Fleiri fréttir

Beckham flýgur 18 þúsund kílómetra á sex dögum

Það er ekki tekið út með sældinni að vera David Beckham. Ákvörðun hans um að spila áfram með enska landsliðinu eftir að hann fluttist til Bandaríkjanna er þegar farin að taka sinn toll. Þetta sést best á ferðaáætlun hans þessa vikuna sem Vísir er búinn að taka saman.

Ísland í 117. sæti á FIFA-listanum

Íslenska landsliðið í knattspyrnu heldur áfram frjálsu falli sínu á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Liðið er nú í 117. sæti listans ásamt Súdan og hefur aldrei verið eins lágt á listanum og nú. Liðið hefur fallið um átta sæti frá síðasta lista og 24 sæti frá áramótum.

West Ham vill fá Heinze

Íslendingafélagið West Ham reynir nú að krækja í argentínska varnarmanninn Gabriel Heinze sem vill ekkert frekar en að komast frá Manchester United. Ljóst er að hann fer ekki til Liverpool eftir að nefnd ensku úrvalsdeildarinnar úrskurðaði að félag hans réði hvert hann færi og það opnaði fyrir áhuga West Ham.

Jol fær 520 milljónir ef hann verður rekinn

Þrátt fyrir að forráðamenn Tottenham geri hvað þeir geta til að draga fjöður yfir þá staðreynd að þeir vilja losna við hollenska knattspyrnustjórann Martin Jol þá hafa þeir nú gengið frá drögum að starfslokasamningi Jol ef hann verður rekinn.

Nýtt leikkerfi prófað gegn Kanada

Ísland og Kanada mætast annað kvöld í vináttulandsleik á Laugardalsvelli en þetta er í fyrsta sinn sem liðin munu mætast í knattspyrnuleik. Ísland er í 107. sæti á styrkleikalista FIFA en Kanada í 52. sæti.

AC Milan byrjar án Ronaldo

Evrópumeistarar AC Milan þurfa líklega að byrja tímabilið á Ítalíu án sóknarmannsins Ronaldo. Þessi brasilíski snillingur á við meiðsli að stríða og hefur lítið sem ekkert getað æft undanfarnar vikur. Ólíklegt er að hann verði tilbúinn í slaginn á sunnudag þegar Milan mætir Genoa í fyrsta leik sínum á tímabilinu.

Viðræður um Yakubu standa yfir

Viðræður standa enn yfir milli Everton og Middlesbrough um sóknarmanninn Yakubu Aiyegbeni. Fréttir höfðu borist um að Everton væri búið að gefast upp á því að krækja í Yakubu en þær eru víst úr lausu lofti gripnar.

KR og Keflavík í úrslitaleikinn

Það verða KR og Keflavík sem munu mætast í úrslitaleik VISA-bikars kvenna sem fram fer á Laugardalsvelli 22. september. Undanúrslitaleikirnir fóru fram í kvöld en þar vann KR 7-3 sigur á Breiðabliki á útivelli og Keflavík vann Fjölni 3-1 á heimavelli sínum.

Shevchenko ekki í góðu formi

Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea er ekki í nægilega góðu formi til að spila heilan leik. Þetta segir Oleg Blokhin, landsliðsþjálfari Úkraínu, en hann kennir um mikilli bekkjarsetu Shevchenko hjá enska stórliðinu.

Newcastle bíður eftir boði í Martins

Newcastle United býst við að fá tilboð frá Manchester United í Obafemi Martins. Þessi ungi leikmaður er einn af fjölmörgum sóknarmönnum sem hafa verið orðaðir við ensku meistarana en liðið hefur aðeins skorað eitt mark í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku deildinni.

Olga komin með fjögur gegn Breiðabliki

Nú er hálfleikur í undanúrslitaleikjunum tveimur í VISA-bikar kvenna en þeir hófust klukkan 18. Olga Færseth hefur farið hamförum með KR sem er 4-1 yfir gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Í Keflavík hafa heimastúlkur 2-0 yfir gegn Fjölni.

Martin Jol áfram með Tottenham

Tottenham Hotspur hefur staðfest að Martin Jol verði áfram knattspyrnustjóri liðsins en haldinn var stjórnarfundur í dag. Framtíð Jol var talinn í óvissu og talað um að stjórn félagsins vildi fá Juando Ramos, þjálfara Sevilla, til starfa. Nú er hinsvegar ljóst að Jol verður áfram.

