Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Manchester United á útivelli eftir 5 af 6 Meistaradeildarleiki sína Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er örugglega ekki alltof sáttur við leikjadagskránna í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð einkum þar sem að United þarf að spila útileiki eftir fimm af sex leikjum sínum í Meistaradeildinni. Manchester City liðið er hinsvegar í mun betri málum hvað þetta varðar. 18.6.2012 22:15
Arsenal ætlar að kaupa Giroud frá Montpellier BBC segir frá því í kvöld að Arsenal sé langt komið með því að ganga frá kaupum á franska landsliðsmanninum Olivier Giroud og muni borga 12 milljónir punda fyrir framherja Frakklandsmeistara Montpellier. 18.6.2012 19:00
Hoffenheim vill að Gylfi tryggi framtíð sína í ensku úrvalsdeildinni Knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssyni hefur verið gefið frí frá æfingum með Hoffenheim út mánuðinn. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að Hoffenheim vilji að Gylfa takist að tryggja framtíð sína í enska boltanum. 18.6.2012 16:09
Heiðar Helguson fær samkeppni | Andy Johnson til QPR Framherjinn Andy Johnson er genginn í raðir Lundúnarfélagsins Queens Park Rangers. Johnson kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Fulham. 18.6.2012 15:48
Juventus búið að bjóða í Torres Framherjaleit Juventus heldur áfram en nú er ljóst að ítölsku meistararnir munu ekki fá Edinson Cavani frá Napoli. Juve hefur nú ákveðið að reyna við Fernando Torres hjá Chelsea. 18.6.2012 14:00
Blanc sagður vera efstur á óskalista Spurs Tottenham er enn í stjóraleit og nú herma fregnir að franski landsliðsþjálfarinn, Laurent Blanc, sé efstur á óskalista félagsins. 18.6.2012 13:15
Titilvörn Man. City hefst gegn Southampton Búið er að gefa út leikjalista fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Meistarar Man. City byrja á því að spila gegn Southampton á heimavelli en Man. Utd spilar sinn fyrsta leik á útivelli gegn Everton. Deildin hefst þann 18. ágúst. 18.6.2012 10:15
BBC segir Liverpool og Hoffenheim vera í viðræðum um Gylfa Þór Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool og Hoffenheim í Þýskalandi eru samkvæmt BBC í viðræðum þess efnis að íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson fari til Liverpool. Samkvæmt frétt BBC gætu liðin komist að samkomulagi í byrjun næstu viku. Swansea og Hoffneheim höfðu áður komist að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum en staðan breyttist töluvert þegar Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Swansea var ráðinn sem knattspyrnustjóri hjá Liverpool. 17.6.2012 12:45
Redknapp: Yfirmönnum Spurs líkaði ekki vel við mig Harry Redknapp er enn að reyna að komast yfir að hafa verið rekinn frá Tottenham í vikunni. Redknapp segir að yfirmönnum félagsins hafi líkað illa við hann. 15.6.2012 11:45
Villas-Boas sagður vera efstur á óskalista Spurs Enskir fjölmiðlar eru eðlilega farnir að velta því fyrir sér hver muni taka við af Harry Redknapp sem knattspyrnustjóri Tottenham. Andre Villas-Boas er sagður vera efstur á óskalista félagsins. 15.6.2012 11:17
Laudrup tekinn við Swansea Samkvæmt heimildum Sky-fréttastofunnar þá er Swansea búið að ráða Danann Michael Laudrup sem stjóra félagsins í stað Brendan Rodgers sem fór til Liverpool. 15.6.2012 11:02
Rodgers vill kaupa Gylfa ef hann fer ekki til Swansea Enskir fjölmiðlar halda áfram að orða Gylfa Þór Sigurðsson við Liverpool. Stjóri félagsins, Brendan Rodgers, segist fylgjast vel með framvindu mála hjá Gylfa en tekur þó fram að hann muni virða samkomulag við Swansea og ætli sér ekki að stela Gylfa. Hann muni þó reyna að kaupa hann ef Gylfi endar úti á markaðnum á ný. 15.6.2012 09:30
