Fleiri fréttir

Teitur markahæstur í jafntefli | Kristján og félagar úr leik þrátt fyrir stórsigur
Teitur Örn Einarsson var markahæsti maður Flensburg er liðið gerði jafntefli gegn Ferencváros í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 27-27. Þau úrslit þýða að Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í franska liðinu PAUC eru úr leik, þrátt fyrir tíu marka sigur gegn Benidorm á sama tíma, 39-29.

Magnús Stefánsson tekur við ÍBV eftir tímabilið
Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Magnús Stefánsson um að hann muni taka við sem aðalþjálfari liðsins í Olís-deild karla að yfirstandandi tímabili loknu. Magnús skrifar undir tveggja ára samning.

„Að vera svekktir með að ná ekki öðru sætinu sýnir karakterinn í liðinu“
„Þetta er bara spes tilfinning. Við unnum leikinn, en erum í dauðafæri að vinna þetta með þrem eða meira og ná 2. sætinu,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, eftir tveggja marka sigur liðsins gegn Ystad í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld.

Óðinn skoraði þrettán í öruggum Evrópusigri
Óðinn Þór Ríkharðsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir svissneska liðið Kadetten Schaffhausen, en hornamaðurinn skoraði þrettán mörk er liðið vann öruggan átta marka sigur gegn Presov í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 38-30.

Umfjöllun: Ystad - Valur 33-35 | Frábær sigur Valsmanna
Valur vann sigur á Svíþjóðarmeisturum Ystad, 33-35, í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta karla í kvöld. Valsmenn voru einu marki frá því að tryggja sér 2. sæti riðilsins.

Valsmenn gætu bókað flug til Sviss, Frakklands eða Þýskalands í kvöld
Valsmenn ljúka í dag leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta. Ljóst er að þeir komast áfram í 16-liða úrslitin en úrslitin í dag ráða því hvaða mótherjar mæta á Hlíðarenda í 16-liða úrslitunum.

Þeytir skífum á kvöldin og nemur lífeindafræði á daginn
Stiven Tobar Valencia er ekki maður einhamur. Auk þess að vera einn besti leikmaður Olís-deildarinnar í handbolta er hann plötusnúður og stundar háskólanám í lífeindafræði.

„Þetta er bara FH-Haukar, þetta gerist alltaf“
„Fyrst og fremst er ég ánægður að við náðum varnarleiknum okkar til baka, við spiluðum frábæra vörn. Ég er ánægður með hvernig menn gáfu sig í þetta, það var mikil og góð liðsheild,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir jafntefli á móti Haukum í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - FH 24-24 | Allt jafnt í baráttunni um Hafnafjörð
Þrátt fyrir að Haukar væru tveimur mörkum undir gegn nágrönnum sínum í FH þegar lítið var eftir af leik liðanna í Olís deild karla í handbolta þá tókst þeim að skora tvívegis og jafna þar með metin. Bæði lið fengu færi til að vinna leikinn en það gekk ekki eftir og lokatölur því 24-24.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 30-31 | Endurkoma heimamanna hófst örlítið of seint
Í kvöld lék Grótta gegn Fram í 17. umferð Olís-deildarinnar í Hertz höllinni út á Seltjarnarnesi. Leikurinn var tvískiptur. Heimamenn voru varla með í fyrri hálfleik en sóttu vel að Frömurum í síðari hálfleik. Fram fór þó með sigur úr býtum, 30-31 lokatölur.

Umfjöllun: Hörður - Stjarnan 25-35 | Starri Friðriksson saltaði Harðverja
Stjarnan valtaði yfir Hörð á Ísafirði og vann tíu marka sigur 25-35. Eftir litlausan fyrri hálfleik setti Stjarnan í fluggírinn og valtaði yfir Harðverja í seinni hálfleik.

Útiliðið hefur ekki unnið Hafnarfjarðarslaginn í fimm ár og fimm mánuði
Haukar fá nágranna sína í FH í heimsókn á Ásvelli í kvöld í seinni deildarleik liðanna í Olís deild karla í handbolta á þessu tímabili.

