Íslenski boltinn

Guðni Rúnar hættur hjá Fylki

Guðni Rúnar Helgason og knattspyrnudeild Fylkis komust í dag að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið og er hann því laus allra mála. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Guðni er 32 ára gamall og hefur leikið með Fylki síðan árið 2004. Hann hefur ekki komið við sögu í síðustu leikjum Fylkis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×