Fleiri fréttir Andrew Bretaprins afhenti Ragnari bikarinn Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar vann í dag Duke of York golfmótið sem fór fram á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Ragnar Már hafði betur gegn Englendingnum Max Orrin og Katja Pogacar frá Slóveníu í bráðabana um sigurinn en þeir léku öll á 225 höggum eða níu höggum yfir pari. 13.9.2012 17:46 Tap gegn Ungverjum í hundraðasta landsleik Dagnýjar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði stórt fyrir Ungverjum í dag, 21-35, í fyrsta leik liðsins á æfingarmóti í Tékklandi. Staðan í hálfleik var 20-15 Ungverjum í vil. Íslenska liðið spilar við Slóvakíu á morgun og mætir svo Tékkum á laugardaginn. 13.9.2012 17:41 Kolarov er klár í að taka á Ronaldo Serbneski varnarmaðurinn Aleksandar Kolarov hjá Man. City bíður spenntur eftir leiknum gegn Man. City á þriðjudag. Hann er sérstaklega spenntur fyrir því að glíma við Cristiano Ronaldo. 13.9.2012 17:15 Wenger: Sagna elskar Arsenal Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur engar áhyggjur af upphlaupi Bacary Sagna en leikmaðurinn sagðist vera mjög ósáttur við söluna á Van Persie og Song. 13.9.2012 16:30 Moutinho: Upp með mér yfir áhuga Tottenham Portúgalski miðjumaðurinn Joao Moutinho segist vera upp með sér yfir áhuga Tottenham á sér enda sé Andre Villas-Boas einn besti þjálfari Evrópu að hans mati. 13.9.2012 15:45 Kolbeinn: Erfitt að taka þessu Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður Ajax og íslenska landsliðsins, segir að það verði skelfilegt fyrir sig að vera á hliðarlínunni næstu mánuðina. Í dag var greint frá því að hann verði frá næstu fjóra mánuðina vegna axlarmeiðsla. 13.9.2012 15:15 Birgir Leifur lék á pari vallar í Kasakstan Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék á pari vallar á fyrsta keppnisdegi á Áskorendamótaröð Evrópu í dag. Að þessu sinni er keppt í Kasakstan en Birgir er í 86.-101 sæti en alls eru 141 keppendur á mótinu. Birgir fékk skolla (+1) á 3., og 4. braut en hann náði þeim höggum til baka með fuglum (-1) á 9. gg 10. braut. Bandaríski kylfingurinn Peter Uhlein er efstur á -9 en hann lék á 63 höggum í dag. 13.9.2012 13:59 Savage: Velska liðið er aðhlátursefni Fyrrum miðjumaður velska landsliðsins, Robbie Savage, sparar ekki stóru orðin í garð fyrrum félaga sinna í landsliðinu. Hann segir þá vera hlægilega. 13.9.2012 12:00 McClean: Hagaði mér heimskulega á Twitter Írski landsliðsmaðurinn James McClean hefur viðurkennt að uppþot hans á Twitter hafi verið heimskulegt. McClean var ekki í írska liðinu í fyrsta leiknum í undankeppni HM og lét reiði sína í ljós á Twitter. 13.9.2012 11:15 Hazard: Er ekki að reyna að vera stjarna Belginn ungi, Eden Hazard, hefur slegið í gegn hjá Chelsea í upphafi leiktíðar og lofar verulega góðu. Hann segist þó ekki vera að reyna að vera einhver stjarna heldur sé hann liðsmaður sem sé þó til í að stíga upp ef á þarf að halda. 13.9.2012 09:45 Veiðitölur LV: Yfir 100 laxar í Norðurá Fjórar ár skiluðu ríflega 100 laxa viku að þessu inni. Athygli vekur að Norðurá er ein þeirra en þar veiddust 103 laxar í síðust viku. Lítið kraftaverk í Aðaldalnum. 13.9.2012 20:19 Ragnar Már sigraði á Duke of York mótinu eftir bráðabana Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, sigraði í dag á Duke of York mótinu sem fram fór á hinum þekkta Royal Troon vellinum í Skotlandi. Mótið er gríðarlega sterkt alþjóðlegt móti fyrir unga áhugakylfinga og hafði Ragnar betur á þriðju holu í bráðabana gegn þeim Max Orrin frá Englandi og Katja Pogacar frá Slóveníu, en á þessu móti keppa stúlkur og drengir í sameiginlegum flokki. Kylfingur.is greinir frá. 13.9.2012 16:05 17 punda hrygna í Miðdalsá 13.9.2012 15:07
