Fleiri fréttir Guacamole-nasl frá Gullu Hönnuðurinn Guðlaug Halldórsdóttir er næsti gestur Völu í Mat og lífsstíl. „Eins og allir sem hafa verið í þáttunum er Gulla, eins og hún er oftast kölluð, mjög skapandi og skemmtileg í eldhúsinu,“ sagði Vala. 26.7.2007 01:15 Syngur til heiðurs móður á stórtónleikum á Akureyri Stórtónleikar með Kristján Jóhannsson óperusöngvara í fararbroddi verða haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri í september. tórtónleikarnir fara fram sunnudaginn 9. september, og að ósk Kristjáns munu þeir bera yfirskriftina „Fyrir mömmu“, en móðir hans, Fanney Oddgeirsdóttir, verður níræð 14. september næstkomandi. 26.7.2007 00:45 Góð stemning á G! í Færeyjum Hin stórfenglega tónlistarhátíð G! festival fór fram í hinum þúsund manna bæ Götu í Færeyjum um síðustu helgi. Steinþór Helgi Arnsteinsson var á staðnum og skemmti sér konunglega ásamt um fimmtungi færeysku þjóðarinnar. 26.7.2007 00:30 Alvöru aðdáendur sjá báðar „Það er nú alltaf svolítil tilhlökkun í manni fyrir frumsýningu en maður er orðinn svo sjóaður að maður lætur það ekki á sig fá lengur,“ segir Jakob Þór Einarsson sem leikstýrir íslensku talsetningunni á Simpsons-myndinni. 26.7.2007 00:00 Köttur spáir fyrir um dauða vistmanna á hjúkrunarheimili Köttur nokkur á hjúkrunarheimili á Rhode Island í Bandaríkjunum hefur óvenjulegan hæfileika til að segja fyrir um andlát vistmanna þar. Þegar Óskar, eins og kötturinn er nefndur, hjúfrar sig upp að einhverjum, veit starfsfólk heimilisins að viðkomandi á líklega ekki langt eftir. Þetta hefur Óskar gert í 25 skipti, og hafa vistmennirnir allir verið látnir innan fjögurra klukkustunda. Nú er svo komið að starfsfólk spítalans er farið að hringja í ættingja fólks ef að Óskar sýnir því áhuga, til að vara þá við yfirvofandi dauða þess. 26.7.2007 00:00 Lohan í fangabúningi Það er ekki búið að setja Lindsay Lohan inn ennþá, en það er samt búið að klæða hana í fangabúning. Vaxmyndina af henni að minnsta kosti. Vaxmyndasafn Madame Tussauds í New York ákvað í kjölfar annarar handtöku stjörnunnar fyrir ölvunarakstur að klæða styttuna af henni í fangelsisröndóttan samfesting. Safnið gerði það sama við styttuna af Paris Hilton í síðasta mánuði meðan hún afplánaði dóm sinn fyrir ölvunarakstur. 25.7.2007 10:25 ÍSMÓT í byrjun september Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara, ÍSMÓT 2007, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september næstkomandi. 24.7.2007 10:47 G! Festival í Færeyjum Tónlistarhátíðin G Festival var haldin í Götu í Færeyjum um helgina en þetta er stærsta tónlistarhátíð landsins. Um fimmtungur þjóðarinnar heimsækir bæinn sem telur aðeins þúsund manns. Frægasti íbúi bæjarins, Eivör Pálsdóttir, tróð þar upp en hún átti einmnitt afmæli á laugardag. Íslenskar hljómsveitir eru fastagestir á hátíðinni og í ár tróðu þrjár íslenskar sveitir þar upp. 23.7.2007 21:05 Frá Royal Albert Hall til Íslands Þrír af aðalgestum Kirkjulistahátíðar koma fram á tónleikum í tónleikaröðinni „BBC Proms" í Royal Albert Hall aðeins örfáum dögum áður en þeir koma til landsins og taka þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach við opnun Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 11.ágúst. 