Hverfisslagur í austurhluta Reykjavíkur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. júní 2008 15:14 Árbæingurinn Kristján Valdimarsson verður í banni er Fjölnir mætir Fylki í kvöld.
Einn leikur er í Landsbankadeild karla er Fjölnismenn taka á móti Fylki. „East Reykjavík Derby," segir Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis. „Þetta verður frábært enda Fjölnir með skemmtilegt og tilhlökkun að mæta þeim í Grafarvoginum," bætti Leifur við. Bæði lið töpuðu síðasta leik og vilja því koma sér aftur á beinu brautina með sigri í kvöld. Fylkismenn töpuðu fyrir Þrótturum á heimavelli í síðustu umferð, 3-2, eftir þrjá sigurleiki í röð. „Þetta var fyrst og fremst einbeitingarleysi af okkar hálfu," sagði Leifur. „Við vorum ekki merkilegir í fyrri hálfleik en komum okkur í ágæta stöðu í þeim síðari. En þá köstuðum við þessu frá okkur." Kristján Valdimarsson verður í banni í leiknum í kvöld en Leifur óttast ekki að hann sé að verða uppiskroppa með varnarmenn. „Nei, alls ekki. Það eru nokkrir leikmenn sem geta leyst stöðuna hans. Og þar að auki eru ellefu varnarmenn inn á vellinum." „En Fjölnismenn eru hættulegir þó svo að þeir hafi tapað þremur í röð. Ég sá þá á móti FH og þeir hefðu vel getað komið sér inn í þann leik en það féll ekki með þeim þá. Þeir eiga marga hættulega leikmenn sem geta breytt gangi leiksins." Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, óttast ekki að það sé komin lægð í Grafarvoginn eftir tapleikina þrjá. „Við erum spenntir fyrir leiknum í kvöld og þó svo að við myndum tapa óttast ég ekki að leikmenn missi sjálfstraustið. Við höfum lítið verið að hugsa um einhverja taphrinu og tökum einn leik fyrir í einu. En auðvitað vonast ég til að við komum okkur á rétta braut í kvöld." Fjölnir er nú á sínu fyrsta tímabili í efstu deild og hafa þessi lið aldrei mæst áður á þeim vettvangi. Þetta eru grannlið og svipuð í augum margra. „Þeir sem lítið þekkja til spyrja oft hvort ég sé ekki að þjálfa Fylki," sagði Ásmundur og hló. „En þetta er athyglisverður leikur fyrir margra hluta sakir."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira