Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Úrslit úr leikjum dagsins hér heima Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Toppliðin Valur og KR unnu sína leiki ásamt því að Fjölnir vann Keflavík. Einnig var heil umferð spiluð í 1. deild karla. 2.7.2007 22:17
Tevez-málið útkljáð á morgun? Síðdegis á morgun mun úrskurðarnefnd tilkynna úrskurð sinn í máli Sheffield United gegn West Ham. Eins og kunnugt er voru forráðamenn Sheffield United ósáttir við að ekki hafi verið dregin stig af West Ham fyrir að hafa staðið ólöglega að kaupunum á Argentínumanninum Carlos Tevez. 2.7.2007 20:03
Blackburn kaupir ungan hollending Forráðamenn Blackburn Rovers hafa staðfest að félagið sé búið að landa hollenska framherjanum Maceo Rigters frá NAC Breda. Ekki kemur fram hvert kaupverðið er en það er talið vera undir einni milljón punda vegna klásúlu sem Rigters var með í samningi sínum við félagið. 2.7.2007 19:25
Stefán skoraði eitt og lagði upp annað Stefán Þórðarson skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3-2 sigri Norrköping gegn Jönköpings Södra IF í dag. Stefán skoraði á 54. mínútu og kom liði sínu í 1-0. Hann lagði svo upp mark fyrir félaga sinn Bruno Santos á 64. mínútu og staðan var orðin 2-0. 2.7.2007 19:11
Djurgarden sigraði Gefle Lið Djurgarden, sem að Sigurður Jónsson stjórnar, sigraði í dag lið Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Leikurinn endaði 2-1 og var það Cardoso Nazaré Enrico sem skoraði bæði mörk Djurgarden. Sölvi Geir Ottesen var í byrjunarliði Djurgarden og krækti sér í gult spjald áður en honum var skipt út af á 69. mínútu. 2.7.2007 18:58
Luis Garcia nálgast Atletico Madrid Luis Garcia, miðjumaður Liverpool, er alveg að því kominn að skrifa undir samning við Atletico Madrid í heimalandi sínu. Umboðsmaður hans staðfestir þetta. „Við erum að vinna í því að Garcia fari frá Liverpool til Atletico," sagði hinn 29 ára umboðsmaður, Manuel Garcia Quillon við PA sport. 2.7.2007 16:26
Leikir dagsins hér heima Þrír leikir verða í kvöld í landsbankadeild kvenna. KR mætir ÍR, Fylkir tekur á móti Val og Keflavík mætir Fjölnisstúlkum á Fjölnisvelli. Heil umferð verður leikin í 1. deild karla. 2.7.2007 15:32
Arnór: Eiður vill sanna sig hjá Barca Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að sonur sinn ætli sér að berjast fyrir sæti sínu í liði fyrrverandi Evrópu- og Spánarmeistaranna í Barcelona. Mikið hefur verið talað um framtíð Eiðs Smára og virðast flestir telja að framtíð hans hjá Barcelona sé ráðin, sérstaklega eftir komu Thierry Henry frá Arsenal. 2.7.2007 14:55
KSÍ veitir viðurkenningar í Landsbankadeild kvenna KSÍ tilkynnti í dag um viðurkenningar fyrir 1.-6. umferð í Landsbankadeild kvenna. Valið hefur verið lið umferðanna, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn, auk þess sem Landsbankinn verðlaunaði besta stuðningsliðið. 2.7.2007 14:21
Fowler á milli starfa Robbie Fowler hefur viðurkennt að hann hafi ekki fengið nein tilboð eftir að hafa yfirgefið Liverpool í vor. Rafa Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, sá ekki ástæðu til að bjóða Fowler nýjan samning þrátt fyrir að hann hafi skorað 7 mörk á síðasta tímabili. 2.7.2007 14:11
Robinho með þrennu fyrir Brasilíu Brasilía náði í sín fyrstu stig í Suður-Ameríkukeppninni í kvöld þegar liðið sigraði Chile 3-0. Framherjinn Robinho, sem leikur með Real Madrid á Spáni, skoraði öll mörkin. 1.7.2007 23:17
O´Neill vill kaupa Wright-Phillips Martin O´Neill, framkvæmdastjóri Aston Villa, hefur endurnýjað áhuga sinn á enska landsliðsmanninum Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea. O´Neill reyndi að fá Wright-Phillips á lánssamningi í janúar en það samþykktu forráðamenn Chelsea ekki. Chelsea hefur gefið út að leikmaðurinn sé falur fyrir tíu milljónir punda. 1.7.2007 20:27
Kaká að biðja um að vera seldur til Real Madrid? Samkvæmt spænska dagblaðinu AN hefur brasilíski snillingurinn Kaká biðlað til AC Milan um að vera seldur til Real Madrid. Samkvæmt blaðinu hafði Kaká samband við Silvio Berlusconi rétt áður en hann fór í sumarfrí til New York. 1.7.2007 18:54
Veigar Páll skoraði í sigri Stabæk á Stromsgodset Íslenski landsliðsmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson skoraði eitt marka Stabæk í dag og lagði upp annað í 3-2 sigri á Stromsgodset. Veigar skoraði annað mark liðsins á 38. mínútu og kom Stabæk þá í 2-0. 1.7.2007 18:41
West Ham kaupir Faubert West Ham hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á franska landsliðsmanninum Julien Faubert fyrir 6,1 milljón punda frá Bordeaux. Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir 5 ára samning við félagið og er þar af leiðandi annar leikmaðurinn sem að Alan Curbishley, framkvæmdastjóri West Ham, fær til liðsins í sumar. 1.7.2007 17:18
Kamara samþykkir að fara til Fulham - Heiðar til W.B.A? Samkvæmt Skysports.com hefur Diomansy Kamara samþykkt að ganga til liðs við Fulham frá West Bromwich Albion. Fulham hefur verið á eftir leikmanninum síðasta mánuðinn og eftir að fyrsta tilboði þeirra var hafnað buðu þeir 4 milljónir punda auk þess að Heiðar Helguson myndi ganga til liðs við West Brom. 1.7.2007 16:43
Úrslit úr Suður-Ameríkukeppninni í gær Gestgjafarnir frá Úrúgvæ og Venesúela sigruðu í gær sinn fyrsta leik í Suður-Ameríkukeppninni. Í báðum leikjunum var þó mikið um dómaramistök og gróf brot. Úrúgvæ sigraði Bólivíu 1-0 á meðan Venesúela sigraði Perú 2-0, en þessi lið eru öll í A-riðli. 1.7.2007 16:06
Klinsmann hafnaði Chelsea í sumar Þýska goðsögnin Jürgen Klinsmann hefur sagt frá því að hann hafi hafnað tækifæri til að taka við Chelsea í sumar. Klinsmann hefur búið í Kaliforníu síðan hann kom þýska landsliðinu í undanúrslit á HM í Þýskalandi árið 2006. 1.7.2007 15:16
Lampard hafnar ofursamning frá Chelsea Samkvæmt heimildum News of the World hefur enski leikmaðurinn, Frank Lampard, hafnað risasamningstilboði frá Chelsea. Samkvæmt þessum heimildum hefði Lampard fengið hærri laun en Michael Ballack og Andriy Shevchenko, en þeir eru launahæstir hjá félaginu með 121 þúsund pund á viku. 1.7.2007 14:18
Hargreaves skrifar undir hjá United Owen Hargreaves hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Manchester United. Englandsmeistararnir staðfestu það í lok maí að félagið hefði náð samningum við Bayern Munchen um kaup á leikmanninum. Talið er að kaupverðið sé í kringum 17 milljónir punda. 1.7.2007 14:02
Reyes áfram hjá Real Madrid? Real Madrid hefur gefið það í skyn að félagið ætli sé að halda Jose Antonio Reyes hjá liðinu. Búist var við að félagið ætlaði ekki að kaupa leikmanninn þar sem að hann náði ekki að vinna sé inn sæti í byrjunarliðinu, en hann er í láni hjá Madrid frá Arsenal. 30.6.2007 21:24
Úrslit dagsins á Íslandi Þrír leikir voru spilaðir í 2. deild karla í dag. ÍH tapaði 0-2 fyrir Völsungi á heimavelli, Magni tapaði 1-3 fyrir Hetti á heimavelli og ÍR sigraði KS/Leiftur á ÍR vellinum. Í þriðju deild karla beið BÍ/Bolungarvík lægri hlut fyrir Kára á Akranesvelli, 3-0. 30.6.2007 20:54
