Fótbolti

Thuram setti leikjamet

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lilian Thuram í leiknum í dag.
Lilian Thuram í leiknum í dag.

Lilian Thuram setti met þegar hann lék með franska landsliðinu gegn Rúmeníu í dag. Þetta var fimmtándi leikur hans í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða en enginn annar leikmaður hefur leikið svo marga leiki á mótinu.

Zinedine Zidane og Karel Poborsky áttu gamla metið en þeir léku fjórtán leiki í Evrópumótum. Thuram er 36 ára og hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna í fótboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×