Hollendingar fóru illa með heimsmeistarana Elvar Geir Magnússon skrifar 9. júní 2008 19:56 Holland vann sinn fyrsta sigur á Ítalíu í 30 ár í kvöld. Nistelrooy kom Hollandi á bragðið í kvöld.
Holland vann Ítalíu 3-0 í dauðariðli Evrópumótsins í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur, hiklaust skemmtilegasti leikur mótsins til þessa. Hollenska liðið sýndi frábæra spilamennsku og að það er til alls líklegt á mótinu. Jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en eftir því sem á hálfleikinn leið náðu Hollendingar meiri völdum. Þeir komust yfir á 26. mínútu þegar Ruud van Nistelrooy framlengdi skoti Wesley Sneijder í netið. Ítalir voru ekki sáttir með að Nistelrooy yrði ekki dæmdur rangstæður. Christian Panucci gerði það hinsvegar að verkum að Nistelrooy var réttstæður. Panucci lá meiddur fyrir aftan endamörkin en hafði ekki fengið leyfi dómarans til að yfirgefa völlinn og því enn talinn þátttakandi í leiknum. Sneijder bætti síðan öðru marki við fyrir Holland á 31. mínútu eftir frábæra sókn. Holland fékk hraða sókn og eftir skallasendingu frá Dirk Kuyt náði Sneijder að koma knettinum framhjá markverðinum Gianluigi Buffon. Buffon kom í veg fyrir að Holland væri þremur mörkum yfir í hálfleik þegar hann varði frábærlega frá Nistelrooy sem var í upplögðu færi. Í seinni hálfleik juku Ítalir sóknarleik sinn og fengu nokkur úrvals marktækifæri. Hinsvegar gekk þeim ekki að koma boltanum framhjá Edwin van der Saar, markverði Hollands, sem átti stórleik. Eftir eitt af þeim skiptum þar sem van der Saar varði vel komust Hollendingar í aðra hraða sókn og skoruðu þriðja markið. Aftur var það Kuyt sem lagði upp mark en nú fyrir Gio Van Bronkhorst sem skoraði með skalla á 79. mínútu og innsiglaði frábæran sigur Hollands.
Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira