Fleiri fréttir

Feng Shui er lífstíll

"Feng Shui er 3000 ára gömul kínversk fræði og í rauninni mun víðtækari en margir halda," segir Sigrún Vala Valgeirsdóttir hjá Feng Shui húsinu á Laugaveginum. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Fólk í 101 vill ömmulegt eldhús

"Yngsta fólkið fylgir meira tískustraumum sem í dag er minimalisminn og léttari viðartegundir," segir Erlingur Friðriksson eigandi Eldaskálans. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Einfaldleikinn alsráðandi

"Í dag fær einfaldleikinn oftast að ráða þar sem stálið og glerið er vinsælast," segir Kjartan Óskarsson innanhússarkitekt og lýsingarhönnuður og bætir við að kristallinn hafi einnig verið vinsæll í vetur sem og ljós frá sixties tímabilinu. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Hagar seglum eftir vindi

"Á vélbát tekur maður ákveðna stefnu og keyrir bara þangað en á skútu er það allt öðruvísi því ferðin fer alveg eftir vindinum, og maður hagar seglum eftir vindi," segir Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri Siglingaskólans

Nálgumst það sem við viljum

"Þetta námskeið er fyrir alla aldurshópa. Þessi spurning hefur fylgt manni síðan í barndómi og hún fylgir manni eiginlega alla ævina þótt maður finni sér sinn stað í lífinu ef svo má segja. Það eru margir sem eru ekki alveg vissir um hvað þeir vilji gera og langar ef til vill að gera eitthvað allt annað í lífinu.

Sjálfstæð hugsun lykilatriði

"Nýja námsskráin sem kom út árið 1999 var lögð til grundvallar þessu námsefni, þar sem mikil áhersla er lögð á að nemendur skilji þau viðfangsefni sem þeir fást við og noti sína eigin hugsun," segir Jónína Vala.

Meistarar í reikningshaldi

Meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun hefur göngu sína í Háskólanum í Reykjavík í haust á vegum þess skóla og Tækniháskóla Íslands. Það er til undirbúnings undir löggildingu endurskoðenda og hentar einnig þeim sem vilja sérfræðiþekkingu á sviði reikningshalds í fyrirtækjum, að sögn Þorláks Karlssonar,

Hafa allir migið í saltan sjó

Stýrimannaskólinn keppti í Gettu betur í fyrsta skipti í ár. Hann er elsti skólinn í keppninni, 113 ára og þótt hann dytti út í fyrstu umferð þá kom ferskur blær inn í keppnina með hinum verðandi sjómönnum

Meira en skór

"Það sem mér finnst ómissandi í fataskápnum mínum eru gullskórnir mínir. Þetta eru balletskór sem ég fékk í afmælisgjöf frá foreldrum mínum en þau keyptu þá í Kron á Laugaveginum. Mig var búið að langa í þessa skó mjög lengi og ég fékk þá rétt áður en ég ferðaðist til Belgíu.

Skransala með sál

"Ég sel hluti sem fólk hefur gefið mér og það eru aldeilis margir sem hafa styrkt mig. Maðurinn minn, hann Viggó Guðmundsson, vill til dæmis losa sig við dót sem hann á svo börnin hans þurfi ekki að rífast um það eftir hans tíma," segir Guðrún og skellihlær enda lífsglöð og hress.

Er ætlað að elska hvort annað

Þótt þau séu mjög ólík þá er þeim ætlað að elska hvort annað. Þetta er meðal þess sem segir um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Dorrit Moussaieff, eiginkonu hans, í nýjasta tölublaði breska tímaritsins Hello.

Hinn vælandi Alexander

Samt finnst manni að Oliver Stone hafi haldið að hann væri að gera listaverk - honum er svo mikið í mun að sýna hvað er að brjótast um í huga Alexanders að herkonungurinn mikli er háfkjökrandi allan tímann...