Sjá næstu 50 fréttir
Andrew Bretaprins afhenti Ragnari bikarinn Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar vann í dag Duke of York golfmótið sem fór fram á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Ragnar Már hafði betur gegn Englendingnum Max Orrin og Katja Pogacar frá Slóveníu í bráðabana um sigurinn en þeir léku öll á 225 höggum eða níu höggum yfir pari. 13.9.2012 17:46
Tap gegn Ungverjum í hundraðasta landsleik Dagnýjar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði stórt fyrir Ungverjum í dag, 21-35, í fyrsta leik liðsins á æfingarmóti í Tékklandi. Staðan í hálfleik var 20-15 Ungverjum í vil. Íslenska liðið spilar við Slóvakíu á morgun og mætir svo Tékkum á laugardaginn. 13.9.2012 17:41
Kolarov er klár í að taka á Ronaldo Serbneski varnarmaðurinn Aleksandar Kolarov hjá Man. City bíður spenntur eftir leiknum gegn Man. City á þriðjudag. Hann er sérstaklega spenntur fyrir því að glíma við Cristiano Ronaldo. 13.9.2012 17:15
Wenger: Sagna elskar Arsenal Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur engar áhyggjur af upphlaupi Bacary Sagna en leikmaðurinn sagðist vera mjög ósáttur við söluna á Van Persie og Song. 13.9.2012 16:30
Moutinho: Upp með mér yfir áhuga Tottenham Portúgalski miðjumaðurinn Joao Moutinho segist vera upp með sér yfir áhuga Tottenham á sér enda sé Andre Villas-Boas einn besti þjálfari Evrópu að hans mati. 13.9.2012 15:45
Kolbeinn: Erfitt að taka þessu Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður Ajax og íslenska landsliðsins, segir að það verði skelfilegt fyrir sig að vera á hliðarlínunni næstu mánuðina. Í dag var greint frá því að hann verði frá næstu fjóra mánuðina vegna axlarmeiðsla. 13.9.2012 15:15
Birgir Leifur lék á pari vallar í Kasakstan Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék á pari vallar á fyrsta keppnisdegi á Áskorendamótaröð Evrópu í dag. Að þessu sinni er keppt í Kasakstan en Birgir er í 86.-101 sæti en alls eru 141 keppendur á mótinu. Birgir fékk skolla (+1) á 3., og 4. braut en hann náði þeim höggum til baka með fuglum (-1) á 9. gg 10. braut. Bandaríski kylfingurinn Peter Uhlein er efstur á -9 en hann lék á 63 höggum í dag. 13.9.2012 13:59
Savage: Velska liðið er aðhlátursefni Fyrrum miðjumaður velska landsliðsins, Robbie Savage, sparar ekki stóru orðin í garð fyrrum félaga sinna í landsliðinu. Hann segir þá vera hlægilega. 13.9.2012 12:00
McClean: Hagaði mér heimskulega á Twitter Írski landsliðsmaðurinn James McClean hefur viðurkennt að uppþot hans á Twitter hafi verið heimskulegt. McClean var ekki í írska liðinu í fyrsta leiknum í undankeppni HM og lét reiði sína í ljós á Twitter. 13.9.2012 11:15
