Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bendtner vill skora 25 mörk fyrir Arsenal í vetur Daninn Nicklas Bendtner ætlar að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni í vetur og telur að þetta geti verið spútniktímabilið hans hjá Arsenal. Hann gerir sér þó grein fyrir því að hann þarf þá að fara að skora fleiri mörk en hann hefur gert til þessa. 8.9.2009 17:00
Tony Adams: Arsenal verður ekki enskur meistari á þessu tímabili Tony Adams, fyrrum fyrirliði Arsenal, segir Arsenal-liðið vera í stöðugri framför en þeir séu þó enn ekki tilbúnir að fara að keppa um enska meistaratitilinn af einhverri alvöru. 8.9.2009 16:30
Tevez ekki með á móti Arsenal - vonandi klár fyrir Manchester-slaginn Carlos Tevez verður ekki með Manchester City í stórleiknum á móti Arsenal um næstu helgi en Tevez meiddist á hné í leik Argentínu og Brasilíu í undankeppni HM um síðustu helgi. Mark Hughes, stjóri City, vonast til að Tevez verði orðinn góður fyrir nágranna- og derby-slaginn á móti Manchester United sem fram fer eftir tæpar tvær vikur eða 20. september. 8.9.2009 14:30
Lampard vill horfa jákvætt á bannið - gæti þjappað liðinu betur saman Frank Lampard er á því að Chelsea-liðið gæti nýtt sér það að liðið megi ekki kaupa nýja leikmenn fyrr en árið 2011. Chelsea var sett í bann hjá FIFA vegna vinnubragða félagsins við að næla í Frakkan Gael Kakuta frá RC Lens. Flestir eru á því að Chelsea þurfi að styrkja leikmannahópinn á þessum tíma til að berjast um titlana í boði en Lampard trúir því að liðsheildin gæti orðið enn sterkari við þetta bann. 8.9.2009 12:00
Manchester City í vandræðum eins og Chelsea og Manchester United Franska liðið Rennes hefur kvartað yfir vinnubrögðum enska liðsins Manchester City sem samdi við franska unglinginn Jeremy Helan fyrr á árinu eftir að Helan hafi ákveðið að skrifa ekki undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við uppeldisfélag sitt. 8.9.2009 10:00
Beckham útilokar ekki að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina „Ég hef ekki farið leynt með það að ég ætla mér að snúa aftur til Evrópu. Við skulum orða það að þannig að það séu nokkrir möguleikar í stöðunni,“ segir David Beckham í samtali við BBC Radio þegar hann inntur eftir því hvort honum hugnaðist að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. 7.9.2009 23:30
Giggs planar að hætta á toppnum - útilokar ekki að fara út í þjálfun „Fótbolti er líf mitt og yndi en ég ætla ekki að vera enn að þegar ég verð fertugur. Ég gæti þó mögulega leitað að einhverjum öðrum áskorunum innan fótboltans eftir að ég legg skóna á hilluna,“ segir Ryan Giggs hjá Englandsmeisturum Manchester United í nýlegu viðtali við Sunday Mirror. 7.9.2009 22:45
Hafnarboltapeningar Hicks ekki notaðir fyrir Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool þurfti að fresta framkvæmdum sínum við byggingu á nýjum leikvangi við Stanley Park þegar kreppan skall á en sá leikvangur mun rýma talsvert fleiri áhorfendur en Anfield leikvangurinn gerir nú. 7.9.2009 22:00
Gradi: Það sem gerðist fyrir Chelsea er frábært Enska d-deildarfélagið Crewe, þar sem Guðjón Þórðarson er við stjórnvölin, hefur tilkynnt ónefnt úrvalsdeildarfélag til enska knattspyrnusambandsins vegna ólögmætra viðræðna þess við ungan leikmann Crewe. 7.9.2009 20:30
Forráðamenn United senda Frökkunum tóninn Talsmaður Englandsmeistara Manchester United hefur staðfest að félagið hafi hug á því að kæra Le Havre fyrir ásakanir forráðamanna franska félagsins um að enska félagið hafi reynt að fá hinn unga Paul Pogba með ólöglegum hætti. 7.9.2009 19:45
Paddy Kenny dæmdur í níu mánaða langt bann Enska knattspyrnusambandið staðfesti í dag að markvörðurinn Paddy Kenny hjá Sheffield United hafi verið dæmdur í níu mánaða langt keppnisbann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi eftir leik gegn Preston í úrslitakeppni b-deildarinnar á Englandi á síðasta keppnistímabili. 7.9.2009 18:45