Veðbankinn opnaður

Landsbankinn, Icelandair og Vísir eru styrktaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Þjóðleikhúsinu 2. febrúar 2005. Þessi fyrirtæki standa nú fyrir þeirri nýjung að bjóða almenningi að giska á hver vinnur í hverjum flokki og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem nær flestum réttum. Einnig er hægt að taka þátt í kosningu á vinsælasta flytjanda íslands með netkosningu á visir.is og verða sérstök verðlaun veitt í þessum flokki á hátíðinni.

Franskt snilldarverk

Þegar Trúlofunin langa á í hlut flýgur maður beint upp á hástig lýsingarorða. Það er ekki annað hægt - þetta er snildarlegt bíó, mikil kvikmyndaupplifun, frábærlega góð saga sögð á skemmtilega sérviskulegan hátt...

Trúir ekki á megrunarkúra

"Ég er reyndar ekki í ræktinni núna þó að ég myndi glöð vilja segjast fara alla daga. En ég er að safna mér fyrir korti í Nordica. Ég prófaði það í tvo mánuði og fannst það æðislegt. Ég þarf að hafa dekur með ef ég fer í ræktina - annars fer ég ekki.

Mikilvægt að ná góðri þáttöku

"Þessir spurningalistar eru liður í geysilega umfangsmikilli norrænni könnun sem fer þannig fram að 80.000 konur á fjórum Norðurlöndum fá senda spurningalista um lífshætti og heilsufar. Ísland er með jafnfjölmennt úrtak og hin Norðurlöndin," segir Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands.

Skrekkur er hafinn

Skrekkur, hæfileikakeppni ÍTR og mikil hátíð grunnskólanema, hófst í gærkvöldi og heldur áfram í kvöld og á morgun. Óhætt er að segja að Skrekkur sé fyrsta tækifæri fyrir listamenn framtíðarinnar að koma fram og þarna hafa menn eins og Sveppi stigið sín fyrstu skref.

Downs-börn eru oft vanmetin

Lára Magnea Jónsdóttir átti fyrir tvö börn þegar hún eignaðist dótturina Glódísi Erlu sem er með Downs-heilkennið. Lára segir að vissulega felist erfiðleikar í því að ala upp barn með þessa fötlun en ánægjan sé líka mikil.

Kattarkonan með sjö tilnefningar

Kvikmyndin Catwoman hefur verið tilnefnd til sjö Razzie-verðlauna, þar á meðal sem versta myndin og fyrir verstu leikkonu í aðalhlutverki; Halle Berry.

The Aviator með 11 tilnefningar

Tilnefningar til sjötugustu og sjöundu Óskarsverðlaunahátíðarinnar voru gerðar heyrinkunnar í dag. Kvikmyndin The Aviator, sem byggð er á ævi Howards Hughes, er tilnefnd til flestra verðlauna eða ellefu.

Í fréttum er þetta helst

Starf fréttastjóra Útvarps hefur verið auglýst. Útvarpsráð greiðir atkvæði um umsækjendur en útvarpsstjóri ræður í starfið. Aðeins fjórir fréttastjórar hafa starfað hjá Útvarpinu í 75 ára sögu þess. Sigríður Árnadóttir fyrrum fréttastjóri Stöðvar 2 er sögð líkleg til að hreppa hnossið. Framsóknarflokkurinn er sagður "eiga" stöðuna.

Verri vegna testósterónskorts

Oft og einatt heyrist það viðhorf að hæfni kvenbílstjóra jafnist ekki á við karlkynsbílstjóra; þær geti til dæmis ekki lagt í stæði. Samkvæmt niðurstöðu nýrrar rannsóknar sem gerð var við þýskan háskóla gæti eitthvað verið til í þessu.

Opnar gistiheimili á Egilsstöðum

Olga Óla Bjarnadóttir, eigandi Café Nielsen á Egilsstöðum, er að gera upp gamalt hús við Tjarnarbraut 3 og opnar þar gistiheimili með fimm vel búnum herbergjum í vor.

