vera hundelt af ljósmyndurum hvert sem hún fyrir hikar Britney Spears ekki við að eyða heilu laugardagskvöldi á rúntinum. Í gærkvöldi brá söngkonan sér í bíltúr með litlu systur sinni Jamie Lynne sem er hjá henni í heimsókn um þessar mundir. 7.10.2007 17:24
Sigrar og sorgir Britney Spears Fyrir fimm árum útnefndi Forbes-tímaritið söngkonuna Britney Spears valdamestu manneskjuna í afþreyingariðnaðinum. Og ekki að undra. Fyrstu fjórar sólóskífurnar höfðu rokið út og nafn hennar og andlit voru greypt í öll helstu dagblöð og tímarit. 7.10.2007 08:30
Dr. Phil segir að Britney gæti verið á barmi þess að fremja sjálfsmorð Í eins klukkutíma þætti, sem eingöngu var helgaður málefnum Britney Spears á fimmtudag sagði þáttastjórnandinn Dr. Phil, sem er Íslendingum að góðu kunnur, að söngkonan væri mögulega á barmi þess að fremja sjálfsmorð. 6.10.2007 18:30
Frá Hverfisgötu í Ingólfsstræti Stefán Baldursson er maðurinn sem ber ábyrgð á glæstum ferli okkar stærstu leikara í dag. Hann fann það fljótt að hann vildi ekki verða leikari. 6.10.2007 06:00
Frægir Íslendingar skrá sig á Facebook Yfir sjö þúsund Íslendingar hafa skráð sig á vefsvæðinu Facebook en heildarfjöldi skráninga á heimsvísu er hátt í 40 milljónir. Þekktir Íslendingar sjá sér greinilega hag í þátttöku því þeir skipta tugum. 6.10.2007 06:00
Britney missti af fyrsta heimsóknartímanum Britney Spears missti af fyrsta heimsóknartímanum með börnum sínum eftir að hún var svipt forræði í síðustu viku. Hún kennir dyrasímanum sínum um. 5.10.2007 20:46
Lopez kemur upp um sig Jennifer Lopez hefur undanfarnar vikur keppst við að neita því að hún og eiginmaður hennar Marc Anthony eigi von á barni. Á tónleikum þeirra hjóna í Connecticut í lok september virtist hún þó einhverju vera að leyna. Hún skipti ört um kjóla og allir voru þeir víðir yfir magann. Í eitt skipti feyktist kjóllinn til og blasti grunsamlega útstæður magi við. 5.10.2007 16:42
Meintur lagastuldur Knowles fyrir áfrýjunardómstól Kona sem sakar Beyonce Knowles um lagastuld hefur vísað málinu til áfrýjunardómstóls. Jennifer Armour heldur því fram að lag Knowles, Baby Boy, byggi á textanum og laglínunni í lagi hennar Got a Little Bit of Love for You. 5.10.2007 15:33
Hvað er Jude að fela? Það mætti halda að leikarinn Jude Law sé að reyna að koma á nýrri hattatísku en skýringin á sífellt nýjum höfuðfötum mun vera kollvikin sem gera lítið annað en að hækka. Í nýlegu viðtali hjá David Letterman tók hann ofan og þá sást bersýnilega hversu þunnhærður hjartaknúsarinn er. Það bæti ekki úr skák að hann er nánast snoðaður þessa dagana svo hárleysið fer ekkert á milli mála. 5.10.2007 14:48
Manuel Barrueco með tónleika í Salnum Gítarleikarinn Manuel Barrueco heldur tónleika í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 10. október kl. 20. en hann er talinn einn besti gítarleikari heims. Barrueco hefur áður komið til landsins og hélt tónleika á Listahátíð Hafnarfjarðar árið 1993 og kom fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1999. 5.10.2007 13:51