„Svo skilst mér að Ásgeir sé á svo svakalegum samningi“
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Sigursteinn Arndal verða andstæðingar í kvöld þegar Haukar mæta FH í Hafnarfjarðarslagnum í Olís-deild karla. En venjulega eru þeir samherjar enda vinna þeir saman hjá Vodafone.

Botnar ekkert í býttunum hjá Halldóri
Halldór Jóhann Sigfússon er orðinn aðalþjálfari danska handboltaliðsins TTH Holstebro, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins. Það vekur hins vegar furðu sumra að maðurinn sem Halldór tekur við af, Sören Hansen, fer í starf Halldórs sem aðstoðarþjálfari.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Selfoss 29-35 | KA-menn steinlágu á heimavelli
Selfyssingar skelltu KA-mönnum norðan heiða í Olís deildinni í handbolta í dag.

„Maður bara skorar og hleypur á bekkinn og þá er sagt skjóttu aftur og skoraðu”
Selfyssingar gerðu góða ferð norður yfir heiðar í dag og unnu öruggan sigur á KA-mönnum í Olís deildinni í handbolta.

Janus og Sigvaldi öflugir þegar Kolstad tryggði sér bikarmeistaratitil
Íslendingalið Kolstad er norskur bikarmeistari í handbolta eftir öruggan sigur á Elverum í úrslitaleik keppninnar í dag.

Góður útisigur hjá Viktori Gísla og félögum
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Nantes unnu öflugan sigur á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Selfoss 21-26 | Góð ferð Selfyssinga norður
Selfoss bar sigurorð af KA/Þór í KA heimilinu í dag, lokatölur 21 – 26 fyrir gestina sem sýndu klærnar í seinni hálfleik og lönduðu góðum sigri.

Stórleikur Viggós í sigri á Magdeburg
Leipzig vann góðan sigur á Magdeburg í þýska handboltanum í dag. Magdeburg tapar því mikilvægum stigum í toppbaráttunni.

Tap hjá Ribe-Esbjerg gegn meisturunum
Dönsku meistararnir í GOG unnu öruggan sigur á Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þrír Íslendingar leik með Ribe-Esbjerg.

Stórt tap hjá Melsungen í Berlín
Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson léku með Melsungen sem mátti þola stórt tap gegn Fusche Berlin í þýska handboltanum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Afturelding 32-26 | Stór sex marka heimasigur Eyjamanna
ÍBV og Afturelding eru nánast hnífjöfn í Olís-deild karla í handbolta og mættust í mikilvægum slag í Vestmannaeyjum í dag. Eyjamenn höfðu betur, 32-26, í fjörugum leik.

Óðinn Þór skoraði þrettán mörk í öruggum sigri
Óðinn Þór Ríkharðsson var langmarkahæstur í leik Kaddetten Schaffhausen og Pfadi Winterthur í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Bjarki Már og félagar áfram með fullt hús stiga
Vezsprem hefur yfirburði í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta um þessar mundir eins og stundum áður.

Elín Jóna öflug í sigri
Nokkrar íslenskar handboltakonur voru í eldlínunni í evrópskum handbolta í dag.

Íslendingaslagur í úrslitaleik norska bikarsins
Íslendingalið Kolstad komst örugglega áfram úr undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í handbolta og mætir Elverum í úrslitaleik keppninnar.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Haukar 22-14 | Hafdís mögnuð í sigri Fram
Fram vann átta marka sigur á Haukum í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Hafdís Renötudóttir átti frábæran leik í marki Fram og varði meðal annars fimm víti.

Ragnar: Þegar Hafdís mætir fara bara allir aftast í röðina
Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, var virkilega ósáttur með frammistöðu síns liðs í dag er það mætti Fram í 18. umferð Olís deildar kvenna. Hafdís Renötudóttir átti stórleik en hún var með 65% markvörslu. Fram sigraði leikinn með átta mörkum, 22-14.

Umfjöllun: ÍBV - Valur 29-28 | ÍBV komst upp að hlið Vals eftir spennutrylli
Harpa Valey Gylfadóttir tryggði ÍBV mikilvægan sigur þegar liðið tók á móti Val í toppslag Olís deildar kvenna í handbolta í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV hefur þar af leiðandi haft betur í 13 leikjum í röð í deildinni og er nú komið upp að hlið Valsliðinu á toppi deildarinnar.

