Fleiri fréttir

Eyjakonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn
ÍBV er deildarmeistari í Olís-deild kvenna í handbolta eftir öruggan 14 marka sigur gegn Selfyssingum í Suðurlandsslag í dag, 41-27.

Umfjöllun: ÍBV - Fram 24-27 | Framarar sóttu tvö mikilvæg stig til Eyja
Framarar gerðu sér lítið fyrir og unnu 27-24 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum í Olísdeild karla í dag. Fram er nú aðeins einu stigi á eftir ÍBV í töflunni.

Umfjöllun: Hörður - FH 30-40 | FH-ingar ekki í neinum vandræðum með Hörð
FH vann öruggan tíu marka útisigur gegn Herði 30-40. Eftir rólegan fyrri hálfleik skipti FH um gír í seinni hálfleik og Hörður átti engin svör.

Haukar kæra framkvæmd leiksins gegn Gróttu
Handknattleiksdeild Hauka hefur kært framkvæmd leiksins gegn Gróttu síðastliðinn fimmtudag en þetta hefur HSÍ staðfest í samtali við Vísi.

„Vonandi verður þetta gott skref fyrir mig“
„Þetta er búið að vera í samtali við þennan klúbb í einhverjar vikur. Endanlega í dag var þetta klárt,“ sagði Jónatan Magnússon, núverandi þjálfari KA í Olís deild karla í handbolta en í dag var staðfest að hann muni taka við sænska liðinu Skövde í sumar.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 28-27 | ÍR-ingar hleypa fallbaráttunni í loft upp
ÍR-ingar náðu í einkar mikilvægan sigur í baráttu sinni um að forðast fall úr Olís-deild karla í handbolta þegar liðið mætti Stjörnunni í Skógarseli í kvöld.

Fyrsta konan til að dæma í efstu deildum karla og kvenna í handbolta á Íslandi
Þingkonan Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var gestur í nýjasta þætti Sigurlaugar Rúnarsdóttur þar sem Silla fer yfir íslenska kvennahandboltann með flottum viðmælendum.

Ísak fer sömu leið Ómar Ingi: Samdi við Val
Selfyssingurinn Ísak Gústafsson hefur samið við Valsmenn og gengur til liðs við Hlíðarendafélagið í sumar.

Sjáðu ótrúlegu lokin sem Ásgeir sagði algjört fíaskó
„Mér finnst þetta fíaskó, mér finnst þetta ótrúlegur amatörismi sem var verið að bjóða hérna uppá,“ sagði afar óánægður Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, eftir ótrúlegar lokasekúndur í hinum mikilvæga leik liðsins gegn Gróttu í Olís-deildinni í handbolta í gær.

Hafa fengið skilaboð frá Gintaras og fleiri hetjum úr gullaldarliði Aftureldingar
Leikmenn Aftureldingar hafa fengið góðar kveðjur eftir að þeir urðu bikarmeistarar í handbolta karla, meðal annars frá gömlum hetjum.

Jónatan tekur við Skövde í Svíþjóð
Jónatan Þór Magnússon, fráfarandi þjálfari KA í Olís deild karla í handbolta, mun taka við sænska liðinu IFK Skövde í sumar.

„Eina þjálfarastarfið sem ég hef áhuga á“
Starf landsliðsþjálfara Íslands í handbolta er eina þjálfarastarfið sem Kristján Andrésson vill sinna.

Ásgeir Örn: Þetta er brandari sem er verið að bjóða uppá
Ásgeir Örn Hallgrímsson var virkilega ósáttur þegar liðið tapaði með einu marki á móti Gróttu í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Haukar áttu erfitt uppdráttar allan leikinn en vafasamur dómur á loka mínútunni gerði útslagið.

Jónatan: Við erum að falla á tíma
„Ég er bara gríðarlega ósáttur“, sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA eftir sex marka tap á móti Aftureldingu á heimavelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtal: Haukar - Grótta 27-28 | Flautumark heldur vonum Gróttu á lífi
Grótta vann eins marks sigur á Haukum er liðin mættust í 19. umferð í Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið en sigurinn gaf Gróttu sem er í 9. sæti deildarinnar líflínu fyrir úrslitakeppnina.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Afturelding 28-34 | Engin bikarþynnka hjá Mosfellingum
Afturelding vann þæginlegan sigur á KA mönnum í KA heimilinu í kvöld en leikurinn endaði með sex marka sigri Aftureldingar. Afturelding var með frumkvæðið nánast allan tímann og virtist sigurinn aldrei í hættu.