Óboðnir gestir hjá Longoriu Eva Longoria fann tvær ókunnugar konur í hjólhýsi sínu á tökustað Desperate Housewives í síðustu viku. Longoriu var illa brugðið þegar hún kom að konunum í setustofu hjólhýsisins er hún hugðist hvíla sig eftir tökur. 5.10.2007 13:21
Kryddin keppa við kílóin Það er deginum ljósara að kryddpíurnar, sem halda af stað í endurkomutónleikaferðalag í byrjun desember, ætla að vera í sínu allra besta formi þegar þær troða upp í hinum ýmsu heimshornum. Þær verða mjórri með hverjum deginum sem líður og er bara að vona að eitthvað verði eftir af þeim þegar þær stíga loks á stokk, tæpum áratug eftir að þær komu síðast saman. 5.10.2007 12:07
Doherty lýkur meðferð Rokkarinn Pete Doherty hefur nú lokið sex vikna meðferð á Clouds meðferðarstofnunni í Wilts í Englandi. Meðferðin var stíf og gáfu lyfjapróf á tímabilinu til kynna að hann væri laus við allt áfengi, krakk og heróín úr blóðinu. 5.10.2007 11:21
Spears og Federline gert að fara saman í ráðgjöf Dómari hefur gefið Britney Spears og fyrrverandi eiginmanni hennar, Kevin Federline, fyrirmæli um að að fara saman í þrjú viðtöl hjá ráðgjafa áður en þau mæta aftur fyrir rétt þann 26. október næstkomandi. 5.10.2007 11:00
Bítlavaka á NASA Stuðmenn og Bítlagæslumennirnir efna til Bítlavöku á NASA á morgun. Tilefnið er koma Yoko Ono til landsins en hún mun tendra friðarsúlu í Viðey á fæðingardegi Bítilsins John Lennon næstkomandi þriðjudag. 5.10.2007 10:14
Þjófur sem stal myndum frá Spielberg handtekinn Leynilögregla í Los Angeles hafði hendur í hári þjófs sem hugðist selja myndir úr Indiana Jones myndinni sem nú er í vinnslu. Þjófurinn komst yfir tölvubúnað og myndir sem tengdust framleiðslu myndarinnar og mælti sér mót við lögreglu, sem hann taldi væntanlegan kaupanda, á Standard Hótelinu í Hollywood. 5.10.2007 09:49
Birkhead með raunveruleikasjónvarpsþátt Larry Birkhead, sem þekktastur er fyrir að vera barnsfaðir Önnu Nicole Smith heitinar, vinnur nú hörðum höndum að því að undirbúa nýjan sjónvarpsþátt sem verður byggður á hans eiginn daglega amstri. 4.10.2007 20:37
Aniston og Bloom stinga saman nefjum Einhleypu en eftirsóttu Hollywoodstjörnurnar Jennifer Aniston og Orlado Bloom hittust í brúðkaupi hjá sameiginlegum umboðsmanni í Mexico á dögunum og litu ekki af hvort öðru. Þar voru einnig Natalie Portman, Laura Linney og Kate Bosworth, fyrrum kærasta Bloom. 4.10.2007 16:25
Pamela laug til um fósturlát Kid Rock, fyrrum eiginmaður Pamelu Anderson, segir strandvarðarleikkonuna fyrrverandi hafa logið til um fósturlát. „Pamela vildi fá mig til sín til Vancouver þar sem hún var að leika í mynd,“ segir Rock í samtali við Rolling Stone tímaritið. 4.10.2007 15:46
Góðir gestir með Gæðablóð Hljómsveitin Gæðablóð stígur á stokk í kvöld á Sportbarnum við Hverfisgötu ásamt góðum gestum. Með sveitinni að þessu sinni syngja þau Eggert Jóhannsson kaupmaður, Andrea Gylfadóttir söngkona og Heiðrún Hallgrímsdóttir barþjónn. 4.10.2007 15:10
Britney: Stjörnuhrapið mikla Britney Spears er fædd í McComb í Mississippi í desember 1981 en var alin upp í Kentwood í Louisiana. 4.10.2007 13:36