Guðmundur stýrði Frederecia til sigurs í fyrsta leiknum eftir að hann hætti með landsliðið
Guðmundur Guðmundsson stýrði Frederecia til stórsigurs í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Orri Freyr og félagar komnir í úrslitaleik bikarsins
Orri Freyr Þorkelsson og samherjar hans í Elverum eru komnir áfram í úrslit norsku bikarkeppninnar í handknattleik eftir sigur á Arendal í dag.

HK í Olís-deildina á ný
HK tryggði sér í gærkvöldi sæti í Olís-deildinni í handknattleik á nýjan leik þegar liðið lagði Víking í Grill66-deildinni.

Öruggur sigur Stjörnunnar gegn HK | Myndaveisla
Stjarnan lagði HK að velli í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Lokatölur 24-20 og Stjarnan heldur í við Val og ÍBV á toppi deildarinnar.

Snorri Steinn: HSÍ ekkert búið að hringja
„Ég er rosalega ánægður með stigin tvö ef ég á að segja alveg eins og er. Þetta er búið að vera erfið vika hjá okkur eins og reyndar margar aðrar í vetur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals eftir sigur á ÍR í Olís-deildinni í kvöld.

Kristján Örn ekki í hóp hjá PAUC sem tapaði fyrir liði Grétars Ara
Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC biðu lægri hlut á heimavelli gegn Sélestat í frönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Umfjöllun og viðtal: ÍR - Valur 32-36 | Endurkoma ÍR-inga dugði skammt
Valur vann sigur á ÍR Skógarselinu í kvöld. Lokatölur 32-36 í spennandi leik. Þetta var fyrsti leikur 17. umferðar í Olís-deild karla.

Lærisveinar Hannesar gerðu jafntefli við toppliðið
Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard gerðu í kvöld jafntefli við topplið Krems í austurrísku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Auðvelt hjá Álaborg gegn Sönderjyske
Aron Pálmarsson átti fínan leik fyrir Álaborg sem lagði Sönderjyske auðveldlega í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

„Hann er bara kaup ársins“
Snorri Steinn Guðjónsson segir leikmenn hafa hafnað því að ganga til liðs við Val síðasta sumar áður en hann hreppti Berg Elí Rúnarsson sem reynst hefur vel á sinni fyrstu leiktíð á Hlíðarenda.

Snorri setti markið hátt fyrir Val eftir gríðarleg vonbrigði
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, segir liðið hafa unnið sig fljótt úr miklum vonbrigðum og sett sér háleitt markmið eftir tapið sára gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins fyrir viku.

Apelgren einnig spenntur fyrir íslenska landsliðinu
Sænski þjálfarinn Michael Apelgren er einn þeirra erlendu þjálfara sem er orðaður við starf karlalandsliðsins í handbolta. Starfið er laust eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti í vikunni.

Bróður Hákonar blöskrar valið: „Valsmafían farin að stjórna öllu“
Handboltamaðurinn Andri Heimir Friðriksson gagnrýnir það að Valsmaðurinn Stiven Tobar Valencia skyldi vera valinn í landsliðið í gær á meðan að Ísland eigi hornamenn í mun sterkari deildum en Olís-deildinni.

„Íþróttamenn segja ekki frá þessu og leita sér ekki hjálpar“
Það vakti athygli á dögunum þegar leikmaður íslenska handboltalandsliðsins, Kristján Örn Kristjánsson leikmaður PAUC í Frakklandi, greindi frá því að hann yrði að taka sér frí frá æfingum og keppni vegna kulnunar. Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík ræddi við Guðjón Guðmundsson um þessa hlið íþróttanna.

Dreymir um að spila fyrir Barcelona og PSG og nennir ekki að standa bara í horninu í vörn
Stiven Tobar Valencia kveðst þakklátur fyrir að vera valinn í íslenska landsliðið. Hann dreymir um að spila fyrir stærstu lið Evrópu.