Fyrsta tap Leipzig á árinu
Leipzig beið lægri hlut fyrir Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Arnór Þór Gunnarsson og samherjar hans í Bergischer unnu stórsigur á Hamm-Westfalen.

Álaborg hafði betur í slag dönsku liðanna
Álaborg er með nauma forystu á GOG eftir sigur í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar karla í handknattleik.

Kristján hættir hjá Guif
Kristján Andrésson hættir sem íþróttastjóri Eskilstuna Guif í vor. Hann er meðal þeirra sem hefur verið orðaður við starf landsliðsþjálfara Íslands.

Árni Bragi um Valsorðróminn: „Þetta kemur í ljós á næstu dögum“
Nýkrýndi bikarmeistarinn Árni Bragi Eyjólfsson segir að framtíð sín komi í ljós á næstu dögum.

Tandri úlnliðsbrotinn
Tandri Már Konráðsson, handboltamaður í Stjörnunni, er úlnliðsbrotinn og verður frá keppni næstu vikurnar.

Meistaralegar markvörslur Viktors Gísla í Meistaradeildinni í gær
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson heldur áfram að vekja athygli á stóra sviðinu.

Allt jafnt fyrir síðari leikinn
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Nantes gerðu jafntefli við pólska liðið Wisla Plock þegar liðin mættust í Póllandi í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld.

Elín Jóna spilaði í stóru tapi
Elín Jóna Þorsteindóttir og samherjar hennar í Ringköbing máttu þola ellefu marka tap þegar liðið tók á móti Ikast í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Veszprem komið með annan fótinn áfram eftir stórsigur
Bjarki Már Elísson og félagar hans í Veszprem unnu stórsigur á Pick Szeged í umspili um sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handknattleik í kvöld.

ÍBV einum sigri frá deildarmeistaratitlinum eftir sigur gegn KA/Þór
ÍBV er nú aðeins einum sigri frá deildarmeistaratitlinum í Olís-deild kvenna í handknattleik eftir að liðið bar sigurorð af KA/Þór í Eyjum í dag.

Sex íslensk mörk í tapi Volda
Volda beið lægri hlut gegn Bysåsen í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Rakel Sara Elvarsdóttir var markahæst í liði Volda í leiknum.

Aganefndin dæmdi Erling í bann en sleppti Mörtu
Marta Wawrzynkowska fær ekki leikbann eftir rauða spjaldið sem hún fékk í úrslitaleik bikarkeppninar í handbolta um helgina. Þjálfari karlaliðs ÍBV er hins vegar á leið í leikbann.

Óðinn bara tólf mörkum á eftir markahæsta manni þrátt fyrir fimm færri leiki
Íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjórtán mörk fyrir Kadetten Schaffhausen í sigri svissneska liðsins í sextán liða úrslitunum Evrópudeildarinnar í handbolta í gær.

Hópurinn sem Arnar treystir til að koma Íslandi á HM
Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, hefur valið tuttugu leikmanna hóp fyrir umspilsleikina við Ungverjaland um sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í desember.

Vann bikar og Eddu sömu helgina
Helgin var vægast sagt eftirminnileg fyrir Blæ Hinriksson. Á laugardaginn varð hann bikarmeistari í handbolta með Aftureldingu og á sunnudaginn vann kvikmyndin Berdreymi, sem hann leikur í, verðlaun sem besta kvikmyndin á Edduverðlaunahátíðinni.

Fullyrðir að Stiven sé á leið til Benfica: „Það verður bara að koma í ljós“
Stiven Tobar Valencia, hornamaður Íslandsmeistara Vals, er á leið til portúgalska félagsins Benfica að yfirstandandi tímabili loknu ef marka má orð handboltasérfræðingsins Arnars Daða Arnarssonar.