23.7.2007 12:19 Syndug hjörtu á Rauðasandi Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. 23.7.2007 11:43 Gönguferð um Vatnsdalsárgil Laugardaginn 28. júlí stendur Ferðaþjónustan á Hofi í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili. Þar eru margir fossar, sem þykja hver öðrum fallegri. Má þar nefna Skínanda, Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss. 23.7.2007 10:18 Kate Moss flýr Doherty Fyrirsætan Kate Moss er endanlega búin að fá nóg af Pete Doherty. Hún hefur skipt um lás á íbúðinni sinni og leitar að húsi. 23.7.2007 05:00 Keppni við Akranes gæti orðið ljúfsár hefnd „Okkur hafa borist þó nokkrar tillögur en það hefur ekki enn verið valið í liðið. Einhver nöfn hafa þó borið oftar á góma en önnur,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. 23.7.2007 04:45 Var alveg biðarinnar virði „Það verður búið að skreyta Laugaveginn þegar ég kem heim,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason. Hann er nú loksins kominn til Berlínar þar sem undirbúningur fyrir hasarmyndina Stopping Power er kominn á fullt. Leikstjóri myndarinnar er enginn annar en hinn hollenski Jan de Bont sem sjálfur hóf feril sinn í kvikmyndatökustólnum. 23.7.2007 04:15 Jamie Kennedy í annarlegu ástandi Grínistinn og Íslandsvinurinn Jamie Kennedy mætti á tölvuleikjaráðstefnuna E3 á dögunum og var með uppistand. Það hefði verið í góðu lagi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Jamie var í afar annarlegu ástandi með úfið hár og í fráhnepptri skyrtu. 23.7.2007 03:00 Fá hjálp frá framleiðanda Bráðavaktarinnar Nokkrar stjörnur úr bandaríska sjónvarpsgeiranum eru væntanlegar hingað til lands í ágúst, þar sem þær munu miðla af reynslu sinni til íslensks sjónvarpsfólks á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins MediaXchange. 23.7.2007 02:45 Lindsay nær nýjum lægðum Hollywoodstjarnan og vandræðagemsinn Lindsay Lohan er enn og aftur umfjöllunarefni fjölmiðla. Nú er því haldið fram að áfengismeðferð sem hún fór í hafi engan árangur borið. Lindsay hafi meira að segja neytt áfengis meðan á meðferðinni stóð. 23.7.2007 02:00 Campbell auglýsir kleinuhringi Ofurfyrirsætan Naomi Campbell komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar út spurðist að hún hefði samþykkt að leika í auglýsingu fyrir bandaríska kleinuhringjafyrirtækið Dunkin" Donuts. 23.7.2007 01:45 Brynja Björk á ævintýraslóðum í Perú „Við lentum hérna 7. júlí og förum 28. til New York,“ segir Brynja Björk Garðarsdóttir, blaðamaður á Mannlífi og fyrrum þáttastjórnandi á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Ólíkt þeirri ímynd sem var kynnt í sjónvarpsþættinum fræga um næturlífið í Reykjavík er Brynja fjarri öllum skarkala borgarlífsins. Hún er nefnilega í Perú. 23.7.2007 01:00 Blunt samdi plötu á Ibiza Næsta plata breska popparans James Blunt, All the Lost Souls, kemur út 18. september. Fyrsta smáskífulagið af plötunni, 1973, er væntanlegt á öldur ljósvakans. Fékk Blunt innblásturinn að laginu þegar hann dvaldi á Ibiza við Spán þar sem hann samdi plötuna. 23.7.2007 00:30 LungA lokið Vikulangri Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lauk í gær með uppskeruhátíð á Seyðisfirði og gekk hátíðin vel fyrir sig. 22.7.2007 20:01 Perez fílar Pál Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson fékk sína fimmtán mínútna frægð í bandaríska slúðurheiminum á fimmtudaginn þegar slúðurbloggarinn Perez Hilton póstaði nýjasta myndbandi Palla, við lagið Allt fyrir ástina, á síðunni sinni. 