Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Portúgalar nær öruggir 8-liða úrslit Portúgalar eru komnir með annan fótinn í átta liða úrslitin á EM eftir 3-1 sigur á Tékkum í A-riðlinum í dag. Cristiano Ronaldo skoraði eitt mark og lagði annað upp fyrir portúgalska liðið. 11.6.2008 17:55
Barry vill fara til Liverpool Umboðsmaður miðjumannsins Gareth Barry hjá Aston Villa hefur nú staðfest að Barry hafi farið þess á leit við forráðamenn Villa að fá að fara til Liverpool í sumar. 11.6.2008 17:37
Jaaskelainen framlengir við Bolton Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen hefur samþykkt að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton. Sky greindi frá þessu í dag. 11.6.2008 17:31
Viðtal við Guðjón Þórðarson (myndband) Guðjón Þórðarson er enn inni í myndinni hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Hearts. Það mun hafa hrifið forráðamenn skoska félagsins að Terry Butcher, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins, væri inni í myndinni sem aðstoðarmaður Guðjóns. 11.6.2008 17:23
Zlatan skoraði síðast gegn Íslandi Glæsimark Zlatan Ibrahimovic fyrir sænska landsliðið gegn Grikkjum í gær var hans fyrsta landsliðsmark síðan hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri Svía á Íslandi í undankeppni HM árið 2005. 11.6.2008 16:30
Wilhelmsson úr leik á EM Christian Wilhelmsson mun ekki spila meira með sænska landsliðinu á EM í Austurríki og Sviss eftir að hann meiddist í leik Svía og Grikkja í gær. 11.6.2008 15:46
Hverfisslagur í austurhluta Reykjavíkur Einn leikur er í Landsbankadeild karla er Fjölnismenn taka á móti Fylki. „East Reykjavík Derby,“ segir Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis. 11.6.2008 15:14
Hörður í viðræðum við tvö félög Hörður Bjarnason á nú í viðræðum við tvö félög í Landsbankadeild karla en hann hætti nýverið hjá Víkingi. 11.6.2008 15:08
Huntelaar spenntur fyrir Real Madrid Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar segist vera afar spenntur fyrir því að ganga til liðs við Real Madrid. 11.6.2008 14:52
Donadoni sagður ætla gera fimm breytingar Roberto Donadoni hefur mátt þola mikla gagnrýni í ítölskum fjölmiðlum undanfarna daga eftir að Ítalir töpuðu 3-0 fyrir Hollandi á EM í fótbolta. 11.6.2008 14:34
Podolski óviss um framtíð sína hjá Bayern Þýski landsliðsmaðurinn Lukas Podolski segist ekki vera viss um hvort hann verði áfram í herbúðum Bayern Müchen. 11.6.2008 13:29
Gunnleifur Gunnleifsson í HK Það er vitanlega alkunna að Gunnleifur Gunnleifsson er á mála hjá HK - en nú eru þeir orðnir tveir. 11.6.2008 12:19
Get ekki sett hvern sem er inn Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, á í miklum vandræðum með að manna lið sitt fyrir næsta leik liðsins í Landsbankadeild karla. 11.6.2008 11:21
Ólafur dæmir á nýjan leik Ólafur Ragnarsson mun dæma leik Breiðabliks og FH í sjöundu umferð Landsbankadeildar karla. 11.6.2008 10:57
Eggert Gunnþór: Guðjón er góður þjálfari Eggert Gunnþór Jónsson kannaðist ekkert við áhuga Hearts á Guðjóni Þórðarson er Vísir hafði samband við hann. 11.6.2008 10:40
Enginn blaðamannafundur hjá Hearts Blaðamannafulltrúi Hearts sagði í samtali við Vísi í dag að það væri enginn blaðamannafundur á dagskrá hjá félaginu á morgun. 11.6.2008 09:59