Ívar er ekki til sölu

Reading ætlar ekki að selja neinn af byrjunarliðsmönnum sínum áður en félagaskiptaglugganum lokar. Nokkur úrvalsdeildarlið hafa sýnt leikmönnum liðsins áhuga en þar á meðal er Everton sem vill fá til sín íslenska landsliðsmanninn Ívar Ingimarsson.

Sagna: Eboue er vanmetinn

Bacary Sagna, varnarmaður Arsenal, segir að hægri bakvörðurinn Emmanuel Eboue sé einn vanmetnasti leikmaðurinn í enska boltanum. Hann sparar ekki stóru orðin þegar hann talar um Eboue og segir að það sé frábært að spila með honum.

Fer Heinze til Spánar?

Manchester United hefur lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun stjórnar ensku úrvalsdeildarinnar um að neyða félagið ekki til að selja Gabriel Heinze til Liverpool. Nú er útlit fyrir að þessi 29 ára argentínski vinstri bakvörður fari í spænsku deildina en United hefur víst boðið leikmanninn til Real Madrid og Barcelona.

Ekki þörf fyrir Euell hjá Middlesbrough

Jason Euell er sár og svekktur eftir að honum var tjáð að hans væri ekki þörf hjá Middlesbrough og gæti farið að leita sér að nýju liði. Eitt ár er síðan Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, keypti Euell frá Charlton.

Richards hefur ekki skrifað undir

Varnarmaðurinn Micah Richards hefur enn ekki skrifað undir samning við Manchester City. Þessi bráðefnilegi varnarmaður sem er fæddur 1988 fékk nýjan samning í hendurnar í síðasta mánuði en hefur enn ekki skrifað nafn sitt undir hann.

Breyting á U21 landsliðshópnum

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir leikinn gegn Kýpur sem fram fer á morgun. Hallgrímur Jónasson úr Keflavík kemur inn í hópinn í stað Eggerts Gunnþórs Jónssonar, leikmanns skoska liðsins Hearts, sem er meiddur.

Real enn á eftir Robben

Spænska liðið Real Madrid heldur enn í vonina um að krækja í hollenska landsliðsmanninn Arjen Robben sem er á mála hjá Chelsea. Hans, faðir Arjen, segir að enn sé möguleiki á því að sonur sinn klæði sig í hvíta búninginn áður en lokað verði fyrir félagaskipti.

Guti undir smásjá City

Manchester City fylgist grannt með stöðu Guti hjá spænska stórliðinu Real Madrid. Guti var ekki í byrjunarliði Madrídarliðsins á sunnudaginn þegar það tapaði fyrir Sevilla í hinum árlega Super Copa leik. Hann er víst að skoða stöðu sína hjá Real Madrid þessa dagana.

Tottenham býður í Riquelme

Umboðsmaður argentínska miðjumannsins Juan Roman Riquelme segir að Tottenham hafi komið með tilboð í leikmanninn. Spænska liðið Villareal er tilbúið að selja Riquelme en leikmaðurinn eyddi seinni helmingi síðasta tímabils á lánssamningi hjá Boca Juniors í heimalandinu.

Johnson ekki með gegn Þýskalandi

Andy Johnson, sóknarmaður Everton, verður ekki með enska landsliðinu í vináttulandsleiknum gegn Þýskalandi á morgun. Hann er meiddur á hné og dregur sig því út úr hópnum. Þetta er enn eitt áfallið fyrir enska liðið en margir leikmenn geta ekki spilað vegna meiðsla.

Verður aldrei fullt á nýja Anfield?

Hjá Liverpool eru hugmyndir uppi um skilja 96 sæti alltaf eftir auð á nýjum leikvangi félagsins. Á það að vera til minningar um stuðningsmennina sem létu lífið á Hillsborough 1989. Það voru alls 96 aðdáendur Liverpool sem biðu bana þegar þeir krömdust upp við girðingu á undanúrslitaleik FA bikarsins gegn Nottingham Forest.

Undanúrslit VISA-bikars kvenna í kvöld

Í kvöld fara fram undanúrslit VISA-bikars kvenna og hefjast báðir leikir kvöldsins kl. 18:00. Á Kópavogsvelli er stórleikur milli Breiðabliks og KR en í Keflavík taka heimastúlkur á móti Fjölni.