Brian Kidd kominn til starfa hjá Manchester City Brian Kidd, fyrrum aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, hefur ráðið sig í starf hjá nágrönnunum í Manchester City þar sem hann mun starfa við knattspyrnuakademíu félagsins. 7.9.2009 15:30
Robinho: Ætlar að vinna enska titilinn en ekki að fara til Barcelona Brasilíumaðurinn Robinho hefur ekki áhuga á að fara til Barcelona þegar félagsskiptaglugginn opnar aftur í janúar en áhugi spænsku Evrópumeistaranna á þessum snjalla Brassa hefur verið mikið í fréttum síðustu daga. Robinho ætlar þess í stað að hjálpa Manchester City að vinna enska meistaratitilinn. 7.9.2009 12:00
Keypti Manchester United hús fyrir foreldra Paul Pogba? Jean-Pierre Louvel, forseti Le Havre, er ekki ánægður með aðferðir enska liðsins Manchester United til að ná í hinn sextán ára gamla Paul Pogba. Louvel ásakar United um að hafa mútað foreldrum stráksins en hann var í viðtali við franska blaðið French football. 7.9.2009 10:00
Campbell stefnir enn á landsliðið Sol Campbell stefnir enn að því að vinna sér sæti í enska landsliðinu þó svo að hann spili nú með Notts County í ensku D-deildinni. 6.9.2009 17:45
Meiðsli Sneijder ekki slæm Meiðsli Hollendingsins Wesley Sneijder eru ekki eins alvarlega og í fyrstu var óttast. Hann var fluttur upp á sjúkrahús eftir leik Hollands og Japan í gær. 6.9.2009 17:15
Rooney: Þetta var brot Wayne Rooney segir að brotið var á sér þegar að vítaspyrna var dæmd á landslið Slóveníu í leiknum gegn Englandi í dag. Frank Lampard skoraði úr vítinu og England vann, 2-1. 6.9.2009 16:45
Capello stendur frammi fyrir erfiðu vali Fabio Capello viðurkennir að hann standi frammi fyrir erfiðu vali þegar kemur að því að velja sóknarmenn í byrjunarliði enska landsliðsins sem mætir Króatíu í undankeppni HM 2010 á miðvikudaginn. 6.9.2009 15:45
Aquilani: Ég mun sanna mig hjá Liverpool Alberto Aquilani er sannfærður um að hann muni sanna sig í herbúðum Liverpool þegar hann fær tækifæri til þess. 6.9.2009 06:00
Bannið kom Terry á óvart John Terry segir að úrskurður Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, um að félagið megi ekki kaupa nýja leikmenn fyrr en í janúar 2011 hafi komið sér á óvart. 5.9.2009 20:00
England vann Slóveníu Enska landsliðið vann í kvöld 2-1 sigur á Slóveníu í vináttulandsleik á Wembley. Frank Lampard og varamaðurinn Jermain Defoe skoruðu mörk enska liðsins. 5.9.2009 18:37
Platini ánægður með FIFA Michel Platini, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, er ánægður með úrskurð Alþjóðasambandsins, FIFA, í Chelsea-málinu. 5.9.2009 17:15
Alþjóðleg mörk í sigri Crewe Crewe vann í dag 2-1 sigur á Macclesfield í ensku D-deildinni í knattspyrnu. Liðið er nánast eingöngu skipað Englendingum sem voru þó ekki á skotskónum í þetta sinnið. 5.9.2009 16:07
Dwight Yorke hættur Dwight Yorke hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 37 ára gamall. Hann lék síðast með Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en fór þaðan í lok síðasta tímabils. 5.9.2009 14:19
Jerome frá í mánuð Framherjinn Cameron Jerome verður frá næsta mánuðinn þar sem ökklameiðsli hans eru verri en í fyrstu var talið. 5.9.2009 12:30
Le Havre sendi inn kvörtun vegna United Franska knattspyrnufélagið Le Havre hefur nú sent inn formlega kvörtun til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, vegna Manchester United. 5.9.2009 12:00
Rio orðaður við spænsku risana Rio Ferdinand er í dag orðaður við bæði Real Madrid og Barcelona í enskum fjölmiðlum. 5.9.2009 11:30
Ljungberg aftur til Arsenal? Samkvæmt enskum fjölmiðlum gæti verið að Freddie Ljungberg sé aftur á leið í enska boltann og þá til síns gamla félags, Arsenal. 5.9.2009 11:10
Viduka hugsanlega á leið til West Ham Ástralinn Mark Viduka gæti verið á leið til West Ham en framherjinn er fáanlegur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Newcastle rann út fyrr í sumar. 4.9.2009 16:30
Ívar snýr aftur í kvöld - hefur ekki spilað síðan í janúar Varnarmaðurinn Ívar Ingimarsson mun leika með varaliði Reading í kvöld í æfingarleik sem leikinn verður fyrir luktum dyrum en Ívar hefur ekkert getað leikið með Reading síðan í janúar vegna hnémeiðsla. Ívar hóf að æfa á nýjan leik í síðsta mánuði og er allur að koma til og þarf nú bara að komast í leikform. 4.9.2009 15:30
Kuyt: Liverpool getur enn orðið meistari Framherjinn Dirk Kuyt er hvergi banginn þrátt fyrir að byrjun Liverpool í upphafi tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hafi verið talsvert undir væntingum en hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur eftir fjórar umferðir. 4.9.2009 13:30
Tevez og Messi byrja gegn Brasilíu Diego Maradona hefur staðfest að þeir Carlos Tevez og Lionel Messi verða saman í fremstu víglínu þegar að Argentína mætir Brasilíu í undankeppni HM 2010 annað kvöld. 4.9.2009 12:30
Capello hefur kennt Cole stundvísi Framherjinn Carlton Cole hjá West Ham hefur fengið að kenna á heraga þeim sem landsliðsþjálfarinn Fabio Capello heldur uppi þegar enska landsliðið hittist en Ítalinn er þekktur fyrir að vilja hafa hlutina á hreinu. 4.9.2009 12:00
Arsenal hefur áfrýjað tveggja leikja banni Eduardo Forráðamenn Arsenal hafa ekki farið leynt með að ákvörðun aganefndar UEFA um að dæma framherjann Eduardo Da Silva í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap hafi valdið sér vonbrigðum og knattspyrnustjórinn Arsene Wenger fer þar fremstur í flokki. 4.9.2009 11:00
Alves farinn til Katar Afonso Alves, Brasilíumaðurinn sem er dýrasti leikmaðurinn í sögu Middlesbrough, er farinn frá félaginu og genginn til liðs við félag í Katar. 4.9.2009 10:30
Robinho baðst undan því að spila með City - leikur Brasilíu mikilvægari Það vakti athygli margra á dögunum þegar að Brasilíumaðurinn Robinho var á varamannabekk Manchester City gegn Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni en þessi launahæsti leikmaður deildarinnar hefur nú útskýrt af hverju hann var ekki á sínum stað í byrjunarliðinu. 4.9.2009 10:00
Robben vorkennir Chelsea Arjen Robben, leikmaður Bayern München, vorkennir sínu gamla félagi, Chelsea. Það var í gær bannað að kaupa nýja leikmenn til félagsins þar til í janúar 2011. 4.9.2009 09:30
United á svipað mál og Chelsea yfir höfði sér Svo gæti farið að Manchester United verði dæmt í samskonar bann og Chelsea fékk frá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, í gær. 4.9.2009 09:00
Tottenham búið að næla sér í nýjan markvörð Þrátt fyrir að félagaskiptaglugganum hafi verið lokað á Englandi 1. september er liðum enn leyfilegt að semja við leikmenn sem eru fáanlegir á frjálsri sölu og voru ekki samningsbundnir þegar lokað var fyrir félgagaskiptin. 3.9.2009 23:45
Myhill framlengir við Hull Markvörðurinn Boaz Myhill hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Hull City til loka tímabilsins 2012. 3.9.2009 21:30
Rooney: Ég svindla ekki Wayne Rooney segir það alls ekki rétt að hann hafi verið með leikaraskap þegar hann fékk víti í leik Manchester United og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. 3.9.2009 19:15
Stærstu félög heims á eftir Bendtner Faðir Nicklas Bendtner segir að öll stærstu félög heims hafi verið á höttunum eftir syni sínum áður en hann ákvað að framlengja samninginn sinn við Arsenal. 3.9.2009 18:30
Dunne sár út í City Richard Dunne segist ekki ánægður með framkomu forráðamanna Manchester City við sig en hann var á dögunum seldur til Aston Villa. 3.9.2009 17:45
Usain Bolt segist hafa hjálpað United að komast á sigurbraut Usain Bolt hefur greint frá því að hann átti samtal við Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester United, eftir að liðið tapaði óvænt fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði. 3.9.2009 16:00
Berbatov lofar að bæta sig Búlgarinn Dimitar Berbatov hefur lofað að sýna hvað í sér býr í herbúðum Man. Utd. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur sýnt honum mikinn skilning og er duglegur við að lýsa því yfir að hann muni springa ut í vetur. 3.9.2009 14:30