Guðjón: Til í Hearts ef forsendur eru réttar "Ég get staðfest að það hefur verið leitað til mín og spurt hvort ég hafi áhuga á starfinu. Lengra er það nú ekki komið," segir Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, um fréttir skoskra miðla í morgun þess efnis að hann sé að taka við skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts. 11.6.2008 08:59
Guðjón sagður taka við Hearts Skoska blaðið Daily Record slær því upp í dag að Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna í Landsbankadeildinni, hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri skoska liðsins Hearts. 11.6.2008 08:48
Fjölnir hefur yfir gegn Fylki Nýliðar Fjölnis hafa yfir 1-0 gegn Fylki þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í Grafarvogi. Fylkismenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleiknum en heimamenn nýttu færi sín betur - skoruðu raunar úr eina markskoti sínu. 11.6.2008 20:08
ÍBV með fullt hús í 1. deild Það var nóg af mörkum í 1. deild karla í kvöld þegar sjötta umferðin fór fram. ÍBV er með fullt hús stiga en liðið vann góðan 4-1 útisigur á Víkingi í kvöld. 10.6.2008 22:00
Emre ekki meira með í riðlakeppninni Emre Belözoğlu, fyrirliði tyrkneska landsliðsins, leikur ekki síðustu tvo leiki liðsins í riðlakeppni Evrópumótsins. Emre á við meiðsli að stríða en Tyrkland mætir Sviss á morgun. 10.6.2008 20:41
Svíþjóð vann Grikkland Fyrstu umferð riðlakeppni Evrópumótsins lauk í kvöld með leik Evrópumeistara Grikklands og Svíþjóðar. Svíar unnu 2-0 sigur með mörkum Zlatan Ibrahimovic og Petter Hansson. 10.6.2008 20:31
Zico orðaður við Chelsea Brasilíumaðurinn Zico er orðaður við stöðu knattspyrnustjóra Chelsea. Þessi brasilíska goðsögn er hætt hjá tyrkneska liðinu Fenerbahce. Zico var orðaður við Manchester City en Mark Hughes tók við City í síðustu viku. 10.6.2008 19:30
KSÍ kom í veg fyrir sögulegan landsleik KSÍ kom í veg fyrir að feðgarnir Eiður Smári og Arnór Guðjohnsen léku saman í landsleik fyrir tólf árum að sögn fyrrverandi landsliðsþjálfara. Þetta er meðal þess sem fram kemur í heimildaþættinum 10 bestu á Sport 2 sjónvarpsrásinni í kvöld. 10.6.2008 18:35
Sjö leikmenn í Landsbankadeild dæmdir í bann Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fundaði nú síðdegis. Sjö leikmenn úr Landsbankadeildinni fengu leikbann, þar á meðal Stefán Þórðarson hjá ÍA sem var að fá sitt annað rauða spjald á tímabilinu og var því dæmdur í tveggja leikja bann. 10.6.2008 18:09
David Villa afgreiddi Rússa Spánverjar unnu Rússa í fyrsta leik D-riðils Evrópumótsins í dag. David Villa fór á kostum í leiknum og skoraði þrennu fyrir Spán í 4-1 sigri. 10.6.2008 17:51
Arsenal vann baráttuna um Ramsey Aaron Ramsey er á leið til Arsenal frá Cardiff en þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins. Manchester United og Everton voru einnig á eftir þessum efnilega sautján ára leikmanni. 10.6.2008 17:20
Aron Einar í viðræður við Coventry Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson er líklega á leið til Coventry sem leikur í ensku 1. deildinni. Hollenska liðið AZ Alkmaar hefur samþykkt tilboð frá enska félaginu í Aron. 10.6.2008 17:06
Löw í rónni yfir frammistöðu Hollands Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, segir að vissulega hafi Holland spilað vel í 3-0 sigrinum á Ítalíu - en ekki svo vel. 10.6.2008 16:29