Hazard: Er ekki að reyna að vera stjarna Belginn ungi, Eden Hazard, hefur slegið í gegn hjá Chelsea í upphafi leiktíðar og lofar verulega góðu. Hann segist þó ekki vera að reyna að vera einhver stjarna heldur sé hann liðsmaður sem sé þó til í að stíga upp ef á þarf að halda. 13.9.2012 09:45
Veiðitölur LV: Yfir 100 laxar í Norðurá Fjórar ár skiluðu ríflega 100 laxa viku að þessu inni. Athygli vekur að Norðurá er ein þeirra en þar veiddust 103 laxar í síðust viku. Lítið kraftaverk í Aðaldalnum. 13.9.2012 20:19
Ragnar Már sigraði á Duke of York mótinu eftir bráðabana Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, sigraði í dag á Duke of York mótinu sem fram fór á hinum þekkta Royal Troon vellinum í Skotlandi. Mótið er gríðarlega sterkt alþjóðlegt móti fyrir unga áhugakylfinga og hafði Ragnar betur á þriðju holu í bráðabana gegn þeim Max Orrin frá Englandi og Katja Pogacar frá Slóveníu, en á þessu móti keppa stúlkur og drengir í sameiginlegum flokki. Kylfingur.is greinir frá. 13.9.2012 16:05
Cahill: Er á byrjunarreit með landsliðinu Miðvörður Chelsea, Gary Cahill, viðurkennir að hann sé aftur kominn á byrjunarreit eftir mikið mótlæti síðustu mánuði. Hann missti af EM í sumar eftir að hann kjálkabrotnaði og hann hefur í kjölfarið dottið niður goggunarröðina hjá landsliðinu. 13.9.2012 15:00
Fabregas: Ég er ekki heimskur Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas segist ekki vera neinn vitleysingur og hann hafi vel gert sér grein fyrir því að hans biði mikil barátta um sæti í Barcelona-liðinu. 13.9.2012 14:15
Zlatan: PSG getur unnið Meistaradeildina Sjálfstraustið er í botni hjá Svíanum Zlatan Ibrahimovic eins og venjulega. Hann segir að það sé aðeins tímaspursmál hvenær hans nýja félag, PSG, verði orðið eitt besta liðið í Meistaradeildinni. 13.9.2012 13:30
Kolbeinn á leið í aðgerð | Frá í fjóra mánuði Hollenska félagið Ajax og íslenska landsliðið varð fyrir miklu áfalli í dag þegar staðfest var að Kolbeinn verður frá keppni næstu fjóra mánuðina. Þetta er enn eitt höggið sem hinn óheppni Kolbeinn fær. 13.9.2012 13:01
Owen er klár í bátana Framherjinn Michael Owen segist vera orðinn klár í að spila sinn fyrsta leik fyrir Stoke City þó svo hann sé ekki fullkomlega sáttur við standið á sér. 13.9.2012 12:45
Reina mun heiðra samning sinn við Liverpool Spænski markvörðurinn Pepe Reina hefur farið óvenju illa af stað í markinu hjá Liverpool í vetur og sögusagnir um að það eigi að selja hann voru fljótar í gang. 13.9.2012 10:30
Wenger fær nýjan samning hjá Arsenal Arsenal hefur alls ekki gefist upp á Arsene Wenger þó svo titlarnir séu ekki að koma í hús. Arsenal ætlar nú að bjóða Wenger nýjan samning en núverandi samningur rennur út árið 2014. 13.9.2012 09:10
Íslenska landsliðið er enn efst á lista Arons Framherjinn Aron Jóhannsson vakti á dögunum mikla athygli þegar hann skoraði sex mörk í aðeins tveimur leikjum með AGF í dönsku úrvalsdeildinni. Í fyrri leiknum skoraði hann þrennu á tæpum fjórum mínútum sem er met. Afrek hans vöktu víða athygli, ekki síst í Bandaríkjunum þar sem Aron er fæddur. 13.9.2012 07:00