Lazio vill fá Cudicini

Lazio hefur haft samband við Chelsea vegna markvarðarins Carlo Cudicini. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum vill Lazio fá Cudicini lánaðan. Argentínski markvörðurinn Juan Pablo Carrizzo fékk ekki ítalskt ríkisfang og því horfir Lazio til Cudicini.

Ronaldo: Nani má vera stoltur

Menn hafa misjafnar skoðanir á byrjun tímabilsins hjá portúgalska leikmanninum Nani og hefur hann fengið talsverða gagnrýni. Cristiano Ronaldo, liðsfélagi hans hjá Manchester United, segir þó að landi sinn geti verið mjög stoltur af því hvernig hann fer af stað með Englandsmeisturunum.

Er Anelka á förum?

Nicolas Anelka gæti yfirgefið herbúðir Bolton áður en félagaskiptaglugganum lokar. Þessi franski sóknarmaður hefur verið orðaður við Manchester liðin City og United eftir mjög slæma byrjun Bolton á tímabilinu. Einnig fylgist Lyon í heimalandi hans grannt með gangi mála.

Ekkert vandamál milli Jol og Berbatov

Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov segir að sögusagnir um slæmt samband hans við Martin Jol, knattspyrnustjóra sinn hjá Tottenham, séu ekki réttar. Talað hefur verið um að Jol vilji losna við Berbatov eftir að leikmaðurinn brást ókvæða við því að vera skipt af velli gegn Sundarland.

Heinze fer ekki til Liverpool

Enska knattspyrnusambandið úrskurðaði nú rétt í þessu að Manchester United bæri ekki skylda til að selja Argentínumanninn Gabriel Heinze til Liverpool. Heinze hefur haldið því fram að honum hafi verið lofað að fara frá Manchester ef viðunandi verð fengist fyrir hann. Manchester United neitar hins vegar að selja leikmanninn til keppinauta sinna. Við það vildi Heinze ekki una og knattspyrnusambandið því fengið til að úrskurða í málinu.

Eigandi Newcastle kannast ekki við kauptilboð frá Pálma Haraldssyni

Talsmaður eiganda enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle segir að aldrei hafi staðið til að selja knattspyrnuliðið. Hann segir engar samningaviðræður hafa átt sér stað við Pálma Haraldsson, athafnamann, og að eigendum hafi ekki borist neitt tilboð í félagið.

Ummæli vikunnar

Vísir hefur tekið saman nokkur af skemmtilegustu ummælunum sem látin hafa verið falla undanfarna viku í ensku úrvalsdeildinni. Benitez, Mourinho og Keane eru allir með munninn fyrir neðan nefið eins og sést af ummælum vikunar.

Ronaldo segir þriggja leikja bann fáránlegt

Cristiano Ronaldo hefur nú tjáð sig um þriggja leikja bannið sem hann fékk fyrir að skalla Richard Hughes, leikmann Portsmouth í síðustu viku. Og það er óhætt að segja að hann sé afar ósáttur. Alex Ferguson skammaði Ronaldo vegna atviksins og sektaði hann um viku laun. Ferguson sagði að Ronaldo yrði að læra að standast ögranir lakari leikmanna sem vildu koma honum úr jafnvægi.

Pálmi mun ekki kaupa Newcastle

Athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson ætlar ekki að kaupa enska úrvalsdeildarliðið Newcastle. Þetta staðfesti hann í samtali við blaðamann Vísis í morgun. Þar með er ljóst að hvorki hann né Jón Ásgeir Jóhannesson, sem báðir voru tengdir við möguleg kaup á félaginu um helgina, munu kaupa það.

Ég lofaði mömmu að kaupa ekki fótboltalið

Svo virðist vera að að það sé aðeins athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson sem sé að íhuga kaup á enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var orðaður við kaupin í fjölmiðlum á sunnudaginn, sagði í samtali við Vísi í gærkvöld að hann kæmi ekki nálægt kaupunum á Newcastle. "Ég lofaði mömmu að kaupa ekki fótboltalið," sagði Jón Ásgeir.

Mál Heinze leysist í fyrsta lagi á morgun

Mál argentíska varnarmannsins sterka, Gabriel Heinze, mun ekki leysast fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Heinze vill ólmur komast frá Manchester United til Liverpool en það vilja forráðamenn United ekki fallast á. Heinze flutti mál sitt frammi fyrir stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í dag þar sem hann sagði að sér hafi verið lofað að hann mætti fara ef tilboð upp á 6,8 milljónir punda bærist í hann.