Tveir leikir í Copa America í kvöld Tveir leikir fara fram í kvöld í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu. Bólivía mætir Úrúgvæ og Venesúela mætir Perú. Þessi lið eru í A-riðli. Perú eru efstir í riðlinum með 3 stig eftir einn leik. 30.6.2007 20:13
Valur úr leik Valur er úr leik í Intertoto keppninni þrátt fyrir að hafa sigrað Cork City á útivelli í dag, 0-1. Cork City sigraði Val á Laugardalsvellinum um síðustu helg og því enduðu leikar samanlagt 2-1. Helgi Sigurðsson skoraði markið á 20. mínútu. 30.6.2007 19:56
Real Madrid á eftir Robben Real Madrid hefur staðfest það að félagið hafi áhuga á að kaupa hollendinginn Arjen Robben frá Chelsea. Robben hefur sterklega verið orðaður við Spánarmeistarana síðustu viku. 30.6.2007 19:44
Valur yfir í hálfleik Helgi Sigurðsson er búinn að skora fyrir Val í síðari leik liðsins gegn Cork City í Intertoto keppninni. Valur tapaði 0-2 í fyrri leik liðanna sem átti sér stað í Laugardalsvellinum um síðustu helgi. Markið kom á 20 mínútu, en nú er komið hlé. 30.6.2007 18:55
Rúrik að yfirgefa Charlton Rúrik Gíslason er hugsanlega á leiðinni til danska liðsins Viborg en hann hefur verið þar til æfinga í viku. Rúrik hefur verið samningsbundinn Charlton síðustu ár, en Charlton sagði í tilkynningu að félagið ætlaði að losa sig við átta leikmenn í sumar, þar á meðal Rúrik. 30.6.2007 17:17
Soutgate vill fá Grétar Rafn Gareth Southgate, framkvæmdastjóri enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, hefur staðfest áhuga sinn á íslenska landsliðsmanninum Grétari Rafni Steinssyni. Southgate er að leita að hægri bakverði þar sem Abel Xavier og Stuart Parnaby eru farnir frá félaginu og Tony McMahon er meiddur. 30.6.2007 16:50
Martin Jol á eftir leikmönnum Chelsea Þrátt fyrir að hafa nú þegar eytt um 27 milljónum punda í leikmenn er Martin Jol, framkvæmdastjóri Tottenham, sagður vera að undirbúa tilboð í Shaun Wright-Phillips og Lassana Diarra. Þeir eru báðir leikmenn Chelsea, en hafa ekki fengið að spila mikið. 30.6.2007 15:17
Heiðar Helguson til W.B.A? Fulham hefur náð samkomulagi við West Bromwich Albion um kaup á framherjanum Diomansy Kamara. Ef að allt gengur í gegn mun Heiðar Helguson ganga til liðs við West Bromwich sem hluti af samningnum, en liðið spilar í næstefstu deild á Englandi. 30.6.2007 15:05
Valur spilar seinni leikinn við Cork City í dag Valur spilar seinni leikinn við Cork City í Intertoto keppninni í dag. Leikurinn fer fram á Írlandi og hefst hann klukkan 18:00. Valur tapaði fyrri leiknum 0-2 á Laugardalsvellinum um síðustu helgi. 30.6.2007 14:42
Forlan til Atletico Madrid Atletico Madrid er búið að tryggja sér þjónustu framherjans Diego Forlan frá Villareal. Talið er að kaupverðið sé í kringum 14 milljónir punda. Samkvæmt heimasíðu Atletico Madrid er Diego Forlan búinn að skrifa undir fjögurra ára samning. 30.6.2007 14:10
Of góður til að sitja á bekknum Fótbolti Helsti sérfræðingur Sky-sjónvarpsstöðvarinnar í enska boltanum, Andy Gray, vill að Eiður Smári yfirgefi herbúðir Barcelona og komi aftur til Englands. Hann segir ekkert vit vera í því fyrir Eið að hanga áfram á Spáni. 30.6.2007 02:45
Semur líklega við Viborg Allar líkur eru á því að Rúrik Gíslason semji við danska úrvalsdeildarfélagið Viborg um helgina. Á heimasíðu félagsins segir stjórnarformaðurinn að líklega verði samið við Rúrik. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Rúriks, sagði við Fréttablaðið í gær að um „alvöru tilboð“ væri að ræða og leiða má líkur að því að Rúrik semji við félagið. 30.6.2007 02:30
Toppliðin unnu Valur og KR halda áfram að stinga af í Landsbankadeild kvenna. Katrín Ómarsdóttir, Hrefna Huld Jóhannesdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu fyrir KR sem vann Stjörnuna 3-2. Ann Marie Heatherson skoraði bæði mörk Stjörnunnar. Þá vann Valur 3-0 sigur á Fjölnisstúlkum þar sem Dóra María Lárusdóttir skoraði tvö mörk og Nína Ósk Kristinsdóttir eitt. 30.6.2007 02:00
Útilokar ekki að koma aftur Sá leikmaður sem þótti skara fram úr í áttundu umferð Landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins er Casper Jacobsen, markvörður Breiðabliks. Hann var fenginn til liðsins eftir að Hjörvar Hafliðason meiddist fyrr í sumar og hefur Jacobsen staðið vaktina vel í hans fjarveru. 30.6.2007 01:45
Fjölnir lagði Grindavík Heil umferð var leikin í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnir lagði Grindavík í toppslag deildarinnar eftir glæsimark frá Tómasi Leifssyni. 29.6.2007 23:01
United fær atvinnuleyfi fyrir Anderson Manchester United hefur fengið atvinnuleyfi fyrir brasilíska miðjumanninn Anderson sem greiðir leiðina fyrir félagaskiptum hans frá Porto. Fyrri umsókn félagsins um atvinnuleyfi fyrir leikstjórnandann knáa var hafnað á þeim grundvelli að Anderson hefði ekki leikið nógu marga leiki fyrir brasilíska landsliðið eins reglur kveða á um. 29.6.2007 16:48
Abidal fjórði Frakkinn hjá Barcelona Spænska liðið Barcelona, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, gekk í dag frá kaupum á franska landsliðsmanninum Eric Abidal frá franska liðinu Lyon. 29.6.2007 14:42
Shell-mót sett í Eyjum í gærkvöld Hið árlega Shellmót ÍBV í knattspyrnu, fyrir 9 og 10 ára drengi, hófst í Vestmannaeyjum í gær. Hátt í eitt þúsund drengir hófu keppni í gærmorgun en vegleg setningarhátíð fór fram í gærkvöldi. 29.6.2007 13:00
KR og Keflavík fengu norræna mótherja í UEFA-keppninni KR-inga og Keflvíkinga bíður erfitt verkefni í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu eftir að dregið var í fyrstu umferð keppninnar í dag. KR mætir sænska liðinu Häcken og bikarmeistarar Keflavíkur mæta danska liðinu Midtjylland. 29.6.2007 12:16
FH fær HB í undankeppni Meistaradeildar Evrópu FH-ingar fá að kljást við HB frá Færeyjum í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Ef þeir vinna það einvígi munu þeir keppa við APOEL frá Kýpur eða BATE frá Hvíta-Rússlandi í annarri umferð undankeppninnar. Fyrri leikurinn fer fram annað hvort 17. eða 18. júlí og síðari leikurinn þann 24. eða 25. sama mánaðar. 29.6.2007 11:56
Newcastle sagt falast eftir Eiði Smára Enskir miðlar greina frá því að Sam Allardyce, nýr knattspyrnustjóri Newcastle, sé nú staddur í Barcelona þar sem hann reyni að tryggja sér starfskrafta Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu. 29.6.2007 11:51
Darren Bent til Tottenham Darren Bent er kominn til Tottenham fyrir 16,5 milljón punda. Þetta var staðfest í morgun. Bent er 23 ára og hefur spilað fyrir Charlton síðastliðin ár. Hann á tvo landsleiki að baki fyrir England. Bent hafnaði því nýverið að fara til Íslendingafélagsins West Ham. 29.6.2007 10:05
Loksins sigur hjá KR KR-ingar unnu langþráðan sigur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld þegar þeir lögðu Framara 2-1 í Frostaskjóli. Hjálmar Þórarinsson kom Fram yfir í fyrri hálfleik með góðu skoti en Jóhann Þórhallsson jafnaði fyrir KR á 79. mínútu. Þar á undan hafði Stefán Logi Magnússon markvörður KR varið vítaspyrnu frá Hjálmari Þórarinssyni. 28.6.2007 20:56