Adolf fékk gat á lunga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2008 13:37 Adolf Sveinsson, leikmaður Þróttar.
Adolf Sveinsson, leikmaður Þróttar, fékk gat á annað lungað í leik Fylkis og Þróttar í síðustu viku og er óvíst með batahorfur. Hann segir í samtali við Vísi að þetta hafi verið mjög óþægileg reynsla. „Ég var tæklaður snemma í leiknum og lenti illa á bakinu," sagði Adolf en segir að hann hefði ekki orðið var við neitt alvarlegt þá. „Ég hef verið að horfa á upptöku af leiknum og ég virðist hafa verið lagi í 1-2 mínútur. En svo þegar ég byrja að hlaupa aftur þá verð ég strax alveg búinn á því." Adolf var skipt af velli strax á 21. mínútu leiksins. „Eftir að ég fór út af átti ég í vandræðum með að ná andanum og gat hreinlega ekki komið upp heilu orði. Ég var svo fluttur á sjúkrahús og náði að jafna mig frekar fljótlega." Honum var haldið á sjúkrahúsinu um kvöldið en fékk svo að fara heim um nóttina með þeim fyrirmælum að taka því afar rólega. „Ég má nánast ekkert gera. Næst á dagskrá er myndataka á föstudaginn þar sem ég fæ að vita næsta skref í málinu. Ég veit í raun ekkert hvað þetta þýðir, ég hef bæði heyrt að svona lagað gæti tekið stuttan eða langan tíma að jafna sig." Í ljós kom að Adolf fékk fjögurra sentimetra rifu á lungað sem féll þó ekki saman. „Það er vonast til þess að þetta lagist að sjálfu sér en það kemur betur í ljós á föstudaginn. En það er óhætt að segja að þetta hafi verið afar óþægileg reynsla." Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, sagði í samtali við Vísi að það væri vissulega slæmt að missa Adolf sem var í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum liðsins. „Við höfum annars verið frekar heppnir með meiðsli í vor. Sigmundur Kristjánsson hefur reyndar misst af upphafi mótsins en hann er byrjaður að æfa og gæti orðið klár eftir 2-3 vikur. Svo tognaði Carlos Bernal í leik með 23 ára liðinu í gær og verður ef til vill frá í 1-2 vikur. En þá er það upptalið."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira