Fleiri fréttir

Steinþór og Stefán Logi inn í A-landsliðið

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum sem hann tilkynnti í gær fyrir vináttulandsleik á móti Ísrael sem fer fram í Tel Aviv 17. nóvember næstkomandi.

Solskjær tekinn við Molde

Norska úrvalsdeildarfélagið Molde tilkynnti í dag að Ole Gunnar Solskjær hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri liðsins.

Darren Bent missir af enn einu tækifærinu

Darren Bent, framherji Sunderland, mun missa af vináttulandsleik Englendinga og Frakka sem fer fram í næstu viku en hann meiddist aftan í læri á æfingu á föstudaginn. Bent missti af leik Sunderland um síðustu helgi og verður frá í þrjár vikur vegna meiðslanna.

Didier Drogba með malaríu

Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að Didier Drogba hafi greinst með malaríu en Drogba kvartaði undan slappleika fyrir Liverpool-leikinn um helgina og byrjaði þess vegna á bekknum í leiknum.

Formaður KSÍ: Erum nokkuð heppnir

Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir að Ísland hafi verið nokkuð heppið þegar dregið var í riðla í úrslitakeppni EM U-21 landsliða í dag.

Roeder varar Capello við Carroll

Glenn Roeder, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, hefur varað við því að Andy Carroll fái að spila með enska landsliðinu gegn Frökkum í næstu viku.

Houllier og Carew semja frið

Svo virðist sem að þeir Gerard Houllier, stjóri Aston Villa, og leikmaðurinn John Carew hafi samið frið þegar þeir hittust á fundi í gær.

Button: Ránstilraunin eins og Hollywood mynd

Formúlu 1 meistarinn Jenson Button hjá McLaren slapp ásamt föður sínum og öðru föruneyti undan mönnum sem ætluðu að gera ránstilraun í grennd við Formúlu 1 mótið í Brasilíu á laugardaginn. Button segir lögreglumann sem ók brynvörðum hafa sýnt mikið snaræði. Nokkrir vopnaðir menn gerðu sig líklega til að gera atlögu að bíl sem Button var í á leið á hótel sitt eftir tímatökuna á laugardaginn.

Chelsea íhugar að fara frá Stamford Bridge

Enska blaðið Guardian greinir frá því í dag að forráðamenn Chelsea íhugi nú að hætta að spila á Stamford Bridge og byggja nýjan leikvang í Earls Court-hverfinu í Lundúnum.

Eigandi Red Bull á móti því að hagræða úrslitum í titilsókn

Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull fyrirtækisins sem á Red Bull Formúlu 1 liðið segist vera mótfallinn því að hafa áhrif á úrslitin í lokamótinu í Abu Dhabi, til að tryggja öðrum ökumanni liðsins meistaratitilinn. Hann segir frekar vilja að Þeir fái annað sætið, en að beita liðsskipunum til að landa meistaratitli ökumanna í lokamótinu næsta sunnudag í Abu Dhabi.

Arsenal áfrýjar brottvísun Koscielny

Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Arsenal hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Laurent Koscielny fékk í leik liðsins gegn Newcastle um helgina.

Alonso dugar fjórða sætið ef Vettel vinnur, en annað ef Webber sigrar

Tölfræðingar og spekingar spá mikið í möguleika Formúlu 1 ökumanna í lokamótinu í Abu Dhabi um næstu helgi og Ferrari menn hafa tekið þá afstöðu að rýna ekki í tölfræðina, því hægt er að reikna málin á marga vegu og reyna að sigra lokamótið. Alonso á Ferrari er efstur í stigamótinu, en fjórir ökumenn eiga möguleika á titlinum.

Inzaghi íhugar að fara frá Milan

Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist gjarnan fá að vilja spila meira en hann hefur fengið að gera með Milan undanfarið.

Tevez vildi fá Rooney til City

Carlos Tevez segir að hann hefði gjarnan viljað fá Wayne Rooney til Manchester City þegar það leit út fyrir að sá síðarnefndi myndi fara frá Manchester United. Þessi lið mætast einmitt í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Moyes og van der Vaart bestir í október

Þeir David Moyes, stjóri Everton, og Rafael van der Vaart, leikmaður Tottenham, voru í gær valdir bestir á sínu sviði í ensku úrvalsdeidlinni fyrir októbermánuð.

NBA í nótt: Dallas stöðvaði Boston

Dallas Mavericks stöðvaði sigurgöngu Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með tveggja stiga sigri í leik liðanna, 89-87.

Buffon: Fer ekki til Manchester United

Gianluigi Buffon ætlar ekki að fara frá Juventus og ganga til liðs við Manchester United. Þetta segir hann við ítalska fjölmiðla í dag.

Rúrik fór útaf meiddur eftir aðeins 17 mínútur

Rúrik Gíslason spilaði aðeins fyrstu 17 mínúturnar í 1-0 sigri OB á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í Óðinsvéum í kvöld. OB er eftir þennan sigur í 4. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Bröndby en lakari markatölu.

Hlynur með á ný en Sundsvall tapaði

Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru báðir með Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en tókst ekki að koma í veg fyrir sautján stiga tap liðsins á útivelli á móti LF Basket, 94-77.

Eyjólfur samningslaus hjá GAIS

Eyjólfur Héðinsson er nú að ljúka sínum samningi við sænska úrvalsdeildarfélagið GAIS. Tímabilinu lauk um helgina og slapp GAIS naumlega við fall úr deildinni.

Davids farinn frá Crystal Palace

Hollendingurinn Edgar Davids er farinn frá Crystal Palace eftir stutta dvöl hjá félaginu. Hann er 37 ára gamall og gekk til liðs við félagið í ágúst síðastliðnum.

Ronaldo fær skaðabætur

Breska dagblaðið Daily Telegraph hefur komist að samkomulagi við Cristiano Ronaldo um að greiða honum umtalsverðar skaðabætur vegna fréttar sem blaðið birti um hann.

Sigfús Sigurðsson í Emsdetten

Sigfús Sigurðsson hefur ákveðið að ganga til liðs við þýska B-deildarliðið Emsdetten sem Patrekur Jóhannesson þjálfar.

Grétar samdi við Keflavík

Grétar Ólafur Hjartarson hefur gert eins árs samning við Keflavík. Þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við fréttastofu.

Kuyt ánægður fyrir hönd Torres

Dirk Kuyt segir að allir leikmenn Liverpool höfðu fulla trú á því að Fernando Torres myndi komast aftur í sitt besta form en hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri liðsins á Chelsea um helgina.

Ferrari stefnir á titilinn með sigri í lokamótinu

Stefano Domenicali yfirmaður hjá Ferrari segist ekki ætla að reikna út alla hugsanlega möguleika sem kunna koma upp varðandi titilmöguleika Fernando Alonso hjá Ferrari í keppni Formúlu 1 ökumanna í lokamótinu í Abu Dhabi um næstu helgi.

Chelsea á eftir Phil Jones

Chelsea telur sig hafa fundið eftirmann John Terry í Phil Jones, leikmanni Blackburn. Jones hefur vakið athygli margra liða fyrir frammistöðu sína með liðinu.

Grétar Rafn í úrvalsliði Sky og Soccernet

Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson er í úrvalsliði helgarinnar hjá vefmiðlinum Soccernet og hann er einnig í úrvalsliði vikunnar hjá Sky. Grétar skoraði eitt marka Bolton í 4:2 sigri liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Wiese skammast sín fyrir tapið

Tim Wiese, markvörður Werder Bremen, skammast sín fyrir tap liðsins fyrir Stuttgart um helgina en Wiese mátti hirða knöttinn sex sinnum úr eigin marki.

Sjá næstu 50 fréttir