Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sven-Göran lokkaði mig til City Ítalski framherjinn Rolando Bianchi segir að það hafi verið knattspyrnustjórinn Sven-Göran Eriksson sem náði að lokka sig til Manchester City frá Reggina á Ítalíu. Framherjinn er nú í læknisskoðun á Englandi og skrifar undir samning við félagið strax að henni lokinni. 12.7.2007 14:48
Alves vill ólmur fara til Chelsea Umboðsmaður bakvarðarins Daniel Alves hjá Sevilla hefur farið þess á leit við félagið að það lækki verðmiðann á leikmanninum svo hann geti farið til Chelsea eins og hann óski sér. Alves vill ólmur ganga til liðs við ensku bikarmeistarana en Sevilla er sagt heimta 20 miljónir evra fyrir hann. 12.7.2007 14:43
Sagna semur við Arsenal Arsenal gekk í dag frá kaupum á varnarmanninum Bakari Sagna frá franska félaginu Auxerre fyrir óuppgefna upphæð. Sagna hefur skrifað undir langtíma samning við Arsenal og er sagður geta spilað flestar stöður í vörninni sem og á miðjunni. Hann er 24 ára gamall og hefur unnið sér sæti í franska landsliðinu þó hann hafi enn ekki fengið að spila leik. 12.7.2007 14:39
Hertha samþykkir tilboð Tottenham í Boateng Þýska knattspyrnufélagið Hertha Berlín hefur samþykkt 5 milljón punda kauptilboð Tottenham í miðjumanninn Kevin-Prince Boateng. Boateng þessi hefur verið í herbúðum Hertha síðan hann var sjö ára gamall og er í U-21 árs liði Þjóðverja. Sevilla hefur einnig verið á höttunum eftir Boateng. 12.7.2007 14:33
Owen: Ég er ekki að fara frá Newcastle Framherjinn Michael Owen ítrekar að hann sé ánægður í herbúðum Newcastle og hefur lofað stuðningsmönnum félagsins að hann fari ekki frá því eins og skrifað hefur verið um í bresku blöðunum. 12.7.2007 13:11
Chris Baird til Fulham Norður-Írski landsliðsmaðurinn Chris Baird gekk í dag í raðir Fulham í ensku úrvalsdeildinni frá Southampton. Baird hafði verið á leið til liðs við Sunderland fyrir 3 milljónir punda, en hann kaus heldur að ganga í raðir Fulham þegar félagið hækkaði tilboð sitt á síðustu stundu. Baird mun því spila undir stjórn fyrrum landsliðsþjálfara síns Lawrie Sanchez á næstu leiktíð. 12.7.2007 13:07
Heinze stoltur yfir áhuga Liverpool Vinstri bakvörðurinn Gabriel Heinze hefur viðurkennt að hann sé stoltur yfir því að vera orðaður við Liverpool, en hann er líka spenntur yfir því að landsliðsfélagi hans hjá Argentínu, Carlos Tevez, sé hugsanlega á leið til Manchester United. Heinze skoraði í gær fyrsta mark Argentínu í 3-0 sigri á Mexíkó í undanúrslitum Suður-Ameríkukeppninni. 12.7.2007 09:32
Wilhelmsson á leið í ensku úrvalsdeildina? Sænski útherjinn Christian Wilhelmsson er nú sterklega orðaður við ensku úrvalsdeildina, en forseti Roma hefur tilkynnt að hann verði ekki áfram hjá félaginu. Wilhelmsson er leikmaður Nantes í Frakklandi en var í láni hjá Roma á síðustu leiktíð þar sem hann stóð sig prýðilega. Hann hefur nú verið orðaður við Manchester City á Englandi þar sem landi hans Sven-Göran Eriksson er orðinn knattspyrnustjóri. 11.7.2007 16:27
Ken Bates kaupir Leeds aftur Ken Bates verður áfram við stjórn hjá enska knattspyrnuliðinu Leeds United eftir að hafa unnið kapphlaupið um að kaupa liðið. Liðið féll úr næstefstu deild síðastliðið haust, eftir að hafa farið fram á greiðslustöðvun til að koma í veg fyrir gjaldþrot félagsins. 11.7.2007 14:52
Nugent til Portsmouth Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth gekk í dag frá kaupum á enska landsliðsframherjanum David Nugent frá Preston fyrir 6 milljónir punda. Nugent hefur skrifað undir fjögurra ára samning við úrvalsdeildarfélagið og stóðst læknisskoðun í morgun. Hann er 22 ára gamall og vann sér sæti í enska landsliðinu á síðustu leiktíð þrátt fyrir að leika utan úrvalsdeildarinnar. 11.7.2007 13:44
Mourinho: Pressan er öll á United Jose Mourinho vill lítið tjá sig um vasklega framgöngu keppinauta hans í Manchester United á leikmannamarkaðnum í sumar en segir að aukin umsvif félagsins í sumar geri ekkert annað en að auka pressuna á þá rauðu. 11.7.2007 11:55