22.7.2007 05:45 Endurútgáfa frá Ego Tvær fyrstu plötur Ego, Breyttir tímar og Í mynd, hafa verið endurútgefnar í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá útgáfu þeirra. Ego var stofnuð haustið 1981 og gaf út sína fyrstu plötu, Breyttir tímar, 1. apríl 1982. 22.7.2007 05:45 Ferðast um Afganistan Leikarinn Jude Law er staddur í Afganistan til að kynna hinn árlega friðardag Sameinuðu þjóðanna hinn 21. september. Með honum í för er breski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeremy Gilley sem er að búa til heimildarmynd um heimsóknina. 22.7.2007 05:00 Del Toro leikur Che Guevara Leikarinn Benecio del Toro hefur tekið að sér hlutverk argentínska byltingarsinnans Ernesto Che Guevara í nýrri kvikmynd eftir Steven Soderbergh. Myndin, sem nefnist Guerilla, verður tekin upp á níu vikum víðs vegar um Spán. Verður eingöngu töluð spænska í henni. 22.7.2007 04:30 Fyrsta tónleikaferðin í tíu ár Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson fer í tveggja vikna tónleikaferð um Ísland hinn 28. júlí ásamt átta manna hljómsveit sem er skipuð dönskum og íslenskum tónlistarmönnum. Með í för verður danska hljómsveitin Jazirkus. 22.7.2007 03:30 Höfðar mál vegna Mijovi 22.7.2007 02:30 Fýla í röppurunum Kanye West og 50 Cent eru í fýlu út í hvor annan en þeir ætla báðir að gefa út plötur þann 11. september einhverra hluta vegna. Það var 50 Cent sem ákvað þetta fyrst og varð því vitanlega fúll þegar Kanye frestaði sinni plötu, Graduation, fram á þennan dag. 22.7.2007 02:15 Hörð barátta Rappararnir Kanye West og 50 Cent munu heyja harða baráttu um efsta sæti plötulistanna þegar þeir gefa út næstu plötur sína sama daginn, þann 11. september. 22.7.2007 01:45 Flöskuskeyti varð kveikjan að norsk-íslenskri vináttu Nikulás Tumi Hlynsson fékk skemmtilega heimsókn á föstudag. Þá kom hin fimm ára gamla Linnéa Nana Christensen frá Noregi til landsins ásamt fjölskyldu sinni, en hún fann flöskuskeyti frá Nikulási í fyrra. 22.7.2007 01:45 Kynþokki og húmor Jessica Biel segir það skipta miklu máli að hafa húmor fyrir því hvernig paparazzi-ljósmyndararnir elta hana á röndum. „Það er nauðsynlegt að hafa húmor fyrir öllu því sem viðkemur þessum kjánalegu slúðurtímaritum. Þegar ég skoða þau þá sé ég að blaðamennirnir vita meira um mig en ég sjálf. Það er fyndið hvað heimurinn er orðinn klikkaður og það þýðir ekkert annað en að hlæja að því.“ 22.7.2007 01:30 Mills fær 8,5 milljarða Heather Mills-McCartney fær eina stærstu skilnaðargreiðslu sögunnar þegar gengið verður frá skilnaði hennar og Pauls McCartney. Talið er að fyrirsætan fyrrverandi fái fast að tveimur milljörðum króna í byrjun og væna summu árlega héðan í frá. 22.7.2007 00:30 Lohan sýpur seyðið af sopanum Glamurdrósin Lindsay Lohan mætti í vikunni niður á lögreglustöð í Beverly Hills til mynda-, fingrafara-, og skýrslutöku vegna ölvunaraksturs og árekstrar í maí síðastliðnum. Rúm vika er liðin síðan Lindsay lauk 45 daga langri áfengis og vímuefnameðferð. 21.7.2007 18:34 Cruise tekur upp í Þýskalandi Tökur eru hafnar í Þýskalandi á nýjustu kvikmynd Tom Cruise, Valkyrie, þrátt fyrir að framleiðendunum hafi verið meinaður aðgangur að fyrirhuguðum tökustað í Berlín. 21.7.2007 05:45 Raunveruleikaþáttur í lausu lofti „Ég kom eiginlega alveg af fjöllum þegar ég las þetta í blöðunum um morguninn, hafði ekki hugmynd um að ég væri búinn að kaupa þennan þátt," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Eins kom fram í fjölmiðlum á miðvikudag er Emilía Björk Óskarsdóttir hætt í Nylon og er þegar hafin leit að arftaka hennar. 21.7.2007 05:00 Lagi Magna stolið frá Rás 2 „Fólk er orðið frekar tæknivætt þegar það er farið að gera svona hluti. Ég botna ekkert í þessu,“ segir Magni Ásgeirsson, en nýjasta lag hans, If I Promised You The World, er komið í dreifingu á netinu án hans samþykkis. 21.7.2007 04:45 Davíð Þór úr Gettu betur í guðfræði Davíð Þór Jónsson hefur ákveðið að venda kvæði sín í kross. Hann mun ekki semja spurningar né dæma í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur á þessu ári heldur hyggst hann endurnýja kynnin við guðfræðideild Háskóla Íslands. 21.7.2007 03:45 Hark að vera ljóðskáld á Íslandi Þórdís Björnsdóttir hefur gefið út þriðju ljóðabók sína. Fyrsta skáldsaga hennar er svo væntanleg fyrir jólin. „Í bókinni er margt ósagt. Það er ýjað að mörgu og í ljóðunum er ákveðinn undirliggjandi óhugnaður. Nafn bókarinnar kemur úr þessum þætti hennar, þessari dulúð,“ segir Þórdís Björnsdóttir. 21.7.2007 03:30 Skemmtu sér um borð í snekkju Romans Abramovich Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson fóru ásamt unnustum sínum í heimsókn til góðvinar síns Eiðs Smára Guðjohnsen og eiginkonu hans Ragnhildar Sveinsdóttur á dögunum. 21.7.2007 02:45 Töfrandi bæjarstemning Aðdáendur Harry Potter settu svip sinn á miðbæ Reykjavíkur í gær, þar sem þeir biðu þolinmóðir eftir því að koma höndum yfir eintak af síðustu bókinni í bókaflokknum um Harry Potter. 21.7.2007 02:30 Bjarni söng sitt síðasta fyrir starfsfólk Glitnis Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, sló í gegn í eigin kveðjuhófi sem haldið var á Kjarvalsstöðum í fyrrakvöld þegar hann vatt sér upp á svið og söng nokkur lög með Stuðmönnum í tilefni dagsins. 21.7.2007 01:45 Time and Time Again - Lada Sport - Þrjár stjörnur 21.7.2007 01:45 Mel B harðákveðin í að giftast nýja kærastanum sínum Kryddstúlkan Mel B er svo ánægð með nýja kærastann sinn að hún ætlar að giftast honum. Sá nýi heitir Stephen Belafonte og vinnur sem kvikmyndaframleiðandi. Þau hafa þekkst í sjö ár en hafa verið saman síðan Eddie Murphy sparkaði Mel B og neitaði að hann væri faðir barnsins sem hún gekk með. 21.7.2007 01:00 Stórtónleikar í Borgarneskirkju Á morgun, sunnudag kl. 20.00, verða haldnir miklir tónleikar í Borgarneskirkju. Þau Þóra Einarsdóttir sópransöngkona, Björn Jónsson tenór og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari leiða þar saman hesta sína, en öll eru þau búsett og starfa erlendis. Á efnisskrá tónleikanna eru sönglög, dúettar og píanóverk eftir Grieg, Schumann og R. Strauss. 21.7.2007 01:00 Ungur og hæfileikaríkur hönnuður Það eru ekki allir fimmtán ára krakkar sem geta státað af því að hafa haldið heila tískusýningu en það mun Særós Mist Hrannarsdóttir gera í dag. Sýningin fer fram í Hinu húsinu og opnar húsið klukkan tvö. 21.7.2007 00:30 Sjá næstu 50 fréttir
Guacamole-nasl frá Gullu Hönnuðurinn Guðlaug Halldórsdóttir er næsti gestur Völu í Mat og lífsstíl. „Eins og allir sem hafa verið í þáttunum er Gulla, eins og hún er oftast kölluð, mjög skapandi og skemmtileg í eldhúsinu,“ sagði Vala. 26.7.2007 01:15
Syngur til heiðurs móður á stórtónleikum á Akureyri Stórtónleikar með Kristján Jóhannsson óperusöngvara í fararbroddi verða haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri í september. tórtónleikarnir fara fram sunnudaginn 9. september, og að ósk Kristjáns munu þeir bera yfirskriftina „Fyrir mömmu“, en móðir hans, Fanney Oddgeirsdóttir, verður níræð 14. september næstkomandi. 26.7.2007 00:45
Góð stemning á G! í Færeyjum Hin stórfenglega tónlistarhátíð G! festival fór fram í hinum þúsund manna bæ Götu í Færeyjum um síðustu helgi. Steinþór Helgi Arnsteinsson var á staðnum og skemmti sér konunglega ásamt um fimmtungi færeysku þjóðarinnar. 26.7.2007 00:30
Alvöru aðdáendur sjá báðar „Það er nú alltaf svolítil tilhlökkun í manni fyrir frumsýningu en maður er orðinn svo sjóaður að maður lætur það ekki á sig fá lengur,“ segir Jakob Þór Einarsson sem leikstýrir íslensku talsetningunni á Simpsons-myndinni. 26.7.2007 00:00
Köttur spáir fyrir um dauða vistmanna á hjúkrunarheimili Köttur nokkur á hjúkrunarheimili á Rhode Island í Bandaríkjunum hefur óvenjulegan hæfileika til að segja fyrir um andlát vistmanna þar. Þegar Óskar, eins og kötturinn er nefndur, hjúfrar sig upp að einhverjum, veit starfsfólk heimilisins að viðkomandi á líklega ekki langt eftir. Þetta hefur Óskar gert í 25 skipti, og hafa vistmennirnir allir verið látnir innan fjögurra klukkustunda. Nú er svo komið að starfsfólk spítalans er farið að hringja í ættingja fólks ef að Óskar sýnir því áhuga, til að vara þá við yfirvofandi dauða þess. 26.7.2007 00:00
Lohan í fangabúningi Það er ekki búið að setja Lindsay Lohan inn ennþá, en það er samt búið að klæða hana í fangabúning. Vaxmyndina af henni að minnsta kosti. Vaxmyndasafn Madame Tussauds í New York ákvað í kjölfar annarar handtöku stjörnunnar fyrir ölvunarakstur að klæða styttuna af henni í fangelsisröndóttan samfesting. Safnið gerði það sama við styttuna af Paris Hilton í síðasta mánuði meðan hún afplánaði dóm sinn fyrir ölvunarakstur. 25.7.2007 10:25
ÍSMÓT í byrjun september Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara, ÍSMÓT 2007, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september næstkomandi. 24.7.2007 10:47
G! Festival í Færeyjum Tónlistarhátíðin G Festival var haldin í Götu í Færeyjum um helgina en þetta er stærsta tónlistarhátíð landsins. Um fimmtungur þjóðarinnar heimsækir bæinn sem telur aðeins þúsund manns. Frægasti íbúi bæjarins, Eivör Pálsdóttir, tróð þar upp en hún átti einmnitt afmæli á laugardag. Íslenskar hljómsveitir eru fastagestir á hátíðinni og í ár tróðu þrjár íslenskar sveitir þar upp. 23.7.2007 21:05
Frá Royal Albert Hall til Íslands Þrír af aðalgestum Kirkjulistahátíðar koma fram á tónleikum í tónleikaröðinni „BBC Proms" í Royal Albert Hall aðeins örfáum dögum áður en þeir koma til landsins og taka þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach við opnun Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 11.ágúst. 23.7.2007 12:19
