Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Torres verður ekki með Liverpool á móti Steaua Búkarest Fernando Torres verður hvíldur þegar Liverpool mætir Steaua Búkarest í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Roy Hodgson, stjóri Liverpool, sagði að spænski framherjinn myndi ekki ferðast með liðinu því hann ætlaði að spara hann fyrir leikinn á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. 30.11.2010 23:15
West Ham sló Manchester United út úr enska deildbikarnum Botnlið West Ham í ensku úrvalsdeildinni tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins eftir 4-0 stórsigur á toppliði Manchester United á Upton Park í kvöld. Jonathan Spector skoraði tvö fyrstu mörkin á móti sínum gömlu félögum og Carlton Cole innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Arsenal komst líka í undanúrslitin eftir 2-0 sigur á Wigan á heimavelli. 30.11.2010 21:40
Beckham: Ég styð Man. Utd og spila því ekki með Everton Everton er á höttunum á eftir nýjum leikmönnum í janúar og á meðal þeirra leikmanna sem hafa verið orðaðir við félagið er David Beckham. David Moyes, stjóri félagsins, sagðist vera mjög spenntur fyrir því að fá Beckham. 30.11.2010 21:00
Everton á eftir Wright-Phillips Það er fastlega búist við því að Shaun Wright-Phillips muni yfirgefa herbúðir Man. City í janúar og eitt af þeim liðum sem hefur áhuga á leikmanninnum er Everton. 30.11.2010 16:00
Carragher frá í þrjá mánuði Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er kominn í langt jólafrí. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í leiknum gegn Spurs á sunnudag er hann fór úr axlarlið. 30.11.2010 12:30
Þurfum að hjálpa Tevez meira Joe Hart, markvörður Man. City, hefur beðið félaga sína vinsamlegast um að bæta sinn leik svo Carlos Tevez þurfi ekki að bera liðið á herðum sér mikið lengur. 30.11.2010 11:15
Drogba: Feginn að nóvember er liðinn Didier Drogba, framherji Chelsea, segir að liðið geti ekki falið sig á bak við meiðsli til þess að útskýra lélegt gengi síðustu vikur. 30.11.2010 10:30
Flestir handteknir á Old Trafford en fæstir á Craven Cottage Englendingar eru alltaf að haga sér betur og betur á fótboltaleikjum og það sést vel í nýjustu tölum um fjölda fólks sem hefur verið handtekið í kringum leiki í ensku deildunum. 29.11.2010 22:30
Modric: Við getum unnið ensku deildina Það er óhætt að segja að það sé mikið sjálfstraust í herbúðum Tottenham um þessar mundir. Skal svo sem engan undra þar sem liðið er á mikilli siglingu. 29.11.2010 21:30
Drogba þolir ekki að elta Það gengur illa hjá Chelsea þessa dagana og liðið varð að sjá á eftir toppsætinu um helgina í hendurnar á Man. Utd. Chelsea varð þá að sætta sig við jafntefli gegn Newcastle. 29.11.2010 19:45
Wenger hættir þegar hungrið hverfur Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á líklega nóg eftir í boltanum. Sjálfur segist hann ekki hafa neinn áhuga á því að hætta fyrr en honum verði sama um leikinn. 29.11.2010 15:00
Ancelotti: Ef það á að reka mig þá frétti ég það síðastur Orðrómurinn um að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, muni taka við Chelsea næsta sumar flýgur enn hátt. Hreinsanir eru í gangi á Stamford Bridge og Frank Arnesen íþróttastjóri mun hætta næsta sumar. Ray Wilkins aðstoðarþjálfari hætti á dögunum. 29.11.2010 13:00
Elmander orðaður við Liverpool Sænski framherjinn hjá Bolton Wanderers, Johan Elmander, er í dag orðaður við Liverpool. Samningur leikmannsins við Bolton rennur út næsta sumar. 29.11.2010 12:30
Mark Davies skoraði fallegasta markið í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar Mark Davies leikmaður Bolton skoraði fallegasta markið í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en fimm bestu mörk umferðarinnar er að finna á visir.is. 29.11.2010 11:00
Hodgson hefur enn trú á Torres Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segist enn hafa tröllatrú á framherjanum Fernando Torres sem hefur verið fjarri sínu besta í vetur. Hann var slakur á móti Spurs í gær og klúðraði þó nokkrum fínum færum. 29.11.2010 10:30
Andy Carroll: Ég og Rooney værum flottir saman Hinn ungi en grjótharði sóknarmaður Newcastle, Andy Carroll, hefur heldur betur slegið í gegn á tímabilinu. Hann hefur verið iðinn við kolann og skoraði meðal annars gegn Chelsea í dag. 29.11.2010 06:00
Lindegaard mætir ekki á Old Trafford til að sitja á bekknum Danski markvörðurinn Anders Lindegaard verður orðinn leikmaður Manchester United í janúar. Hann segist ekki vera á leið á Old Trafford til að verma varamannabekkinn. 28.11.2010 22:30
Terry og Lampard gætu snúið aftur í næstu umferð Chelsea hefur saknað þeirra John Terry og Frank Lampard sárt að undanförnu. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, sagði þó eftir leikinn að þeir myndu líklega snúa aftur til æfinga í þessari viku. 28.11.2010 22:00
Stóri Sam biður stuðningsmenn afsökunar Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn, hefur beðið stuðningsmenn félagsins sem horfðu á leikinn gegn Manchester United í gær afsökunar. 28.11.2010 21:30
Man Utd og Liverpool drógust saman í bikarnum Nú um kvöldmatarleytið var dregið í þriðju umferð ensku FA-bikarkeppninnar. Það eru nokkrir mjög athyglisverðar viðureignir en stærsti leikurinn er án nokkurs vafa milli Manchester United og Liverpool á Old Trafford. 28.11.2010 18:30
Lennon skoraði sigurmarkið gegn Liverpool í uppbótartíma Martin Skrtel skoraði fyrir bæði lið þegar Tottenham vann 2-1 sigur á Liverpool í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Skemmtanagildi leiksins var feykilega hátt en Aaron Lennon skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. 28.11.2010 18:20
Brotið blað - Öll liðin skoruðu um helgina Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar 2010-2011 kemst í sögubækurnar. Öllum liðum deildarinnar tókst að skora í umferðinni en það er í fyrsta sinn í sögu deildarinnar sem það gerist. 28.11.2010 17:28
Ancelotti: Þurfum að gera betur fyrir framan markið Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að liðið þurfi að fara að skora meira á útivöllum ef það ætli sér að verja Englandsmeistaratitil sinn. Þeir bláklæddu hafa aðeins skorað eitt útivallamark í síðustu þremur deildarleikjum. 28.11.2010 17:15
Sol Campbell sáttur með stigið Sol Campbell, varnarmaður Newcastle, var ánægður eftir að hafa leikið sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni fyrir félagið. Hann stóð sig vel í 1-1 jafntefli gegn Englandsmeisturum Chelsea í dag. 28.11.2010 16:30
Jafnt hjá Newcastle og Chelsea - Man Utd heldur toppsætinu Newcastle og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í mjög fjörugum leik sem var að ljúka. Manchester United fer því inn í vikuna á toppnum, liðið er með tveggja stiga forystu á Chelsea og Arsenal. 28.11.2010 15:27
Peter Crouch vill vera hjá Tottenham út ferilinn Sóknarmaðurinn Peter Crouch vill vera með Tottenham út ferilinn. Hann hóf feril sinn hjá félaginu en var seldur til Queens Park Rangers áður en hann hafði leikið með aðalliði félagsins. 28.11.2010 13:00
Moyes efstur á lista Tottenham ef Redknapp fer Eins og oft áður er heitt undir landsliðsþjálfara Englands. Raddir sem vilja fá heimamann við stjórnvölinn á ný verða æ háværari og þar er Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, oft nefndur til sögunnar. 28.11.2010 12:33