Sunderland að kaupa Chopra Nýliðar Sunderland í ensku úrvalsdeildinni eru nú að leggja lokahönd á að ganga frá kaupum á framherjanum Michael Chopra frá Cardiff fyrir um 5 milljónir punda. Chopra spilaði um hríð með Newcastle og er 23 ára gamall. Hann skoraði 22 mörk fyrir Cardiff í Championship deildinni á síðustu leiktíð. 11.7.2007 11:52
Úrvalsdeildin hótar West Ham Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að enska úrvalsdeildin hafi nú hótað West Ham frekari refsingu í máli Carlos Tevez ef félagið fær ekki hverja einustu krónu af kaupverðinu - verði hann seldur til Manchester United. 11.7.2007 11:39
Robben: Samningaviðræðurnar ganga illa Hollenski landsliðsmaðurinn Arjen Robben segir samningaviðræður sínar við Chelsea ganga illa. Nýr fimm ára samningur hefur verið á borðinu um nokkurt skeið en á meðan var Chelsea að ganga frá kaupum á öðrum útherja, Florent Malouda. Robben hefur því eðlilega verið sagður á förum frá Chelsea og hefur Real Madrid verið kallað líklegasta félagið til að landa honum. 10.7.2007 23:15
Ljungberg í viðræðum við Fiorentina Arsenal og Fiorentina eru nú í viðræðum um hugsanlega sölu enska félagsins á sænska landsliðsmanninum Freddie Ljungberg. Umboðsmaður leikmannsins segir Ljungberg hugsanlega til í að fara til Ítalíu ef hann fái ásættanleg kjör. Ljungberg hefur verið á mála hjá Arsenal í níu ár og er þrítugur. 10.7.2007 22:30
Benayoun á leið til Liverpool Liverpool hefur komist að samkomulagi um kaup á miðjumanninum Yossi Benayoun frá West Ham að sögn umboðsmanns leikmannsins. Breska sjónvarpið segir kaupverðið vera um 4 milljónir punda. Benayoun er 25 ára gamall og er fyrirliði ísraelska landsliðsins. Hann hefur verið hjá West Ham síðan árið 2005 þegar hann kom frá Racing Santander á Spáni fyrir 2,5 milljónir punda. 10.7.2007 21:22
Gerrard: Við verðum að byrja vel í sumar Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að liðið verði að ná fljúgandi starti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili ef liðið ætli sér að vera með í baráttunni um titilinn. Metnaðurinn er mikill á Anfield í sumar og þar á bæ stefna menn á fyrsta titil liðsins síðan árið 1990. 10.7.2007 19:11
Ferguson ætlar að nota fleiri leikmenn Sir Alex Ferguson segist ætla að nota mun fleiri leikmenn hjá Manchester United á næstu leiktíð en hann gerði í fyrra til að dreifa álaginu í hópnum. United hefur eytt nærri 50 milljónum punda í leikmenn í sumar en Ferguson segist hafa búist við að sú tala yrði hærri. 10.7.2007 18:45
Arsenal að landa bakverði Samkvæmt fréttum frá Frakklandi í dag er enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal að landa bakverðinum Bakari Sagna frá Auxerre fyrir um 6 milljónir punda. Sagna þessi er sagður geta spilað báðar bakvarðarstöðurnar og var nýlega kallaður inn í franska landsliðshópinn. Sagt er að honum verði boðinn fimm ára samningur hjá Arsenal, en hann hefur verið eftirsóttur af mörgum liðum undanfarið. 10.7.2007 13:34
Carragher ver ákvörðun sína Varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool brást illa við í útvarpsviðtali í gær þegar hann var spurður hvort hann hefði hætt í landsliðinu af því hann væri búinn að gefast upp á að berjast fyrir sæti sínu. Hann segist hafa þurft að spila út úr stöðu meira og minna allan landsliðsferilinn. 10.7.2007 12:14
Babel kostar 1650 milljónir Tæknistjóri hollenska knattspyrnufélagsins Ajax segir að Liverpool verði að greiða 1650 milljónir ef það ætli sér að klófesta útherjann Ryan Babel. Félögin hafa verið í viðræðum undanfarna daga en fregnir herma að Liverpool hafi hækkað tilboð sitt frá því hollenska félagið neitaði upprunalegu 1200 milljóna tilboði í leikmanninn. 10.7.2007 11:29
City að kaupa ítalskan framherja Ítalska knattspyrnufélagið Reggina hefur gefið það út að félagið sé búið að ná grundvallarsamkomulagi við Manchester City á Englandi um að selja því framherjann Rolando Bianchi fyrir tæpar 9 milljónir punda. Bianchi er 24 ára gamall og varð fjórði markahæsti leikmaður A-deildarinnar á síðustu leiktíð með 18 mörk. Hann er fyrrum leikmaður U-21 árs liðs Ítala. 10.7.2007 11:24