Syndug hjörtu á Rauðasandi Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. 23.7.2007 11:43
Gönguferð um Vatnsdalsárgil Laugardaginn 28. júlí stendur Ferðaþjónustan á Hofi í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili. Þar eru margir fossar, sem þykja hver öðrum fallegri. Má þar nefna Skínanda, Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss. 23.7.2007 10:18
Kate Moss flýr Doherty Fyrirsætan Kate Moss er endanlega búin að fá nóg af Pete Doherty. Hún hefur skipt um lás á íbúðinni sinni og leitar að húsi. 23.7.2007 05:00
Keppni við Akranes gæti orðið ljúfsár hefnd „Okkur hafa borist þó nokkrar tillögur en það hefur ekki enn verið valið í liðið. Einhver nöfn hafa þó borið oftar á góma en önnur,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. 23.7.2007 04:45
Var alveg biðarinnar virði „Það verður búið að skreyta Laugaveginn þegar ég kem heim,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason. Hann er nú loksins kominn til Berlínar þar sem undirbúningur fyrir hasarmyndina Stopping Power er kominn á fullt. Leikstjóri myndarinnar er enginn annar en hinn hollenski Jan de Bont sem sjálfur hóf feril sinn í kvikmyndatökustólnum. 23.7.2007 04:15
Jamie Kennedy í annarlegu ástandi Grínistinn og Íslandsvinurinn Jamie Kennedy mætti á tölvuleikjaráðstefnuna E3 á dögunum og var með uppistand. Það hefði verið í góðu lagi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Jamie var í afar annarlegu ástandi með úfið hár og í fráhnepptri skyrtu. 23.7.2007 03:00
Fá hjálp frá framleiðanda Bráðavaktarinnar Nokkrar stjörnur úr bandaríska sjónvarpsgeiranum eru væntanlegar hingað til lands í ágúst, þar sem þær munu miðla af reynslu sinni til íslensks sjónvarpsfólks á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins MediaXchange. 23.7.2007 02:45
Lindsay nær nýjum lægðum Hollywoodstjarnan og vandræðagemsinn Lindsay Lohan er enn og aftur umfjöllunarefni fjölmiðla. Nú er því haldið fram að áfengismeðferð sem hún fór í hafi engan árangur borið. Lindsay hafi meira að segja neytt áfengis meðan á meðferðinni stóð. 23.7.2007 02:00
Campbell auglýsir kleinuhringi Ofurfyrirsætan Naomi Campbell komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar út spurðist að hún hefði samþykkt að leika í auglýsingu fyrir bandaríska kleinuhringjafyrirtækið Dunkin" Donuts. 23.7.2007 01:45
Brynja Björk á ævintýraslóðum í Perú „Við lentum hérna 7. júlí og förum 28. til New York,“ segir Brynja Björk Garðarsdóttir, blaðamaður á Mannlífi og fyrrum þáttastjórnandi á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Ólíkt þeirri ímynd sem var kynnt í sjónvarpsþættinum fræga um næturlífið í Reykjavík er Brynja fjarri öllum skarkala borgarlífsins. Hún er nefnilega í Perú. 23.7.2007 01:00
Blunt samdi plötu á Ibiza Næsta plata breska popparans James Blunt, All the Lost Souls, kemur út 18. september. Fyrsta smáskífulagið af plötunni, 1973, er væntanlegt á öldur ljósvakans. Fékk Blunt innblásturinn að laginu þegar hann dvaldi á Ibiza við Spán þar sem hann samdi plötuna. 23.7.2007 00:30
LungA lokið Vikulangri Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lauk í gær með uppskeruhátíð á Seyðisfirði og gekk hátíðin vel fyrir sig. 22.7.2007 20:01