Utan vallar: Upp með hausinn og áfram gakk! Íslenskir knattspyrnuáhugamenn eru búnir að fara allan tilfinningaskalann síðustu daga. Fyrst vannst frábær sigur á Norðmönnum, sem hleypti mestu bjartsýnismönnum á mikið flug, en í kjölfarið fylgdi skellur á Kýpur sem kom öllum niður á jörðina. Þó svo tapið gegn Kýpur hafi verið sárt og leikurinn hreinasta hörmung hjá íslenska liðinu þá eru knattspyrnuáhugamenn almennt jákvæðir fyrir íslenska liðinu. Það er líka full ástæða til. 13.9.2012 06:00
Nýjasta NBA-höllin er tilbúin í Brooklyn NBA-körfuboltaliðið New Jersey Nets er nú orðið að Brooklyn Nets og spilar því ekki lengur heimaleiki sína í New Jersey heldur í Brooklyn í New York. Nýjasta NBA-höllin er Barclays Center í Brooklyn og hún er líka tilbúin. 12.9.2012 23:30
Framherji Southampton keyrði fullur og missti ökuskirteinið í ár Framherji Southampton, Guly do Prado, þarf að fá fær á æfingar hjá félögum sínum næsta árið enda búinn að missa ökuskírteinið sitt í heilt ár. 12.9.2012 23:00
Ewing móðgaður út í sitt gamla félag Patrick Ewing er sármóðgaður út í sitt gamla félag, NY Knicks, eftir að félagið bauð honum að þjálfa D-deildarfélag sitt, Eerie BayHawks. 12.9.2012 22:30
Snæfellskonur eru til alls líklegar í vetur - myndir Kvennalið Snæfells vann 30 stiga útisigur á Fjölni í kvöld, 92-62, í fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum en stelpurnar hans Inga Þórs Steinþórssonar eru til alls líklegar í kvennakörfunni í vetur. 12.9.2012 22:18
Fyrrverandi forseti Barcelona kemur til varnar Cristiano Ronaldo Joan Laporta, fyrrverandi forseti Barcelona, hefur komið til varnar Portúgalann Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid en mikið hefur verið rætt og skrifað um óánægju Ronaldo hjá spænsku meisturunum. Ronaldo kveikti reyndar undir þeirri umræðu með því að fagna ekki mörkum sínum í síðasta leik hans með Real Madrid. 12.9.2012 22:00
Lengjubikar kvenna í körfu: Útisigrar hjá Snæfelli, KR og Val Snæfell, KR og Valur unnu öll örugga útisigra í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell vann Fjölni með 30 stigum í Grafarvogi, KR vann Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur með 11 stigum í Ljónagryfjunni og Valur vann 34 stiga sigur á Hamar í Hveragerði. Öll þessi þrjú lið voru að leika sína fyrstu leiki í keppninni sem hófst um síðustu helgi. 12.9.2012 20:59
Redknapp bíður eftir rétta starfinu Lífið lék við knattspyrnustjórann Harry Redknapp síðasta vetur. Hann var á flugi með Tottenham og sterklega orðaður við enska landsliðið. Í dag hefur hann ekkert að gera. 12.9.2012 20:30
Öruggt hjá Kiel en Flensburg gerði jafntefli og Magdeburg tapaði Kiel vann léttan ellefu marka sigur á GWD Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en það gekk ekki alveg eins vel hjá hinum Íslendingaliðunum, SG Flensburg-Handewitt og Magdeburg. Flensburg tókst þó að tryggja sér jafntefli í lokin en tapaði engu að síður fyrsta stigi sínu á tímabilinu. 12.9.2012 20:00
Tilboð á leiðinni frá Juventus í Walcott Ítölsku meistararnir í Juventus eru enn að skoða Theo Walcott, leikmann Arsenal, og er talið líklegt að félagið geri 10 milljón punda tilboð í leikmanninn í janúar. 12.9.2012 19:30
Einar Ingi hafði betur gegn Óskari Bjarna Einar Ingi Hrafnsson hafði betur í Íslendingaslagnum á móti Viborg HK í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en þarna voru nágrannar að mætast. Einar Ingi og félagar í Mors-Thy fengu frábæran stuðning á pöllunum og unnu að lokum fimm marka sigur, 25-20. 12.9.2012 19:12
