Fleiri fréttir

Stóri-Sam orðaður við Blackburn

Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Sam Allardyce ákveðið að stytta sumarfrí sitt með fjölskyldunni. Ástæðan er sú að hann er líklega að fara að snúa aftur í fótboltann.

Beckham segir best fyrir Ronaldo að vera áfram

Stórstjarnan David Beckham hefur gefið Cristiano Ronaldo þau ráð að feta ekki í fótspor sín og yfirgefa Manchester United fyrir Real Madrid. Spænsku risarnir eru með Ronaldo efstan á óskalista sínum.

Chelsea vill líka fá Hughes

Sky fréttastofan hefur heimildir fyrir því að menn innan Chelsea vilji ráða Mark Hughes sem næsta knattspyrnustjóra liðsins. Hughes er efstur á óskalista Manchester City eins og við greindum frá í dag.

Pétur: Rökréttur sigur

Pétur Marteinsson átti skínandi góðan leik fyrir KR sem vann Fram, 2-0, á KR-vellinum í kvöld.

KR vann Fram í Vesturbæ

KR-ingar unnu 2-0 sigur á heimavelli sínum gegn Fram í kvöld. Björgólfur Takefusa kom KR yfir gegn Fram á 24. mínútu. Hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu. Guðjón Baldvinsson bætti öðru marki við í upphafi seinni hálfleiks.

Fyrsti sigur HK kom gegn Íslandsmeisturunum

HK fékk sín fyrstu stig í sumar þegar liðið vann sigur á Íslandsmeisturum Vals í hreint mögnuðum leik 4-2 í kvöld. Þetta var þriðji tapleikur Vals á tímabilinu.

Bodö/Glimt vann Lillestrøm

Birkir Bjarnason kom inn sem varamaður og lék síðustu fimm mínúturnar fyrir Bodö/Glimt sem vann 1-0 sigur á Lillestrøm í norsku úrvalsdeildinni. Sigurmarkið kom á 65. mínútu.

Ómögulegt að fá Ronaldo

Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segir að ómögulegt sé fyrir félagið að kaupa Cristiano Ronaldo í sumar. Ronaldo hefur sterklega verið orðaður við spænska stórliðið.

Cannavaro ekki með á EM

Varnarmaðurinn Fabio Cannavaro þurfti að yfirgefa völlinn á börum á æfingu ítalska landsliðsins í dag. Þetta var fyrsta æfing ítalska liðsins í Austurríki en Evrópumótið hefst um komandi helgi.

Lehmann á leið í Stuttgart

Þýska félagið Stuttgart er komið ansi nálægt því að krækja í markvörðinn Jens Lehmann. Stuttgart hefur verið á eftir honum síðan tilkynnt var að hann fengi ekki nýjan samning hjá Arsenal.

AC Milan reynir við Eto'o

Ítalska liðið AC Milan hefur staðfest að sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé helsta skotmark þess á leikmannamarkaðnum í sumar. AC Milan hefur verið sterklega orðað við Ronaldinho, félaga hans hjá Barcelona, en Carlo Ancelotti vill frekar fá Eto'o.

Mun Essien fylgja Mourinho til Inter?

Talið er að Michael Essien sé efstur á óskalista Jose Mourinho sem ráðinn hefur verið nýr þjálfari Inter. Mourinho mun fá mikinn pening til leikmannakaupa og talið er að hann geti fengið Essien fyrir um 25 milljónir punda.

Mourinho tekinn við Inter

Ítalíumeistarar Inter tilkynna á heimasíðu sinni að Jose Mourinho sé tekinn við stjórnartaumum liðsins. Þetta kemur ekki á óvart en Mourinho hefur verið sterklega orðaður við liðið síðan Roberto Mancini var rekinn.

Robinho segir United og Chelsea á eftir sér

Brasilíski landsliðsmaðurinn Robinho segist vera á óskalista ensku stórliðana Manchester United og Chelsea. Leikmaðurinn hefur verið þrjú ár hjá Real Madrid á Spáni en ekki unnið sér fast sæti í byrjunarliðinu.