Perez fílar Pál Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson fékk sína fimmtán mínútna frægð í bandaríska slúðurheiminum á fimmtudaginn þegar slúðurbloggarinn Perez Hilton póstaði nýjasta myndbandi Palla, við lagið Allt fyrir ástina, á síðunni sinni. 22.7.2007 05:45
Endurútgáfa frá Ego Tvær fyrstu plötur Ego, Breyttir tímar og Í mynd, hafa verið endurútgefnar í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá útgáfu þeirra. Ego var stofnuð haustið 1981 og gaf út sína fyrstu plötu, Breyttir tímar, 1. apríl 1982. 22.7.2007 05:45
Ferðast um Afganistan Leikarinn Jude Law er staddur í Afganistan til að kynna hinn árlega friðardag Sameinuðu þjóðanna hinn 21. september. Með honum í för er breski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeremy Gilley sem er að búa til heimildarmynd um heimsóknina. 22.7.2007 05:00
Del Toro leikur Che Guevara Leikarinn Benecio del Toro hefur tekið að sér hlutverk argentínska byltingarsinnans Ernesto Che Guevara í nýrri kvikmynd eftir Steven Soderbergh. Myndin, sem nefnist Guerilla, verður tekin upp á níu vikum víðs vegar um Spán. Verður eingöngu töluð spænska í henni. 22.7.2007 04:30
Fyrsta tónleikaferðin í tíu ár Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson fer í tveggja vikna tónleikaferð um Ísland hinn 28. júlí ásamt átta manna hljómsveit sem er skipuð dönskum og íslenskum tónlistarmönnum. Með í för verður danska hljómsveitin Jazirkus. 22.7.2007 03:30
Fýla í röppurunum Kanye West og 50 Cent eru í fýlu út í hvor annan en þeir ætla báðir að gefa út plötur þann 11. september einhverra hluta vegna. Það var 50 Cent sem ákvað þetta fyrst og varð því vitanlega fúll þegar Kanye frestaði sinni plötu, Graduation, fram á þennan dag. 22.7.2007 02:15
Hörð barátta Rappararnir Kanye West og 50 Cent munu heyja harða baráttu um efsta sæti plötulistanna þegar þeir gefa út næstu plötur sína sama daginn, þann 11. september. 22.7.2007 01:45
Flöskuskeyti varð kveikjan að norsk-íslenskri vináttu Nikulás Tumi Hlynsson fékk skemmtilega heimsókn á föstudag. Þá kom hin fimm ára gamla Linnéa Nana Christensen frá Noregi til landsins ásamt fjölskyldu sinni, en hún fann flöskuskeyti frá Nikulási í fyrra. 22.7.2007 01:45
Kynþokki og húmor Jessica Biel segir það skipta miklu máli að hafa húmor fyrir því hvernig paparazzi-ljósmyndararnir elta hana á röndum. „Það er nauðsynlegt að hafa húmor fyrir öllu því sem viðkemur þessum kjánalegu slúðurtímaritum. Þegar ég skoða þau þá sé ég að blaðamennirnir vita meira um mig en ég sjálf. Það er fyndið hvað heimurinn er orðinn klikkaður og það þýðir ekkert annað en að hlæja að því.“ 22.7.2007 01:30
Mills fær 8,5 milljarða Heather Mills-McCartney fær eina stærstu skilnaðargreiðslu sögunnar þegar gengið verður frá skilnaði hennar og Pauls McCartney. Talið er að fyrirsætan fyrrverandi fái fast að tveimur milljörðum króna í byrjun og væna summu árlega héðan í frá. 22.7.2007 00:30
Lohan sýpur seyðið af sopanum Glamurdrósin Lindsay Lohan mætti í vikunni niður á lögreglustöð í Beverly Hills til mynda-, fingrafara-, og skýrslutöku vegna ölvunaraksturs og árekstrar í maí síðastliðnum. Rúm vika er liðin síðan Lindsay lauk 45 daga langri áfengis og vímuefnameðferð. 21.7.2007 18:34