Björn seldur til Wolves á tæpar 500 milljónir króna Lilleström er búið að selja Björn Bergmann Sigurðarson til enska liðsins Wolves. Það staðfestir umboðsmaður hans, Jerry de Koning, við norska fjölmiðla í dag. Björn mun skrifa undir fjögurra ára samning við Úlfana. 14.6.2012 17:57
Redknapp hungraður í annað starf Harry Redknapp segist ekki vera af baki dottinn og að hann sé afar áhugasamur um að finna sér nýtt starf sem allra fyrst. 14.6.2012 13:30
Ramires ánægður með ákvörðun Chelsea Brasilíumaðurinn Ramires segir að það hafi verið rétt ákvörðun hjá eiganda Chelsea að gera tveggja ára samning við knattspyrnustjórann Roberto Di Matteo. 14.6.2012 11:30
Aquilani að íhuga framtíðina Alberto Aquilani mun ákveða hvar hann ætli að spila á næstu leiktíð á allra næstu dögum, að sögn umboðsmanns hans. 14.6.2012 10:45
Engar viðræður við Barcelona Umboðsmaður Gareth Bale segir að það hafi engar viðræður átt sér stað við spænska stórveldið Barcelona sem þykir kappinn vera of dýr. 14.6.2012 09:30
Redknapp var rekinn Harry Redknapp er hættur störfum sem knattspyrnustjóri Tottenham eftir að stjórn félagsins ákvað að segja upp samningi hans í gærkvöldi. 14.6.2012 09:16
Hermt að Redknapp sé á förum frá Spurs Þrátt fyrir yfirlýsingar um annað þá virðist vera að Harry Redknapp sé að hætta sem stjóri Spurs. Ástæðan er ágreiningur um lengd samnings. 13.6.2012 21:11
Kalou opinn fyrir því að fara til Liverpool Salomon Kalou er jákvæður fyrir því að spila með Liverpool á næsta tímabili, samkvæmt því sem umboðsmaður hans segir. 13.6.2012 19:00
Roberto Di Matteo ráðinn til tveggja ára Roberto Di Matteo hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Di Matteo tók við liðinu tímabundið eftir bottvikningu André Villas-Boas á síðustu leiktíð. 13.6.2012 17:33
Ítalir vildu ekki láta vökva völlinn Einn forráðamanna ítalska knattspyrnusambandsins hefur staðfest að hann hafi beðið um að völlurinn í Gdansk yrði ekki vökvaður fyrir leik sinna manna gegn Spánverjum. 13.6.2012 12:15
Kagawa: Bara læknisskoðunin eftir Japanski miðjumaðurinn Shinji Kagawa segir að það sé nánast frágengið að hann muni ganga til liðs við Manchester United í sumar. 13.6.2012 10:15
Laudrup tekur við Swansea í vikunni Enskir fjölmiðlar fullyrða að Daninn Michael Laudrup muni taka við Swansea í vikunni ef viðræður ganga vel. 13.6.2012 09:41
Mirror: Gylfi mun fylgja Rodgers til Liverpool Enska dagblaðið The Mirror greindi frá því í gærkvöldi að Gylfi Þór Sigurðsson hafi ákveðið að ganga til liðs við Liverpool og fylgja þar með fordæmi Brendan Rodgers, fyrrum knattspyrnustjóra Swansea. 13.6.2012 09:09
Laudrup að taka við Swansea Samkvæmt heimildum Sky Sports þá verður Daninn Michael Laudrup næsti stjóri Swansea. Félagið hefur verið í stjóraleit síðan Brendan Rodgers fór til Liverpool. 12.6.2012 21:30
Kalou enn orðaður við Liverpool Huub Stevens, stjóri þýska liðsins Schalke, er enn vongóður um að fá Salomon Kalou í sínar raðir en segir að mörg lið hafi áhuga, þeirra á meðal Liverpool. 12.6.2012 16:45
Giroud á leið til Arsenal Allar líkur eru á því að sóknarmaðurinn Olivier Giroud muni spila með Arsenal á næstu leiktíð, ef marka má ummæli knattspyrnustjóra Montpellier. 12.6.2012 11:30
Sky Sports: Björn Bergmann nálgast Wolves Fréttavefur Sky Sports staðhæfir í dag að Björn Bergmann Sigurðarson sé nálægt því að ganga til liðs við enska B-deildarfélagið Wolves. 12.6.2012 10:45
Desailly hafnaði Swansea Marcel Desailly hefur greint frá því að hann hafi hafnað tækifæri til að ræða við forráðamenn Swansea um að gerast knattspyrnustjóri félagsins. 12.6.2012 09:00