Hollywood-kúrinn tekinn úr umferð

Innflytjendum Hollywood-kúrsins hefur verið synjað um leyfi til að markaðssetja hann af Umhverfisstofnun. Innflytjandinn hefur samkvæmt Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis fjarlægt drykkinn af sölustöðum.

Varð af hlutverki í Baywatch

Leikarinn Leonardo DiCaprio fór í áheyrnarpróf fyrir sjónvarpsþáttinn Baywatch en var ekki sá sem David Hasselhoff var að leitast eftir. Þótti hann ekki taka sig nógu vel út ber að ofan í rauðu stuttbuxunum.

Vill búa í Notting Hill

Leikkonan Scarlett Johansson vill eignast heimili í hverfinu Notting Hill í London. Johansson, sem er tvítugt, hefur tekið ástfóstri við borgina eftir að hafa starfað þar í nokkurn tíma og telur að núna sé rétti tíminn til að kaupa sér hús.

Kemur fram í tölvuleik

Hljómsveitin The Beastie Boys kemur við sögu í nýjum NBA-tölvuleik sem nefnist NBA Street V3. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæla sveit kemur nálægt tölvuleikjagerð.

Ærnar fengu loks sitt

Fjárbændur í Suðurey í Vestmannaeyjum komu loks hrútnum Óla Tý út í eyna um helgina en sjólag hefur verið erfitt við eyna alveg síðan í upphafi fengitíma snemma í desember. Þeir fóru á gúmmíbáti með hrútinn og gekk landtakan vel. Tuttugu og fimm ær biðu þess að fá fang í eynni og nú eru horfur á að sauðburður verði þar í vor eins og venjulega.

Johnny Carson látinn

Grínarinn heimsþekkti Johnny Carson lést í gær, 79 ára að aldri. Talið er að dánarorsökin hafi verið lungnaþemba en Carson reykti um árabil og vitað er að hann hafði um skeið þjáðst af sjúkdómnum.

Tónleikaferð í lok mars

Hljómsveitin U2 ætlar að hefja tónleikaferð sína um heiminn til að fylgja eftir plötunni How to Dismantle an Atomic Bomb í San Diego þann 28. mars.

Fegurð í bland við stórbrotna sögu

"Þar fer fegurðin saman við stórbrotna sögu og sál. Húsið var flutt inn frá Noregi upp úr aldamótum og reist yfir franska konsúlinn í Reykjavík, en skömmu fyrir fyrra stríð keypti Einar Benediktsson skáld húsið og kallaði það Héðinshöfða eftir æskuheimili sínu á Tjörnesi.

Ráðist á Slater með hnífi

Leikarinn góðkunni Christian Slater slapp naumlega undan árás manns sem réðst að honum með hnífi á föstudagskvöldið. Atburðurinn átti sér stað utan við leikhús í London þar sem Slater hefur undanfarið leikið í uppfærslu á Gaukshreiðrinu.

Lag til styrktar fórnarlömbunum

Lag sem samið var til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu kom út í dag og er reiknað með að það fari beint í efsta sæti vinsældarlista víða um heim. Meðal þeirra sem koma að laginu eru Bee Gees, Boy George, Brian Wilson, Bill Wyman, Russel Watson og Kenny Jones.

Kyntröll eftir vinnustaðargrín

Frosti Reyr Rúnarsson var öllum að óvörum kosinn kynþokkafyllsti maður landsins á Rás tvö á dögunum. Nú hefur komið í ljós að kosning Freys var hluti af stóru vinnustaðagríni þar sem fjöldapóstar gengu um KB banka með ósk til starfsmanna um að kjósa sinn mann.

Versti dagur ársins á morgun

Ef einhvern tímann er ástæða til að fara ekki á fætur heldur hanga í rúminu allan daginn, þá er það á morgun. Þá rennur upp versti dagur ársins samkvæmt nákvæmum útreikningum breskra vísindamanna.