Bellamy skrifar undir hjá West Ham Velski landsliðsmaðurinn Craig Bellamy hefur skrifað undir fimm ára samning við West Ham eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu. West Ham borgar Liverpool 7,5 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er það mesta sem að West Ham hefur borgað fyrir leikmann í sögu félagsins. 10.7.2007 10:31
Rooney fer á kostum í auglýsingu Enski landsliðsmaðurinn Wayne Rooney hjá Manchester United fer á kostum í nýrri auglýsingu sem komin er í loftið fyrir Nike íþróttavöruframleiðandann. Í auglýsingunni lætur hann hrokafullan amerískan leikstjóra finna til tevatnsins. Smelltu á hlekkinn í fréttinni til að sjá myndband af tilþrifunum. 9.7.2007 17:45
Kamara til Fulham Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham festi í dag kaup á senegalska sóknarmanninum Diomansy Kamara frá West Brom fyrir um 6 milljónir punda. Fulham hefur lengi verið á eftir framherjanum sem skoraði 23 mörk fyrir West Brom í Championship deildinni á liðinni leiktíð. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning og keppir við Heiðar Helguson um sæti í byrjunarliðinu á næstu leiktíð. 9.7.2007 17:13
Ferguson: Náum vonandi að landa Tevez fljótlega Sir Alex Ferguson segir að Manchester United muni væntanlega ná að landa framherjanum Carlos Tevez frá West Ham fljótlega. Hann segist helst vilja hafa klárað málið fyrir helgina síðustu, en reiknar með að enska úrvalsdeildin sé að tefja framgöngu málsins. 9.7.2007 15:27
Gallas sakar Arsenal um metnaðarleysi Franski varnarmaðurinn William Gallas hefur látið í ljós óánægju sína með störf forráðamanna Arsenal og sakar þá um metnaðarleysi í leikmannamálum. Gallas átti ekki sérlega góða leiktíð með Arsenal í fyrra eftir að hann kom frá Chelsea og er harðorður í garð vinnuveitenda sinna eftir söluna á Thierry Henry. 9.7.2007 15:00
Neville vonast til að ná heilsu Varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United segist vonast til þess að vera búinn að ná heilsu þegar boltinn byrjar að rúlla aftur í ensku úrvalsdeildinni í næsta mánuði. Neville meiddist illa á ökkla gegn Chelsea í enska bikarnum í mars. 9.7.2007 13:30
Anelka ætlar að vera áfram hjá Bolton Franski framherjinn Nicolas Anelka hefur lofað að vera áfram hjá Bolton í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa átt fund með knattspyrnustjóranum Sammy Lee. Hinn 28 ára gamli framherji hefur verið orðaður við brottför frá félaginu í marga mánuði, en segist nú ekki vera á förum. 9.7.2007 13:15
Liverpool er búið að bjóða í Ryan Babel Umboðsmaður hollenska útherjans Ryan Babel segir að Liverpool sé þegar búið að gera kauptilboð í leikmanninn. Babel fór á kostum með U-21 árs liði Hollendinga á Evrópumótinu á dögunum og hefur mikið verið orðaður við Arsenal. 9.7.2007 11:47
Mánudagsslúðrið á Englandi Bresku blöðin eru full af safaríku slúðri í dag eins og venjulega og þar er m.a. greint frá áformum Rafa Benitez á leikmannamarkaðnum og áframhaldandi áhuga Real Madrid á leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni. 9.7.2007 11:27
Heiðar áfram hjá Fulham? Samkvæmt Daily Mirror er framherjinn Diomansy Kamara ekki á leið til Fulham eins og talið hafði verið, heldur er hann á leiðinni til Eggerts Magnússonar og félaga í West Ham. Þetta gæti táknað að Heiðar Helguson verði áfram í Úrvalsdeildinni næsta vetur. 9.7.2007 09:49
Malouda til Chelsea Jean-Michel Aulas, forseti franska knattspyrnufélagsins Lyon, tilkynnti Reuters fréttastofunni nú fyrir stundu að félagið hefði samþykkti að selja franska landsliðsmanninn Florent Malouda til Chelsea. Malouda er kantmaður og var kjörinn knattspyrnumaður ársins í Frakklandi á síðustu leiktíð. 8.7.2007 18:33
Deilurnar voru Chelsea dýrkeyptar Peter Kenyon framkvæmdastjóri Chelsea, viðurkennir að deilur innan herbúða liðsins hafi verið því dýrkeyptar á síðustu leiktíð. Sagt var að Jose Mourinho knattspyrnustjóri og Roman Abramovich hefðu vart talast við á löngum köflum í fyrra, en Kenyon segir alla vera búna að grafa stríðsöxina. 8.7.2007 21:45