Íslendingaliðin öll á sigurbraut í sænska handboltanum í kvöld Íslendingaliðin Eskilstuna Guif, Kristianstad, Hammarby og Alingsås unnu öll sína leiki í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar sem fór fram í kvöld. 12.9.2012 19:00
Füchse Berlin tapaði fyrstu stigunum í vetur Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en Berlínarliðið gerði þá 27-27 jafntefli á heimavelli á móti á MT Melsungen. Füchse Berlin var búið að vinna fjóra fyrstu leiki sína á tímabilinu. 12.9.2012 18:40
Brasilíumenn mæta á Wembley í febrúar Englendingar halda upp á 150 afmæli knattspyrnusambandsins á næsta ári og hluti af hátíðarhöldunum verður að fá Brasilíumenn í heimsókn á Wembley. Enska sambandið tilkynnti í dag að England og Brasilía munu leika vináttulandsleik í febrúar. 12.9.2012 18:00
Ágúst tók Hilmar með sér út til Tékklands A-landslið kvenna í handbolta fór í morgun út til Tékklands þar sem stelpurnar okkar taka þátt í fjögurra landa móti ásamt Slóvakíu, Tékklandi og Ungverjalandi. Ágúst Þór Jóhannsson valdi sextán manna hóp og tók líka með sér nýjan aðstoðarmann. 12.9.2012 17:30
Arsenal sýnir Drogba áhuga Didier Drogba gæti verið á leið aftur í enska boltann en honum líður víst ekki nógu vel í Kína og svo eru ekki allir stjórnarmenn ánægðir með ofurlaunin hans. 12.9.2012 17:00
Valskonur unnu fyrsta uppgjörið við Fram Valskonur urðu í gær Reykjavíkurmeistarar kvenna eftir 21-17 sigur á Fram í úrslitaleik mótsins sem fór fram í Vodafone Höllinni. Þetta kom fram á heimasíðu Handknattleikssambandsins. 12.9.2012 16:30
Mörkin í leik Belgíu og Íslands Íslenska U-21 árs landsliðið fékk mikinn skell, 5-0, í lokaleik sínum í undankeppni EM í Belgíu. Íslenska liðið vann aðeins einn leik í undankeppninni. 12.9.2012 15:45
Aguero: City getur vel unnið Real Madrid Argentínumaðurinn Sergio Aguero óttast það ekki að mæta Real Madrid í Meistaradeildinni og segir að Man. City sé með nógu gott lið til þess að vinna spænsku meistarana. 12.9.2012 15:00
Jordan hættir að skipta sér af öllu hjá Bobcats Það hefur lítið gengið hjá Charlotte Bobcats síðan Michael Jordan varð eigandi félagsins árið 2010. Töfrar Jordan hafa ekki smogið inn í liðið sem uppskar lélegasta árangur í sögu NBA á síðasta tímabili. 12.9.2012 14:15
Valencia: Dómarinn er trúður Antonio Valencia, landsliðsmaður Ekvador og leikmaður Man. Utd, var brjálaður út í dómarann í landsleik Ekvador og Úrúgvæ. Valencia fékk rauða spjaldið í leiknum. 12.9.2012 13:30
Ekki stuðningsmönnum Liverpool að kenna Það urðu vatnaskil í Hillsborough-málinu svokallaða í dag þegar David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, bað aðstandendur þeirra 96 fórnarlamba Hillsborough-slyssins opinberlega afsökunar fyrir hönd ríkisins. 12.9.2012 13:07
Van Gaal: Verð hálshöggvinn ef mér mistekst Hinn nýi landsliðsþjálfari Hollands, Louis van Gaal, er ánægður með byrjunina hjá liðinu í undankeppni HM en segist einnig gera sér grein fyrir afleiðingunum gangi liðinu ekki vel. 12.9.2012 12:30
Arbeloa: Leikmenn efast ekki um heilindi Ronaldo Sirkusinn í kringum óánægju Cristiano Ronaldo heldur áfram. Samt veit enginn enn af hverju hann er svona rosalega óánægður. 12.9.2012 11:45