Fleiri fréttir

Guðjón: Kom mér ekki á óvart

Guðjón Þórðarson sagði í viðtali í hádegisfréttum á Stöð 2 að sú ákvörðun stjórnar ÍA að rifta samningi hans hafi ekki komið honum á óvart.

Bjarni: Eitthvað þurfti að gera

„Það er ekki mitt að taka ákvörðun um þetta en ljóst er að eitthvað þurfti að gera," sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði ÍA, um þjálfarabreytinguna hjá liðinu. Guðjón Þórðarson var látinn taka pokann sinn og Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru að taka við liðinu.

Bjarki: Þetta er mikil áskorun

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru að taka við þjálfun ÍA. Þeir funda með Skagamönnum í hádeginu og það er fátt sem getur komið í veg fyrir að þeir taki við liðinu að sögn Bjarka.

Chech skrifar undir nýjan samning

Petr Cech, markvörður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Þessi 26 ára leikmaður verður því á Stamford Bridge til 2013.

Grindavík fær slóvenskan miðjumann

Grindavík hefur fengið slóvenska miðjumanninn Aljosa Gluhovic frá Hetti. Gluhovic er fæddur 1985 og hefur leikið með Hetti í 2. deildinni síðustu tvö tímabil.

Guðjón Þórðarson rekinn frá ÍA

ÍA hefur fengið leyfi frá FH til að ræða við Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni um að taka við þjálfun liðsins. Guðjón Þórðarson hefur verið rekinn vegna dapurs árangurs á tímabilinu.

Behrami á leið til West Ham

Gianluca Nani, yfirmaður íþróttamála hjá West Ham, hefur staðfest að félafið sé að landa svissneska varnarmanninum Valon Behrami frá Lazio. Alan Curbishley heillaðist af Behrami á Evrópumótinu í sumar.

Makelele seldur til PSG

Miðjumaðurinn Claude Makelele hefur verið seldur frá Chelsea til Paris St. Germain í Frakklandi. Makelele er 35 ára en hann hefur verið hjá Chelsea í fimm ár, síðan hann var keyptur frá Real Madrid.

Brann tapaði fyrir Álasundi

Það urðu óvænt úrslit í norska boltanum í gær. Brann tapaði þá 1-2 á heimavelli fyrir Álasundi en fyrir leikinn hafði Álasund tapað í 12 útileikjum í röð.

Blikar völtuðu yfir Skagamenn

Tveir leikir voru á dagskrá í Landsbankadeild karla í kvöld. Breiðablik valtaði yfir ÍA 6-1 í Kópavogi og FH vann 4-0 sigur á botnliði HK í Hafnarfirði. Það er því ljóst að útlitið skánar lítið hjá botnliðunum tveimur.

Þjóðverjar á Ólympíuleikana

Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld síðasta sætið á Ólympíuleikana með 96-82 sigri á Portó Ríkó í baráttunni um þriðja og síðasta sætið í undankeppni leikanna.

Marca segir Robinho hafa farið fram á sölu

Spænska blaðið Marca hefur eftir Brasilíumanninum Robinho að hann vilji fara frá Real Madrid og segir Chelsea þegar komið í lauslegar viðræður við umboðsmann hans.

Sigurður segist ekki hafa þurft lögreglufylgd

Sigurður Jónsson þjálfari Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kveðst ekki hafa þurft lögreglufylgd af æfingu í gær eins og fram kemur í sænskum fjölmiðlðum í dag.

Boltavaktin á leikjum kvöldsins

Tveir leikir eru á dagskrá í Landsbankadeild karla í kvöld. FH tekur á móti botnliði HK í Kaplakrika og Breiðablik tekur á móti næstneðsta liðinu, ÍA. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15 og hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi.

Indriði skoraði fyrir Lyn

Þrír leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Indriði Sigurðsson skoraði fyrsta mark Lyn þegar liðið lagði Stomsgodset 3-2 á heimavelli.

Ferguson: Neville er ótrúlegur

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist gáttaður á vel heppnaðri endurkomu bakvarðarins Gary Neville inn í liðið eftir 16 mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Harrington varði titilinn á opna breska

Írski kylfingurinn Padraig Harrington vann í dag sigur á opna breska meistaramótinu í golfi annað árið í röð. Harrington lék lokahringinn í dag á 69 höggum og endaði á þremur höggum yfir pari - fjórum höggum á undan Englendingnum Ian Poulter.

Knattspyrnuheimurinn er rotinn

Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, dregur upp ófagra mynd af knattspyrnuheiminum í samtali við News of the World í dag. Hann segir knattspyrnuna vera að rotna í spillingu og sýndarmennsku.

Guardiola ætlar ekki að selja Eið Smára strax

Ólíkt því sem gefið hefur verið til kynna í fjölmiðlum á Englandi og Spáni er Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Barcelona, ekki búinn að ákveða að Eiður Smári Guðjohnsen skuli seldur frá félaginu sem fyrst.

Ginobili í ÓL hóp Argentínumanna

Bakvörðurinn Manu Ginobili hefur verið valinn í 12 manna landsliðshóp Argentínumanna fyrir Ólympíuleikana í Peking. Þessi tíðindi vekja væntanlega litla hrifningu forráðamanna San Antonio Spurs í NBA deildinni, en Ginobili hefur átt við meiðsli að stríða.

Keane og Berbatov ættu að yfirgefa Tottenham

Les Ferdinand, fyrrum framherji Tottenham, segir að þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov ættu að stökkva á tækifærið til að komast frá félaginu ef það gefst.

