Íslenski boltinn

Jafnt hjá Val og Keflavík

Helgi Sigurðsson skoraði sitt sjötta mark í deildinni
Helgi Sigurðsson skoraði sitt sjötta mark í deildinni Mynd/Stefán

Keflavík og Valur skildu jöfn 1-1 í toppslagnum í Landsbankadeild karla á Vodafonevellinum í dag. Keflvíkingar náðu forystu eftir rúmar tuttugu mínútur með marki Hólmars Rúnarssonar en markahrókurinn Helgi Sigurðsson jafnaði fyrir Valsmenn þegar 12 mínútur lifðu leiks.

Skömmu eftir að Helgi jafnaði metin var Baldri Aðalsteinssyni vikið af leikvelli fyrir brot og heimamenn því manni færri. Keflvíkingar sóttu án afláts á lokamínútunum og áttu m.a. tvö skot í marksúlurnar, en tókst ekki að tryggja sér sigur. 

Keflvíkingar eru því enn á toppi deildarinnar og hafa hlotið 26 stig, en FH er í öðru sæti með 22 stig og á leik til góða. Valsmenn eru í fjórða sæti með 20 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×