Cruise tekur upp í Þýskalandi Tökur eru hafnar í Þýskalandi á nýjustu kvikmynd Tom Cruise, Valkyrie, þrátt fyrir að framleiðendunum hafi verið meinaður aðgangur að fyrirhuguðum tökustað í Berlín. 21.7.2007 05:45
Raunveruleikaþáttur í lausu lofti „Ég kom eiginlega alveg af fjöllum þegar ég las þetta í blöðunum um morguninn, hafði ekki hugmynd um að ég væri búinn að kaupa þennan þátt," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Eins kom fram í fjölmiðlum á miðvikudag er Emilía Björk Óskarsdóttir hætt í Nylon og er þegar hafin leit að arftaka hennar. 21.7.2007 05:00
Lagi Magna stolið frá Rás 2 „Fólk er orðið frekar tæknivætt þegar það er farið að gera svona hluti. Ég botna ekkert í þessu,“ segir Magni Ásgeirsson, en nýjasta lag hans, If I Promised You The World, er komið í dreifingu á netinu án hans samþykkis. 21.7.2007 04:45
Davíð Þór úr Gettu betur í guðfræði Davíð Þór Jónsson hefur ákveðið að venda kvæði sín í kross. Hann mun ekki semja spurningar né dæma í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur á þessu ári heldur hyggst hann endurnýja kynnin við guðfræðideild Háskóla Íslands. 21.7.2007 03:45
Hark að vera ljóðskáld á Íslandi Þórdís Björnsdóttir hefur gefið út þriðju ljóðabók sína. Fyrsta skáldsaga hennar er svo væntanleg fyrir jólin. „Í bókinni er margt ósagt. Það er ýjað að mörgu og í ljóðunum er ákveðinn undirliggjandi óhugnaður. Nafn bókarinnar kemur úr þessum þætti hennar, þessari dulúð,“ segir Þórdís Björnsdóttir. 21.7.2007 03:30
Skemmtu sér um borð í snekkju Romans Abramovich Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson fóru ásamt unnustum sínum í heimsókn til góðvinar síns Eiðs Smára Guðjohnsen og eiginkonu hans Ragnhildar Sveinsdóttur á dögunum. 21.7.2007 02:45
Töfrandi bæjarstemning Aðdáendur Harry Potter settu svip sinn á miðbæ Reykjavíkur í gær, þar sem þeir biðu þolinmóðir eftir því að koma höndum yfir eintak af síðustu bókinni í bókaflokknum um Harry Potter. 21.7.2007 02:30
Bjarni söng sitt síðasta fyrir starfsfólk Glitnis Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, sló í gegn í eigin kveðjuhófi sem haldið var á Kjarvalsstöðum í fyrrakvöld þegar hann vatt sér upp á svið og söng nokkur lög með Stuðmönnum í tilefni dagsins. 21.7.2007 01:45
Mel B harðákveðin í að giftast nýja kærastanum sínum Kryddstúlkan Mel B er svo ánægð með nýja kærastann sinn að hún ætlar að giftast honum. Sá nýi heitir Stephen Belafonte og vinnur sem kvikmyndaframleiðandi. Þau hafa þekkst í sjö ár en hafa verið saman síðan Eddie Murphy sparkaði Mel B og neitaði að hann væri faðir barnsins sem hún gekk með. 21.7.2007 01:00
Stórtónleikar í Borgarneskirkju Á morgun, sunnudag kl. 20.00, verða haldnir miklir tónleikar í Borgarneskirkju. Þau Þóra Einarsdóttir sópransöngkona, Björn Jónsson tenór og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari leiða þar saman hesta sína, en öll eru þau búsett og starfa erlendis. Á efnisskrá tónleikanna eru sönglög, dúettar og píanóverk eftir Grieg, Schumann og R. Strauss. 21.7.2007 01:00
Ungur og hæfileikaríkur hönnuður Það eru ekki allir fimmtán ára krakkar sem geta státað af því að hafa haldið heila tískusýningu en það mun Særós Mist Hrannarsdóttir gera í dag. Sýningin fer fram í Hinu húsinu og opnar húsið klukkan tvö. 21.7.2007 00:30