Ferguson: Van der Sar hættir líklega í vor Alex Ferguson, stjóri Manchester United, á von á því að Edwin van der Sar muni leggja hanskana á hilluna þegar að tímabilinu lýkur í ensku úrvalsdeildinni. 28.11.2010 11:45
Tevez ætlar að fara aftur heim fyrir þrítugt Carlos Tevez hefur greint frá því að hann er hundþreyttur á lífinu í Evrópu og ætlar að snúa aftur heim til Argentínu áður en hann verður þrítugur. 28.11.2010 10:00
Ancelotti ekki að hugsa um að kaupa í janúar Carlo Ancelotti ætlar ekki að biðja Roman Abramovich, stjóra Chelsea, um að opna budduna þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar. 28.11.2010 10:00
Carragher fór úr axlarlið og verður frá næstu vikurnar Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, lék í dag sinn 450. leik í ensku úrvalsdeildinni þegar lið hans mætti Tottenham. Leikurinn endaði þó ekki vel fyrir kappann. 28.11.2010 03:00
Bikarævintýri FC United heldur áfram FC United er enn á lífi í ensku bikarkeppninni eftir að hafa gert dramatískt 1-1 jafntefli gegn Brighton í dag. 27.11.2010 23:15
Grant himinlifandi með sigurinn Avram Grant, stjóri West Ham, var vitaskuld afar ánægður með 3-1 sigurinn á Wigan í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag. 27.11.2010 22:15
Ferguson: Frábært afrek hjá Berbatov Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hældi Dimitar Berbatov fyrir frammistöðuna gegn Blackburn í dag. 27.11.2010 18:07
QPR vann toppslaginn QPR styrkti stöðu sína á toppi ensku B-deildarinnar með 2-1 sigri á Cardiff í toppslag ensku B-deildarinnar í dag. 27.11.2010 17:15
United í sjöunda himni - Berbatov með fimm Manchester United vann 7-1 sigur á Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í dag en hér má finna úrslit úr öllum leikjunum sjö sem hófust klukkan 15.00. 27.11.2010 16:55
Moyes vill fá Beckham til Everton David Moyes segir að nafni sinn Beckham sé velkomið að ganga til liðs við Everton á lánssamningi. 27.11.2010 16:15
Hodgson getur ekki fengið Aquilani aftur í janúar Roy Hodgson segir að þær sögusagnir séu ekki réttar að Alberto Aquilani sé aftur á leið til Liverpool í janúar næstkomandi. 27.11.2010 15:30
Grétar Rafn og Eiður Smári á bekknum Grétar Rafn Steinsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru báðir á varamannabekk sinna liða í leikjum þeirra í ensku úrvalsdeildinni í dag. 27.11.2010 15:02
Arsenal á toppinn Arsenal er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar, um stundarsakir að minnsta kosti, eftir 4-2 útisigur á Aston Villa í dag. 27.11.2010 14:45
United búið að kaupa Lindegaard Danski landsliðsmarkvörðurinn Anders Lindegaard hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Manchester United. 27.11.2010 14:11
Hermann kom við sögu í sigurleik Portsmouth Hermann Hreiðarsson kom inn á sem varamaður þegar að Portsmouth gerði sér lítið fyrir og vann sterkt lið Swansea á útivelli í ensku B-deildinni í gær, 2-1. 27.11.2010 11:33
Schalke vill fá Michael Owen Þýska úrvalsdeildarfélagið Schalke er sagt í frönskum fjölmiðlum í dag vilja fá Michael Owen frá Manchester United þegar félagaskiptaglugginn opnar um áramótin. 26.11.2010 21:45
Wenger: Fabregas verður ekki eins og Owen Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er viss um það að Cesc Fabregas lendi ekki í sama vítahring og Michael Owen er búinn að ganga í gegnum á sínum ferli. Fabregas hefur eins og Owen misst úr mikið af leikjum hjá Arsenal á þessu tímabili. 26.11.2010 21:00
Heiðar klár en verður líklega á bekknum Heiðar Helguson er orðinn klár í slaginn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla á öxl síðustu vikur. 26.11.2010 20:15