Enski boltinn

Eto'o útilokar að fara til Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona.
Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona. Nordic Photos / AFP

Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona, hefur útilokað að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham.

Fjölmiðlar á Spáni hafa fullyrt að Eto'o sé á leið frá Barcelona en sjálfur hefur hann sagt að hann gæti vel hugsað sér að klára samninginn sinn hjá félaginu sem gildir í tvö ár til viðbótar.

En ef hann færi segir hann útilokað að ganga til liðs við Tottenham. „Ég vona að enskir stuðningsmenn fyrirgefi mér en Tottenham er félag sem er um miðja deild og ég þarf meira en það," sagði Eto'o í sjónvarpsviðtali.

Hann segist ekki geta útlokað að fara til Inter. „En ég vil ítreka að ég er enn á mála hjá Barcelona og hef ekki fundið fyrir neinum þrýstingi þar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×