Mark Hughes líklegastur til að taka við City

Manchester City hefur fengið leyfi frá Blackburn til að ræða við Mark Hughes um að taka við stöðu knattspyrnustjóra liðsins. Sven-Göran Eriksson var rekinn í morgun og er Hughes fyrsti kostur City.

Flamini í franska hópinn

Miðjumaðurinn Mathieu Flamini hefur verið kallaður upp í franska landsliðshópinn fyrir Evrópumótið. Ástæðan er sú að óvissa ríkir um þátttöku fyrirliðans Patrick Vieira sem á við meiðsli að stríða.

Átta stuðningsmenn Líberíu tróðust undir

Að minnsta kosti átta stuðningsmenn landsliðs Líberíu létust í gær þegar þeir tróðust undir í leik gegn Gambíu. Um var að ræða fyrsta leik Líberíu í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið 2010.

Eriksson hættur hjá Man City

Manchester City er búið að reka Sven-Göran Eriksson úr starfi knattspyrnustjóra. Sá sænski stýrði City til Evrópusætis á nýliðnu tímabili en fékk þau skilaboð frá eiganda liðsins, Thaksin Shinawatra, í apríl að ekki væri þörf á hans kröftum.

Boltavaktin á leikjum kvöldsins

Fimmtu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld þegar þrír leikir fara fram. Íþróttafréttamenn Vísis og Fréttablaðsins verða á öllum leikjunum og verða að vanda með beina lýsingu á Boltavaktinni.

Fyrsti sigur Þróttar og fyrsta tap Keflavíkur

Það voru ansi athyglisverð úrslit í Landsbankadeildinni í kvöld þegar Þróttur vann 3-2 sigur á Keflavík. Á sama tíma vann Breiðablik nýliða Fjölnis á útivelli.

Þriðja markið beint úr horni

Athyglisvert er að í fyrstu umferðum Landsbankadeildarinnar hafa þrjú mörk verið skoruð beint úr hornspyrnum. Peter Gravesen skoraði beint úr hornspyrnu gegn ÍA í kvöld en vindurinn hefur mikil áhrif á leikinn.

Fylkir sótti þrjú stig á Akranes

Fylkismenn unnu 3-2 sigur á ÍA á Akranesi í kvöld. ÍA er aðeins með fjögur stig úr fimm leikjum en Fylkismenn eru í fimmta sætinu.

Veigar lagði upp öll mörk Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson kom að öllum mörkum norska liðsins Stabæk sem vann 3-0 útisigur á Fredrikstad í norska boltanum í dag. Veigar var að vanda í byrjunarliði Stabæk og lagði upp öll mörkin.

Danmörk og Pólland gerðu jafntefli

Nú er innan við vika þar til Evrópumótið hefst. Landsliðin eru að undirbúa sig á fullu og fjöldi æfingaleikja fóru fram um helgina. Pólland og Danmörk gerðu jafntefli 1-1 í dag.

Sölvi á leið í danska boltann

Samkvæmt upplýsingum dönsku síðunnar bold.dk er íslenski varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen á leið til danska liðsins SønderjyskE. Liðið komst á dögunum upp í dönsku úrvalsdeildina.

Holland lagði Wales

Arjen Robben og Wesley Sneijder skoruðu mörk Hollands í 2-0 sigri á Wales í vináttulandsleik í dag.

Hiddink útilokar Chelsea

Guus Hiddink segir engar líkur á því að hann muni taka við knattspyrnustjórn Chelsea í sumar.

Brann komst í 3-1 en tapaði

Kristján Örn Sigurðsson skoraði eitt marka Brann er liðið tapaði 4-3 fyrir Molde á heimavelli eftir að hafa komist 3-1 yfir.

Boltavaktin á leikjum kvöldsins

Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild karla í kvöld og verður Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins með beinar lýsingar frá öllum leikjunum eins og venjan er.

Sjá næstu 50 fréttir