Gray fór í hárígræðslu í beinni sjónvarpsútsendingu Það er ekkert gamanmál að missa hárið fyrir marga karlmenn. Á meðan aðrir taka hármissinum af auðmýkt gera aðrir ýmislegt til þess að halda í hárið. 11.6.2012 20:30
Fellaini útilokar ekki að fara frá Everton Marouane Fellaini, leikmaður Everton, segist vera ánægður hjá félaginu en viðurkennir að hann gæti freistast til að fara til stærra félags. 11.6.2012 16:02
Redknapp: Má ekki vanmeta England Harry Redknapp, sem var svo sterklega orðaður við enska landsliðsþjálfarastarfið eftir að Fabio Capello var rekinn í vetur, segir að Englendingar séu með sterkan hóp leikmanna á EM. 11.6.2012 09:15
Abramovich vill halda Di Matteo hjá Chelsea Fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag að forráðamenn Chelsea ætli sér að ráða Roberto Di Matteo sem knattspyrnustjóra liðsins í næstu viku. 10.6.2012 23:15
Harry Redknapp: Ég hefði sagt já Harry Redknapp, stjóri Tottenham, viðurkenndi það í samtali við BBC Sport að hann hefði samþykkt að taka við enska landsliðinu ef enska sambandið hefði boðið honum starfið. Enska knattspyrnusambandið ákvað frekar að leita til Roy Hodgson þegar það leitaði að eftirmanni Fabio Capello. 10.6.2012 06:00
Faðir Van Persie segir að strákurinn hans fari aldrei til City Faðir Robin van Persie hefur tjáð sig um framtíðarplön stráksins síns við spænskt blað en Van Persie sjálfur er eins og kunnugt er í fjölmiðlabanni á meðan EM stendur, að beiðni félags hans Arsenal. 9.6.2012 16:45
Lewandowski vill ekkert tala um Manchester United Robert Lewandowski, framherji pólska landsliðsins, neitaði að svara spurningum blaðamanna um Manchester United eftir leik Pólverja og Grikkja á EM í fótbolta í gær. Lewandowski skoraði fyrsta mark EM í ár en hann hefur verið margoft orðaður við enska stórliðið. 9.6.2012 12:30
Rio búinn að afskrifa 100. landsleikinn Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United, fékk ekki að fara með enska landsliðinu á EM og þessi 33 ára gamli leikmaður viðurkenndi það í viðtali við The Sun að landsliðsferillinn væri líklega á enda. Ferdinand hefur spilað 81 landsleik frá árinu 1997 og lét sig dreyma um að spila hundrað landsleiki. 9.6.2012 11:00
Modric sterklega orðaður við United Luka Modric, miðjumaður Tottenham og króatíska landsliðsins, er enn á ný orðaður við Manchester United í breska götublaðinu The Sun í dag. 8.6.2012 14:30
Steve Clarke tekinn við West Brom Steve Clarke er tekinn við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Bromwich Albion. Clarke skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. 8.6.2012 13:00
Rangnick hafnaði West Brom Þjóðverjinn Ralf Rangnick verður ekki næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins West Brom. Steve Clarke þykir nú líklegastur til að fá starfið eins og áður hefur komið fram. 7.6.2012 22:30
Kári til liðs við Rotherham Kári Árnason hefur gert tveggja ára samning við enska D-deildarliðið Rotherham en hann lék síðast með Aberdeen í Skotlandi. 7.6.2012 20:21
Hughton tekinn við Norwich Enska úrvalsdeildarfélagið Norwich hefur ráðið Írann Chris Hughton sem knattspyrnustjóra. Hughton tekur við liðinu af Paul Lambert sem færði sig yfir til Aston Villa. 7.6.2012 16:30
Orkuverið gekk Chelsea úr greipum Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að leita að nýrri staðsetningu fyrir nýjan leikvang sinn. Malasískt fyrirtæki hafði betur í baráttunni við Lundúnarliðið í útboði Battersea-orkuversins þar sem nýi leikvangurinn átti að rísa. 7.6.2012 15:45
Defoe snýr heim vegna andláts föður síns Jermaine Defoe, sóknarmaður Tottenham og enska landsliðsins, hefur yfirgefið æfingabúðir Englands í Kraká í Póllandi, vegna andláts föður síns. 7.6.2012 12:00