Rozehnal semur við Lazio Lazio hefur gengið frá kaupum á tékkneska landsliðsmanninum David Rozehnal sem hefur verið í láni þar frá Newcastle síðan um áramótin. 10.6.2008 16:15
Eto'o útilokar að fara til Tottenham Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona, hefur útilokað að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham. 10.6.2008 14:45
Leikmaður Rúmeníu fluttur á sjúkrahús Ciprian Marica var í dag fluttur á sjúkrahús í Sviss eftir að hann hlaut höfuðáverka á æfingu rúmenska landsliðsins. 10.6.2008 14:15
Adolf fékk gat á lunga Adolf Sveinsson fékk gat á annað lungað í leik Fylkis og Þróttar í síðustu viku og er óvíst með batahorfur. 10.6.2008 13:37
Chelsea sagt hafa ráðið Scolari Enska dagblaðið Daily Mail heldur því fram í dag að félagið hafi ráðið nýjan knattspyrnustjóra í síðustu viku. Allt bendi til þess að það sé Luiz Felipe Scolari. 10.6.2008 11:47
Deco enn óákveðinn Deco, leikmaður portúgalska landsliðsins og Barcelona, er enn óákveðinn hvort hann vilji ganga til liðs við Chelsea eða Inter Milan. 10.6.2008 11:34
Benzema hrifinn af Real Madrid Franski landsliðsmaðurinn Karim Benzema hefur gefið til kynna að það myndi vekja áhuga hans að spila með Real Madrid í framtíðinni. 10.6.2008 11:25
Guðmundur fær markið (myndband) Guðmundur Steinarsson fær síðara mark sitt í leik Keflavíkur og KR skráð á sig en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni KR á leið í markið. 10.6.2008 11:08
United hefur engin sönnunargögn Roman Calderon, forseti Real Madrid, segir að Manchester United hafi engin sönnunargögn fyrir því að félagið hafi hagað sér ósæmilega í tengslum við áhuga þess á Cristiano Ronaldo. 10.6.2008 09:57
Markið hans Nistelrooy var löglegt Mörgum brá í brún þegar að dómarar leiks Ítalíu og Hollands á EM í gær leyfðu fyrsta marki leiksins, sem Ruud van Nistelrooy skoraði, að standa. 10.6.2008 09:27
Brann á eftir Rúrik Norska úrvalsdeildarliðið Brann er á eftir Rúrik Gíslasyni, leikmanni danska liðsins Viborg sem í vor féll úr dönsku úrvalsdeildinni. 10.6.2008 09:13
Afsökunarbeiðni frá Buffon Gianluigi Buffon, markvörður Ítalíu, hefur beðið ítalska stuðningsmenn afsökunar eftir frammistöðu liðsins gegn Hollandi í kvöld. Holland vann 3-0 en Buffon bar fyrirliðaband ítalska liðsins í leiknum. 9.6.2008 21:12
Domenech: Varnarleikur Rúmena var sterkur Frakkar gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik dauðariðilsins á EM í dag. Spilamennska franska liðsins olli miklum vonbrigðum. 9.6.2008 20:11
Hollendingar fóru illa með heimsmeistarana Holland vann Ítalíu 3-0 í dauðariðli Evrópumótsins í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur, hiklaust skemmtilegasti leikur mótsins til þessa. Hollenska liðið sýndi frábæra spilamennsku og að það er til alls líklegt á mótinu. 9.6.2008 19:56
Zoltan Gera til Fulham Zoltan Gera hefur ákveðið að yfirgefa West Bromwich Albion og ganga til liðs við Fulham. Þetta staðfestir knattspyrnustjóri WBA, Tony Mowbray. 9.6.2008 19:00
Thuram setti leikjamet Lilian Thuram setti met þegar hann lék með franska landsliðinu gegn Rúmeníu í dag. Þetta var fimmtándi leikur hans í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða en enginn annar leikmaður hefur leikið svo marga leiki á mótinu. 9.6.2008 18:24