Íslendingar á skotskónum í Svíþjóð

Stefán Þórðarson skoraði mark IFK Norrköping í 1-1 jafntefli gegn IF Sylvia í dag í næstefstu deild Svíþjóðar. Stefán spilaði allan leikinn í framlínunni en Garðar B. Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður. Norrköping er sem fyrr langefst í deildinni, eða með 15 stiga forskot á næstu lið. Þá skoraði Helgi Valur Daníelsson fyrir Östers IF í 1-1 jafntefli gegn Landskrona.

Mourinho segir enga leikara vera í Chelsea

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur byrjað enn eitt orðaskakið við kollega sinn hjá Liverpool, Rafa Benitez. Núna heldur hann því fastlega fram að enginn í liði hans sé með leikaraskap.

Bojnov spilar ekki meira á þessu ári

Forráðamenn Manchester City hafa staðfest það að framherjinn Valeri Bojinov verði frá vegna meiðsla næstu fimm mánuði vegna meiðsla. Bojinov var borinn af leikvelli í leiknum gegn Manchester United í gær og eftir skoðun kom í ljós að hann hefði slitið liðbönd í hnénu. Bojinov gekk til liðs við City fyrr í mánuðinum en talið er að hann muni ekki spila knattspyrnu fyrr en í fyrsta lagi í janúar.

Diouf vill yfirgefa Bolton

El-Hadji Diouf, framherji Bolton, segist vilja yfirgefa Bolton og ganga til liðs við félög sem eru með metnað til að spila í Meistaradeild Evrópu. Diouf segir að Bolton setji of háan verðmiða sig að það sé ástæðan fyrir því að hann sé ekki farinn nú þegar. Bolton vill fá tíu milljónir punda fyrir leikmanninn. Diouf segir að Tottenham, Celtic, Lyon og tveir aðrir klúbbar hafi gert tilboð í sig.

Gallas frá næstu þrjár vikur

William Gallas, fyrirliði Arsenal, verður hugsanlega frá í allt að þrjár vikur vegna meiðsla í nára sem hann hlaut í leiknum gegn Blackburn um helgina. Þessi þrítugi varnarmaður þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik eftir að hafa farið í tæklingu gegn Roque Santa Cruz.

Maður 3. umferðar: Micah Richards

Leikmaður helgarinnar er Micah Richards. Það er of langt mál að telja upp öll skiptin sem sóknaraðgerðir Manchester United strönduðu á Richards um helgina. Hann var sem klettur í vörninni ásamt reynsluboltanum Richard Dunne og gaf Tevez og félögum engin grið.

Bent, Hargreves, Campbell og Gerrard draga sig úr landsliðshópnum

Darren Bent, Sol Campbell, Steven Gerrard og Owen Hargreaves hafa allir dregið sig úr landsliðshóp Englands fyrir vináttuleikinn gegn Þjóðverjum á miðvikudaginn vegna meiðsla. Þessar fréttir eru áfall fyrir Steve McClaren, stjóra enska landsliðsins, en leikurinn er sá fyrsti á tímabilinu fyrir enska landsliðið.

Makelele framlengir við Chelsea

Franski miðjumaðurinn Claude Makelele og Chelsea hafa náð samkomulagi um að framlengja samning kappans um eitt ár sem gerir það að verkum að Makelele er nú samningsbundinn félaginu næstu tvö árin, en hann átti eitt ár eftir að samning sínum.

Valsstúlkur mæta Everton

Dregið hefur verið í milliriðla evrópukepppni félagsliða kvenna. Valsstúlkur voru í pottinum eftir frækilega frammistöðu þeirra í milliriðlum í Færeyjum fyrir skömmu. Milliriðlarnir verða leiknir í Belgíu en auk Vals eru Everton, Frankfurt og Rapide Wezemaal frá Belgíu í riðlinum. Leikið verður daganna 11. - 16. október.

Styles ekki með um næstu helgi

Dómarinn sem dæmdi leik Liverpool og Chelsea í gær verður hvíldur um næstu helgi vegna slakrar frammistöðu sinnar. Þetta staðfesti Keith Hackett, yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, nú rétt í þessu. Styles þótti standa sig afspyrnuilla í leiknum og dæmdi meðal annars umdeilda vítaspyrnu.

Sjá næstu 50 fréttir