Newcastle sagt hafa áhuga á Raul og Deco Breska blaðið News of the World greindi frá því í dag að milljarðamæringurinn Mike Ashley, eigandi Newcastle, vildi ólmur kaupa stórstjörnur til félagsins. Hann er sagður hafa áhuga á að fá til sín miðjumanninn Deco frá Barcelona og gulldrenginn Raul frá Real Madrid. 8.7.2007 21:00
Átta tilboð á borðinu hjá Fowler Umboðsmaður framherjans Robbie Fowler hefur nóg að gera þessa dagana og segist vera með átta samningstilboð á borðinu fyrir leikmanninn. Fowler var látinn fara frá Liverpool í sumar og er því með lausa samninga. Félög á borð við Celtic og Rangers í Skotlandi, Sydney FC í Ástralíu og New England Revelution í MLS-deildinni eru sögð hafa áhuga á honum. 8.7.2007 20:30
Carragher að hætta með landsliðinu? Breska blaðið Mail on Sunday greinir frá því í dag að varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool hafi ákveðið að hætta að leika með enska landsliðinu í kjölfar þess að Steve McClaren valdi hann ekki í hóp sinn fyrir leikinn gegn Eistum á dögunum. 8.7.2007 18:15
Verðmiðinn á Curtis Davies er of hár Umboðsmaður varnarmannsins Curtis Davies hjá West Brom er ósáttur við vinnubrögð félagsins og segir það hafa sett allt of háan verðmiða á leikmanninn. West Brom vill fá 8 milljónir punda fyrir hinn efnilega varnarmann og því er útlit fyrir að ekkert verði af draumaskiptum hans í Tottenham. 8.7.2007 16:45
Torres: Fabregas lokkaði mig til Englands Spænski framherjinn Fernando Torres sem nýverið gekk í raðir Liverpool fyrir metfé, segir að félagi sinn Cesc Fabregas í spænska landsliðinu hafi sannfært sig endanlega um að flytja til Englands. Hann segist einnig hafa fengið tækifæri til að ganga í raðir Arsenal fyrir nokkrum árum. 8.7.2007 15:30
Liverpool íhugar að stækka nýja völlinn Tom Hicks, meðeigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir að félagið sé að íhuga alvarlega að hafa nýja knattspyrnuleikvang félagsins stærri en áformað var í fyrstu. Nýr völlur átti að taka 61,000 manns í sæti og hófust viðræður í því sambandi um leið og Hicks og George Gillett eignuðust félagið á sínum tíma. 8.7.2007 14:45
McCarty ætlar að virða samninginn við Blackburn Suður-Afríski framherjinn Benni McCarthy hjá Blackburn hefur lýst því yfir að hann vilji gjarnan komast til stærra félags á Englandi, en segist muni virða samning sinn við Blackburn ef ekkert gerist í hans málum í sumar. Hann hefur verið orðaður við Chelsea í nokkra mánuði. 8.7.2007 14:00
Enginn í treyju númer 14 hjá Arsenal Leikmenn Arsenal búa sig nú undir líf án Thierry Henry í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og enn sem komið er hefur enginn leikmaður fengið úthlutað treyju númer 14. Orðrómur er uppi um að númerið verði jafnvel tekið úr umferð hjá félaginu til að heiðra minningu eins besta leikmanns í sögu félagsins. 8.7.2007 13:24
Liverpool og Atletico berjast um Quaresma Breska blaðið News of the World segir að Liverpool og Atletico Madrid séu nú í miklu kapphlaupi við að landa vængmanninum Ricardo Quaresma frá Porto í Portúgal. Bæði félögin eru sögð hafa lagt fram formleg tilboð, en Porto er sagt vilja fá 20 milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla leikmann. Liverpool á að hafa boðið 14 milljónir punda í hann, en forráðamenn Porto segja það ekki nógu háa upphæð til að réttlæta að setjast að samningaborði. 8.7.2007 13:07
Tevez hefur lofað Ferguson að fara til United Argentínumaðurinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur lofað Sir Alex Ferguson að hann muni ganga í raðir Manchester United og ætlar að gera allt sem í valdi hans stendur til að af félagaskiptunum verði. Hann segist vilja fara frá West Ham því félagið hafi ekki vilja hafa hann áfram. 8.7.2007 12:50
Real staðfestir áhuga sinn á Fabregas Daginn eftir að umboðsmaður spænska miðjumannsins Cesc Fabregas hjá Arsenal sagði að hann færi ekki frá félaginu, hafa forráðamenn Real Madrid á Spáni nú lýst því yfir að þeir hafi mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir. 8.7.2007 12:45