The Aviator valin best

Samtök bandarískra kvikmyndaframleiðenda völdu í gær kvikmyndina The Aviator bestu mynd ársins. Myndin, sem er ævisaga sérvitringsins og auðjöfursins Howards Hughes, þykir fyrir vikið mun líklegri til að hljóta óskarsverðlaun í lok febrúar því undanfarin fimmtán ár hafa kvikmyndaframleiðendur ellefu sinnum verið sammála kvikmyndaakademíunni um bestu myndina.

Múlaútibú flytur

Múlaútibú Landsbankans hefur nú verið sameinað Austurbæjarútibúi á Laugavegi 77. Þetta eru nokkrar breytingar fyrir Múlaútibú, en starfsemi þess hefur verið með svipuðu sniði í rúm 36 ár.

Lítið kraftaverk í Keflavík

Það má teljast kraftaverk að lítil stúlka úr Keflavík sem brenndist lífshættulega í fyrrasumar sé á lífi. Stúlkan er nú komin heim af sjúkrahúsi og dafnar vel miðað við aðstæður.

Saman á salernið

Hvers vegna þurfa konur að fara saman á snyrtinguna, jafnvel í stórum hópum? Þetta hefur lengi verið ráðgáta meðal karlmanna. Veitingastaðir í höfuðborginni telja þetta nauðsynlegan þátt í lífi kvenna og hafa brugðist við með því að fella niður skilrúm milli salerna.

Bardot mótmælir ísbjarnadrápi

Dýraverndunarsinninn og kvikmyndastjarnan fyrrverandi Brigitte Bardot hefur sent Margréti Danadrottningu bréf þar sem hún mótmælir áformum grænlensku landsstjórnarinnar um að leyfa ferðamönnum að skjóta ísbjörn til að fá feldinn með sér heim.

Mette Marit eignast stjúpmóður

Norska prinsessan Mette Marit, eiginkona Hákonar prins, eignast von bráðar stúpmóður. Faðir Mette Marit, sem er sextíu og átta ára gamall, ætlar að giftast sér helmingi yngri konu, nektardansmeyju sem er aðeins þremur árum eldri en Mette Marit. Sú ætlar nú að læra hjúkrun og hætta að fækka fötum í atvinnuskyni.

Maradona á heilsuhæli

Diego Maradona, knattspyrnugoðið fyrrverandi, hefur yfirgefið sjúkrahús á Kúbu þar sem hann var í eiturlyfjameðferð og hefur í staðinn komið sér fyrir á heilsuhæli. Maradona hefur ítrekað leitað sér hjálpar vegna kókaínfíknar og ætlar sér nú að grenna sig í von um að ná athygli auglýsenda sem gætu hugsað sér að nota hann sem talsmann.

Mótmæltu lélegum stólum

Hann hefur nú setið á valdastóli í tvo áratugi, bæði hjá ríki og borg. Færri vita hins vegar að fyrir 40 árum stóð Davíð Oddsson sjálfur í stríði við kerfið, þegar hann og fleiri nemendur í Gaggó Vest mótmæltu stólunum sem voru í skólastofunum. Nemendur töldu þá heilsuspillandi og draga úr námsárangri.

Bisness er bisness

Fókus fylgir DV í dag. Þar lýsir Svali á FM skoðun sinni á lokun útvarpsstöðvanna um daginn. "Við höfum alltaf náð að komast af með því að skila inn peningum. Ef við mundum ekki gera það færum við líka undir, það er ósköp einfalt," segir hann og bætir við: "Annars má líta á þetta þannig að eins manns dauði sé annars brauð."

Bitrar kellingar á blogginu

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir DV í dag. Þar er auðvitað allt að finna um skemmtanalíf helgarinnar, djammkortið er á sínum stað, sem og ítarleg umfjöllun um bíó, tónlist, myndlist og leikhús. Egill Gilzenegger, sem hefur vakið athygli á síðunni sinni, kallarnir.is, er nýr pistlahöfundur og skrifar nú greinaflokkinn Kallinn á kæjanum.

Sjá næstu 50 fréttir