Drogba fór ekki með Chelsea til Malasíu

Framherjinn Didier Drogba fór ekki með félögum sínum í Chelsea í æfingaferð til Malasíu en verður þess í stað eftir á Englandi í endurhæfingu eftir hnéuppskurð.

Madsen frá keppni í nokkrar vikur

Danski markvörðurinn Esben Madsen hjá ÍA getur ekki leikið með liði sínu í kvöld þegar það sækir Breiðablik heim í Landsbankadeildinni. Madsen er handarbrotinn og verður frá keppni í nokkrar vikur. Þetta kom fram á fotbolti.net í dag.

Hamilton sigraði á Hockenheim

Lewis Hamilton á McLaren náði í dag fjögurra stiga forskoti í keppni ökuþóra þegar hann sigraði í Þýskalandskappakstrinum í Formlúlu 1. Þetta var fjórði sigur Hamilton á heimsmeistaramótinu í ár.

Ronaldo: Ég er alltaf á tánum

Cristiano Ronaldo neitar að lofa því að hann verði leikmaður Manchester United á næstu leiktíð líkt og forráðamenn félagsins hafa haldið fram í fjölmiðlum síðustu daga.

Sigurður þurfti lögreglufylgd af æfingu

Sigurður Jónsson þjálfari Djurgarden í Svíþjóð fékk lögreglufylgd af æfingu í gær eftir að reiðir stuðningsmenn liðsins ruddust inn á svæðið.

Blikar og FH í góðum málum í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem fram fara í Landsbankadeildinni í kvöld. Það stefnir í náðugt kvöld hjá Breiðablik og FH sem hafa örugga forystu gegn ÍA og HK.

Ævintýrið heldur áfram hjá Norman

Greg Norman hefur tveggja högga forystu fyrir lokadaginn á opna breska meistaramótinu í golfi. "Hvíti hákarlinn" lék á tveimur höggum yfir pari í dag eða 72 höggum, en mikill vindur gerði kylfingum erfitt fyrir.

Guðni Rúnar hættur hjá Fylki

Guðni Rúnar Helgason og knattspyrnudeild Fylkis komust í dag að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið og er hann því laus allra mála. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Auðvitað verður Adebayor áfram

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist reikna með því að framherjinn Emmanuel Adebayor verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð þrátt fyrir að vera mikið orðaður við stærstu knattspyrnufélög Evrópu.

Stelpurnar sigruðu í C-deildinni

Íslenska U-16 ára landslið kvenna í körfubolta vann í dag sigur í C-deild Evrópumótsins í körfubolta. Liðið vann stórsigur á Albönum í úrslitaleik 74-41.

Chelsea með risatilboð í Robinho?

Umboðsmaður Brasilíumannsins Robinho hjá Real Madrid segir að Chelsea hafi gert Real hátt í 32 milljón punda kauptilboð í leikmanninn.

Lítill meistarabragur á United í Afríku

Manchester United varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn Kaizer Chiefs í fyrsta leik sínum á Vodacom Challenge mótinu í Suður-Afríku í dag.

Jafnt hjá Val og Keflavík

Keflavík og Valur skildu jöfn 1-1 í toppslagnum í Landsbankadeild karla á Vodafonevellinum í dag. Keflvíkingar náðu forystu eftir rúmar tuttugu mínútur með marki Hólmars Rúnarssonar en markahrókurinn Helgi Sigurðsson jafnaði fyrir Valsmenn þegar 12 mínútur lifðu leiks.

Átta marka sigur Íslands

Íslenska handboltalandsliðið vann átta marka sigur á Spáni 35-27 í Vodafone-höllinni í dag.

Hamilton: Eins og að vera á knattspyrnuleik

Lewis Hamilton var að vonum ánægður með að ná ráspól í þýska kappakstrinum þegar hann náði besta tímanum í tímatökunum í dag. Hann segir stemminguna á Hockenheim frábæra.

Kaka er ekki til sölu

Forráðamenn AC Milan á Ítalíu voru ekki lengi að svara fullyrðingum umboðsmanns Kaka frá í dag þegar hann lýsti því yfir að miðjumaðurinn hefði áhuga á að fara til Chelsea á Englandi.

Hamilton á ráspól á Hockenheim

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren verður á ráspól í þýska kappakstrinum á Hockenheim á morgun. Hamilton stal fyrsta sætinu af Felipe Massa á elleftu stundu í tímatökunum í dag.

Rosicky missir af fyrstu leikjum Arsenal

Miðjumaðurinn Tomas Rosicky hjá Arsenal mun missa af fyrstu leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni, en hann fór í hnéuppskurð í maí í vor. Hann hafði vonast til að ná fyrsta leik liðsins í úrvalsdeildinni gegn West Brom þann 16. ágúst en nú er ljóst að hann nær því takmarki ekki.

Steven Gerrard meiddur

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun líklega missa af æfingaleik liðsins við Hertha Berlin í næstu viku eftir að hafa meiðst á nára á æfingu með liði sínu. Liverpool er nú við æfingar í Sviss, en Gerrard hefur verið sendur heim og verður frá keppni í viku til tíu daga.

Hoyzer laus úr fangelsi

Fyrrum knattspyrnudómarinn Robert Hoyzer var í gær látinn laus úr fangelsi eftir að hafa tekið þátt í stærsta knattspyrnuhneyksli Þýskalands á síðustu þrjátíu árum.

Hermann skoraði fyrir Portsmouth

Hermann Hreiðarsson var á skotskónum í gær þegar Portsmouth sigraði Swindon 3-1 í æfingaleik á County Ground. Swindon komst reyndar yfir í leiknum en Hermann Hreiðarsson skoraði jöfnunarmark Portsmouth.

Sjá næstu 50 fréttir