Óðinn langmarkahæstur í sigri Kadetten og Teitur og félagar völtuðu yfir Benfica
Óðinn Þór Rikharðsson átti algjörlega frábæran leik fyrir Kadetten Schaffhausen er liðið vann öruggan sex marka sigur gegn sænska liðinu Ystads í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 38-32. Á sama tíma unnu Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg 13 marka risasigur gegn Benfica, 26-39.

Umfjöllun og myndir: Valur - Göppingen 29-36 | Hlupu á þýskan varnarvegg
Valur tapaði fyrir Göppingen, 29-36, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld.

Nexe með forystu eftir fyrri leikinn í uppgjöri mögulegra mótherja Vals
Króatíska liðið RK Nexe vann nokkuð öruggan fjögurra marka sigur er liðið heimsótti úkraínska liðið HC Motor Zaporizhzhia í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 23-27. Nexe er því með góða forystu fyrir heimaleikinn, en liðið sem vinnur þetta einvígi mætir annað hvort Val eða Göppingen í átta liða úrslitum.

Lærisveinar Gumma Gumm tryggðu sér úrslitakeppnissæti
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia eru búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar eftir fjögurra marka sigur gegn Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í kvöld, 33-29.

Kveðja „íslenska múrinn“ með miklum trega en Elín fer til Álaborgar
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að söðla um í Danmörku þrátt fyrir mikinn áhuga Ringköbing á að halda henni í sínum röðum.

Mun þyngri, stærri og sterkari leikmenn
Valsmenn ætla sér stór hluti gegn þýska úrvalsdeildarliðinu Göppinghen í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum í Evrópudeildinni. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda í kvöld. Liðin mætast síðan aftur eftir viku ytra og með hagstæðum úrslitum á heimavelli er allt hægt.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - ÍBV 28-35 | ÍBV vann sjö marka sigur í Breiðholti
ÍBV vann sjö marka sigur á ÍR-ingum 28-35. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en eftir að ÍBV skoraði sex mörk í röð um miðjan fyrri hálfleik tókst ÍR-ingum aldrei að ógna því forskoti og annar sigur Eyjamanna í röð staðreynd.

Erlingur: Pavel Miskevich átti sinn besta leik fyrir ÍBV
ÍBV vann sannfærandi sjö marka sigur á ÍR-ingum 28-35. Erlingur Birgir Richardsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með annan sigur Eyjamanna í röð.

Aron meiddist á læri í sigri helgarinnar
Svo virðist sem landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson hafi meiðst á læri um helgina þegar Álaborg vann öruggan sigur á Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

„Hvers vegna erum við ekki komin lengra en þetta og hvers vegna erum við að sjá þetta gerast árið 2023?“
„Hvers vegna eru ekki fleiri konur að þjálfa? Hvers vegna eru ekki fleiri konur að starfa sem sjálfboðaliðar eða í stjórnum í íþróttaklúbbunum?“ Svo hefst pistill sem Rakel Dögg Bragadóttir, núverandi aðstoðarþjálfari Fram í Olís-deild kvenna í handbolta, birti fyrr í dag.

Skoraði tuttugu mörk í bikarúrslitaleik: Allir bikarmeistarar helgarinnar
Sex félög eignuðust bikarmeistara í yngri flokkum handboltans í Laugardalshöllinni um helgina en þá fóru ekki bara fram úrslitaleikir meistaraflokkanna.

„Þarna var þetta svo innilegt“
Jóhann Gunnar Einarsson lék á sínum tíma með Aftureldingu. Hann var mættur í Handkastið þar sem ótrúlegur sigur Aftureldingar á Haukum í bikarúrslitum var krufinn. Fór Jóhann Gunnar meðal yfir það sem hefur breyst hjá félaginu síðan hann gekk í raðir þess árið 2014.

„Með góðri frammistöðu er allt mögulegt“
„Ég held að við munum koma til með að bjóða upp á sambærilega stemningu og í undanförnum leikjum. Ég hvet fólk því eindregið til að mæta,“ sagði Alexander Örn Júlíusson, leikmaður Vals, en hann og liðsfélagar hans mæta þýska liðinu Göppingen í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta á morgun, þriðjudag.